Dagur - 26.02.1966, Side 2
2
GOLFVÖLLUR VIÐ JAÐAR
<$>3>^$>3><$><$><S><S><S><S><S><í><S><S><$>$*S'$><S><M><í><í*S><í*5><$><$>S><$><$>^^
jALMANNATRYGGINGAÞÆTTIR
- 10 -
<$K$>$K$K$<$><$X$>$X$>$>$>$>$><$X$>$><$>$*$X$X$X$>$X$><$X$X$X$>$>$X$>$>$><$X$X$X$X$^^
SLYSAÖRORKULÍFEYRIR OG SLYSA-
ÖRORIÍUBÆTUR
AÐALFUNDUR Golfklúbbs Ak
ureyrar var haldinn að Hótel
KEA sunnudaginn 6. febrúar. —
Formaður klúbbsins, Hafliði
Guðmundsson setti fundinn og
stjórnaði honum.
Formaður gaf skýrslu um
störf klúbbsins á liðnu ári og
snerist hún að langmestu leyti
um hinn nýja golfvöll, sem Golf
klúbbur Akureyrar hyggst
koma sér upp og gat formaður
þess meðal annars að bæjar-
stjórn Akureyrar hefði veitt
200 þúsund krónur til golfvall-
argerðar að Jaðri, fyrir árið
1966.
Á aðalfundinum var Gunna_r__
Schram, einn af stofnendum
klúbbsins og jafnframt fyrsti
formaður hans, gerður að heið-
ursfélaga og er hann fyrsti heið-
ursfélagi Golfklúbbs Akur-
eyrar.
Gjaldkeri las upp reikninga
klúbbsins fyrir árið 1965 og kom
í ljós að halli hafði orðið á .
rekstrinum, sem nam kr. 13.100,
en þess ber þó að gæta að
nokkrar eignir komu í staðinn.
Þá fór fram stjómarkosning,
þar sem allir stjómarmeðlimir
frá árinu 1965 báðust eindregið
undan endurkosningu. Kosnir
voru eftirtaldir menn í stjórriii
Wúbbsins:
Formaður: Páll Halldórsson.
Ritari: Sævar Gunnarsson.
Gjaldkeri: Ólafur Stefánsson.
Meðstjórnendur: Hafliði Guð-
mundsson og Jón Guðmunds-'
son.
Hinn nýkjörni formaður þakk
aði traust það er honum og
hinni nýkjörnu stjórn hefði ver
ið sýnt og þakkaði fráfarandi
Úrslitaleikir í Hand-
knattleiksmóti Akur-
eyrar um helgina
NÚ UM helgina fara fram síð-
ustu leikirnir í Handknattleiks-
móti Akureyrar og fer keppnin
fram í Rafveituskemmunni og
hefst kl. 2 e. h. báða dagana.
Laugardagur 26. febr. kl. 2 e. h.
2. fl. kvenna Þór-a—Þór-b
2. fl. karla KA—ÍMA
4. fl. karla KA-a—KA-b
Mfl. karla Þór-a—Þór-b
Sunnudagur 27. febr. kl. 2 e. h.
2. f 1. kvenna KA-a—Þór-a
4. fl. karla KA-a—Þór
2. fl karla ÍMA—Þór
Mfl. karla KA—ÍMA
Skíðamót Akureyrar
REYNT verður að ljúka svig-
keppni Skíðamóts Akureyrar
um þessa helgi, en keppni í A,
B og C-flokki karla varð að
fresta um sl. helgi vegna veð-
urs. Keppnin fer fram við
Strompinn í Hlíðarfjalli. Q
stjórn fyrir vel unnin störf á
undanfarandi árum.
Fráfarandi formaður þakkaði
einnig samstjórnarmönnum sín-
um fyrir gott samstarf og ósk-
aði hinni nýju stjórn alls hins
bezta.
Ekki var fleira fyrir tekið og
fundi síðan slitið.
(F réttatilkynning.)
