Dagur - 20.04.1966, Síða 4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðartnaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Traust
Á FÉLAGSRÁÐSFUNDI Kaupfé-
I:igs Eyfirðinga eru ár hvert gefnar
fyrstu upplýsingar um rekstur og
hag þessa stærsta yiðskiptafyrirtækis
fólksins á Norðurlandi fyrir sl. ár.
Þegar litið er til liðinna ára yfir vett-
vang viðskipta- og athafnalífs hér
um slóðir, verður ljóst, að þetta sam-
vinnufyrirtæki, sem stofnað var af
mikilli bjartsýni og brýnni þörf,
gnæfir yfir önnur og er enn að
stækka og taka upp fjölþættari verk-
efni samkvæmt kröfum þeim, sem
til þess eru gerðar. Starfsemi og starfs
aðstaða á 60—70 stöðum á Akureyri
fer ekki fram hjá neinum í 9—10 þús.
manna bæ. Einnig er það öllum ljóst,
sem til þekkja, að fyrirtækið er
traust stofnun bæði fjárliagslega og
félagslega, og sem heikl mun það
vera óvenjulega vel rekið. Þessi stofn
im veitir mikhun fjölda manna at-
vinnu og þúsunilum bætta þjónustu
í viðskiptum á sama tíma og hinir
ýmsu einstaklingar með gróðasjónar
miðin liafa horfið af vettvangi við-
skiptanna, ýmist sem vanskilamenn
eða hafa flutt burtu með þau verð-
mæti, sem hér var safnað.
Kaupfélag Eyfirðinga og hin ýmsu
samvinnufélög landsins búa um þess
ar mundir við fremur óvinveitta rík-
isstjórn, sem m. a. kemur fram í
ýmsum þáttum viðskiptalífsins, og í
mjög áberandi óvild sjálfs forsætis-
ráðherra landsins í aðalmálgagni
Sjálfstæðisflokksins. Þessu þarf sam-
vinnufólkið í landinu að svara á rétt
an hátt, í orði og á borði.
En ' máttur samvinntifélaganna
verður ekki brotinn á bak aftur. Til
þess eru stórátök þeirra í verzlun,
iðnaði og menningarmálum of mikil
og augljós, þótt um stundarsakir
andi köklu til þeirra frá stjórnar-
völdum. Kaupfélögin eru eign fólks-
ins og byggðarlags þess á hverjum
stað og engra annarra. Þau ganga
ekki kaupum og sölum, eignir þess
og sjóðir aldrei fluttir burt. Þau eru
öllum opin og þar hefur hinn fátæk-
asti jafnan atkvæðisrétt og hinn ríki
— maðurinn settur ofar fjármagn-
inu — gagnstætt gróðafélögum, sem
gefa ríkum rétt til að greiða mörg
atkvæði.
Jafnframt því, sem Eyfirðingar og
Akureyringar geta glaðzt og verið
stoltir af vexti og viðgangi samvinnu
félags síns, þarf félagið að mæta nýj-
nm kröfum, sinna margþættari verk-
efnum og veita stöðuga fræðslu um
eðli og tilgang samvinnustarfs. □
Helgi Hallgrímsson safnvörður við smásjána í hinni nýju grasadeild Náttúrugripasafns á Akureyri.
Grasafræðideild í Náttúrugripa-
safninu á Akureyr
GRASAFRÆÐIN í Eyjafirði á
sér langa sögu að baki. Hún
hófst á Möðruvöllum árið 1887,
þegar Stefán Stefánsson gerðist
þar kennari. Ávöxturinn af
starfi Stefáns birtist í Flóru ís-
lands, sem út kom árið 1901.
Samtímamaður Stefáns var Ol-
afur Davíðsson á Hofi í Möðru-
vallasókn, en hann safnaði
geysimiklu af plöntum, einkum
hinum lægri, og sendi erlendum
fræðimönnum.
Störf þeirra Stefáns og Ólafs
urðu ekki áhrifalaus. Eftir alda
mótin óx upp ný kynslóð grasa-
fræðinga í héraðinu, og hélt á-
fram verki þeirra. Má þar nefna
þá Ingimar Óskarsson frá
Klængshóli, Ingólf Davíðsson
frá Stóru-Hámundarstöðum og
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um. Allir hafa þessir menn unn
ið mikið og gott starf, en því
miður þá staðfestust þeir Ingi-
mar og Ingólfur ekki í hérað-
inu.
