Dagur - 21.05.1966, Blaðsíða 7
I
SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
bankastjóri á sama stað, meðan
þeir dvöldu hér í vikunni sem
leið? Voru þeir kannski að
semja ræður fyrir einhverja,
samanber hugsanagang sunnan-
piltanna um það efni?
SNÆLDA EÐA RENTU-
KAMMER
Þá finnst þeim sunnanpiltum,
að þeir liafi náð sér lieldur bet-
ur niðri á Degi, með því að
prenta upp einhver ununæli
Reykvíkings í Tímanum í
fyrra, um eflingu höfuðborgar-
innar! Engum kemur á óvart,
þó að Reykvíkingur skrifi um
málefni Reykjavíkur í reykvískt
blað og beri hag hennar fyrir
brjósti. En ístöðuleysi Sjálf-
stæðismanna hér á Akureyri og
blaðs þeirra gagnvart Reykja-
víkuráhrifum og Reykjavíkur-
valdi, er ógeðfellt fyrirbrigði og
hættulegt fyrir Norðurland. Hér
verður það að kallast rauna-
saga, að bæjarstjórnarfulltrúar-
sem kalla sig Sjálfstæðismenn,
skuli snúast eins og sælda í norð
lenzku stórmáli, ef andað er á
þá að sunnan. Ef slíkt yrði al-
mennt hjá bæjarfulltrúum, má
alveg eins stjórna Akureyri frá
einhverju rentukammeri fyrir
sunnan og láta unga menn úr
Reykjavík eða Kópavogi fljúga
á milli með pappírana.
ÞARF ÞAÐ AÐ VERA
ÚTLENT?
Blað Sjálfstæðismanna hér, flyt
ur þá frétt og telur til hneyksl-
unar, að Tíminn hafi sagt 13.
þ. m., að reykvískir kjósendur
eigi að svara því, livort þeir
vilja, að „Reykjavík haldi áfram
að vera borg liins íslenzka fram-
taks“. Hvað meina mennirnir?
Finnst þeim sjálfsagt, að Reykja
víkurframtakið sé útlent, eða
hvað? Ekki munu margir Norð-
lendingar vera á þeirri skoðun.
HEILAR í ÓLAGI
Sjálfstæðisforustunni liér í bæ
myndi ekki veita af því, að fá
sér „rafmagnsheila“ eða a. m. k.
aðra heila en þá, sem nú hugsa
á hennar vegum. Á einni síðu ís
lendings í fyrradag eru það kall
aðar „falskar forsendur“ að hafa
landsmál og landsstjórn í huga
í sambandi við bæjarstjórnar-
kösningamar. Á næstu síðu seg-
ir blaðið hins vegar, að vel-
gengni á Húsavík sé m. a. að
þakka „traustri stjórn þjóð-
mála“. Eru þetta ekki „falskar
forsendur“ á Húsavík, eða
hvað? Sjálfstæðisflokkurinn á
aðeins einn fulltrúa í bæjar-
stjórninni þar. í forystugrein á
sömu síðu segir, að um upp-
byggingu Akureyrar verði að
liafa „nána samvinnu við ríkis-
valdið“. Hvernig geta það þá
verið „falskar forsendur“ í bæj-
arsíjómarkosningum, að hafa
þetta sama ríkisvald í huga og
reyna að aðvara það í kosning-
um, ef ástæða þykir til. Og nú
væri ráð fyrir þá Sjálfstæðis-
menn, að leggja sína gömlu
heila í bleyti.
AKUREYRARIÐNAÐURINN
OG FRAMTÍÐIN
Vegna stefnu ríkisstjórnarinnar
í landsmálum m. a. í tolla- og
innflutningsmálum, er stærsti
atvinnuvegur Akureyringa, iðn-
aðurinn, í stórhættu, og sumar
greinar lians hafa þegar lagzt
niður. En við iðnað á Akureyri
vinna mörg hundruð karla og
kvenna. Stjórnarstefnan gagn-
vart iðnaðinum er landsmál, og
Sjálfstæðismenn vilja ekki að
um það sé talað, en hér er jafn-
framt um að ræða stórmál fyrir
íbúa Akureyrar og framtíð bæj-
arins. Þess vegna hefur Amþór
Þorsteinsson og fleiri Framsókn
armenn rætt þessi mál hiklaust,
hvað sem hver segir, og hvetja
Akureyringa til að hafa þau í
huga við kjörborðin á morgun.
TIL LfTILS GAGNS
Sá orðrómur gengur í bænum,
að hart sé lagt að mörgum kon-
um, að kjósa D-listann, vegna
Ingibjargar Magnúsdóttur. Sé
þeim jafnframt bent á þann
mögulcika, að þær geti strikað
út af listanum þá, sem ofar eru,
ef þær vilji ekki styðja þá
menn. Þessum konum skal á
það bent, að kosningalög eru
nú, eftir að stjórnarskránni var
breytt 1959, þannig úr garði
gerð, að hcita má útilokað, að
útstrikanir hafi nokkur áhrif á
úrslit kosninga. Látið því ekki
vikapilta að sunnan hlakka yfir
því að hafa narrað ykkur til að
kjósa D-Iistann á þessum röngu
íorsendum.
LÚÐRABLÁ STUR
Efsti maður A-listans, Þorvald-
ur Jónsson, liafnaði í blaðavið-
tali „lúðrablæstri"4 og sagði slík
„meðul,, litlu breyta, þótt fagur
gæti verið.
