Dagur - 30.03.1966, Blaðsíða 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
XLIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 30. marz 1966 — 24. tbl.
annast ferðalagið.
Ekkert aukagjald.
Ferðaskrifstofan SAGA
Sími 1-29-50
í þróf fahússbyggingin á dagskrá
BÆJARRÁÐ varð sammála um
það á fundi sínum 24. marz „að
byggja bæri á næstu árum full-
komið íþróttahús á vegum bæj-
arins, sem leyst geti þörf skól-
anna og íþróttafélaganna — en
íþróttafélögin frestuðu í bili
byggingu eigin íþróttahúsa og
lánuðu til byggingarinnar fram
lög sín samkv. fjárhagsáætlun.
Stefnt veiði að því, að hraða
byggingu íþróttahússins eins og
unnt verður“. Samkvæmt þéssu
og jákvæðri afstöðu bæjarstjórn
ar í gær, má segja, að þetta mál
stefni í rétta átt og um það
hafi loks myndast sú samstaða,
sem nauðsyn var á. □
VANTRAUSTSTILLAGAN
Á STJÖRNINA VAR FELLD
Samningur við svissneska auðhringinn undirritaður
Þjóðinni varnað að segja álit sitt á erlendri stóriðju
TILLAGA SÚ, um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar
kosningar, var rædd á Alþingi á föstudag og umræðum útvarpað,
en síðan var tillagan felld með 32 atkvæðum gegn 27. (Einn stjóm-
arandstæðingur var ekki viðstaddur).
Flutningsmenn vantraustsins
kröfðust þess, að þjóðin fengi
að leggja dóm á stórnarstefn-
una og framkvæmd hennar.
Segja til um það í almennum
kosningum, hvort hún uni leng
ur ríkisstjórn, sem gengið hefur
berlega og á fjöldamörgum svið
um í berhögg við gefin loforð.
Má þar nefna loforðin um stöðv
un verðbólgunnar og lækkun
Erfið færð á Héraði
VEGAGERÐIN upplýsti í gær,
að bílfært mætti kallast frá Ak-
ureyri að Hjalteyrarvegi, enn-
fremur að Bægisá og að Siglu-
vík á Svalbarðsströnd. Vegir
slarkfærir sunnan Akureyrar,
allt miðað við trausta bíla.
Vegirnir taka breytingum frá
degi til dags sökum rennings og
hríða. Ekkert útlit fyrir opnun
Oxnadalsheiðar fyrr en veður
batna að muri. '□
skatta, að skipta sér ekki af
launadeilum, vernda rétt þjóð-
arinnar út á við (landhelgismál,
sjónvarp o. fl.), auka kaupmátt
launa, stytta vinnutímann,
styðja atvinnuvegina með ráð
og dáð o. s. frv. En öll þjóðin
veit hvernig þessi loforð hafa
verið efnd.
Við þetta bætist svo samn-
ingur við erlendan auðhring
um atvinnurekstur á íslandi og
sölu raforku til hans við vægu
verði um áratugi. — Allt þetta
að þjóðinni forspurðri. — Þessi
samningur var undirritaður í
Reykjavík á mánudaginn, með
fyrirvara.
Utvarpsumræðurnar frá Al-
þingi 25. marz vörpuðu Ijósi á
þessi mál, einnig sú nauðvörn
stjórnarflokkanna, að gera ekki
tilraun til að bera hönd fyrir
höfuð sér þegar rædd voru glöp
ríkisstjórnarinnar síðustu árin
og ólýðræðislega þrásetu henn-
ar. q
Myndin er tekin suður yfir Glerá á Akureyri. Súiurnar gnæfa í baksýn. (Ljósin.: B. S.)
Mótmæli III Alþingis gegn
stóriSju á Suðvesturlandi
BLAÐINU hefur borizt greinargerð fyrir mótmælum 487 kjósenda
í Norðurlandskjördæmi eystra gegn fyrirhugaðri stóriðju á Suð-
vesturlandi. Hér er ekki um fjöldaáskoranir að ræða, lieldur mót-
mæli þeirra manna, sem forystu hafa á hinum ýmsu sviðurn, svo
sem sveitarstjórnarmanna, stjórna stéttarfélaga, menntamanna og
menningarfélaga í kjördæminu. Þátttaka hefur verið slík, að ætla
má, að 80—90% alþingiskjósenda í kjördæminu séu andvígir fyrir-
liugaðri stóriðju í Straumsvík syðra. Mótmæli þessi eru rökstudd
á þessa leið í nefndri greinargerð:
1.
Samningarnir eru háskalegir
fyrir stjórnarfarslegt og fjár-
hagslegt sjálfstæði íslands, þjóð
erni þess og menningu. Hið al-
þjóðlega auðmagn hefur í æ rík
ari mæli sameinazt í hringi, sem
hvorki skeyta um þjóðerni eða
landamæri. Oft og tíðum hefur
baráttan við þá verið erfiðasta
viðfangsefni ríkisstjórna, jafn-
vel stórvelda, eins og Banda-
ríkja Norður-Ameriku. Innflutt
fjármagri frá ríkum, iðnþróuð-
um löndum hefur margoft náð
VERKAMANNABÚSTAÐIR REI5TIR A AKUREYRI
FULLTRÚAR Framsóknar-
manna í bæjarstjórn Akureyrar
báru fram þá tillögu í gær, að
bæjarstjórn beitti sér fyrir því,
við ríkisstjórnina, að hún (ríkis
stjórnin) láti gera framkvæmda
áætlun um byggingu verka-
bústaða hér, hliðstætt þvi, sem
gert er í Reykjavík, samkvæmt
LÖGREGLUÞJÓNAR
NÝR lögregluþjónn er tekinn
til starfa á Akureyri, Karl J.