Meistaramót í innanhússíþróttum
STARFSEMI Frjálsíþróttaráðs
stendur nú með blóma og æfing-
ar sóttar af kappi. Góð aðstaða
skapaðist við tilkomu Rafveitu-
skenrmunnar og er nú mögu-
legt að æfa innanhúss margar
þær'greiitar er ekki var hægt
áður,
-—K-úluvarp, grindahl., kringlu-
kast og hástökk eru þær grein-
ar, sem nú má æfa með árangri
innanhúss en ekki var mögu-
legt áður. Kennari er ráðinn
Kjartan Guðjónsson, en hann
etyeíris og kunnugt er, einn af
beztu : frjálsiþróttamönnum
la.ndsins.
Æfingar á vegum Frjáls-
' íþrottaráðs eru nú fjórum sinn-
um í viku, inniæfingar á þriðju-
dögum og fimmtudögum, en úti
æfingar á mánudögum og laug-
ardögum.
í byrjun marz er fyrirhugað
að hafa Meistaramót Akureyrar
í innanhússíþróttum, og verður
þar keppt m. a. í hástökki með
og án atrennu, þrístökki án atr.
langstökki án atr. og kúluvarpi.
Keppt verður í sveina, drengja,
unglinga og fullorðinsflokkum.
Nánar verður getið um keppni
þessa í blöðunum síðar. Allir
þeir sem eru félagar í félögum
innan ÍBA er heimilt að stunda
æfingar hjá F.R.A. Upplýsingar
um æfingar og æfingatíma gef-
ur Hreiðar Jónsson íþróttavell-
inum, sími 1-27-22.
(Frá Frjálsíþróttaráði.)
Auknir farþegaflufningar á sl. ári
FAlpEGAFLUTNINGAR Eim
skipafélagsins jukust á árinu
1965 . og fluttu skip félagsins
fleiri farþega milli landa en
nokkru sinni fyrr á einu ári,
samtals 8.511 farþega.
M.s. „GULLFOSS", sem sigldi
éms -og undanfarin ár milli
Reykjavíkur, Leith og Kaup-
mannahafnar yfir sumartímann,
og milli Reykjavíkur, Hamborg
ar, Kaupmannahafnar og Leith
j>fir vetrarmánuðina, flutti
mestan. hluta farþeganna, sam-
ials 7.882 á móti 7.193 árið áður.
Nemur aukningin nær 10%.
Vöruflutningaskip félagsins
flu.ttu samtals 629 farþega, sem
er' aðeins lægri farþegatala en
árið áður. Farþegarými í vöru-
flutningaskipunum var og
nokkru minna á árinu, eftir að
m.si „TRÖLLAFOSS", sem
hafði farþegarými fyrir 12 far-
þega, var seldur úr landi seinni
hluta ársins 1964.
Aukningu farþegafjöldans
með m.s. „GULLFOSSI11 má
meðal annars rekja til hinna
ódýru vetrarferða til Hamborg
ax-, Kaupmannahafnar og Leith,
sem hafa veiúð mjög vinsælar
og mikil aðsókn að. Þá hefur
einnig orðið mikil aukning á
flutningum erlendra farþega
með skipinu milli Kaupmanna-
hafnar og Leith, og nemur aukn
ingin 23% á þeirri leið.
