Dagur - 21.05.1966, Qupperneq 2
2
Bæklingur Alþýðufl.
ALÞÝÐUFLOKKURINN á Ak-
ureyri hefur gefið út mynd-
skreyttan kosningabækling og
dreift honum um bæinn. Þegar
að er gáð kemur í ljós, að sam-
vinnuhreyfingin hefur stofnað
eða stutt að stofnun allra þeirra
fyrirtækja, sem þarna eru birt-
ar myndir frá. Undirstrikar
bæklingurinn þannig á hinn
ákjósanlegasta hátt hinn mikla
þátt samvinnuhreyfingarinnar í
uppbyggingu atvinnulífsins hér
á Akureyri.
Líklega hafa orðið mistök í
myndavalinu því að Alþýðu-
flokkurinn vinnur það óþurftar-
verk með íhaldinu, að þrengja
kost samvinnufélaganna.
-1 ■ 111111 ■ 1111 ■ 111 ■ 111 ■ 11
llll■l■lllll■lllllllllllllllll
■ 11111 ■ 111111111111 ■ 11 ■ 11111111 ■ 111 ■ i ■ 111
iliiilliiiilliiililiiilliliiiiiiiiiii'
Eldsvoði í Víkum
á Skasa
UM kl. 5 á miðvikudagsmorguninn varð eldur laus í §
Víkum á Skaga. íbúðarhúsið er gamalt timburhús, 1
tvær hæðir á kjallara. Það brann til grunna á hálfri i
annarri klukkustund. Af efri hæðinni varð engu bjarg- \
að en nokkru af neðri hæð og úr kjallara. Áfast fjós =
og útiliús tókst að verja. Bóndinn í Víkum lieitir Karl |
Árnason og kona hans Margrét Jónsdóttir. Þau voru i
heima ásamt 5 uppkomnum börnum. En móðir bónda i
Anna Tómasdóttir var að lieiman. =
Um eldsupptök er ókunnugt. Tjón þeirra hjóna er i
tilfinnanlegt, því búslóð var lágt tryggð. i
llll»»llll»lllll»llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ll^lllllllllllllllllllll^l^llllllllll^**ll*,■ll,•
Útvarpsumræðurnar
Flugfélag Islands kaupir Boeing-þotu
Ný Frienship-vél tekin í notkun innan skamms
AÐALFUNDUR Flugfélags ís-
lands 1965 var haldinn í Atthagá-
sal Flótel Sögu í Reykjavík þriðju
daginn 17. þ. m. og var hann vel
sóttur af hluthöfuni og starlsmönn
um.
Fundinn setti formaður stjórn-
ar félagsins, Birgir Kjaran. Fund-
arstjóri var kosinn Magnús Brynj
ólfsson, stórkaupmaður, og ritari
Jakob Frímannsson, framkvæmda
stjóri. Formaður Birgir Kjaran og
framkvæmdastjóri Örn O. John-
son lögðu fram greinargóðar
skýrslur um rekstur og afkomu fé
lagsins á árinu 1965.
Starfsemi félagsins gekk vel á
árinu og flugið, bæði annanlands
og til útlanda, hefur stöðugt fær^t
í aukana.
Merkasta framkvæmd félagsins
á árinu var kaup og rekstur nýju
flugvélarinnar Fokker Fr. — Blik-
faxa, en þessi flugvél hefur reynzt
áfburða vel, og er félagið nú að
kaupa sams konar flugvél, sem bú-
izt er við að geti komið til lands-
ins og verði tekin í notkun í næsta
•mánuði.
Samanlögð flutningaaukning fé
fagsins á árinu var. um 24% mið-
að við fyrra ár. SÆfanýting innan-
lands varð um 60%, en sætanýt-
ing í utanlandsfluginu varð 64%.
Á árinu flutti Flugfélagið um 30
þúsund farþega milli Reykjavíkur
og Akureyrar, en ntilli landa
fluttu vélar félagsins yfir 43 þús-
und farþega, og í samanlögðu á-
ætlunarflugi innanland og milli
landa voru farþegar 88 þúsund.
Félagið hefur að undanförnu haft
með höndum flugferðir bæði til
Grænlands og til Færeyja, og mun
þeim ferðum verða haldið áfram.
Innanlandsflugið hefur, eins og
áður, verið rekið með halla, en
utanlandsflugið hefur gefið góðan
arð, þannig, að niðurstöður á
rekstursreikningi sýndu krónur
8.242.935.00 í rekstrarafgang, auk
binna, lögheiiniluðu afskrifta af
bókfásrðu verði flugvélanna.
