Dagur - 28.05.1966, Page 1
HOTEL
Herbergis-
pantanir.
FerSa-
skriístoían
Akureyri,
Túngötu 1.
Sími 11475
FERÐASKRIFSIOFAN
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggjum
ferÖi?
skauta
á roilli.
Farseðlar
með
Flugíél. ísl.
og
Lofíleiðum.
VEEIÐ er að Ijúka samningum
um kaup á Skaftafelli í Öræf-
um. En þar er nýr þjóðgarður
fyrirhugaður, en Skriðufell er
mjög stór jörð og náttúrufeg-
urð undramikil og fjölskrúðug.
Þar er mælt, að finnist flest, er
íslenzka náttúru prýði mest og
mjög mikil veðursæld er líka
þar. Landareignin er girt stór-
fljótum, hafi og jökli.
Söfnun hefur staðið yfir til
jarðarkaupanna, en mennta-
málaráðherra hefur tjáð sig fús-
an til að friðlýsa landið. Alþingi
hefur veitt til þessa nokkurt fé.
Náttúruverndarráð hefur unnið
að málinu og telur þá lausn
hina heppilegustu, að land þetta
verði friðlýst.
Eigendur og ábúendur í Skafta
feiii í Öræfum eru þeir Ragnar
og Jón Stefánssynir. Q
Sjósfangveiðimóf á Akur-
eyri 11. og 12. júní n.k.
DAGANA 11. og 12. júní n. k.
verður haldið alþjóðlegt sjóstang
veiðimót á Akureyri. Er þetta
3. mótið haldið Norðanlands.
Undangengin mót hafa verið
fjölsótt, ánægjuleg og gefið góð
an feng.
Tilhögun mótsins verður á
þessa leið:
Föstudaginn 10. júní kl. 21.00
verður mótið sett í Sjálfstæðis-
húsinu á Akureyri.
Laugardaginn 11. júní kl.
08.00 lagt af stað áleiðis til Dal-
víkur. Þar biða bátarnir kepp-
endanna, lagt verður úr höfn kl.
09.00, komið að landi kl. 17.00.
Um kvöldið kl. 21.00 verður
úrslitum dagsins lýst í Sjálfstæð
ishúsinu. ■
Sunnudaginn 12. júní kl. 07.00
lagt af stað áleiðis til Dalvíkur.
Lagt úr höfn kl. 08.00. Komið
að landi kl. 16.00. Um kvöldið
kl. 19.30 verður sameiginlegt
borðhald í Sjálfstæðishúsinu,
úrslitum lýst, verðlaunum út-
hlutað og mótinu slitið.
Þátttaka tilkynnist til Ferða-
skrifstofunnar Sögu í Reykja-
vík (sími 17600) eða á Akur-
eyri (sími 12950) fyrir 30. þ. m.
Látið ekki undir höfuð leggjast
að tilkynna þátttöku, sem. aJJra
fyrst.
(Frá Sjóstangveiðifélagi Ak-
ureyrar.)
FuJltrúar á 38. ársfundi Mjólkursamlags KEA.
(Ljósm.: E. D.)
BÆNDUR MÓTMÆLA LÁNS
FJÁRKREPPUNNI
á 3«. ársfimdi Mjólkursamlags K.E.A.
FYRSTISJÚKRALIÐÁHÓPURINN
útskrifaður frá Fjórðungssjúkrahúsinu
FJORÐUNGSSJUKRAHUSIÐ
á Akureyri útskrifaði í fyrra-
dag fyrsta hóp sjúkraliða, 14
talsins, en fjórir aðrir hópar við
sjúkrahús syðra eru enn við
nám. Nám þetta stendur í 8
mánuði. Hinir nýútskrifuðu
sjúkraliðar verða allir við störf
hér í sumar nema tveir við
Kristneshæli.
Hér er um nýja starfsstétt að
r
Osekkjað korn flutt til
landsins í fyrsta sinn
BRÚARFOSS kom til Reykja-
víkur 21. maí sl. með 250 tonn
ósekkjaðs korns frá Bandaríkj-
unum og er það í fyrsta sinn,
sem korn er flutt laust í lest
hingað til lands, ómalað og
ósekkjað. Kornið verður malað
hér í fóðurblöndur.
