Dagur - 16.03.1966, Qupperneq 1
Dagur
SI.Vi'AR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
annast ferðalagið.
Ekkert aukagjald.
Ferðaskrifstofan SAGA
Sími 1-29-50
EYSTEINK JONSSON endurkjör-
inn form. Framsóknarflokksins
Jóhannes Elíasson vararitari og
Kristján Benediktsson vara-
gjaldkeri.
í framkvæmdastjórn flokks-
ins eru þessir menn:
Eystein Jónsson formaður.
Helgi Bergs ritari.
Sigurjón Guðmundsson gjaldk.
Olafur Jóhannesson varaform.
Jóhannes Elíasson vararitari.
Einar Ágústsson.
Erlendur Einarsson.
Hermánn Jónasson .
Sverrir Tryggvason.
Tómas Árnason.
Þórarinn Þórarinsson.
Orlygur Hálfdanarson.
Til vara: Steingrímur Her-
mannsson og Sigríður Thorla-
cius.
í blaðstjórn Tímans voru
kjörnir: Erlendur Einarsson,
Helgi , Þorsteinsson, Jóhannes
Elíasson, Jón Kjartansson, Óð-
inn Rögnvaldsson, Ólafur Jó-
hannesson, Sigríður Thorlacíus
og Sigurjón Guðmundsson. Til
vara: Jón Skaftason og Stein-
grímur Hermannsson.
Hannes Pálsson og Jón R.
Guðmundsson voru kosnir end-
urskoðendur reikninga flokks-
ins. En endurskoðendur reikn-
inga Tímans voru kjörnir, Björn
Kristjánsson og Jón Abraham
Ólafsson.
Að kosningum loknum hófust
fjörugar umræður um tillögur
nefnda og afgreiðslu mála. Um-
ræður urðu miklar og áhugi
ríkti um þjóðmálin. Einnig
komu fram einróma óskir um
að efla blöð flokksins og allt
félagsstarf.
Síðasta fundardaginn, sunnu-
dag, fóru enn fram miklar um-
ræður m. a. um stjórnmála-
ályktun, sem samþykkt var ein-
róma. Fundarstjóri þann dag
var Jóhannes Elíasson, en
Daníel Ágústínusson stjórnaði
fundi á laugardag. □
„Snjóköttur“ þeirra Mývetninga og mennimir taldir frá vinstri: Guðmundur Gunnarsson, Þráinn
Þórisson, Jón Ármann Pétursson bílstjóri, Oskar Ágústsson, Þóroddur Jónasson, Stefán Kristjánss.
Á „Snjókellinum" lil keppninnar „sýslurnar svara'
Helgi Bergs.
UM SÍÐUSTU helgi fór fram
hér á Akurgyri upptaka á þætt-
inum „sýslurnar svara“. En þar
leiddu saman hesta sína Norð-
Mýlingar og Þingeyingar og
létu engar torfærur aftra sér í
erfiðum ferðalögum.
Þingeyingar komu á hinu
undarlegasta farartæki, snjóbíl,
„Snjókettinum“, sem þekktur
er af frásögnum af Suðurheim-
skautsleiðangrum. — En saga
þessa farartækis er sú, að það
kom fyrir einhverjum missir-
um vestan um haf og var um
sinn á Heiðarfjalli á Langanesi
á vegum þeirra, sem þar eiga
sér bækistöðvar. Ekki var bíllinn
þó notaður þar, enda vél hans
úr honum tekin og send til
Grænlands. Þetta vélarlausa Að ofan f. v.: Frú Ingibjörg Jónsdóttir Vaðbrekku, Skjöldur Eiríks-
farartæki var síðan selt ódýrt. son Skjöldólfsstöðum og Matthías Eggertsson Skriðuklaustri. Að
Fyrir forgöngu kvenna í Mý- neðan keppendur Þingeyinga f. v.: Þóroddur Jónasson, Þráinn
(Framhald á blaðsíðu 2.) Þórisson og Guðmundur Gunnarsson. (Ljósmyndir Har. Sig.)
Á MTÐST J ÓRN ARFUNDI
Framsóknarflokksins, sem frá
var sagt í síðasta blaði, var Ey-
steinn Jónsson endurkjörinn
íormaður Framsóknarflokksins,
ennfremur voru þeir endur-
kjörnir, Helgi Bergs ritari og
Sigurjón Guðmundsson gjald-
keri flokksins. Ólafur Jóhannes
son var kosinn varaformaður,
Eysteinn Jónsson.
