Dagur - 02.03.1966, Síða 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
,Verííðarþorskur' í Eyjafjarðará!
BÁTAR frá Dalvík, Árskógs-
strönd og Hrísey, sem lagt hafa
þorskanet, hafa undanfarna
daga fengið allgóðan afla, stór-
an „vertíðarþorsk“ í EyjafjarS-
arál. Auðunn frá Hrísey fékk
í vikunni 17 tonn eftir 7 daga
legu, í fyrradag 12 tonn og dag-
inn áður 6 tonn. Er þar um að
ræða 1—3 nátta fisk nema sá
aflinn, sem fyrst var nefndur.
í fyrradag fékk bátur frá Dal-
vík 12 tonn í 4 trossur, sem
hann lagði um helgina 'og er
það stór fiskur. Bátar af Ár-
skógsströnd fengu upp í 5 tonn.
Mjólkin llulf á ýlusleðum
Saurbæ 20. febr. Laugardaginn
19. febrúar hélt kvenfélagið
Hjálpin sína árshátíð, eða góu-
fagnað að Sólgarði. Mikill og
góður matur var á borðum og
mikið sungið og dansað eins og
venja er á slíkum samkomum.
VERKFALL VERZL-
UNARFÓLKS?
FÉLAG verzlunar- og skrifstofu
fólks á Akureyri hélt fund á
mánudaginn til a'ð ræða lun yfir
standandi kjarasamninga. Sam-
þykkt var, að veita stjóm og
trúnaðarmannaráði heimild til
að boða til vinnustöðvunar með
venjulegum viku fyrirvara, til
að flýta fyrir nýjum samning-
um.
Næstu þrjá daga verður mat-
vöru- og kjötverzlunum í
Reykjavík lokað vegna verk-
falls starfsfólks þar. □
Allir vegir höfðu verið opnað
ir eftir stórhríð þá er gekk yfir
um mánaðamótin sl. Færi og
veður var því gott en um nótt-
ina tók að hriða en allir komust
þó slysalaust heim. Síðan hefur
verið sífeld hríð og skafrenn-
ingur þar til í dag, að upp birti.
Mjólkurbílum hefur gengið
mjög seint og erfiðlega að kom-
ast leiðar sinnar og stundum
orðið að vera á ferðinni nótt og
dag til að koma mjólkinni til
Akureyrar. Mjólk hefur verið
sótt á ýtusleða fram í fjörð og
flutt að Saurbæ og tók fyrsta
ferðin 17 klst. 17 km. vegalengd.
Sumir vegir eru alveg lokaðir
bílum og engin mjólk komizt
t. d. úr Sölvadal.
Barnaskólinn að Sólgarði hef-
ur fallið niður og er það vitan-
lega mjög slæmt og sýnir áþreif
anlega hve heimanakstursfyrir-
komulagið er hæpið þegar mikl
ir snjóavetrar skellá yfir. Q
Ölvað barn handtekið
f FYRRADAG tók lögreglan í
sína vörzlu nokkur ungmenni á
bamaskólaaldrinum á fjölfar-
inni götu á Akureyri. Reyndist
eitt þeirra ölvað og hefur þetta
að vonum vakið hávært rnntal.
Þeir, sem eldri eru virðast ekki
lengur hafa einkarétt á því að
drekka sig fulla og láta eins og
fávitar, og því blöskrar þeim
nú, að sjá börn í sömu villu.
Þetta alvarlega mál er nú í
rannsókn hjá lögreglunni. En al
menningur, jafnt sem yfirvöld,
ætti nú að fara að hugleiða
hvar við eram á vegi stödd í
áfengismálunum, hafandi fyrir
augunum þá staðreynd, að
áfengistízkan er farin að gripa
um sig meðal barnanna. Q
Snjóbíll og snjómokstur. — Sjá bls. 4.
(Ljósm.: E. D.)
Geiur hagfelldari kornflufningur lil landsins spar-
að þjóðinni tugmilljónir króna í gjaldeyri árlega?
GÍSLI KRISTJÁNSSON rit-
stjóri sýndi fram á það í athygl-
isverðu erindi á Búnaðarþingi
er nú situr, að unnt væri að
spara marga milljónatugi árlega
á hagfelldari flutningi á korn-
vöru til landsins.
En ritstjórinn hefur um langt
árabil kynnt sér flutninga og
dreifingu kornvara í nágranna-
löndum okkar og dvaldist á síð-
asta sumri á Norðurlöndum til
að kynna sér málið sérstaklega.
Hann taldi, að tími væri til þess
kominn fyrir íslendinga, að
breyta til, nota þá tæknikunn-
áttu og hagræðingu er nágranna
þjóðir okkar hefðu lengi not-
fært sér.
