Dagur - 20.04.1966, Blaðsíða 1
Dagur
SÍAÍAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
XiLíX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 20. apríl 1966 — 29. tbl.
FERÐASKRIFSTOFAN
TÚNGÖTU 1
Símar 1-14-75 og
1-16-50
*(■ f | !• r
ferð út um fand
UM ÞESSAR mundir er undir-
búin hljómleikaferð Sinfóníu-
hljómsveitar Islands út um
land. Hefur útvarpsstjórinn leit
Álmálið í bæj-
arsfjórn
EFTIRFARANDI var sam-
þykkt í bæjarstjórn í gær-
kveldi:
„Bæjarstjórn Akureyrar
skorar á hið háa Alþingi að
staðfesta ekki þann samning
sem gerður hefur verið milli
ríkisstjórnarinnar og Swiss
Aluminíum Ltd., um að auð-
hringurinn byggi og- starf-
ræki álbræðslu í Straumsvík
við Hafnarfjörð.
Til vara skorar bæjarstjóm
Akureyrar á hið háa Alþingi,
að binda staðfestingu samn-
ingsins við samþykki meiri-
hluta í þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið.“
GEYSIR SYNGUR Á
LAUGARDAGINN
KARLAKÓRINN GEYSIR
söng á Dalvík í gærkveldi, og
ætlar að flytja hina nýju söng-
skrá sína einu sinni enn hér á
Akureyri á laugardaginn. Sam-
söngurinn verður í Nýja Bíói
að eftir því við hina ýmsu staði,
hver sé áhugi þeirra fyrir komu
hljómsveitarinnar. Hljómsveit-
inni þarf viðkomandi staður
ekki að greiða, en móttakandi
verður að sjá um uppihald
hljómlistarmanna og ferðir
fram og aftur. ,
Margir staðir hafa þegar ósk-
að eftir hljómsveitinni, þeirra
á meðal er Akureyri. □
V
Á félagsráðsfundi KEA í fyrradag. F. v.: Valur Arnþórsson, Brynjólfur Sveinsson
mundsson.
og Eiður Guð-
(Ljósm.: E. D.)
VÖRUSALA
K.E.A. HEFUR ENN AUKIZT V
Nýja kjötviiinslustöðin tekiii í notkun í vor
FÉLAGSRÁÐSFUNDUR Kaupfélags Eyfirðinga var hald-
inn á nránudaginn á Hótel KEA og var óvenju seint haldinn
vegna hinna langvarandi samgönguerfiðleika í héraðinu.
Fulltrúar 19 félagsdeilda á félagssvæðinu voru mættir í
fundarbyrjun, en nokkra vantaði. Brynjólfur Sveinsson
stjórnarformaður KEA setti fundinn með stuttu ávarpi og
bauð fulltrúana velkomna. Eiður Guðmundsson á Þúína-
völlum var kosinn fundarstjóri en ritari Valur Arnþórsson,
hinn nýi fulltrúi framkvæmdastjórans og var hann þarna
kynntur fundarmönnum og boðinn velkominn til starfa hjá
eyfirzkum samvinnumönnum.
Jakob Frímannsson flytur fé-
lagsráðsmönnum fyrstu upplýs-
ingarnar um rekstur og liag
KEA að loknu síðasta starfs-
ári. (Ljósm.: E. D.)
Úr skýrslu framkvæmdastjóra.
Jakob Frímannsson flutti síð-
an yfirgripsmikið erindi um
starfsemi kaupfélagsins á síð-
asta starfsári, bæði í heild og
hinna mörgu starfsgreina og
deilda, enníremur gerði hann
■ðnskólanum á Sauóérkróki s!itið \ futfugasta sinn
TÐNSKÓLANUM á Sauðár-
króki var sagt upp í 20. skipti
hinn 6. apríl sl.
Nemendur voru 32 í tveim
bekkjum. Þar af 18 í öðrum
bekk en 14 brautskráðust.
Kennarar voru 7 auk skóla-
stjórans. Skólaslit fóru fram að
þessu sinni við hátíðlega athöfn
þar sem viðstaddir voru fjöl-
margir af eldri nemendum
skólans.
Tildrög að stofnun hans voru
TVEIR SÆKJA UM
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL var auglýst til
umsóknar. Tveir ungir guðfræð
ingar hafa sótt um þetta presta-
kall, þeir séra Ágúst Sigurðsson
settur prestur á Möðruvöllum
og séra Bolli Gústafsson sókn-
arprestur í Hrísey. □
Lúðrasveit Akureyrar
leikur á Ráðhústogi á sumar-
daginn fyrsta kl. 4. Stjómandi
er Sigurður Jóhannesson.
menn vildu læra iðn á Sauðár-
króki, en gátu það ekki full-
þau, að tveir eða fleiri ungir
komlega nema iðnskóli væri
starfandi á staðnum. Séra Helgi
heitinn Konráðsson ásamt
nokkrum iðnaðarmönnum
gerðu hugmyndina um iðnskóla
að veruleika í ársbyrjun 1947.
Á þessu 20 ára tímabili hefur
skólinn útskrifað á annað hundr
að iðnnema, sem starfa nú sem
iðnaðarmenn víðsvegar um
landið.