Langstærsta átakið sem fram-
tindan eT, nú á næstunni, er kaup
•á-þötu- til millilandaflugsins. Á-
kveðið hefur verið að kaupa stóra
ílugvél af tegundinni Boeing 727
óg múll hún kosta með öllu til-
heyrandi um 300 milljónir kr. og
er ábyrgð ríkisins fengin fyrir
8Ó%- af- kaupverðinu. Þegar þcss-
ar nýju flugvélar koma í notkun,
er gert ráð fyrir að íélagið selji
eitthvað af hinum eldri flugvél-
um sínum.
Fundurinn þakkaði hr. Erni O.
Jolinson fyrir stjórn hans á rekstri
félagsins á liðnu ári, því í starfi
sínu fyrir félagið hefur hann sýnt
öbilandi eljúsemi, dugnað og á-
huga, er hann því verður fyllsta
trausts af öllum aðilum.
Svo sem kunnugt er, var Flug-
félag íslands stofnað á Akureyri
fyrir 29 árum eða árið 1937, og
þá undir nafninu Flugfélag Ak-
ureyrar. En árið 1940 var heimil-
isfang félagsins flutt til Reykja-
víkur og var þá nafni þess breytt
i Flugfélag íslands. Á Akureyri á
því Flugfélag íslands mjög sterk-
ar rætur og á þar marga áhuga-
menn fyrir velgengni og jtróun
félagsins. Flugfélag Islands á auk
jress almennum vinsældum að
fagna um allt land, því það gegnir
mikilvægu og ómissandi hlutverki
í þágu landsmanna allra.
Á fundinum var ákveðið að
auka hlutafé félagsins um 40 millj.
kr. og^ahun brátt hefjast sala jress-
ara hlútabréfa til hluthafa.
Kosningar og kjarasamningar
Allir íhaldsandstæð-;
ingar sameinast um
B-LISTANN.
SIGURÐUR JÓFIANNESSON
sýndi fram á jrað í ágætri ræðu,
að þeir?sem reyndu að efla D-list-
ann, yúnu Jrar með að því, að
veikja aðstöðu verkafólks og ann-
arra launþega í kjarasamningum
við ríkisstjórnina upp úr næstu
mánaðamótum. Flann sagði sem
er, að ríkisstjórnin hefði nú orðið
mikil afskipti af; kjarasamningum
og væri þar oft að ýmsu leyti
beinn aðili.
Þetta ér víst eitt af því, sem ís-
lendingur kallar málflutning „á
fölskum forsendum". En stað-
reynd er það eigi að síður.
Sumarið 1962 tók stjórnin „að-
vörnn“ í bæjarstjórnarkosningum
lil greina (fylgistap á Akureyri ca.
200 atkvæði) og hætti j>á [>eim sið,
að breyta gengi ár hvert (1960 og
1961) vegna launasamninga. Hún
hefur enn opin augu fyrir aðvör-
un. Alþingiskosningar eru á næsta
ári.
(Framhald af blaðsíðu 8).
ER INGÓLFUR ATVINNU-
REKANDI?
BJÖRN JÓNSSON sagði, að all
ir efstu menn B-listans væru
atvinnurekendur. Þar brást hon
um bogalistin. Jakob Frímanns
son og Arnþór Þorsteinsson eru
launþegar í þjónustu almanna-
samtaka. Hagnaður, sem KEA
kynni að falla í skaut, rennur
ekki til Jakobs, og Arnjrór fær
ekki gróða samvinnuverksmiðj-
anna, ef einhver væri. Með
sama rétti gæti Björn sagt, að
Ingólfur Árnason rafveitustjóri
sé atvinnurekandi. Hann stjórn-
ar atvinnurekstri og þiggur
laun fyrir, en gróði þess atvinnu
reksturs, ef einhver væri, er
ekki hans gróði. — Sigurður Óli
Brynjólfsson er, sem kunnugt
er, gagnfræðaskólakennari hér
í bænum,
SJALFSTÆÐISMENN
ÁMINNTIR.