Aðrar þjóðir flyttu kornvör-
ur til landa sinna með stórum
flutningaskipum, laust í lestum,
korninu síðan dælt í korngeyma,
þar sem það biði mölunar, blönd
unar og dreifingar til neytenda.
Ræðumaður sagði, að innflutn
ingur kornvara hefði á síðasta
ári numið: Til manneldis 13163
tonn að verðgildi 74579 þús. kr.
Til fóðurs sama ár 35007 tonn
að verðgildi 157345 þús. kr. Er
því um mikil verðmæti að ræða,
eða yfir 230 millj. kr. innflutn-
ingur á ári.
Um verðmismun á kornvörur,
eftir flutningaháttum sagði
Gísli Kristjánsson m. a.: „Þegar
vara, sem keypt er á sömu stöðv
úm kostar um 5000 kr. lestin
komin í hús á íslandi, en tæpar
3000 kr. í húsi á Norðurlöndun-
um, þá er auðvitað auðvelt að
reikna ef við förum á sama hátt
með þær 50 þús. lestir af mat-
vöru og fóðurvöru, sem við
flytjum'inn, eins og aðrar þjóð-
ir, munum spara um það bil 100
millj. kr. á ári — eða eitthvað
minna, ef allt verður dýrara hjá
okkur en hjá þeim“.
(Framhald á blaðsiðu 2.)
Fulltrúi FDB ræðir við sfarfsfólk
sanwinnumanna annað kvöld
SUNNUDAGINN 20. febrúar sl.
kom hingað til lands fulltrúi í
fræðsludeild danska Samvinnu-
sambandsins F.D.B. að nafni
Axel Schou. Hefur hann dvalizt
hér á landi síðan á vegum
BKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKKHKBKHKHKBKBKBKHKHKBKHKKHKHg Fræðsludeildar SÍS og mætt á
fundum hjá starfsmönnum sam-
vinnufélaga í Reykjavík, Hafn-
arfirði, Borgarnesi, Keflavík og
Seifossi.
ÞORSKSIOFNINN I HÆITU VEGNA OFVEIÐI
ALÞJÓÐLEG rannsóknar-
nefnd fiskifræðinga, undir
forsæti Jóns Jónssonar fiski-
fræðings, liefur komizt að
þeirri niðurstöðu, að þorsk-
stofninn við ísland sé í
liættu vegna ofveiði og á
hann hafi gengið hin síðustu
ár.
1 heildaraflanum á Islands
miðum séu 19% aflans undir
70 sm þorskur af veiði ís-
Iendmga, en þorskur undir
70 sm sé 82% í veiði útlend-
inga, einkum Breta.
Þá segir í skýrslu fiski-
fræðinganna, að heildar-
þorskveiði hafi náð hámarki
1954. Sóknin á íslenzka
þorskstofninn hafi aukizt úr
116 einingum 1946 upp í 824
ciningar 1964.
Aðalveiðisvæði Breta eru
út af Norðvesturlandi og
Norðausturlandi, þar sem
þorskurinn er að alast upp.
En fiskurinn þar er nokkuð
staðbundinn, þar til hann
verður kynþroska og leitar
til hrygningarstöðvanna og
er þá uppistaðan í þorskveið
um íslendinga á vetrarver-
tíð. Jón fiskifræðingur telur
nauðsyn að auka möskva-
stærðina í botnvörpum. Frek
ari friðun sé einnig nauðsyn,
annað' hvort með tímabund-
inni lokun vissra veiðisvæða
eða með takmörkun hámarks
afla.
Skýrsla fræðimannanna
vitnar um, að brezku togar-
arnir veiða mest af smáfisk-
inum. Er hin mesta nauðsyn
að íslendingar hefji nú nýja
sókn í landlielgismálinu á
grandvelli vísindalegrar frið
unar þorskstofnsins. Q
rtKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKHKe
Þar hefur hann fíutt erindi
um vettvang samvimfustarfs-
manna á Norðurlöndúm og
möguleika á auknum kynnum
og samstarfi. Fundir þessir hafa
verið mjög vel sóttir og mikill
áhugi ríkt fyrir þessum málum.
í dag kemur Axel Schou til
Akureyrar, ásamt forstöðu-
manni Fræðsludeildar SÍS, Páli
H. Jónssyni og mæta þeir á
fundi hjá Starfsmannafélagi
KEA annað kvöld kl. 8.30 að
Hótel KEA. Formaður Starfs-
mannafélags KEA er Sigurður
Jóhannesson. , Q