Dagur - 14.05.1966, Side 8
8
KJÓSENDAFUNDUR B-LISTANS SMATTOGSTÓRT
ALEIT, AÐ KÓPAVOGUR um og alveg sérslaklega þegar
j !*>«•. rm
verður í Bori»arbíó
t.
mrstk. lauiiardaíi
U A
14. maí kl. 1 síM.
10 KRAMBjODKMH \\ B-USTVNS
JL\TJA STlTfAH KTfílK
ÍÍ+fShtttt*. Iíai4v'?»>rþ*í*w
Í3œ&*rtit*rt.
ixinénrt*****.
Sj ómannadagurinn er á morgvin
Kapp
róður og útisarakoma við höfnina
SJÓMANNADAGURINN er á
morgun og af því lilefni verða
hér, sem víða annars staðar, há-
tíðarhöld, á vegum sjómanna-
dagsráðs. En formaður þess er
Björn Baldvinsson, skipstjóri.
Séra Björn O. Björnsson flyt-
ur messu árdegis, en útisam-
koma hefst kl. 13.30. Þar verð-
ur lúðrablásfur, Geysissöngur,
kappróðrar, sjómenn heiðraðir,
hlýtt á ávarp Egils Jóhannsson-
ar skipstjóra og þar verða ein-
hverjir skemmtikraftar langt
að komnir. En sérstök barna-
samkoma verður í Sjálfstæðis-
húsinu kl. 3 e. h. og dansleikir
um kvöldið.
Fólk er hvatt til að sækja vel
samkomur sjómannadagsráðs,
bæði í viðurkenningarskyni við
sjómannstéttina og sjálfs sín
vegna. Þegar almenn hátíð er
haldin, eiga menn að hjálpast að
og gera hana veglega.
(BA-LIDID KEPPIR I NOREGI
Býr sig þannig undir fyrstudeildar keppnina
í knattspyrnu, sem verður eflaust harðsótt
Handjámaðir stjórnar-
þingmenn úr Norður-
landskjördæmi eystra
réðu úrslitum í álmálinu.
Handjárnaðir bæjarfull-
trúar stjórnarflokkanna
greiddu atkvæði með —
og móti staðsetningu
álverksmiðju við
Eyjafjörð.
Inflúensa i Grímsey
INFLÚENSAN lagði flesta
Grímseyinga í rúmið og fór
mjög geyst. Lagði hún víða allt
heimilisfólkið í rúmið í einu. Ein
nú er veikin í rénum. Fresta
varð fermingu, sem vera átti
um sl. helgi.
Hlé hefur orðið á hrognkelsa-
veiðum vegna veikindanna.
Bjargfuglinn er farinn að búa
um sig, en varp hefst þó ekki
fyrr en eftir 20. maí og e. t. v.
seinna nú vegna þess hve seint
vorar. □
KNATTSPYRNULIÐ ÍBA á að
leika sinn fyrsta leik i fyrstu-
deiidarkeppni íslandsmótsins
við Þrótt 30. maí. Sá leikur verð
ur í Reykjavík. En hinn 23. maí
fer flokkurinn til Noregs og
keppir í eða við nágrenni Osló-
ar og í Álaborg. Sú ferð er und-
irbúningur íslandsmótsins og
nauðsynlegur vegna þess, að
þjálfunarskilyrði hér á Akur-
eyri hafa brugðizt. Það er t. d.
nú fyrst, sem völlurinn á Odd-
eyri er lagfærður og er ráðgerð-
ur þar æfingarleikur um helg-
ina. Einar Helgason kennari hef
ur haft á hendi þjálfun ÍBA-
liðsins í vetur. Fleiri voru með
en áður í reglulegri þjálfun og
knattspyrnumennirnir sagðir
áhugasamir. Jens Sumarliðason
verður fararstjóri knattspyrnu-
mannanna í Noregsferðinni.