FRAMSÓKN KREFST ÞINGROFS OG
NÝRRA KOSNINGA
Sigurjón Guðmundsson.
Þorsteinn Eiríksson
LOFTLEID AV ÉLIN Bjarni
Herjólfsson kom til landsins sl.
sunnudag, var í sinni fyrstu
íerð eftir að bolur vélarinnar
var lengdur í Kanada um 4,63
metra. Og vélin ber nú nýtt
nafn og heitir Þorsteinn Eiríks-
son. Flugvélin tekur nú 200
manns, að meðtalinni 11 manna
áhöín og er stærsta flugvél, sem
á næstunni verða í föstum ferð-
um milli meginlands Evrópu og
Bandaríkjanna.
STJÓRNMÁLAÁLYKTUN MIÐSTJÓRNAR
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
STJÓRNMÁLAÁLYKTUN SÚ, sem einróma var samþykkt á mið-
stjómarfundi Framsóknarflokksins um síðustu helgi, fer hér á
eftir:
Á síðustu árum hafa íslend-
ingar búið við sérstakt og óvana
legt góðæri frá náttúrunnar
hendi þegar á heildina er litið,
m. a. metafla ár eftir ár, hækk-
andi verðlag á útflutningsafurð
um og vaxandi þjóðartekjum.
Samt hefur stjórn ríkisins
stefnt málefnum þjóðarinnar í
óefni. Dýrtíðin hefur magnast
ár frá ári, kaupmáttur tírna-
kaups er minni en liann var fyr-
ir nokkrum árum og framleiðslu
atvinnuvegimir eiga við sívax-
andi erfiðleika að etja vegna
óðaverðbólgunnar, og óstjórn í
efnahagsmálum, aukning fram-
leiðslukostnaðar hefur sprengt
verðlagskerfi landbúnaðarins
með því að eta upp þær úíflutn
ingsbætur, sem sagt var, að all-
an vanda ætti að leysa.
Útgerðin verður ekki lengur
rekin án uppbóta ef frá eru tal-
in nokkur stærstu skipin, sem
búið hafa við áður óþekkt afla-
brögð á síldveiðum. Samkeppn-
ishæfni imilends iðnaðar hefur
raskast svo til stöðvunar horf-
ir í mörgum iðngreinum. Dýr-
tíðarþenslan hefur þannig eyði-
lagt rekstursgrundvöll atvinnu-
greinanna, hverrar af annarri
og nú hyggst ríkissíjórnin bæta
gráu ofan á svart með því að
leyfa byggingu erlendrar alum-
inbræðslu á því landsvæði, þar
sem þenslan er mest og vinnu-
aflsskorturinn tilfinnanlegastur.
Hefur þó jafnvægisleysið í
byggð landsins farið ört vax-
andi. Óðaverðbólgan speglast
einnig í fjármálum ríkisins,
þrátt fyrir samdrátt opinberra
framkvæmda og þyngstu skatta
byrðar, sem hér hefur þekkzt,
hefur meira að segja orðið
greiðsluhalli á ríkissjóði.
Afleiðingar þessarar óheilla-
stefnu blasa við í öllum áttum,
m. a. í skólamálum, samgöngu-
málurn, raforkumálum og
sjúkrahúsmálum. í þéítbýlinu
eru skólamir þannig tví og þrí-
setnir, og í dreifbýlinu er alltof
víða skortur á skólahúsnæði.
í vegamálum drögumst við
þeim mun lengra aftur úr, sem
umferðarþörfin vex. Strand-
ferðamáíin eru beinlínis van-
rækt af ríkisvaldinu, engin áætl
un liggur fyrir um áframhald-
andi rafvæðingu dreifbýlisins.
Ríkisstjórnin Iiefur gefizt upp
við eðlilegar og sjálfsagðar
virkjunarframkvæmdir, án þess
þær séu tengdar erlendum at-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
LOÐNAN ER KOMIN
í FYRRADAG varð vart við
loðnu á Pollinum innanverðum,
og sama dag fékkst þar góður
afli á handfæri.
Venjulega kemur loðnan hing
að nokkru seinna og naumast
fyrr en 25. marz og stundum
mun síðar. Oftast koma þrjár
loðnugöngur með nokkru milli-
bili. Komið var fram í júní er
hér kom síðasta gangan í fyrra.
Oft fylgir þorskurinnn loðnunni
eftir, enda er hún uppáhalds-
fæða hans. □