Skýrslur liggja ekki fyrir um
skiptingu fai-þega eftir þjóðerni,
en geta má þess, að sumarmán-
uðina er mikill hluti fai-þeganna,
sem fei-ðast með m.s. „GULL-
FOSS“, erlendir fex-ðamenn, og
margir erlendir ferðamannahóp
ar ferðast með skipinu á hverju
sumri, í þeim tilfellum, þegar
stórir erlendir feiðamannahóp-
ar fei’ðast með m.s. „GULL-
FOSSI“, stundum fleiri en einn
með. sömu ferð, panta þeir far
méð skipinu snemma vetrar
fljótt eftir að ferðaáætlunin kem
ur út og verða einstakar ferðir
því oft upnnantaðar löngu fyrir
EF SLYS í tryggðri vinnu veld-
ur örorku, greiðir Slysatrygg-
ingin örorkulífeyri. 75% öryrki
(eða meira) fær fullan lífeyri,
samskonar og hjá lífeyristrygg-
ingunni, sem áður hefir verið
sagt frá. 50% öryrki fær hálfan
lífeyri, en síðan bætast við 2%
fyrir hvert örorkustig upp að
75. Minni örorka en 50% er
bætt í lilutfalli við örorkuna, en
heimilt er Tryggingastofnun-
inni að greiða þær bætur í einu
lagi, eftir þar um settum regl-
um. Minna orkutap en 15% er
þó ekki bætt. Örorka er metin
af læknum Tryggingastofnunar
innar eftir skoðun eða læknis-
vottorðum.
Ef örorka er 75% eða meira,
greiðir slysatryggingin auk þess
maka og bömum hins slasaða
innan 16 ára, sömu bætur og
greiddar eru, þegar um dauða-
slys er að ræða.
Sé örorkan minni en 75%
lækka þær bætur um 4% fyrir
hvert örorkustig, sem vantar á
75% örorku.
fram. ViII Eimskipafélagið
vekja athygli þeirra, sem hug
hafa á farmiðum með skipinu,
á að bíða ekki með að tryggja
sér fai-miða. Einnig minnir fé-
lagið á, að vegna mikillar éftir-
spurnar eftir farmiðum í vetrar-
ferðum m.s. „GULLFOSS", —
„ódýru sumaraukaferðunum",
verður hver síðastur að tryggja
sér farmiða í marz- og aprílferð
unum, enda er það ekki óeðli-
legt, að fólk notfæri sér þessar
ótrúlega ódýru ferðir, sem
kosta aðeins frá kr. 4.670.00 fyr-
ir 16 daga ferð til Hamborgai’,
Kaupmannahafnar og Leith. í
fai’gjaldinu er allt innifalið,
fæði, þjónustugjald og gisting
um borð í skipinu meðan staðið
er. við í erlendum höfnum.
Vegna fjölmargra fyrirspurna
skal það sérstaklega tekið fram,
að fastákveðið er að skipið fari
til Hamborgar í öllum þeim fei’ð
um, sem það á ófarnar í vetur.
(Fr éttatilkynning.)
GJÖF TIL F.S.A.
HJÓNIN Petrea G. Konráðs-
dóttir og Tryggvi Helgason flug-
maður afhentu nýlega Fjói’ð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
kr. 25.000.00 að gjöf. Er þetta
stofnframlag að sjóði, Minning-
arsjóði Jóhanns M. Helgasonar,
sem er til minningar um hann,
Pétur og Stefán Hólm og Guð-
mund Kristófersson, en þeir
fórust með flugvél 4. janúar
1959. Öllum er heimilt að leggja
fram fé í sjóð þennan. Skal
sjóðnum varið til að bæta tækni
legan búnað við sjúkrahúsið.
Skal fyrsta verkefni sjóðsins
vera að koma upp fullkominni
sjálfvirkri vararafstöð fyrir
sjúkrahúsið. — Forráðamenn
Fjórðungssjúkrahússins þakka
þessa myndarlegu gjöf. □
DANARBÆTUR
EF SLYS veldur dauða innan frá slysatryggingunni, jafnháan
árs frá því að það bar að hönd- þeim, sem lífeyristryggingin
um, eru svonefndar dánarbæt- greiðir, nú kr. 12.983.28 á ári.
ur greiddar eftirlifandi ekkju Bam eldra en 16 ára, sem var á
börnum, foreldrum og systkin- framfæri hins látna, vegna ör-
um hins látna á þann hátt, sem orku, fær bætur í eitt skipti
tilgreint er í 37. gr. almanna- fyrir öll, lægstar nú kr. 38.640.31
tryggingalaganna. og hæstar kr. 115.921.90, eftir
Ekkja eða ekkill, seni var því að hve miklu leyti það naut
samvistum við liinn látna, eða stuðnings hins látna, þó ekki
á franifæri hans, fær, miðað við vegna minni örorku en 33%.
