Dagur - 09.03.1966, Síða 8
8
Bamahljómsveit lék nokkur lög undir stjórn Birgis Helgasonar. (Ljósm.: E. D.)
SKEMMTILEG KVÖLDVAKA BARNANNA
YFIR stendur „útilega“ 6.
bekkjar Bamaskóla Akureyrar
og Glerárskólans. Dvalið er í
Hlíðarfjalli, hópnum skipt í
flokka og æft af kappi á skíð-
um undir leiðsögn skíðakenn-
ara, en búið í Skíðahótelinu.
Blaðamaður skrapp þangað
upp eftir í fyrrakvöld. Þar voru
þá 70 böm og von á öðrum stór
um hóp síðar, ásamt kennurum
og nokkrum gestum. Börnin
höfðu verið úti allan daginn,
fram í myrkur. Þau voru þreytt
en glöð og undu góða stund í
aðalsal hótelsins við mjög á-
mægjulega kvöldvöku og sungu
fagra söngva, íslenzka.
Leikþáttur, hljómsveit og
söngvar telpna með gítarundir-
leik var Iétt og góð skemmtun.
Bömin fengu brauð og mjólk
áður en þau gengu til svefns.
Við borð voru merki, sem vís-
ÍSINN Á POLLINUM
ER HÆTTULEGUR
SÍÐUSTU daga hafa börn farið
ógætilega á sprungnum og veik
um ís hér á Pollinum. Er lán að
ekki skuli slys hafa af því hlot-
izt. Foreldrar ættu að gera sér
hættu þessa nægilega Ijósa og
foeina ferðum barna sinna í aðr-
6r áttir. □
aði hverjum smáhóp á sinn
stað. Sami háttur var á hafður,
þar sem skór og kuldaföt eru
geymd, og auðveldar þetta alla
umgengni.
Skólastjórinn, Tryggvi Þor-
steinsson, stjómaði kvöldvöku
og borðhaldi og mátti ýmislegt
af því læra.
Misjafnir munu þeir hópar
skólafólks vera, sem gista
Skíðahótelið. í fyrra vakti hin
mikla regla og háttvísi barn-
anna úr Bamaskóla Akureyrar
athygli ýmissa þeirra, er láta
sig fræðslumál varða. Skýrsla
um tilhögun, svipaða þeirri,
sem farið er eftir nú, hefur ver-
ið send skólum til athugunar
og væntanlega til eftirbreytni,
þar sem slíkt á við.
Og kvöldstund með skóla-
börnum í Skíðahótelinu var á-
nægjuleg, og þá stund víðs-
fjarri þau mörgu og að sumum
finnst yfirþyrmandi vandamál
í sambandi við það, að stjórna
stórum hópi skólaæskunnar. □
ÞEIR ÝTTUST A
Kaupmaður einn með smáverzl
un í nágremii Gagnfræðaskcl-
ans hér í bæ og kennarar skól-
ans hafa ósáítir orðið. Ekki
slógust menn en ýttust á. Ungl-
ingarnir keyptu mikið í verzl-
un þessari, sem eíið var eða
reykt á staðnum og urðu vasa-
peningarnir ódrjúgir.
STRANGARI REGLUR
Nú hefur skólastjórinn afmark-
að það svæði úíi, er bömin
mega fara um á skólatímanum
°g l'ggja bau mörk milli nefnd-
rar verzlunar og skólans. Þykir
nú kaupmanni spónn úr sínum
aski tekinn en foreklrar munu
þakklátir. í þessu sambandi má
minna á, að í gagnfræðaskóla
einum liér á landi fékkst ekki
eftirsóttur skólastjóri til starfa
nema lofað væri að loka sjoppu,
sem sett hafði verið við skólann
og var það gert.
LÍFEYRISSJÓÐURINN
í umræðum um skýrslu félags-
málaráðherra, um lífeyrissjóð
allra landsmanna, sem að er
vikið í leiðara blaðsins í dag,
voru tveir ráðherrar með skæt-
ing í garð Framsóknarmanna
fyrir það, að þeir hefðu viljað
láta fresta afgreiðslu á almanna
tryggingarfrumvarpi nýsköpun-
arstjórnarinnar 1945—1946! Ger
ast þessir herrar nú langniinn-
ugir á suma hluti. Hinu hafa
þeir víst gleymt, að heilsu-
gæzlukafli þess lagafrumvarps,
sem áíti að afnema sjálfstæði
sjúkrasamlaganna, kom aldrei
tií framkvæmda og var nokkru
síðar numinn úr lögum. Sann-
aðist það þá, sem margir Fr'am-
sóknarmemr sögðu 1946, að ný-
sköpunarfrumvarp þetta þarfn-
aðist nánari athugunar áður en
að lögum yrði.
SOGDÆLAN
Mörgum þykir Hjörtur á Tjöm
hafa liitt naglann á höfuðið, þeg
ar hann líkti ráðagerðum ríkis-
stjórnarinnar um strjálbýlissjóð
við áfengisvamarsjóð ríkisins. I
sogdæluna miklu suður í
Straumsvík, verksmiðju og til-
heyrandi hluta Búrfellsvirkjun-
ar, er ráðgert að leggja fjár-
magn, sem áætlað er að nemi
3500 millj. kr. þegar saman er
talin lán, útlend fjárfesting og
lánsfé Landsvirkjunar vegna
verksmiðjurafmagnsins.