Söfn þeirra Stefáns og Ólafs
höfnuðu á Náttúrugripasafninu
í Reykjavík, og var það eðlilegt
miðað við allar aðstæður, og
þannig fer líklega einnig með
söfn þeirra Ingólfs og Ingimars.
Því meira fagnaðarefni er
það fyrir okkur, að árið 1960
keypti Náttúrugripasafnið á Ak
ureyri hið mikla grasasafn
Steindórs Steindórssonar, en
láta mun nærri að í því séu um
10 þúsund eintök (arkir) af
þlöntum. Síðan hefur eintaka-
fjöldi grasasafnanna í Náttúru-
gripasafninu um það bil tvö-
faldazt, en þá eru að vísu talin
með söfn sem enn eru í einka-
eigu, en varðveitt á safninu, en
þar á meðal er allmikið safn af
íslenzkum sveppum, sem mun
vera hið eina sinnar tegundar,
í heiminum. Góð söfn eru einn-
ig til af fléttum og mosum.
Grasasöfnin hér munu nú að
eintakafjölda og fjölbreytni,
slaga hátt upp í Reykjavíkur-
safnið, en þriðja bezta safnið af
íslenzkum plöntum mun vera í
Kaupmannahöfn.
í vetur hefur verið unnið að
því að innrétta tvö ný herbergi
fyrir grasasöfnin í húsakynnum
Náttúrugripasafnsins. Tveir
stórir skápar hafa verið smíðað-
ir fyrir háplönturnar og hillur
fyrir gróplönturnar, sem yfir-
leitt eru geymdar í kössum,
vinnuborð sett upp o. s. frv. Áð-
ur hafði verið innréttað sérstakt
herbergi fyrir Steindórssafn.
Árið 1964 keypti safnið rann-
sóknarsmásjá fyrir Vísindasjóðs
styrk. - Myndavél, sem hægt er
að tengja beint við smásjána
var keypt ári síðar. Fyrirhugað
er að kaupa aðra smásjá, sem
einkum er ætluð til ferðalaga
og er þess vænzt að góðir menn
liðsinni því máli.
Af þessu verður Ijóst, að að-
staðan til grasafræðilegra rann-
sókna er nú orðin tiltölulega
góð í Náttúrugripasafninu.
Tveir til þrír menn ættu hæg-
lega að geta unnið þar að rann-
sóknum samtímis. Er það mjög
mikils virði fyrir þessa fræoi-
grein, að geta boðið innlendum
og erlendum grasafræðingum
upp á slíka aðstöðu hér, enda
mun ekki líða á löngu þar til
menn fara að nota sér það.
Fyrsti fræðimaðurinn er vænt
anlegur nú í vor, hollendingur
að nafni Osterveld. Þetta er því
mikilvægara, sem vinnuaðstaða
í Reykjavíkursafninu getur eng
an veginn talizt góð, sökum
þrengsla, og hið sama er raunar
að segja um Kaupmannahafnar-
safnið..
Því er ekki að leyna, að grasa
fræðideildin í Náttúrugripasafn
inu, er þegar orðin allmikið fyr-
irtæki, og raunar ærið verkefni
fyrir einn mann að sjá um hana,
þótt engin hefði önnur. Innan
skamms hlýtur því að koma að
því, að ráða verður sérstakan
mann til að hafa umsjón þess-
arar déildar. Þar sem hér er
unnið stai'f á mælikvarða alþjóð
ar, væri eðlilegast að sá maður
yrði ríkislaunaður, á sama hátt
og allir starfsmenn Náttúru-
gripasafnsins í Reykjavík.
Athugandi væri einnig hvort
ekki væri rétt, að sameina þessa
deild, grasadeildinni í Lystigarð
inum og grasafræðibókasafni
því, sem Menntaskólinn varð-
veitir, og gera úr því eina stofn-
un. Grasafræðitímaritið Flóra
myndi þá einnig heyra þessari
stofnun til, og verða málgagn
hennar.
Slík grasafræðistofnun væri
eðlilegt takmark þeirrar þróun-
ar, sem hófst á Möðruvöllum
fyrir um 80 árum, og verðugur
minnisvarði fyrir brautryðjand-
ann, bjartsýnismanninn og þjóð
skörunginn Stefán Stefánsson,
skólameistara.
