Dagur - 12.02.1966, Blaðsíða 8
8
Fannfergi á Öxnadalslieiði. sem
enn er alveg ófær
„Barningur“ enn á flestum landleiðum ])ó fær-
ar séu kallaðar, segir vegaverkstjórinn
a'
DALVÍKURLEIÐIN er nú orði
in fær jeppum og trukkum,
ófært með öllu yfir Vaðlaheiði/
um Dalsmynni, og ofanverðan
Oxnadal og Öxnadalsheiði ev
einnig ófært ennþá, sagði vega-
verkstjórinn Guðmundur Bene-;
diktsson blaðinu í gær.
í gær voru menn og tæki vega
gerðarinnar á leiðinni í Bakka-
sel og vonast til, að þeir næðu
þangað í gærkveldi í fyrstu um
ferð. En framantil í Öxnadal er
snjór mikill og fannkyngi á
Öxnadalsheiði, sem óvíst er
hvenær verður bílfær. Þó mun,
ef veður haldast stillt, verða
reynt að opna heiðina. Hve lang
NÚ Á EKKI AÐ BIÐJA
GUÐ UM LÍTIÐ
Hrísey 11. febr. Hér er sól og
blíða og mjög bjart, enda mik-
ill snjór fyrir blessaða sólina að
skína á. Ekki er hægt að segja,
að farið hafi verið á sjó. Einn
lagði þó línu og fékk ekkert og
annar er búinn að leggja þorska
net.
í tvo mánuði hefur grásleppu
veiði verið undirbúin af kappi,
enda á nú ekki að biðja Guð
um lítið í því efni. Menn svara
naumast þó á þá sé yrt, nema
minnzt sé á grásleppu eða
hrogn.
Enginn hefur enn lagt hrogn-
kelsanet, enda var það trú
manna, að rauðmagi gengi ekki
að landi fyrr en snjór væri horf
inn úr fjöru og bökkum. En nú
liggur snjórinn í sjó fram og sér
hvergi á dökkan díl. Þ. V.
HROGNKELSAVEIÐI
gn tírpa, það tekur, er ekki unnt
að segja. En frá Reykjavik og
norður í.Bkagafjörð er vel fært
bifreiðum.
Frá Krossi til Húsavíkur er
sæmilegt trukkfæri og jeppa og
fram í Bárðardal er fært nokk-
K 1 ): I
uð fram eftir dalnum, að vestan.
í Mýyatnssveit er fært innan-
svs5itarven. frá Mývatnssveit og
niðMr í Reykjadal er mikill
snjór. Stórfenni er víða á Tjör-
nesi og. er verið að reyna að
gera dráttarvélum fært að kom-
ast með nauðsynjar.
Hörgárdalur er slarkfær stór
um bílum. í Silfrastaðafjalli eru
stórhættulegir svellbunkar.
Til Grenivíkur er fært jepp-
um og trukkum.
Allvíða hafa hlaðizt upp svell
bunkar á vegum. Þeir eru hinir
ei-fiðustu farartálmar og reyn-
ast oft hættulegri en í fljótu
bragði virðist. Saltið er einna
auðveldast til notkunar því
venjuleg vegagerðartæki- vinna
lítið á svellinu. En fyrir hefur
komið, að vegagerðin hefur orð
ið bótaskyld vegna búfjárslysa
af saltáti, þar sem saltið hefur
verið notað á vegi. Hefur hún
því ekki notað saltið nú í vetur.
Tímakaup 1939-1965
f NYLEGUM Hagtíðindum er skýrsla um meðal tímakaup
á ári við verkamannavinnu í Reykjavík undanfarin 27 ár,
þ. e. frá 1939—1965 að báðum árum meðtöldum.
Hér fer á eftir meðal tímakaup nokkurra ára úr skýrsl-
unni til minnis fyrir þá, sem bera vilja saman tölur á breyt-
ingatímanum:
Árið 1939 meðal tímakaup .......... kr. 1.45
Árið 1943 meðal tímakaup............kr. 5.62
Árið 1946 meðal tímakaup............kr. 7.92
Árið 1949 meðal tímakaup .......... kr. 9.20
Árið 1952 meðal tímakaup............kr. 14.30
Árið 1958 meðal tímakaup............kr. 21.30
Árið 1961 meðal tímakaup .......... kr. 23.12
Árið 1965 meðal tímakaup.......... kr. 40.21
Hér er um að ræða lágmarks dagvinnukaup Dagsbrúnar
að viðbættu orlofi, styrktarsjóðsgjaldi og dýrtíðaruppbót.