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTT-
IR flutti í útvarpsumræðunum
stutt en skilmerkilegt erindi um
barnaheimili, vöggustofur, leik-
velli og fyrirhugaða stækkun
Fjórðungssjúkrahússins, sem
hún starfar við. Ekki lét hún í
ljós skoðun á því, hvort heilsu-
verndarstöð ætti að vera í
. sjúkrahúsinu eða í sérstökum
húsakynnum. Margir aðrir
ræddu raunar um stækkun
sjúkrahússins. — f ræðulok
beindi Ingibjörg tveim áskorun-
um til Sjálfstæðismanna hér í
bæ. í fyrsta lagi bað hún þá
„standa saman“ í kosningunum
og bendir það á, að nokkur tví-
skinnungur sé í liði þeirra. í
öðru lagi réð hún þeim frá því
að „kasta auri“ á aðra. Var það
ekki tilefnislaust, því að Jón Sól
nes var þá nýbúinn að brigzla
Framsóknarmönnum um illt
innræti, þó ræða hans væri að
öðru leyti bragðlítil. Sjálfur er
Jón eflaust vel innrættur mað-
ur eins og fólk er flest og ístöðu
leysi þeirra félaga gagnvart
Reykj avikurvaldinu þarf ekki
að rekja til innrætis. Gagnrýni
og aurkast er tvennt ólíkt. Q
VISTASKIPTI.
UNGUR maður á snærum Al-
þýðubandalagsins flutti snotra
ræðu í útvarpsumræðunum.
Reiknaði út meðalaldur bæjar-
fulltrúa og þótti þeir, að því er
virtist, flestir of gamlir. Ekki er
vitað hvernig Jón Ingimarsson
og jafnaldrar hans hafa tekið
hugleiðingu þessari. Bragi upp-
lýsti síðar, að þessi ungi maður
hefði a. m. k. til skamms tíma
verið skrásettur í félagi ungra
Sjálfstæðismanna. Ekki var því
mótmælt, að svo væri.
UTAN GATTA
JON INGIMARSSON flutti
gamla skáldsögu þess efnis, að
Hermann Jónasson hefði rofið
samstarfið í vinstri stjórninni í
desember 1958. Einkennilegt, ef
honum hefur ekki enn skilizt,
svo „fulloi'ðnum" manni, hvern-
ig stjórnarskiptin bar að. Man
hann ekki, þegar um vorið sama
ár, greiddi Einar Olgeirsson at-
kvæði gegn vinstri stjórninni á
Alþingi? Eftir það upphófst sam
starf svonefndra Moskvukomm-
únista og Sjálfstæðismanna um
að koma henni fyrir kattarnef.
Hannibal fékk ekki rönd við
reist. Væri ekki hollt fyrir Jón,
að bera saman kaupmátt tíma-
kaupsins haustið 1958 og síðar?
Slíkar staðreyndir jsarf formað-
ur verkalýðsfélags að þekkja.
Annars var það áberandi í ræð-
um hans og annarra Alþýðu-
bandalagsmanna, að þeir búast
við að fleiri verkamenn og laun-
þegar en nokkru sinni fyrr,
fylgi nú Framsóknarflokknum
að málum.
ÓHEPPILEG SAMFYLGD
EF Ingibjörg Magnúsdóttir hef-
ur áhuga á að hraða stækkun
sjúkrahússins, sem hún sjálf-
sagt hefur, hefir hún nú vahð
óheppilega leið. Eftir að. hafa
gerzt venzlamaður Sjálfstæðis-
flokksins verður hún trúlega að
taka sérstakt tillit til núverandi
kringumstæðna ríkisstj ói'narinn
ar í sjúkx-ahúsmálum, ef dæma
skal eftir því, serri hér tíðkast
hjá Sjálfstæðismönnum. En þar
hefur óneitanlega vei'ið um
seinagang að ræða. Þegar núver
andi stjórnarflokkar tóku við,
var aðalbygging Landspítalans
komin undir þak. Nú, eftir sjö
ár, er þessari bráðnauðsynlegu
framkvæmd enn ólokið. Borgar
spítalinn r Rcykjavik er búihn
að vera í smíðum í 13 ár og að-
eins röntgendeildin nýlega tek-
in til starfa.
Núverandi stjórn hefur ef-
laust hug á, að greiða skuld
sína við þann spítala, En ríkis-
framlag tii sjúkrahúsa í heild
hefur hún skorið niður um
20%.
RÍKISSTJÓRNIN KIPPTI
AÐ SÉR HENDINNI
ÞAÐ var ppplýst í útvarpsum-
í'æðunum hér, að bæjarsjóður
hefði lagt frám eina milljón kr.
og verið reiðubúinn að útvega
aðra milljón til sjúkrahússbygg
ingarinnar á þessu ári. í sam-
ræmi við landslög var farið
fram á þi'jár milljónir króna úr
ríkissjóði. í stað þriggja millj.
kom 1/30 þeirrar upphæðar, þ.
e. 100 þúsund krónum í fjárlög-
in fyri 1966.
Stuðníngsmenn B-listans. Leggi 5 skerf í KOSNINGASJÖÐINN