H. Hg.
Mr ■■ f ii
i songfor
Karlakórinn Vísir á Siglu-
firði mun koma til Akureyrar
eftir helgina og syngja fyrir
bæjarbúa. En Vísir fer héðan
flugleiðis til Danmerkur í söng-
ferð þá, sem áður hefur verið
um getið. Q
HAPPDRÆTTI H. I.
- Frá léiagsrá
VINNINGAR í 4. FL. 1988
10 þús. kr. vinningar:
44875, 52147.
5 þús. kr. vinningar:
3956, 14193, 15985, 19054, 26307,
31140, 42803, 50457, 50468, 52126,
53967, 58016.
1,500 kr. vinningar:
1615, 1619, 2657, 2936, 4672, 7012
7133, 7395, 7502, 8038, 11315,
12059, 12075, 12427, 12677, 13160
13238,13630,14026, 14448, 16052,
16060, 16582, 16929, 17064, 17467
17860, 17865, 18203, 19001, 19010
19365, 19909, 21689, 21742, 21769
21928, 21940, 22146, 22406, 23012
23016, 23020, 23228, 23563, 23582
25944, 25952, 31159, 31189, 31573
31691, 33168, 33425, 36460, 37004
37019, 37042, 43083, 43309, 43923
44729, 44854, 47453, 47462, 47466
48855, 49121, 49166, 49228, 49260
50453, 52504, 52985, 53218, 53968
54070, 57879, 59554, 59558, 59561
59595, 59775.
Birt án ábyrgðar.
(Framhald af blaðsíðu 1.)
slátrað 42.799 kindum og nam
kjötþunginn 615.165,5 kg. eða
5,4% meira en árið áður. Slátr-
að var 1.947 kindum fleira. Með
alvigt hækkaði um 0,062.
Gæruinnlegg nam 47.892 stk.,
145.769 kg. eða 12.927 kg. meira
en 1964.
Ullarinnlegg nam 54.395,5 kg.
og er það 1.287,5 kg. meira en
árið á undan.
Pylsugerðin tók til vinnslu og
sölumeðferðar 38.000 kg. dilka-
kjöt, 60.000 kg. ærkjöt, 33.000
kg. nautakjöt, 16.000 kg. svína-
kjöt, 42.000 kg. kálfakjöt, 28.000
kg. slög, 27.000 kg. mör, 63.000
kg. reykt kjöt, 3.400 kg. svið,
10.500 kg. egg, og 7.600 kg. fisk.
Ennfremur ýmislegt grænmeti
o. fl. fyrir ca. kr. 1.300.000,00.
Auk þess bræddi Pylsugerðin
um 27.000 kg. mör fyrir S.Í.S.
Jarðepli. Teknar voru 1.250
tunnur af jarðeplum til geymslu
í jarðeplageymslum félagsins
síðastliðið haust, en alls mun
uppskeran hafa orðið 6.500—
7.000 tunnur.
Mótteknar sjávarafurðir til
vinnslu og til umboðssölu:
Freðfiskur unninn í hraðfrysti
húsunum á Dalvík og í Hrísey
alls 1.143.675 kg. eða um 12,54%
lækkun frá fyrra ári.
Freðsíld. Framleiðsla á Dal-
vík 105.714 kg., en engin fram-
leiðsla freðsíldar var árið áður.
Saltfiskur frá Hrísey, Ár-
skógsströnd, Hjalteyri, Greni-
vík og Akureyri alls 384.150 kg.
eða um 15,43% hækkun frá
fyrra ári.
Skreið framleidd í Hrísey,
Árskógsströnd, Hjalteyri, Dal-
vík og Akureyri alls 25.335 kg.
Þorskamjöl unnið á Dalvík og
Hrísey alls 311.300 kg.
Lýsi unnið í Hrísey og á Ár-
skógsströnd samtals 188 föt.
Hrogn frá Hrísey, Grímsey,
Grenivík, Dalvík, Hjalteyri og
Árskógsströnd samtals 647 tunn
ur.
Refafóður frá Dalvík og Hrís
ey samtals 174.695 kg.
Nú er reikningsuppgjöri að
mestu lokið fyrir 1966 og verð-
ur ekki annað séð en afkoma
ALDREI JAFNMIKIÐ
AF KJARNA
ársins sé allgóð og gefi vonir
um möguleika til arðsúthlutun-
ar svipað og verið hefur nú
nokkur undanfarin ár.
