Dagur - 09.03.1966, Blaðsíða 7
7
DETTIFOSS OG DREIFBYLIÐ
(Framhald af blaðsíðu 4)
stafi ekki af? Og skyldi þeirn
nokkur vorkunn, þeim sviss-
nesku, að útbúa verksmiðjuna
á sama hátt hér uppi á íslandi,
eins og heima hjá sér? Eða hvað
er þetta á myndinni sem birtist
í Tímanum af svissnesku verk-
smiðjunni? Er þetta ekki skóg-
ur í baksýn, og akrar allt í
kring?
Enn er ekki of seint að snúa
við og virkja Dettifoss, og reisa
iðjuver við Eyjafjörð. Eftir 15
—20 ár yrði svo ef til vill tíma-
bært að virkja Þjórsá. Þá yrði
búið að kanna ísvandamálin til
hlítar, og þá verður fjarmagn
þjóðarinnar meira en nú Ég
skora á ríkisstjórnina að láta
nú þegar endurskoða allar áætl
anir um virkjun Jökulsár, og
staðsetningu iðjuvers við Eyja-
SIGURÐUR STEFÁNSSON frá
Höfða, Lækjargötu 14, Akur-
eyri, fyrrum mjólkurpóstur,
varð 75 ára sunnudaginn 6.
marz sl.
fjörð. Ég tel augljóst að í sam-
anburði á virkjun Jökulsár og
Þjórsár hafi ekki gætt fyllsta
hlutleysis. Og hvar er nú öll
umhyggjan fyrir jafnvægi í
byggð landsins? Er hún engin
þegar á reynir?
Ég skora á alla íbúa Norður-
lands, alla forystumenn bæjar-
og sveitarfélaga að sameinast í
eitt í máli þessu, og leggja öll
dægurmál á hilluna á meðan.
Ég skora raunar á alla lands-
menn að skilja nauðsyn þess, að
það verður að koma upp stór-
iðju annars staðar á íslandi, en
bara í Reykjavík.
í snjöllum áramótaboðskap til
þjóðarinnar, fyrir nokkru, sagði
forsætisráðherra dr. Bjarni
Benediktsson, að ísland skyldi
allt byggt vera, annað væri lítil-
mannlegt. Þetta var vel mælt.
En til þess að fólk geti lifað
alls staðar á landinu, verður að
vera næg og örugg atvinna. Nú
er tækifærið, — hið gullna tæki
færi.
Akureyri 4. marz 1966
LEIKFÉLAG
AKUREYR-
AR sýnir
gamanleikinn
SWEDENHIELMS-
FJÖLSKYLDAN
föstudag, laugardag og
sunnudag.
SÍÐUSTU SÝNINGAR.
K V E N K Á P A
til sölu.
Uppl. í síma 1-15-54.
TIL SÖLU:
Philips ferðaútvarp.
Ódýrt.
Uppl. í síma 1-11-58.
TIL SÖLU:
Rennihurðir með renni-
brau'tum fyrir 1 þú m. dyr
og hurð í karmi.
Uppl. í síma 1-11-29
eftir kl. 7 á kvöldin.
RAFMAGNSGÍTAR
TIL SÖLU.
Uppl. í síma 1-11-56.
TIL SÖLU:
Tvennir nýlegir hjólbarð-
ar, stærð 650x16. Einnig
hásing undir heyvagn.
Uppl. í síma 1-28-19
eftir kl. 7 á kvöldin.
ÍBÚÐ ÓSKAST!
Eldri barnlaus hjón óska
eftir íbúð til leigu
14. maí. Uppl. gefur
Gunnar Berg
í síma 1-10-24.
ÍBÚÐ ÓSKAST
TIL LEIGU
Ung barnlaus hjón, sem
bæði vinna úti, vantar
litla íbúð 1—3 herbergja,
nú þegar, eða fyrir 15.
maí. Reglusemi heitið.
Fyrirframgreiðsla
ef óskað er.
Tilboð leggist inn á afgr.
Dags, merkt 1, 2, 3.
Tveggja eða þriggja herb.
ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu sem fyrst.
