Dagur - 16.04.1966, Side 5
4
S
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAYÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
OF LÍTIÐ - OF SEINT
SAMA DAG og ríkisstjómin lagði
fram frumvarp sitt um samning við
útlendinga um aluminíumverk-
smiðju í Straumsvík syðra, birtist frá
hennar hendi annað plagg, frumvarp
um svonefndan atvinnujöfnunar-
sjóð. Hér mun vera á ferðinni lána-
stofnun sú, er stjórnin tók að boða
í fyrravetur og kallaði þá „fram-
kvæmdasjóð dreifbýlisins“.
Enginn vafi er á því, að þessi
áformaða sjóðstofnun stendur í beinu
sambandi við fyrirhugaðan stóriðnað
á höfuðborgarsvæðinu, og að „At-
vinnujöfnunarsjóðurinn" er m. a. til
þess ætlaður að draga úr gvemju
manna út um land út af samningun-
um við Swiss Aluminíum og hinni
fráleitu staðsetningu, sem ákveðin
er, og enn mun stórum auka jafnvæg
islevsið milli landslilutanna. Svo áber
andi eru tengsl þessara tveggja stjóm
arfrumvarpa, að iagt er til, að skatt-
ar af aluminíumverksmiðjunni, sem
raunar eru í óvissu enn, renni í At-
vinnujöfnunarsjóð í stað þess að inn-
heimta þá í ríkissjóðinn og ætla At-
vinnujöínunarsjóðnum síðan lög-
ákveðið ríkisframlag. Þetta fyrir-
komulag ber raunar ekki vitni um
mikla stjórnvizku, því að hætt er við,
að þeim, sem andstæðastir eru alum-
iníumsamningunum, þyk i þessi
tekjustofn ógeðfeíldur.
Hafi stjórnin gert sér í hugarlund,
að Iiægt yrði að knýja einhverja til
Ifylgis við Straumsvíkurverksmiðjuna
með því að gefa kost á skatti þess-
um í „strjálbýlissjóð“ en engan ella,
þekkir hún illa skaplyndi þeirra, sem
traustastir eru á yerðinum um byggð
í þessu landi.
Það bqr þó að viðurkenna, sem rétt
er, að frumvarpið um Atvinnujöfn-
unarsjóð, hvernig sem það er til kom
ið í raun og veru, ber vott um tals-
verða stefnubrcytingu í byggðajafn-
vægismálinu af hálfu stjórnarinnar.
Og von ætti að verða meiri fjármuna
til framkvæmda umfram þá „hung-
urlús“, sem hinn svonefndi Atvinnu-
bótasjóður hefur ráðið yfir, en hann
hefur, sem kunnugt er, fengið 10
millj. kr. ríkisframlag á ári af nálega
4000 millj. kr. ríkistekjum. Nýi sjóð-
urinn á að fá 15 millj. kr. eftir að
búið er að leggja Atvinnubótasjóð
niður og auk þess ríkishlutann af
aluminíumskattinum, hver sem hann
verður (hinn hlutann fær Hafnar-
fjarðarbær og Iðnlánasjóður). Enn
fremur á að yfirfæra til Atvinnu-
jöfnunarsjóðs nokkuð af mótvirðis-
fé, um leið og Framkvæmdabankinn
verður lagður niður, en sú stofnun
| hefur raunar veitt talsvert af lánum
i víðsvegar iim landið, og því vandséð
1 hve mikill ávinningurinn verður, en
| hinsvegar mun hann einhver verða.
A &>
Firam efstu menn á lista Framsóknarflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar í Akureyrarkaupstað 22. maí 1966
Jakob Frímannsson. Stefán Reykjalín. Sigurður Óli Brynjólfsson. Arnþór Þorsteinsson. Haukur Árnason.
Kosnmgaávarp Framsóknar-
fél
aganna a
Ak
ureyri
HÖFUÐSTAÐUR NORDURLANDS 5
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN á Akureyri lýsa ánægju sinni
yfir vaxandi samvinnu Norðlendinga um sameiginleg
hagsmunamál og vilja efla slíka samvinnu á breiðum
grundvelli.
Gerð er sú krafa til Akureyrarkaupstaðar, að hann sé
lilutverki sínu vaxinn, sem höfuðstaður þessa landshluta
og sé miðstöð þeirrar baráttu, sem fólk í norðlenzkum
byggðum og bæjum lilýtur að sameinast um á komandi
tímum til að tryggja framtíð sína, fá framgengt réttlátum
kröfum sínum um lífvænlega og menningarlega aðstöðu
í þjóðfélaginu.