ÍBA-liðið var í þriðja sæti í
fyrstudeildarkeppninni í fyrra.
Því hefur verið spáð, að það nái
toppinum í ár. En ekki er sá
sigur auðunninn eða naést án
fyrirhafnar. Hins vegar mega
knattspymumennimir okkar
vita um það, að til mikils er af
þeim ætlazt, þótt þeim sé ekki
allt upp í hendur rétt, og með
drengilegum . iþróttaafrekum
eru heimabyggðinni dýrmætar
gjafir gefnar.
□
VÆRI SOMABÆR
íslendingur kvartar um, að Dag
ur hafi „brotið“ reglur blaða-
manna með því að segja frá því,
að nýi íslendingsritstjórinn sé
úr Kópavogi. Dagur vissi því
miður ekki, að Kópavogur væri
svona afleitur, í augum ritstjór-
ans — hélt satt að segja, að
þetta væri sómabær og að þar
byggi gott og dugandi fólk.
SPURT UM LEIÐRÉTTINGU
Hefur íslendingsritstjórinn, sem
ekki vill láta kenna sig við Kópa
vog, fundið skekkju í útreikn-
ingi Sigurvins Einarssonar al-
þingismanns, sem birtur var hér
í blaðinu? Sé svo, er hann góð-
fúslega beðinn að Iáta Degi í té
leiðréttinguna.
AFSÖKUN FYLGIR UPP-
GJÖF HVERRI
Viðtal íslendings við Jónas Rafn
ar minnir á þá reynslu, að af-
sökun fylgir að jafnaði uppgjöf
hverri. Stjórnarþingmenn héðan
lentu í mannraun nokkurri og
vita, að þeir áttu að gera betur
en þeir gerðu. Jónas Rafnar
veit, að í skýrslu stóriðjunefnd-
ar, dags. 14. nóv. 1964 stendur,
að verðmunur á raforku frá
Dettifossi og Búrfelli (orðrétt)
„þurfti út af fyrir sig ekki að
þýða, að Dettifossvirkjun hent-
aði ekki fyrir aluminium-
vinnslu“. Hugleiðingar J. R. um
mótmælaundirskriftirnar nyrðra
eru út í hött. Tilgangur þeirra
var að mótmæla hinum ill-
ræmda álsamningi, sem lá fyrir
og var Jagður fyrir þing það,
sem nú er nýlokið, en ekki að
fjalla um önnur mál.
VILLTIST í SKAKKA
FLUGVÉL
Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar
að skera niður framlag hins op-
inbera til ýmissa framkvæmda
um 20%, náði einnig til sjúkra-
húsa. Öngþveitið í sjúkrahúss-
og heilbrigðismálum, stríðið við
Iæknana o. fl. er einn þátturinn
í þeim stóra málaflokki, sem ber
núverandi ríkisstjóm miður
gott vitni. Það má segja um
mæta menn og konur, sem nú
vilja láta að sér kveða opinber-
lega í þessum málum, og undir
íhaldsmerkinu, að þeir hafi
villzt í skakka flugvél.
„E1NINGIN“ í ALÞÝÐU-
FLOKKNUM
„Húmoristinn“ við Alþýðumann
inn á Akureyri gerir ýmsum
glatt í geði með sínum tiltekt-
ÖRN VIÐ EYJAFJÖRÐ
Ætijörðin þarfnast
landsbyggðar og
landsbyggðin á skilið
betri ríkisstjórn.
UNDANFARIÐ hefur örn hald-
ið til út með Eyjafirði og stund-
um haft næturstað skammt frá
bóndabæ. Hann er mjög dökkur
og mun því ungur fugl. Gæsir
óttast hann mjög en svartbakur
inn gerir sér dælt við hann.
Krummi flýgur stundum á eftir
erninum, í hæfilegri fjarlægð og
sýnist þá minnstur fugla.