Uppl. í síma 1-14-63.
FERÐAFÉLAG
AKUREYRAR
heldur AÐALFUND í
Sjálfstæðishúsinu — Litla
sal — mánudaginn 14.
marz n. k. kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kvikmynd.
Stjórnin.
□ RÚN 5966397 = Frl.
I. O. O. F. Rb. U5398J/2 — I.
MESSA í Akureyrarkirkju kl.
2 n.k. sunnudag. Sálmar no.
334, 578, 317, 314, 264. P. S.
FÖSTUMESSA verður í Akur-
eyrarkirkju í kvöld (miðviku
dagskvöld) kl. 8.30. Sungið
verður úr Passíusálmunum
sem hér segir: 10 sálmur vers
1—4 og 7; 11 sálmur vers 3—
6 og 16—17; 12 sálmur vers
3—5 og 23—29; 25 sálmur vers
14. Takið með Passíusálmana.
B. S.
MÖÐRUV ALL AKL AUSTURS-
PRESTAKALL. Messað á
Möðruvöllum n.k. sunnudag
kl. 2. Sálmar nr. 148, 330, 174,
232. Messað í Skjaldarvík
sama dag kl. 4. Á. S.
SAMKOMA í Akureyrarkirkju.
Kristilegt studentafélag held-
ur almenna sámkomu í Akur
eyrarkirkju n. k. laugardag
kl. 8.30 e. h. Meðal ræðu-
manna verður Sigurður H.
Guðmundsson stud. theol At-
mennur söngur úr sálmabok-
inni. Jakob Tryggvason leik-
ur á kirkjuorgelið. Þórður
Möller yfirlæknir syngur ein-
söng. Allir velkomriir.
ZION. Sunnudaginn 13. marz.
Sunnudagaskóli kl. 11 f, h. Öll
börn velkomin. Samkoma kl.
8.30. Halla Bachmann kristni-
boði og Sigurður H. Guð-
mundsson tala. Tekið á móti
gjöfum til kristniboðs. Allir
velkomnir.
DRENGJADEILD.
Fundur kl. 8 fimmtu-
dagskvöld. -— Stúlkna-
deildinrii boðið á fund-
inn.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG!
ífeyk SPILAKVÖLD verður
að Bjargi n.k. laugar-
JfötfíM dagskvöld,. 12. marz,
---kl. 8.30. — Félagar fjöl
mennið og takið með ykkur
gesti.
VORFARGJÖLD F. f.
GANGA f GILDI15.
MARZ N.K.
VORFARGJÖLD Flugfélags ís-
lands milli íslands og út-
landa sem undanfarin vor hafa
gengið í gildi 1. april ganga að
þessu sinni í gildi hálfum mán-
uði fyyr, eða frá og með 15.
marz n. k.
Með tilkomu vorfargjalda fé-
lagsins, lækka flugfargjöld frá
íslandi til sextán borga erlendis
um 25 af hundraði.
Þetta er fjórða vorið, sem
Flugfélagið býður farþegum sín
um þessi lágu vorfargjöld, og
reynsla undanfarinna ára hefir
sýnt, að mjög margir notfæra
séi' þau til þess að njóta sumar-
auka í suðlægari löndum.
Sem fyrr segir, eru vorfar-
gjöldin einum fjórða lægri en
venjuleg fargjöld á sömu flug-
leiðum, en eru háð því skilyrði,
að ferð Ijúki irinan eins mánað-
ar frá því lagt er upp frá ís-
landi.
Vorfargjöldin gilda til eftir-
talinna borga: Glasgow, Lon-
don, Kaupmannahafnar, Bruss-
el, París, Luxemburg, Ham-
borgar, Frankfurt, Berlín, Hels-
ingfors, Stavanger, Gautaborg-
ar og Stokkhólms.
(Fréttatilkynning.)
SKÁKFÉLAG AKUREYRAR
gengst fyrir hraðskákkeppni
í Verzlunarmannahúsinu,
mánudaginn 14. þ. m. Keppt
verður um Lindu-bikarinn og
hefst hún kl. 8 e. h. Skákþing
Akureyrar hefst 17. þ. m. Sjá
nánar auglýsingu í blaðinu.