Framsóknarfélögin vara við þeirri háskastefnu ríkis-
stjórnarinnar, sem rýrir eðlilega þróunarmöguleika á
Norðurlandi. Vilja þau með öllum tiltækum ráðum beita
sér fyrir fjölbreyttari atvinnuháttum, aukinni nýtingu
náttúruauðlinda og þeirra verðmæta lands og sjávar,
sem landið hefur að bjóða, svo og viðunandi aðstöðu til
menningarlífs og menntunar.
Kröfum Norðlendinga til fjármagns og framkvæmda
vilja þau fylgja fast eftir með óbilandi trú á framtíð hinna
norðlenzku byggða og bæja, þar sem skilyrði eru fyrir
vaxandi fólksfjölda og batnandi lífskjörum.
MJÖG VAXANDIMÖGULEIKAR
Vegna þeirra menningar- og athafnaskilyrða, sem sköp-
uð hafa verið af þróttmiklu fólki hér á Akureyri, hefur
bærinn mikla möguleika til að sinna forystuhlutverki
sínu, enn meira og betur í framtíðinni. Einnig liefur bær-
inn möguleika til þess að taka á móti eðlilegri fólksfjölg-
un og aðflutningi fólks, sem að öðrum kosti flytur á Faxa-
flóasvæðið. Framsóknarfélögin harma það, að fólksfjölg-
un í höfuðstað Norðurlands, hefur, vegna brottflutnings,
ekki náð meðalfólksfjölgun í landinu um árabil og telur
aðkallandi að koma í veg fyrir, að slíkir brottflutningar
haldi áfram. En til þess að þetta megi verða er nauðsyn-
legt:
1. Að ríkisvaldið gjörbreyti stefnu sinni í dreifbýlismál-
um og miði hana m. a. við aðkallandi framkvæmdaþörf
á Akureyri og Norðurlandi öllu.
2. Að efla svo atvinnuvegi bæjarins, að þeir geti veitt ört
vaxandi fólksfjölda eins góð lífskjör eða betri, en völ
er á annarsstaðar.
3. Að efla starfsemi skóla og annarra uppeldisstofnana og
sjá ungu fólki fyrir aðstöðu til vaxandi íþrótta-, félags-
og tómstundastarfa í hollu umhverfi.
4. Að hraða skipulags- og byggingarframkvæmdum bæj-
arins með það fyrir augum, að húsnæðisskortur hamli
ekki búsetu manna, enda verði kapp á það lagt, að gera
fólki kleift að eignast þak yfir liöfuðið. Ennfremur, að
haldið verði áfram á þeirri braut, sem bygging elli-
heimilisins markaði, með því m. a. að byggja smáíbúð-
ir fyrir aldrað fólk, sem kýs að lialda heimili meðan
heilsan endist.
Sjá þarf fyrir sjúkum og hrumuin og vangefnum fyrir
fræðslu við þeirra hæfi og dvalarstað, sem nú er að
unnið.
Að þessum verkefnum vilja Framsóknarfélögin vinna
með bæjarstjórn þeirri, er kjörin verður, öðrum opinber-
um aðilum, félögum og einstaklingum hér í bæ og annars
staðar, sem unnt er að liafa samstarf við um framgang
þeirra.
Framsóknarfélögin heita samvinnustefnunni stuðningi
sínum og treysta á úrræði hennar til lausnar margþætt-
um vandamálum og til giftudrjúgra framkvæmda í al-
mannaþágu, bæði liér á Akureyri og í öðrum byggðum og
bæjum. En um samtakamátt fólksins er norðlenzk saga
nærtækur vegvísir í þeim efnum. Á sama hátt verði sam-
starfs leitað við marga aðila um lausn þeirra verkefna,
sem hér hafa verið gerð að umtalsefni og annarra, er
verða mega til framfara og uppbyggingar þróttmiklu
athafna-, félags- og menningarlífi, sem bæjarstjórnin á
Akureyri fyrr eða síðar fjallar um.
Framsóknarfélögin styðja verkalýðsfélögin í baráttunni
fyrir réttlátum hluta þjóðarteknanna.