Kristjánsson frá Víðivöllum í
Fnjóskadal. Fastráðinn er nú
í lögregluliði bæjarins Ólafur
Ásgreirsson, áður starfandi lög-
régluþjónn. Alls eru nú lögreglu
þjónar bæjarins 14 talsins. □
samningum við verkalýðsfélög- ráðs og því falið að undarbúa
in. það í samráði við verkalýðs-
Málinu var vísað til bæjar- félög bæjarins.
Q
TRILLA SAT FÖST Á SKERI
ÞAÐ bar við á föstudaginn að
maður einn frá Akureyri
renndi trillubát sínum upp á
sker undan Sveinbjarnargerði á
Svalbarðsströnd. Sat hann þar
fastur í 6—7 klst. Enginn bátur
átti leið þar hjá þótt margir
væru á sjó, og enginn tók eftir
því í landi þótt maðurinn skyti
20 haglaskotum til að vekja á
sér athygli. Átti hann þá þrjú
skot eftir, sem hann ætlaði að
nota ef leit yrði hafin er myrkt
væri orðið að kveldi eða nóttu.
Drengir á Hellulandi í Glæsi-
bæjarhreppi sáu í kíki hvað orð
ið hafði og sögðu Sigþóri föður
sínum, er hann kim heim. Sig-
þór gerði lögreglunni á Akur-
eyri þegar aðvart og lét einnig
vita um þetta á Svalbarðseyri.
Frá Svalbarðseyri var þegar
sendur bátur er sótti manninn,
en síðar annar stærri, er dró
■ triJluna af skerinu. Tókst þetta
allt vel. □
ugaori
ótrúlegum völdum, svo sem
dæm'i sánria í Suður-Arrieríku
og Afríku.
2.
Nú eru íslendingar ein allra
fámennasta þjóð heims, en land
þeirra stórt og auðugt af marg-
breytilegum náttúrugæðumi
sem ýmsar erlendar þjóðir skort
ir og þær líta girndarauga.
Háskinn af innfluttu, erlendu
fjármagni er því meiri fyrir þá
'en flesta aðra.
3.
Stóriðja í mesta þéttbýli lands
ins mundi sópa tii sin fólki úr
dreifbýlinu, bæði því, sem mun
vinna beint við iðjuverin, og
öðru, er jafnan sækir að a'lls
konar þjónustustörfum í þétt-
býli. Hún mundi vera áhrifa-
mikið afl til þess að tæma fá-
mennar byggðir, sem erfiðasta
hafa aðstöðu um menntun, Sam
göngur og félagsmál.
4.
Stóriðja mundi gera okkar
gömlu atvinnuvegum þröngt fyr
ir dyrum. Þeir stefna að verð-
mætasköpun úr öllum landsins
gæðum, hvar sem þau eru stað-
sett. Samkeppnin um vinnuafl
við stóriðjuna mundi standa í
vegi fyrir þróun íslenzkra at-
vinnuvega og hagnýtingu inn-
lendra hráefna til verðmæta-
sköpunar. Forréttindum er-
lendra aðila í atvinnulífi íslend-
inga ber því tvímælalaust að
hafna.
5.
Mikil hætta er á því að vinnu
afJsskortur mundi leiða til þess,
að erlendir verkamenn flyttust
hingað í stórum stíl og settust
hér að. Hingað mundu einkum
koma þeir menn, sem minnst
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Gef juiiaráklæði á
Loftleiðahótelinu
HIÐ margumtalaða Loftleiða
hótel syðra kaus sér Val-
bjarkarhúsgögn frá Akur-
eyri. Þau eru með Gefjunar-
áklæði, sem margir sækjast
nijög eftir. í gær og fyrra-
dag sótti Loftleiðaflugvél
enn húsgögn til Akureyrar
og á þriðja hundrað sængur
frá Gefjunni, teppi o. fl.
Má því segja, að hið mikla
gistihús sé að verulegu leyti
búið norðlezkum húsgögn-
um, sem urðu fyrir valinu
vegna yfirburða í verði og
þó fyrst og fremst í gæðum.
<S>
STRÁKAGÖNGIN
MEIRA EN HÁLFNUÐ
JARÐGÖNGIN í Strákum við
Siglufjörð eru nú orðiri meira
en 400 metra löng, en alls verða
þau 780 metrar. Ákveðið hefur
verið, að hafa þau einföld, eða
með einni akbraut, en útskot
verða þrjú eða fjögur þar sem
bílar geta mætzt.
Ekki er búizt við, að steypt
verði undir þak jarðgangnanna
nema við enda þeirra, og enn
hefur ekki verið ákveðið úr
hvaða efni slitlag vegarins verð
ur í jarðgöngunum. □