KVENFÉLAGIÐ HLÍF heldur
fund fimmtudaginn 10. marz
kl. 8.30 e. h. í Amarohúsinu,
6. hæð. Fjölmennið stundvís-
lega með kaffi. Stjórnin.
KVENFÉLAG AKUREYRAR-
KIRKJU heldur fund þriðju-
daginn 15. marz kl. 8.30 e. h.
í Kapellunni. Kaffiveitingar
og skemmtiatriði. Félagskon-
ur fjölmennið. Nýir félagar
velkomnir. Stjórnin.
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99.
Fundur að Bjargi fimmtudag
inn 10. þ. m. kl. 8.30 e. h. —
Fundarefni: Vígsla nýliða,
upplestur, spiluð félagsv-ist.
Eftir fundinn kaffi. Æ. t.
Opið í kvöld (miðvikudag)
frá kl. 20 í Sjálfstæðishúsinu
niðri. Dagskrá: Kvikmynda-
sýning og dans, hinir vansælu
Engir leika, fjölbreyttar veit-
ingar á hóflegu verði. Hafið
með ykkur nafnskírteini með
ástimplaðri mynd.
F ramkvæmdanefndin.
H^RMANNSMÓTIÐ
(Framhald af blaðsíðu 2).
fyrir skíðaíþróttina. Verður
bikarinn ávallt í Skíðahótelinu
en afsteypa afhent sigurvegara
hverju sinni og nafn hans skráð
á hinn fagra bikar. Verðlaun
eru veitt fyrir Alpatvíkeppni
karla. . • i
ívar Sigmundsson hreppti
bikarinn að þessu sinni, enda
vann hann í báðum greinum.
Annar varð Björn Olsen Siglu-
firði og þriðji Hafsteinn Sigurðs
son ísafirði. □
- Nýtt íþróttahús
(Framhald af blaðsíðu 8.)
izt til að láta rýma skemmu,
sem bærinn á, fyrir æfingar á
inniíþróttum næsta vetur, og
er það vel, því það hefði haft
slæmar afleiðingar ef inni-
íþróttir hefðu lagzt niður þar
til nýtt íþróttahús rís.
Forráðamenn bæjarins og
íþróttamála verða að gera sér
' grein fyrir því, að nú verður
að standa við það sem sagt er,
því nógu lengi hefur íþrótta-
fólkið beðið eftir nýju íþrótta-
liúsi, þar sem hægt er að bjóða
upp á boðleg skilyrði til æf-
inga og kcppni. Það er líka til
stórskammar fyrir höfuðstað
Norðurlands, að þar skuli ekki
vera hægt að bjóða upp á lög-
lega keppni í liandknattleik og
körfuknattlcik, ekki sízt þeg-
ar tekið cr tillit til þess, að við
getum boðið upp á einliver
heztu skilyrði sem þekkjast
hér á landi í öðrum íþrótta-
greinum, og gera á Hlíðarfjall-
ið að miðstöð vetraríþrótta á
Islandi, og fagna allir Akur-
eyringar því af heilum hug.
Svavar.
Tryggvi Ilelgason.
TIL SÖLU Á YTRI-BREKKUNNI:
ROMGÓÐ TVEGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ með
„hall“, séringangi og sérkyndingu.
NOKKRAR IBUÐIR I SMIÐUM.
RAGNAR STEINBERGSSON, HRL.,
Hafnarstræti 107
Viðtalstími kl. 5—7 e. h., sími 1-17-82.
Heimasími 1-14-59
NÝIR 4YEXTIR:
mmwi
JAFFA APPELSINUR
DELECIOUS EPLI
PERUR - BANANAR
KJÖRBÚÐIR KEA
Hjartans þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur
vinarhug og samúð við andlát
INGIllJARGAR ELDJÁRN
og veittu ömetanlega hjálp í sjúkralegu hennar og
við útfqrina.
Sesselja Eldjám, Þórarinn Eldjárn
og frændsystkinin. ---