Framsóknarfélögin á Akureyri fela væntanlegum full-
trúum sínum í bæjarstjórn, að beita sér fyrir gerð fram-
kvæmdaáætlunar bæjarins eins fljótt og við verður kom-
ið, þar sem höfuðáherzla er lögð á meiri vinnuhagræð-
ingu í verklegum framkvæmdum og nýrri skipan fjár-
mála er þær varða.
Framsóknarfélögin vilja benda á ýmsa þá þætti bæjar-
málanna, sem hér er átt við, og eru nokkrir þeirra raktir
hér á eftir:
IÐNAÐUR
1. Haldið verði áfram þeirri þróun, sem gert hefur Akur-
eyri að hlutfallslega mesta iðnaðarbæ landsins og skap-
að hefur hér traustara og stöðugra athafnalíf en á flest-
um stöðum öðrum. I því sambandi ber fyrst að nefna
iðnað samvinnumanna, sem tryggir mörgum hundruð-
um heimila góða lífsafkomu og atvinnuöryggi. En þau
minna jafnframt á, að þrátt fyrir mikið starf á þessu
sviði er þó meira eftir og óunnin hráefni flutt úr lapdi
í stórurn stíl. En iðnað einstaklinga og félaga ber einnig
að styðja af alefli. Fagna ber því, að iðnvörur frá Akur
eyri eru nú góðar söluvörur á fleiri mörkuðum en áður
var, bæði innlendum og erlendum. Framleiðslu þeirra
vara ber sérstaklega að styðja og afla þeim markaða.
2. Fagna ber framkvæmdum í stálskipasmíði, sem hér
eru hafnar og stuðla verður að því, að sú grein geti
vaxið ört í samræmi við þarfir landsmanna, og síðan
með útflutning íslenzkra skipa fyrir augum.
3. Áherzlu verður að leggja á byggingu dráttarbrautar-
innar, samkvæmt því, sem nú er talið hagkvæmast og
miða hana við stærstu fiskiskip og minni flutningaskip
og hina öru stækkun fiskiskipanna.
4. Niðursuðuiðnaður verði aukinn og gerður fjölbreyttari
í bænum en hann er nú.
5. Raforkuþörf Norðurlands verður að mæta með því að
hraða undirbúningi nýrrar Laxárvirkjunar.
6. Áfram verði haldið jarðhitaleit fyrir Akureyri með
liitaveitu bæjarins að markmiði og hraðað framkvæmd-
um nýrrar vatnsveitu.
SJÁVARÚTVEGUR
1. Unnið verði að því við stjórnarvöld landsins, að togara-
útgerðin fái meiri fyrirgreiðslu, en nú er. Leggja ber
áherzlu á endurnýjun togaraflotans á Akureyri á næstu
árum og tryggja á annan hátt þá útgerð, sem skapað
geti fiskvinnslustöðvum við Eyjafjörð næg verkefni
svo vinna í þeim verði óslitin árið um kring. Bæta þarf
aðstöðu þeirra manna, sem útgerð vilja stunda á heirna-
slóðum, svo að þeir hafi viðhlítandi aðstöðu og er þar
átt við útgerð þilfarsbáta og opinna báta. Auka þarf
Ijósavitakerfi á hafnarmannvirkjum bæjarins.
2. Að gerð verði hið fyrsta áætlun um framtíðarhöfn á
Akureyri, framfylgt kröfum um auknar, beinar skipa-
ferðir til kaupstaðarins, jafnframt því sem fagnað er
væntanlegri birgðastöð samvinnumanna í bænum.
3. Unnið verði að því að koma upp kornbirgða- og dreif-
ingarstöð á Akureyri fyrir Norðurland — miðað við
innflutning á ómöluðum og ósekkjuðum kornvörum.
4. Krossanesverksmiðjan verði, með nauðsynlegum endur
bóturn, sem bezt búin til að gegna því tvíþætta hlut-
verki, að nýta hráefni frá fiskvinnslustöðvum og taka
á móti síld til bræðslu og söltunar.