DREIFBÝLISSJÓÐURINN
Ef strjálbýlissjóðurinn ætti að
sjá fyrir slíku fjármagni í öðr-
um landshlutum þyrfti til þess
350 millj. kr. á ári í 10 ár. Talað
hefur verið um, að skattar af
virkjuninni verði fyrst um sinn
25 millj. kr. á ári en minni ef
orkuverðið verður hækkað, og
eitthvað af honum rennur senni
lega til hlutaðeigandi sveitarfé-
lags. Hlutur dreifbýlisins er því
nokkuð í óvissu og raunar vart
umtalsverður nema hann verði
verulega aukinn með framlagi
af öðrum ríkistekjum.
EGILL ÞÓRLÁKSSON
áttræður
EGILL ÞÓRLÁKSSON kennari
á Akureyri varð áttræður sl.
sunnudag. Hann er þingeyskrar
ættar og hefur stundað barna-
kennslu í 60 ár, lengst á Húsa-
vík og síðan á Akureyri. Akur-
eyrarbær heiðraði Egill fyrir
frábær kennarastörf með sér-
stökum heiðurslaunum. Mun
öllum finnast sem til þekkja, að
vel væri til þeirra unnið.
Dagur sendir afmælisbarninu
beztu kveðjur sínar og árnaðar-
óskir. □
Akureyrartogarar
AKUREYRARTOGARAR hafa
aflað sæmilega að undanförnu
og selt afla sinn erlendis. Yfir
stendur viðgerð á hraðfrysti-
húsi U. A. Væntanlega verður
vinnsla aflans hafin þar í apríl-
mánuði.
Kaldbakur var í gær búinn
að fá 100 tonn eftir 8 daga.
Svalbakur, sem líka er á veið
um, var á sama tíma með 50
tonn eftir 4 daga.
Harðbakur var með 110 tonn
eftir 6 daga.
Sléttbakur selur 115 tonn í
Bretlandi á föstudaginn. □
IrfK-.',"--
i ' ' - * ’ - ’
t'•••.’•
Valbjarkarhúsgögn frá Akureyri voru í gær flutt suður með Loftleiðavél og eiga þau að fara í hið
nýja Loftleiðahótel. (Ljósm.: E. D.)
NYTT ÍÞROTTAHÚS Á AKUREYRI1967
Takmarkið er, að húsið verði nothæft haustið 1967 - Áhorfendasvæði fyrir ca. 15ÖÖ manns
MARGAR tillögur voru af-
greiddar á Ársþingi Í.B.A., er
lauk sl. föstudag, 4. marz. Þar
á meðal var svohljóðandi til-
laga frá Allsherjarnefnd varð-
andi byggingu nýs íþrótta-
húss á Akureyri:
„Allsherjamefnd kom sam-
an á fund og ræddi þær tillög-
ur sem fyrir lágu. A síðari
fund nefndarinnar mætti bæj-
arstjóri, Magnús E. Guðjóns-
son, og snemst umræður þá
eingöngu um byggingu íþrótta
húss í bænum og hvaða aðilar
stæðu að byggingu þess. Ekki
varð endanleg niðurstaða af
þessum fundi en þó kom í Ijós
áhugi nefndarmanna fyrir því
að hafizt væri handa um bygg
ingu á nýju íþróttahúsi, sem
íþróttasamtökin í bænum, bær
inn og skólar bæjarins yrðu
aðilar að, með þeim fyrirvara
þó að bæjarráð teldi þetta sam
starf æskilegt og hafizt væri
handa um bygginguna eigi síð
ar en vorið 1967.
A þessu stigi málsins leggur
allsherjamefnd til að stjóm
Í.B.A. og allsherjamefnd haldi
áfram umræðum við stjóm
íþrótíafélaganna og forráða-
menn bæjarins til þess að
finna lausn á þessu máli, sem
allir geta við unað.“
Engar umræður urðu um
þessa tillögu á þinginu, og er
það kannski ágætt, að hætt
verði að tala, en framkvæmd-
irnar látnar tala í þess stað.
Það er öllu íþróttafólki ánægju
efni, að nú virðist sem sam-
staða ætli að nást um bygg-
ingu nýs íþróttahúss á Akur-
eyri, og hægt verði að taka
húsið að einhverju leyti í notk
un fyrir æfingar og keppni
haustið 1967, enda ástandið al-
gjörlega óviðunandi eins og
allir vita. Það ætti að vera öll-
um hvatning að vinna vel að
þessu máli, ekki sízt þegar svo
ánægjuleg uppbygging er í
vændum í Hlíðarfjalli til efl-
ingar vetraríþróttum. Við Ak-
ureyringar höfum ekki efni á
því að búa illa að neinni
íþróttagrein, enda er fullur
vilji fyrir hendi hjá forráða-
mönnum íþróttamála og bæjar
stjórn að íþróttahúsið rísi sem
fyrst.
Það er því nauðsynlegt, að
hefjast handa nú þegar og
vinna að undirbúningsfram-
kvæmdum, bjóða síðan verkið
út og fá verktaka til að skila
húsinu nothæfu eigi síðar en
hausíið 1967, og ég trúi ekki
öðru en það takist ef allir sam
einast um að hrinda þessu í
framkvæmd.
Ég hef það eftir góðum heim
ildum, að bæjarstjóri hafi boð-
(Framhald á blaðsíðu 7.)