Yfir varplöndum æðarfugls-
ins er á sumum stöðum enn mik
ill snjór, en byrjaður mun hann
að verpa og velur sér til þess
auða bletti í nágrenninu. Spó-
inn, maríuerlan, steinklappan
og grátittlingurinn hafa nú
bætzt við farfuglana og nú hlýt-
ur sumartíðin að vera nærri. □
honum tekst upp við að gera
grín að sjálfum sér og flokks-
kríli sínu, sem á einn mann í
bæjarstjórn. í vetur bað liann
Olgeir á Vatnsleysu að vera
fréttaritara sinn í Fnjóskadal!
Nú lofar hann hátíðlega eining-
una í Alþýðuflokknum, sem
hvergi eigi sinn líka, en skrifaði
sjálfur undir harðorð mótmæli
gegn álmálinu, sem flokksmenn
hans á Alþingi greiddu atkvæði
með. Öðru hverju hrópar hann
liúrra fyrir flokkskrílinu og seg
ir, að það muni koma þrem
mönnum í bæjarstjórn eða jafn-
vel mynda meirihluta eftir kosn
ingar! Um sjálfan sig talar liann
gjarnan í þriðju persónu, en
lætur stúlkuandlit, klippt úr blöð
um, tala um menn og málefni!
ÖðriTliverju leggur hann raun-
ar gott til mála og er sjálfsagt
bezta sál, en vel væri ef barna-
læknirinn á AM-Iistanum gæti
losað hann við barnaskapinn.
FÆR WILSON SENDIBRÉF
FRA SIGURJÓNI?
Úr því hér er tekið upp létt lijal
um Sigurjón, þykir, að gefnu til
efni, rétt að fá honum annað
umhugsunarefni, sem líka gæti
verið gott fyrir ýmsa að liug-
leiða hér á Iandi. Sigurjón seg-
ist vilja „mótmæla tveggja
flokka kerfi að bandarískri fyr-
irmynd“. Því nefndi hann ekki
brezka fyrirmynd í þessu sam-
bandi? Veit hann ekki, að ná-
lega 100 atkvæða meirihluti
Wilsons í brezka þinginu bygg-
ist á því, að það má nú heita,
að tveggja flokka kerfi ríki, en
það er af því að jafnaðarmenn
og íhaldsmenn þar í landi styðja
einmenningskjördæmafyrir-
komulagið, sem Alþýðuflokkur
inn hér á landi hefur ekki mátt
heyra nefnt. Wilson fékk 48%
atkvæða í kosningunum en 97
atkvæða meirihluta á þingi.
Flokkur með atkvæðamagn,
sem svaraði til 50—60 þingsæta
í hlutfallskosningu, fékk 12 þing
sæti. Ekkert íslenzkt blað hef-
ur, svo Degi sé það kunnugt,
minnzt á „rangláta kjördæma-
skipun“ í Bretlandi í sambandi
við sigur Verkamannaflokksins
þar í vor. Vill Sigurjón ekki ráð
leggja Wilson að nota nú sinn
myndarlega jafnaðarmanna-
meirihluta til að breyta kjör-
dæmaskipuninni í Bretlandi?
BAK VIÐ TJÖLDIN
Orðrómur er uppi um það, að
ýmsir skapþungir en þöglir Al-
þýðuflokksmenn hér í bæ, ætli
nú að veita flokki sínum hirt-
ingu við kjörborðið, og sé það
gert í góðum hug í því skyni, að
reyna að framkalla hughvarf
hjá foringjunum og fá þá til að
gera sér grein fyrir, að fram-
tíð hans sé vonlaus í þjónustu
Sjálfstæðisflokksins. I aðal-
stöðvum Sjálfstæðismanna
syðra, hafa menn áhyggjur aí
slíku. Kunnugir segja, að Bjarni
Benediktsson og jafnvel fram-
takssamir undirforingjar hans
. kunni að taka þá áhættu að
(Framhald á blaðsíðu 2.)