það, sem nú gildir, kr. 3091.26 á Systkini hins látna eiga sama
mánuði í 8 ár, og eins þó stofn- rétt og börn eldri en 16 ára, ef
að sé til hjúskapar að nýju. eins stendur á um örorku og
Deyi ekkjan eða ekkillinn, áð- stuðning af hans hálfu.
ur en þessum bótagreiðslunl Foreldri hins látna fær nú
lýkur, rennur afgangurinn til eigi minni bætur en kr. 38.640.83
bama og dánarbús. Ef ekkja og eigi meiri en kr. 115.921.90,
eða ekkill er 50 ára, eða meira eftir því, að hve miklu leyti það
eða a. m. k. 50% öryrki, greiðir naut stuðnings hins látna.
slysatryggingin að auki ekkju- Sérákvæði eru um það, að
lífeyri til 67 ára aldurs, þannig. samanlagðar bætur til ekkju,
að fullur lífeyrir, nú krónur samanlagðar bætur vegna ör-
28.192.20, er greiddur, ef lilutað- orku til bama eldri en 16 ára
eigandi var 65 ára eða 75% ör- og systkina- og foreldrabætur
’ yrki, er slysið varð, en lækkar skuli ekki vera lægri en kr.
síðan um 5% fyrir hvert ár eða 54.097.00 fyrir hvert slys.
brot úr ári og um 4% fyrir Nú eiga vandamenn ekki rétt
hvert stig, sem vantar á 75% til slysabóta og greiðir slysa-
örorku. Þessi lífeyrir fellur nið tryggmgin þá eigi að síður áður
ur, ef lífeyrisþeginn gengur í nefndar kr. 54.097.00, sem skipt
hjónaband. Dæmi: Ekkja er 60 ast milli barna en ganga clla til
ára, er maður hennar ferst af dánarbús.
slysi. Árlegur slysalífeyrir henn Fósturforeldrar og fósturböm
ar verður þá 75% af fullum líf- hafa sama rétt og foreldrar
eyri. Annað dæmi: Ekkja er (kjörforeldrar) og séu hvorir
60% öryrki, er maður liennar tveggja á lífi, foreldrar og fóst-
ferst. Árlegur slysalífeyrir urforeldrar, sker Trygginga-
hennar verður þá 40% af full- stofnin úr um, hverjum greiða
um lífeyri. Þriðja dæmi: Bkkja skuli dánarbætur.
er 45 ára og 45% öryrki er mað Frá dánarbótum til vanda-
ur hennar ferst. Hún fær 8 ára manna ber að draga örorkubæt-
slysalífeyrinn en enga viðbót ur, sem hinum látna kunna að
frá slysatryggingunni. hafa verið greiddar í einu lagi
Barn hins látna yngra en 16 áður en hann lézt.
ára fær greiddan barnalífeyri G. G. Framh.
Hláka í Danmörku
E. S. Kaupm.höfn 21. febr. 1966.
í DAG er 7 stiga hiti hér í Höfn
og hláka. Dálítill snjór er á Sjá-
landi, en allur snjór horfinn af
götum Kaupmannahafnai’. Tals-
verður snjór er sagður á Jót-
landi.
Þau tíðindi gerðust hér síð-
astliðna nótt að Gullfoss.lenti í
áreksti’i við ferjuna til Málm-
eyjar í þoku. Ferjan skemmdist
mikið og eitt barn slasaðist.
Gullfoss varð einnig fyrir nokkr
um skemmdum.
Mikið er um útsölur í verzl-
unum um þessar mundir til að
grynna á vörubirgðum verzlan-
anna. Víða er afsláttur 10% og
meiri. Þá er almenn bókaútsala
um land allt með lækkuðu
vei’ði og eru margar bækur
lækkaðar um meira en helming.