Annar maður á sama lista,
Bragi Sigurjónsson, auglýsti
sjálfur hljómsveit i útvarpsum-
ræðum um bæjarmál, er leika
myndi á kjósendafundi A-list-
ans, vonlítill um almenna þátt-
töku án skemmtiatriða.
ER GÍSLI SÁ EINl?
Gísli Jónsson gerði sig brosleg-
an með því að segja frá í út-
varpsumræðum, að hann hefði
spurt mann úti í bæ, livort
hann liefði skrifað, eða bæri
ábyrgð á nafnlausri klausu liér
í blaðinu og fengið neitandi
svar. Ætli Gísli sé eini fullorðni
maðurinn á Akureyri, sem veit
ekki að allar nafnlausar grein-
ar í blöðum eru á ábyrgð rit-
stjórans? Það yrði seinlegt verk
fyrir Gísla í nálega 10 þúsund
manna bæ, að fá vitneskju um
greinarhöfunda með þessari að-
ferð!
«11111111111111111IIIllllllll1111111111111111IIIIIIllllIII!■■■■ ,,,
1 Kosningaáróður og [
[ peningaviðskipti eiga |
| ekki samleið. [
~II|||IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIKM 11111111111111?
FIMM MENN FRÁ
B-LISTANUM
FULLTRÚAR B-listans í út-
varpsumræðunum sl. þriðjudags
kvöld voru, Stefán Reykjalín,
Sigurður Jóhannesson og Hauk-
ur Ámason í fystu uniferð, Arn-
þór Þorsteinsson í annarri um-
ferð og Sigurður ÓIi Brynjólfs-
son í síðustu umferð.
Stuðningsfólk B-listans hefur
ástæðu til að þakka þeim glögg-
an, ákveðinn og myndarlegan
málflutning af listans hálfu.
Árni Björnsson kennari
Klukkan hringdi. Hann er dáinn,
horfum við á auða rúmið.
Ljósgeislar frá lífsins armi
lýsir þögult grafar húmið.
Allt sitt líf hann byggði á bjargi,
byggði aldrei neitt á sandi.
Ungum kenndi árum saman,
árdagsmaður, víðsýnn andi.
Hann var miklum gáfum gæddur,
gjörfilegur öllum þótti.
Góðra vina gleðimiðill.
Gæddur var hann eikarþrótti.
Ungur hóf sitt hreina merki,
hataði allt óhreint þvaður.
Stór og trúr hann var í verki,
vökufús og hugarglaður.
Hann var orðsnjall fleslum framar.
Fræddi bæði gamla og unga.
Duft hans þekur þögul moldin,
þögnuð er hin snjalla tunga.
Minningin hin m.ijcja, hljóða
mun hans vinum lengi orna.
Þegar nóttin íoks er íiðín
lýsa eldar bjartra morgna.
Hann er látinn, liéðan kvaddur,
hnípnir vinir sakna og trega.
Heilög rödd þó hefur talað.
Hann mun lifa eilíflega.
En við þökkum verk hans vönduð.
Vonglöð lítum upp til hæða.
Signi guð hans lága leiði.
Lofum liöfund allra gæða.
Sigurður Sveinbjörnsson.
MUNIÐ minningarspjöld Elli-
heimilis Akureyrar. Fást í
Skemmunni.
MINJASAFNIÐ á Akureyri er
opið á sunnudögum kl. 2—4
e.h. Á öðrum tímum, vegna
skóla- og aðkomufólks, eftir
samkomulagi. Sími safnsins
er 11162, safnvarðar 11272.
GÓÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
Auglýsingasími Dags
er 1-11-67
HAGKAUE
AKUREYRI
Lokað næsfkomandi mánudag
7
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Ágúst Þor-
leifsson, sími 11563.
BÆGISÁRPRESTAKALL: —
Síra Theódór Jónsson átti
aldarafmæli 16. maí sl. Þess
verður minnzt með athöfn í
Bægisárkirkju sunnudaginn
12. júní n. k. Á. S.
HJÓNAEFNI. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Álf-
heiður Karlsdóttir Ólafsfirði
og Einar Benediktsson Hvassa
felli. — Ennfremur ungfrú
Kristín Kristinsdóttir Dalvik
og Villy Hinrikssen Akureyri.
SKARLAKÓR
AKUREYRAR
heldur æfingu á
venjulegum stað,
mánudaginn 23. þ. m.
kl. 8.30 e.h. Áríðandi
að allir félagar mæti.
Stjórnin.
+----------------*
f
Dagur gefur ekki úf j
aukabiað á síðúsfu j
síundu, bækling eða j
dreifibréf.
FEGURÐAR-
SAMKEPPNIN
í Yikunni.
mrnwtm
SJÓMANNSEFNI
Vantar 14—15 ára pilt á
bát, sem stundar færi og
snúrvoð.
Sími 11166.
TAPAÐ
PIERPONT karlm. úr
tapaðist, sennilega í mið-
bænum, s. 1. laugardags-
kvöld. — Vinsamlegast
skilist á afgreiðslu Dags.
TILBOÐ ÓSKAST
í sendiferðábifreiðiná
A-37 Chevrolet
árgerð 1955.
Fataverksmiðjan HEKLA
Akureyri
Til sölu:
6 manna
CHEVROLETH
árgerð 1955. Nýsprautað-
ur. Uppl. í síma:
2 - 13 - 13.