LANDBUNAÐUR
Framsóknarfélögin fagna liinum miklu framförum í
byggðum Eyjafjarðar og vilja fyrir sitt leyti stuðla að
sem mestuni framförum á sviði landbúnaðar, einnig inn-
an þeirra marka, sem skilja bæ og hérað. Þau benda á,
að á því svæði má einnig stórlega auka gróður jarðar og
fegurð landsins, bæía sumarhaga búpenings með dreif-
ingu tilbúins áburðar úr lofti og landþurrkun. Stefnt
verði að því að gera bæjarbúum kleift að stunda búskap
og ræktunarstört í hjáverkum, m. a. með skipulegri stað-
setningu útihúsaliverfa og sjálfsagðri fyrirgreiðslu við að
koma þeim upp á þann veg, að báðum aðilum sé sómi og
ánægja að. Framsóknarfélögin á Akureyri líta svo á, að
almenn hagsæld sveita, þorpa og bæja á Norðurlandi,
hljóti á hverjum tíma að fara saman að verulegu leyti og
vilja fyrir sitt leyti efla þá góðu samvinnu, sem um lang-
an aldur hefur orðið báðum gæfa.
BYGGINGA- OG SKIPULAGSMÁL
Framsóknarfélögin á Akureyri vilja beita sér fyrir gerð
framkvæmdaáætlunar, þar sem megináherzla verði lögð
á eftirfarandi:
1. Skipulagi og nýlagningu gatna bæjarins verði liraðað
þannig, að ætíð verði nægar lóðir undir íbúðarhús við
fullbúnar götur til úthlutunar.
2. Miðbærinn verði skipulagður að fullu og miðað við
þróttmikið atliafnalíf vaxandi bæjar. Teknar verði til
athugunar skipulagstillögur þær, sem frarn komu í
tilefni af 100 ára afmæli bæjarins.
3. Akureyrarbær geri það, sem í hans valdi stendur, til
þess að létta fjölskyldum byggingu eigin íbúða m.a. með
því að efla Byggingalánasjóð bæjarins verulega. Ilald-
ið verði áfram á þeirri braut, að bærinn láti byggja
íbúðir til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði, og nýtt-
ir allir möguleikar á byggingum verkamannabústaða.
4. Stofnaður verði Framfarasjóður Akureyrarkaupstaðar
með framlögum og sérstökum lántökum. Verkefni
Iians verði þau, að Iána fé til byggingarframkvæmda,
gatnagerðar bæjarins o. fl. Með sjóðsstofnun þessari
gæti framkvæmdahraði hinna einstöku verkefna
ákvarðast á hagkvæmasta liátt, bæði tæknilega og fjár-
hagslega, í stað þess að takmarkast við fjárveitingar
liverju sinni. Ennfremur myndu opnast meiri mögu-
leikar til útboðs bæjarframkvæmda.
SKÓLAMÁL
Þörf er nýrra stórátaka í skólamálum bæjarins. Fram-
sóknarfélögin vekja athygli á þeirri nauðsyn, að hraða
undirbúningi og framkvæmdum við barna- og unglinga-
skólann í Glerárhverfi, stuðla að nýbyggingum og endur-
bótum, sem Menntaskólinn á Akureyri þarfnast nú, koma
á fót tækniskóla, hliðstæðum þeim, sem starfar í Reykja-
vík, stofna garðyrkjuskóla á Akureyri eða í nágrenni
liennar og hraða byggingu iðnskólahúss. Jafnframt telja
þau nauðsynlegt að kennsla í verzlunarfræðum verði upp
tekin í einum eða fleiri skólum og námsflokkar bæjarins
efldir. Þá telja félögin æskilegt að komið verði á fót list-
iðnaðarskóla í bænum. Tónlistarskólanum verði séð fyrir
stórbættri aðstöðu og bærinn reyni á einhvern hátt, að
tryggja sér starfskrafta ungra menntamanna í sem flest-
um greinum, e. t. v. með námsstyrkjum, í húsnæðismál-
um eða á annan hátt. Unnið verði að því af dugnaði, að
ríkisvaldið styðji eðlilegar kröfur um almenna mennt-
unaraðstöðu bæjarbúa og annarra Norðlendinga. Athug-
aðir verði möguleikar á að koma upp sjálfstæðri kenn-
aradeild við Menntaskólann er útskrifi stúdenta með
kennararéttindum. Þá verði athugað, hvort heppilegt
þyki, að bær og hérað vinni saman að því- að byggja upp
lieimavistarskóla utan Akureyrar og að bærinn ráði nú
þegar fræðslufulltrúa til eflingar og samræmingar skóla-
starfinu á Akureyri.
ÍÞRÓTTAMÁL
Framsóknarfélögin á Akureyri lýsa ánægju sinni yfir.