Fyrsti skólastjóri var séra
Helgi Konráðsson, sem gengdi
því starfi í 4 ár. Friðrik
Mar§_eirsson magister var skóla
stjóri í 13 ár, og núverandi
skólastjóri, Jóhann Guðjónsson
múrarameistari, hefur annazt
starfið í 3 ár. Kennarar hafa
verið margir, sumir aðeins eitt
tímabil, aðrir lengur og einn
kennarinn allan tímann, og er
það Árni Þorbjörnsson lög-
fræðingur.
Erlendur Hansen rafvirki,
skýrði frá, fyrir hönd fyrstu
nemenda skólans, að þeir ætl-
uðu að gefa skólanum málverk
(Framhald á blaðsíðu 4.)
framkvæmdir þær, sem nú er
að unnið, að umtalsefni.
Framkvæmdastjórinn taldi
niðurstöður reikninganna, eins
og þeir nú liggja fyrir, sýna
betri árangur en hann hefði í
fyrra búizt við og væri fjárhags
leg afkoma félagsins sízt verri
en þá. Á árinu 1964 hefði verið
greiddur 4% arður af allíi
ágóðaskyldri úttekt, allt benti
til, að rekstur síðasta árs gæfi
tækifæri til að greiða svipaðan
arð fyrir samskonar viðskipti á
síðasta ári.
Ræðumaður benti á, hve allir
kostnaðarliðir verzlunarinnar
og allrar starfsemi Kaupfélags
Eyfirðinga færu ört vaxandi en
álagningin stæði að mestu í
stað. Þess vegna væri nauðsyn-
legt að auka vörusöluna, enda
hefði það í mörgum greinum
tekizt. Flestar verzlunardeildir
hafa aukið sína sölu mjög veru-
lega, sagði framkvæmdastjór-
inn, sumar mjög verulega, en
FISKUR OG SMJÖRUKIHÆK
í FYRRADAG hækkaði verð
skyndilega á fiski og smjörlíki
og brá húsmæðrum í brún, er
þær þurftu að greiða fiskinn
37—79% liærra verði en áður
og smjörlíkið 47% hærra verði.
Slægð ýsa og hausuð kostar
nú kr. 15.00 (áður kr. 9.60).
Hækkun 56%. Þorskur, slægð-
ur og hausaður kostar nú kr.
12.50 (áður kr. 7.00). Hækkun
79%. Saltfiskur kostar nú kr.
36.00 (áður kr. 25.00). Hækkun
44%. Fiskflök og fiskfars
hækka tilsvarandi. Smjörlíki
hækkaði í verði um kr. 11.30
eða 47%. Það kosíar nú kr.
35.30, en áður kr. 24.00.
Þessar hækkanir stafa af því,
að ríkisstjórnin liættir að greiða
þær niður úr ríkissjóði. Með
þessu eiga að sparast milljóna-
tugir, sem áður var lofað til
sjávarútvegsins.
Hér sýnist ríkisstjórnin Ioks
alveg búin að gefast upp fyrir
verðbólguófreskjunni, og hefur
nú sleppt henni lausri. Hvar er
nú hægt að finna rneiri uppgjöf
á þeirri stefnu, sem stjórnin
taídi sína meginstefnu?
Finnst fólki ekki kominn tími
til að breyta stjórnarstefnunni?
til jafnaðar allt að 20%. Hluti
þessarar aukningar stafar þó af
verðhækkunum. Þá rakti fram-
kvæmdastjórinn rekstur og af-
komu hverrar einstakrar deild-
ar. Var ljóst á því yfirliti, hve
margar deildir hafa aukið sína
umsetningu gífurlega, aðrar
minna.
Jakob Frímannsson gaf ekki
upp heildai'tölu veltunnar síð-
asta ár, en sagði þó, að heildar-
sala verzlana, verksmiðja og
fyrirtækja hefði numið 380
millj. kr. á árinu, en það væri
60 millj. kr. hækkun frá fyri-a
ári eða nálega 16%.
Á árinu var gerð gagngerð
endurbót og stækkun á skrif-
stoíuhúsnæði félagsins á Akur-
eyri og sömuleiðis var gerð mik
il endurbót á elztu kjöx'búð fé-
langsins í Brekkugötu 1. Þá var
hraðfrystihús félagsins í Hrísey
stækkað, bæði hvað hús og véla
kost snertir og er afkastageta
þess nú nær tvöfölduð við það
sem áður var. Unnið var allt
árið að byggingu kjötvinnslu-
stöðvarinnar á Oddeyi'i og tek-
ur hún væntanlega til stai'fa í
júní, og hafin bygging nýrrar
mjólkurvinnslustöðvar vestan
við Lund.
Mótteknar landbúnaðax'vörur
til vinnslu og sölumeðfex'ðar
reyndust að rnagni árið 1965:
Innlögð mjólk nam samtals
20.172.860 ltr. eða um 8,58%
aukning frá fyrra ári. Útborg-
að var til framléiðenda á árinu
kr. 111.193.581,70 eða sem næst
551,2 aurar á Itr.
í slátui'húsum félagsins var
(Framhald á blaðsíðu 5.)
RJÓRNUM HAFNAÐ
A MÁNUDAGINN var bjór-
frumvarpið fellt á Alþingi eftir
aðra umræðu í neðri deild.
Nafnakall var viðhaft í at-
kvæðagreiðslunni og neituðu
23 en 16 játuðu. Me'ð þessum
hætti afgreiddi Alþingi hið
margrædda bjórmál. □