Þess er einnig að geta, að dagvinnutíminn hefur stytzt á
þessu tímabili. Á árinu 1965 varð nokkur breyting til hækk-
unar. í byrjun janúar var tímakaupið kl. 36.52 en í byrjun
desember kr. 44.32, en árs-meðalkaupið er kr. 40.21. Q
Leiguflug Norðurflugs
jóksf um 50% á sl. ári
HAFIIV A DALVIK
Dalvík 11. febr. Fimm bátar eru
famir á vertíð og aðeins Björg-
vin eftir. Væntanlega fer hann
á veiðar nú um helgina og legg-
ur hann upp hér á Dalvík.
Nokkrir minni bátar hafa róið
en aflinn er lítill, 1000 pund í
róðri eða svo.
Byrjað er að veiða rauðmaga
og hafa menn ennþá fá net í
sjó, en sæmilega vel hefur afl-
ast, miðað við árstíma. Einn
fékk t. d. 40 stykki í gær.
Bændur koma með mjólk á
dráttarvélum framan úr dölun-
um, fara gamla ýtuslóð, því ekki
er bílfært ennþá. En vegurinn
til Akureyrar var opnaður i
gær. J. H.
FISKLAUS BÆR
AKUREYRINGAR þurfa 3-4
tonn af nýjum fiski á dag eða
meira, en fá nú engan vegna
aflatregðu í næstu verstöðvum.
Um daginn kom ofurlítið af
fiski frá Húsavík — flugleiðis —
og bragðaðist vel. □
STARFSEMIN hjá Norðurflugi
á Akureyri jókst verulega á síð
asta ári. Sjúkraflug urðu 77 tals
ins, hið síðasta í fyrradag.
Sjúklingar voru sóttir til 20
staða og farið með flesta þeirra
til Akureyrar. Til sjúkraflugs-
in var sjúkraflugvélin mest not
lið eins og áður, en einnig
Beechcraft-vél, sem tekur tvær
‘ ■ r ■
sjúkrakörfur. Þeirri vél verður
breytt m.a. þannig að dyr verða
stækkaðar svo auðveldara verð
ur pð koma fyrir sjúkrakörfum
og.þðru því, sem flytja þarf. Þá
verðúr yéJin hraðfleygari eftir
þessa breytingu og burðarþol
hennar meira. Þessa vél hefur
verið hægt að nota í sjúkraflug
í mjög vondu veðri og hefur það
komið sér vel.
Þá hefur Norðurflug annazt
hverskonar leiguflug og hefur
sá þáttur aukizt um 50% á síð-
asta ári, enda fluttir á þriðja
þúsund farþegar. Þá hefur
Norðurflug annazt síldarleit, og
flugskóli hefur starfað allt ár-
ið, en kennsluvél aðeins verið
ein.
Auk Tryggva Helgasonar flug
manns og framkvæmdastjóra,
eru tveir fastráðnir flugmenn
hjá Norðurflugi og einn flug-
vlrki. Þá eru tveir Akureyring-
ar í flugvirkjanámi erlendis á
vegum Norðurflugs og koma
hingað til starfa að námi loknu.
Norðurflug er eina flugfélag-
ið á landinu, sem staðsett er
utan Reykjavíkur. Starfsemi
þess hefur gengið vel. □
Egilsstöðum 10. febr. Undan-
farna daga hefur verið unnið að
því, að ryðja snjó af vegum í
héraðinu. Frá Egilsstöðum er
nú bílfært um Eiðaþinghá, út í
Eiða, um Velli, Skóga og til
Fljótsdals og eitthvað norður
um Tungu
1 dag er verið að leggja slóð
fyrir snjóbíl yfir Fjarðarheiði
en ekki hugsað til þess að ryðja
snjó af veginum að svo komnu,
enda er þar kominn feiknaleg
snjódyngja. Yfir Fagradal
ganga snjóbílar daglega og hald
Bögglageymsla KEA llult
BÖGGLAAFGREIÐSLA KEA
tók til starfa fyrir nær
25 árum síðan í þeim húsa-
kynnum sem hún hefur síðan
verið í við Kaupvangsstræti.
Hún hefur fyrst og fremst
véríð afdrep og samastaður
fólks úr nágrannasveitum og
héruðum Akureyrar, sem kom-
ið ‘ íhefur til bæjarins í lengri
eða styttri erindagjörðum.
