Dagur - 09.03.1966, Síða 1
Alþýðusanibaiidið
mótmælir harðlega
Á FIMMTUDAGINN samþykkli Alþýðusamband íslands á mið-
sljórnarfundi sínum ályktun um stóriðju- og aluminíummálið, þar
sem ákveðnum aðvörunarorðum er beint til þings og þjóðar gegn
„fyrirhugaðri grundvallarstefnubreytingu í atvinnu- og efnahags-
niálum þjóðarinnar og lýsir eindreginni andstöðu gegn henni“.
Andstöðu sína rökstyður Alþýðusambandið m. a. á þessa leið:
VERÐllR VERZLUN-1
UM LOKAÐ? I
ENN HEFUR ekki náðst 8
samkomulag um nýja kjara-
samninga verzlunar- og skrif »
stofufólks. Síðasti viðræðu- «
fundur var haldinn í fyrra- «
kvöld, en án teljandi árang- «
urs. Flest félög verzlunar- og >>
skrifstofufólks í landinu hafa »
boðað allsherjarverkfall 14. g
marz, ef samningar hafa ekki «
tekizt. Þeirra á meðal Félag Íi
verzlunar- og skrifstofufólks »
hér á Akureyri. »
Boðaður var samninga- «
fundur í gærkveldi. □ XX
CSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSÍ
BROTIZT INN H]Á
PÉTRI & VALDIMAR
UM HELGINA var brotizt inn
í skrifstofu Péturs og Valdi-
mars í Skipagötu á Akureyri og
stolið um 1000 krónur í pen-
ingum úr ólæstri skúffu. Lög-
reglan hafði mál þetta til með-
ferðar í gær.
Tveir menn voru handteknir
á laugardaginn, grunaðir um
ölvun við akstur.
í fyrrakvöld varð kona fyrir
bifreið á Oddeyri. Féll hún en
meiddist ekki teljandi. Q
1. Raforkuverð til aluminium-
bræðslunnar yrði lægra en
nokkurs staðar þekkist í Vestur
Evrópu og vafalaust undir kostn
aðarverði, ef litið er til fram-
leiðslukostnaðar íslenzkrar raf-
orku til langs tíma, eða þess
tíma, sem samningurinn á að
gilda. Samningurinn mundi því
hækka orkukostnað íslenzkra
atvinnugreina og annarra ís-
lenzkra orkunotenda.
2. Framkvæmdir og rekstur
aluminumhringsins eru hafnar
á tímum verðþenslu og vinnu-
aflsskorts í undirstöðuatvinnu-
greinum landsmanna og hefðu
því þau vafalausu áhrif að tor-
velda æskilega þróun þeirra og
tefja almennar framfarir og
framkvæmdir, auk þess sem
þau munu magna verðbólgu og
þannig lífskjör alls almennings
beint og óbeint.
3. Með tilkomu hinna erlendu
stórframkvæmda væri innflutn
ingur erlends vinnuafls jafn-
framt fyrirhugaður í meira eða
minna mæli og raunar beinlínis
um hann samið, en slíkt hlyti
að leiða af sér áður óþekkt
vandamál á vinnumarkaðnum.
4. Hið erlenda fyrirtæki yrði,
sakir stærðar sinnar og fjár-
magns, áhrifaaðili um kjaramál
vinnumarkaðarins og þannig
beinn þátttakandi í öllum átök-
(Framhald á blaðsíðu 4.)
Gísli Halldórsson forseti ÍSÍ flytur ræðu sína í hádegisverðarboði í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri.
Honum til vinstri eru þeir Magnús E. Guðjónsson og Þorvarður Árnason, cn á hægri hönd sitja
bæjarfulltrúamir Jón G. Sólnes, Ingólfur Árnason og Stefán Reykjalín. (Ljósm.: E. D.)
Myndin hér að ofan er af umhverfi Skíðaliótelsins í Hlíðarfjalli. Tölurnar eiga að tákna, sem hér seg-
ir: I Skíðahótel. II „Strompur“. III Litla togbrautin norðan við hótelið. IV Togbrautin upp við
Strompinn. V Fyrirhuguð skíðalyfta frá hóteli upp að Strompi. VI Hugsanleg skíðalyfia frá Strompi
upp á fjallsbrún. Strikin suður og niður frá hótelinu eiga að tákna fyrirhugaða breytingu vegarins,
og hlykkjóttu strikin Ieiðir þær, sem skíðafólkið á helzt um að velja, til að renna sér niður fjallið.
í hádegisverðarboði á laugar-
daginn, sem bæjarstjórn hélt
stjórn í. S. í., fréttamönnum og
nokkrum öðrum gestum, flutti
forseti í. S. í., Gísli Halldórs-
son, ræðu, rakti ýmsa starfs-
þætti samtakanna og skýrði þá
ákvörðun að velja Akureyri
sem miðstöð vetraríþróttanna í
landinu. Bæjarstjórinn, Magn-
ús E. Guðjónsson, Hermann Sig
tryggsson æskulýðsfulltrúi og
Hermann Stefánsson kennari
fluttu stutt ávörp við þetta
tækifæri.
Gísli Halldórsson, forseti í. S.
í., sagði m. a. þetta í ræðu
sinni: „Markmið í. S. í. er að
koma upp íþróttamiðstöðvum í
öllum kjördæmum landsins, þ.
e. aðstöðu til sumarbúða fyrir
unglinga.
Hins vegar gerir sambandið
ráð fyrir og vinnur að stofnun
tveggja aðal-íþróttamiðstöðva,
Forseti f.S.f., Gísli Halldórsson, tilkynnti þessa
ákvörðun hér nyrðra um síðastliðna helgi
STJÓRN ÍÞRÓTTASAMBANDS ÍSLANDS kom til Akureyrar
fyrir helgina og tilkynnti þá ákvörðun ÍSÍ og Skíöasambandsins,
að Akureyri hefði verið kjöriii Iandsmiðstöð skíða- skauta- og ann-
arra vetraríþrótta, með þeim réttindum og skyldum, er því fylgdi.
mwwreaiwrtWimM/nih—sg—M
TÝNDIST AF
TOGARA
A MANUDAGSNÓTTINA síð-
astl. varð það slys á Akureyrar-
togaranum Svalbak, að Jón An
tonsson kyndari hvarf og fannst
ekki. Jón var Akureyringur, 28
ára gamall. □
Réttindin eru þau, að hingað
mun beint fjármagni til íþrótta
mannvirkja, ennfremur verður
tekin hér upp meiri kennsla og
þjálfun í ríkum mæli, en það
getur að vissu marki komið í
stað þjálfunarferða til útlanda,
eins og mjög hefur tíðkazt með-
al skíðamanna.
Skyldurnar eru bæði fjárhags
legar og menningarlegar, sem
Akureyringar taka um leið á
sinar herðar, en aðeins í beinu
framhaldi af því verki í Hlíðar-
fjalli, sem auðsæjast er í Skíða-
hótelinu, og svo í þeirri ánægju
legu staðreynd, að æska bæjar-
ins er að komast upp úr öldu-
dal skíðaíþróttarinnar.
annarri fyrir sumaríþróttir,
hinni fyrir vetraríþróttir.
Slikri íþróttamiðstöð fyrir
(Framhald á blaðsíðu 5).
AKUREYRI GERÐ AD MIÐ- í
STÖD VETRARÍÞRÓTTAMVA