Vörubirgðir í vörugeymslum
og sölubúðum hafa aukizt nokk
uð og sérstaklega hefur áherzla
verið á það lögð að hafa nægar
birgðir af nauðsynjavörum ef
ís legðist að landi eins og síðast
liðinn vetur. Fóðurbætisbirgðir
eru nú til hér í húsum félagsins,
sem eiga að nægja fram á vor
þótt ekki bætist við. Sömuleiðis
voru í marzmánuði fluttar til
bæjarins óvenju miklar birgðir
af olíu, þannig að félagsmenn
ættu ekki að þurfa að óttast
vöruskort þótt samgöngur tepp
ist hér eftir, sagði framkvæmda
stjórinn.
Hér var aðeins drepið á nokk
ur atriði úi: ræðu Jakobs Frí-
mannsson, sem var mjög yfir-
gripsmikil að vanda, og var hún
þökkuð með lófataki.
Hófust. nú hinar fjörugustu
umræður og var mörgum fyrir-
spurnum beint til framkvæmda
stjórans, sem hann svaraði jafn
óðum, svo og mjólkursamlags-
stjóri, Jónas Kristjánsson og
sláturhússtjóri, Haukur P. Ólafs
son.
Allur var fundur þessi hinn
fróðlegasti. Umræðurnar sner-
ust m. a. um „Smjörfjallið", af-
urðasölumál almennt, verzlun-
ar- og lánamál, framleiðslumál
og fleira. □
BÆRINN OKKAR”
NU HEFUR L. A. sýnt hinn
sérkennilega sjónleik sinn „Bær
inn okkar“ fimm sinnum og
verða næstu sýningar í kvöld
og annað kvöld.
Braniiin á Húsavík
í BRUNANUM á Höfðavegi 12
Húsavík sl. föstudag, misstu
ung hjón hús sitt, innanstokks-
muni alla og fatnað.
Sóknarpresturinn, séra Björn
Helgi Jónsson og form. kven-
félags Húsavíkur, frú Arnfríður
Karlsdóttir, gengust fyrir fjár-
söfnun til styrktar hjónunum
og börnum þeirra tveim. Ung-
ar kvenfélagskonur gengu um
bæinn og söfnuðu fénu. Á rúm-
lega einum degi söfnuðu þær
yfir 100 þús. kr. Þar af gáfu
skipverjar á Helgafelli, sem hér
lá þá í höfninni, 4000 kr. til
söfnunarinnar.
Þ. J.
í FRÉTTATILKYNNINGU um
aðalfund Áburðarverksmiðjunn
ar h.f. í Gufunesi segir að fram
leiðsla verksmiðjunnar á
Kjarna hafi á árinu orðið hin
mesta frá upphafi eða 24.412
smálestir, hins vegar var minna
framleitt af ammóníaki en áður
vegna þess hve litla raforku
verksmiðjan gat fengið sökum
mikilla þurrka og aukinnar al-
mennrar notkunnar á raforku.
Tekjuafgangur verksmiðjunn
ar nam 567 þús. krónum á árinu
þegar dregnar höfðu verið frá
afskriftir og lögboðið framlag í
varasjóð. Nánar verður sagt frá
aðalfundi verksmiðjunnar hér í
blaðinu síðar. □
- IÐNSKOLINN
(Framhald af blaðsíðu 1.)
af fyrsta skólastjóra hans, séra
Helga Konráðssyni.
Málsvari 10 ára nemenda,
Stefán Pedersen ljósmyndari,
lagði fram kr. 5.500.00, sem vera
skyldi stofn að tæknibókasafni
skólans.
Skólastjórinn þakkaði hinar
virðulegu gjafir og skýrði jafn-
framt frá þeirri vitneskju sinni,
að lóð undir væntanlegar bygg-
ingar Iðnfræðsluskóla í Norður
landskjördæmi vestra yrði
ákveðinn staður í samráði við
skipulagsyfirvöld ríkisins, en
mikill og almennur áhugi er
fyrir að sá skóli verði á Sauðár-
króki. G. I.
Lsikurinn hefur vakið umtal
og heilabrot, meira en algengt
er, enda nýstárlegur í öllum
sínum einfaldleik, ekki sízt
þriðji og síðasti þátturinn.
En í þeim þætti er farið yfir
landamæri lífs og dauða að
nokkru, og er þar nóg kapp-
ræðuefni fyrir þá, er séð hafa.