því, að Akureyri er nú viðurkennd miðstöð vetraríþrótta
í landinu og vilja vinna að því, að sem bezt verði notaðir
þeir miklu möguleikar, sem Hlíðarfjall hefur að bjóða
og vilja bæta þá aðstöðu til muna, svo sem með skíðalyft-
um, vegagerð o. fl. Þá lýsa þau eindregnum stuðningi sín-
um við framkomnar tillögur um nýtt íþróttaliús og alhliða
aðstoð við eflingu annarra íþróttamannvirkja, fyrir æsku
bæjarins. En nýtt íþróttahús verður að telja mest aðkall-
andi mannvirkið, sem úrlausnar bíður á sviði íþróttamála,
ÝMIS MENNINGARMÁL
Framsóknarfélögin Iíta á það sem nauðsyn, að Ijúka
byggingu nýju bókhlöðunnar fyrir Aintsbókasafnið, auka
til muna bókakost þess og aðstöðu til sjálfstæðra fræði-
iðkana. Þau telja og mikilvægt, að efla Náttúrugripa-
safnið og Minjasafnið, og að haldið verði í heiðri minn-
ingu þjóðskáldanna, m. a. með því að koma á árlegri
ská.lda- og listamannaviku á Akureyri. Þau vilja minna
á hálfrar aldar afmæli Leikfélagsins á næsta ári og vilja,
að nú þegar verði athugaðar allar færar leiðir til að minn-
ast þess afmælis á verðugan hátt. Vilja þau í því sam-
bandi láta það álit í ljósi, að kominn sé tími til, að byggja
nýja, norðlenzka leik- og tónlistarhöll, sem jafnframt geti
þjónað þörfum leiklistarskóla, tónlistarskóla og fullnægt
liúsnæðiskröfum við flutning söng- og tónleikahalds á
veglegan hátt.
Stuðlað verði að nýrri og betri aðstöðu til tómstunda-
iðju og skenuntistarfsemi fyrir æsku bæjarins, og jafn-
framt gerðar ráðstafanir til að auka unglingavinnu í bæn-
um á sumrin, í framhaldi af þvi, sem nú er.
Framsóknarfélögin styðja eindregið fyrirhugaða stækk-
un Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Og stuðlað verði
að því, að fleiri sérfróðir læknar hefji hér störf.
Framsóknarfélögin styðja eindregið þá stefnu, sem
Dagur hefur fylgt, að vinna beri gegn áfengisbölinu
og styðja þurfi með ráð og dáð aðra þá, sem að sama
marki vinna. Þau telja, að bæjarstjórn eigi ekki að veita
\4n í veizlum sínum eða bæjarstofnana. Þau lýsa yfir
stuðningi sínum við störf Fegrunarfélagsins og telja
fegrun bæjarins mikilsverða.
Framsóknarfélögin styðja hugmynd hinna ýmsu félaga-
samtaka bæjarins í því, að koma sér upp félagsheimilum
fyrir menningarlega starfsemi. Eru verkalýðsfélögin þaij
sérstaklega höfð í huga, svo og íþróttafélög.
Framsóknarfélögin á Akureyri gera sér ljóst, að kjöm-
ir fulltrúar þeirra í bæjarstjórn hljóta að vinna að fram-
faramálum bæjarins með fulltrúum annarra flokka, sem
ætla má, að einnig vilji hag bæjarins sem mestan. Um
samstarf verða málefnin að ráða. Þótt Framsóknarmenu
lýsi sig fúsa til þessa samstarfs, er þeim vel ljóst,
að framtíð fólksins á Akureyri og Norðurlandi öllu,
verður að verulegu leyti undir því 'komin, hverjir fgra
með völd í ríkisstjórn hverju sinni, og Framsóknar-
félögin líta á núverandi stjómarstefnu, sem óheillastefnu
í mörgum helztu stórmálum þjóðarinnar. Sú stefna þarf
að hljóta sinn dóm, í bæjarstjórnarkosningunum í vor og
síðan í alþingiskosningunum á næsta ári. Og ungu fólki
er bent á, að það tryggir bezt framtíð sína með því að
skipa sér undir merki Framsóknarflokksins, þess flokks,
sem bezt hefur fyrir það unnið.
Kjósendur á Akureyri: Kynnið yður störf og stefnu
Frantsóknarflokksins. Framsóknarfélögin heita á kjós-
endur bæjarins, að styðja stærsta stjórnmálaflokk Norð-
urlands, Framsóknarflokkinn, svo að hann megi rnarka
bæjarmálastefnuna í höfuðstað Norðurlands, setn forystu*
flokkur. i