Þetta fólk hefur þar noíið húsa
skjóls í misjöfnum veðrum,
geymt þar farangur sinn og
pinkla í 'umsjá tveggja af-
greiðslumanna, haft aðgang að
síma o. fl. Au'k þess hafa allar
mjólkurbifreíðirnar, sém til Ak
ureyrar áka, líáft þar aígreiðslu
fyrir flutning sinn hvort sem
um fólk eða vörur er að ræða.
í dag eru þær'úm 15 talsins.
Kaupfélagið •hefur rrú ltskið
(Framhald á blaðsíðu 7.)
SMÁTT OG STÓRT
LENGI ER SOFIÐ
Námsstjórinn á Norðurlandi,
Valgarður Haraldsson, gaf ýms-
ar athyglisverðar upplýsingar í
glöggri blaðagrein í síðasta
Degi. Segir hann, að of lengi
hafi verið sofið á verðinum, og
að Norðlendingar hafi ekki ver-
ið, þess nægilega minnugir,
hverjir hafa eigi frumkvæði um
úrbæíur.
37 SKÖLAHVERFI HÚS-
NÆÐISLAUS
Námsstjórinn segir, að skóla-
hverfi á Norðuríandi séu 64, en
aðeins í 15 þeirra sé fræðslu-
skyldu fullnægt til 15 ára
aldurs, en í 49 skólahverfum fer
kennsla fram með undanþágum
frá fræðslulögunum og 37 skóla
hverfi norðanlands hafa ekkert
skólahúsnæði fyrir starfsemi
sína. En kennsla fer fram í fé-
lagshehnilum og ibúðarhús-
næði. Mikil verkefni er hér
framundan, sem verður að
leysa.
HERSTÖÐVAR Á TUNGLINU
Nú eru hemaðarsérfræðingar
farnir að skipuleggja herstöðv-
ist veður sæmileg verður bráð-
lega hafizt handa með að opna
þá leið til almennrar umferðar,
enda mikil nauðsyn á því vegna
flutningaþarfar til Héraðs.
Snjóalög eru nú jafnari á
Héraði en menn eiga að venjast.
Venjulega er snjólítið í Fljóts-
dal og Jökuldal, þótt mikið
fannkyngi væri út um hérað.
Nú er svipaður snjór á Upp-
Héraði. Hvarvetna er haglaust.
Krakkar nota nú skíði sín, en
þó minna en í mínu ung-
dæmi. V. S.
ar á tunglinu. Þetta fullyrti
rússneskur fulltrúi á afvopnun-
arráðstefnunni í Genf sl. þriðju
dag, að því er opinberar fregn-
ir herma.
„RÍKA EKKJAN“ SVIÐSETT
A NÝ
Sunnanblað minnist revíunnar
um ríku ekkjuna, sem stjómar-
völdin hér á landi sendu full-
trúa sinn til að krækja í'erlend-
is, til að bjarga fjárhag þjóðar-
innar. Með þessu var verið að
skopast að afglöpum ríkisstjórn
arinnar, fært í gamansaman
búning. Þetta gamla revíuatriði
hefur mönnum nú dottið í liug
í sambandi við núverandi stjórn
arstefnu.
BRÚÐKAUPFRAMUNDAN?
Stjómin glataði trúnni á ís-
Ienzka atvinnuvegi, segir blað-
ið, og á kosti lands og miða.
Hún gerði uppgjafasamning við
Breta í landhelgismálinu og
skuldbatt sig þess að færa ekki
út landhelgina, nema spyrja þá
um leyfi. Stjómin hleypti sjón-
varpinu yfir þjóðina, erlendu
dáíasjónvarpi — og lagði svo út
í Iönd til að finna einhvem loð-
inn um Iófana til að bjarga —.
í leitimar kom auðhringur og
er fús að reisa iðjuver á fslandi.
Þannig er hin nýja sviðsetning.
KLÚBBUR UNGA FÓLKSINS
Nú í vikunni hófu Sjálfstæðis-
menn á Akureyri starfsemi, sem
þeir ncfna Klúbb unga fólksins
og er hann til húsa í Sjálfstæðis
húsinu, þriðju hæð. Þar er sam-
komusalur og nokkrar aðrar
vistarvemr með leiktækjum fyr
ir ungt fólk. En klúbburinn mið
ar þátttöku við 16 ára fólk
og eldra. Við opnun klúbbsins
fluttu xmgir SjáJfstæðismenn
ávörp og síðan var dansað og
(Framhald á blaðsíðu 7.)