En fyrri þættirnir tveir, sem
fjalla um æskuna, ástina og
heimilislífið eru með því hug-
ljúfasta, sem hér hefur verið
fært undir leiksviðsljós.
Þessa mynd tók Eðvarð Sig-
urgeii'sson af einu atriði sjón-
leiksins og sjást þar leikararn-
ir frú Guðlaug Hermannsdóttir,
Sæmundur Guðvinsson og Egg-
ert Olafsson.
TIL SOLU:
RENAULT, 5 manna,
árg. 1961. Selst ódýrt.
Uppl. í síma 1-17-54.
TIL SÖLU:
TRABANT, árgerð 1964.
Bíllinn er lítið ekinn og
mjög vel með farinn.
Upplýsingar gefur
Kail Sigfússon,
Járn- og glervörud. KEA.
Sýningum verður hraðað eft-
ir því, sem unnt er og ættu þeir,
sem leggja ætla leið sína í leik-
hús bæjarins að þessu sinni, að
gera það sem fyrst. Færi um
sveitir er nú gott og ætti sveita
fólk að nota það meðan tími og
tækifæri leyfa. □
TIL SOLU:
Fíat 1400, árg. 1955.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 1-28-76.
BiLASALA H0SKULÐAR
Moskviths 1958-1963
Opel Caravan 1955—1963
Opel Rekord ’62, 4ra dyra
Ford Anglia 1962
Taunus 12 M 1963-1965
verð frá kr. 105 þúsund
til 160 þúsund.
Cortina 1965
Fíat 1800, station, 1960
Simca 1000, 1963
o. m. m. fl.
Hefi kaupendur að góð-
urn sturtum og palli á
vörubíl
Volkswagen 1963, stað-
greiðsla.
Alls konar skipti
hugsanleg.
BÍLASALA HÖSKULDAR
Túngötu 2, sími 11909
Ibúðarhús hjónanna alelda
(Ljósm.: P. A. P.)
TOYOTA
JAPANSKI JEPPINN
Vandaðasti jeppinn á markaðinum í dag.
Sýningarbíll á staðnum.
Umboðsmaður á Akureyri: STEINN IvARLSSON
c/o Lönd og Leiðir, sími 1-29-40
o • r K IÖRSKIÍ k
hioinaniL jol \y j. i. o xv xx jtX
helzt vanan, vantar á m/b Sævar, Grenivík. Upplýsing- fyrir prestskosningar í Möðruvallaklausturssókn ligg-
ar á Vinnumiðlunarskrifstofu Akureyrar, símar 1-11-69 ur frammi á kirkjustaðnum til 24. apríl.
og 1-12-14. SÓKNARNEFND.
CHEVROLET
FÓLKSBIFREIÐ,
árg. 1957, sjálfskiptur.
Skipti á RÚSSAJEPPA
koma til greina.
Uppl. í síma 1-26-38
kl. 7-8 síðd.
TIL SOLU:
SKODA 1202 station,
árg. 1965.
Ekinn 10 þús. km.
Uppl. í síma 2-12-31
eftir kl. 7 e. h.
BÍLL TIL SÖLU
CHEVROLET, árg. 1955
með Benz dieselvél.
Öll gúmmí ný. Bíllinn er
í mjög góðu lagi. Skipti
koma til greina.
Karl Ingólfsson,
sími 4-12-33, Húsavík.
ÞVOTTAVÉL
Lítið notuð Vaskebjörn-
þvottavél er til sölu
í Brekkugötu 6.
Sími 1-29-95.
TAN SAD
BARN AVAGN
til sölu í Stafholti 3,
Glerárhverfi.
JÖRÐ TIL SÖLU
Jörðin Hólkot í Skriðií-
hreppi er til sölu. Vænt-
anlegir kaupendur snúi
sér til Steindórs Jónsson-
ar, Brekkugötu 31,
Akureyri.
TIL SOLU:
Tvíbreiður SVEFNSÓFI.
Uppl. í síma 2-10-91
eftir kl. 7 á kvöldin.
GÓÐUR BILSKUR
til sölu.
Kexverksmiðjan Lórelei
Guðmundur Tótnasson,
sími 1-17-75.
F30LNIR
F U N D U R
verður haldinn í hesta-
mannafélaginu Fjölni
miðvikudaginn 20. apríl
kl. 8.30 í Landsbanka-
salnum.
FUNDAREFNI:
Erindi. Kvikmyndir.
Mætið vel og stundvíslega
Stjórnin.