Korninu var blásið um slöngu
úr kornhlöðu í lest skipsins og
tók útskipun rúmlega eina
klukkustund.
(Framhald á blaðsíðu 2.)
ræða, sem án efa bætir úr
brýnni þörf á starfsliði í sjúkra-
húsum Iandsins. □
ARDEGIS hinn 26. maí hófst
38. ársfundur Mjólkursamlags
KEA í Samkomuhúsinu á Akur
eyri. Rétt til fundarsetu áttu 403
kjörnir fulltrúar hinna ýmsu
deilda á samlagssvæðinu og
mun það fjölmennasti fulltrúa-
fundur, sem um getur hér norð-
aniands a. m. k.
Þessi árstími er óhagslæður
Jónas Kristjánsson flytur ársskýrslu Mjólkursamlags KEA.
bændum til ferðalaga og fund-
arsetu, ó meðan sauðburður enn
stendur yfir og óhagstætt veður
far eykur naiiðsynlega umönn-
un heimafyrir. Samkomuhúsið
var þó þétt skipað.
Brynjólfur Sveinsson bauð
gesti velkomna. Fundarstjórar
voru Marinó Þorsteinsson bóndi
í Engihlíð og Jónas Halldórsson
bóndi á Rifkelsstöðum en fund-
arritarar Daníel Pálmason
bóndi í Núpufelli og Sigurjón
Steinsson ráðunautur, ásamt
Val Arnþórssyni fulltrúa.
Jónas Kristjánsson, sem veitt
hefur Mjólkursamlagi KEA for-
stöðu frá upphafi, flutti starfs-
skýrslu samlagsins í greinar-
góðri ræðu, sem vandi bans er.
í skýrslu mjólkursamlags-
stjóra Jónasar Kristjánssonar
kom það í Ijós, að mjóikursam-
lagið hafði tekið á móti samials
20.172.860 lítrum mjólkur á sl.
ári með 3.959% fitumagni. Fram
leiðsluaukningin á samlagssvæð
inu hafði orðið 1.594.175 lítrar
eða 8.58%. — Af samanlögðu
mjólkurmagni seldist rúm 18%
sem neyziumjólk, en úr hinum
hluta mjólkurinnar voru unnar
ýmsar mjólkurvörur.
Vörubirgðir og útistandandi
skuldir námu í árslok kr.
82.701.538.67.
Ni'ðurstöður á rekstursreikn-
ingi fyrir árið 1965 sýndu, að
framleiðendum hafði verið út-
boigað með mánaðarlegum
greiðslum 551.51 aurar að meðal
tali á lítra, auk gjalda til Bún-
aðarmálasjóðs, Stofnlánasjóðs o.
íl. Eftirstöðvar á rekstursreikn-
ingi Mjólkursamlagsins var sam
tals kr. 41.389.345.51, sem gerir
205.17 aura á hvern mjólkur-
lítra. Fundurinn samþykkti að
þessum eftirstöðvum skildi var-
ið þannig, að 5 aurar á lítra
yrðu lagðir í Samlagssjóð, 115
aurar á lítra skildi greitt í yið-
skiptareikninga mjólkurfram-
leiðenda, en afgangurinn, 85
aurar á Htra skildi greitt til
þeiira eftir því sem núverandi
vörubirgðir seljast, eða mögu-
(Framhald á blaðsíðu 7).
LÁGHEIÐI
S N1Ó ÞU N G
XJNNID er að því að ryðja snjó
af Lágheiði, en þar er mikill
snjór og gengúr verkið því seint.
Karlakór Olafsfjarðar hélt
samsöng í Tjarnarborg á laugar
daginn, undir stjórn Magnusar
Magnússonar. Einsöngvarar
voru séra Ingþór Indriðason,
Gísli Kristinsson og Björn Þór
Olafsson. Undirtektir voru hin-
ar bteztu.
Stígandi er farinn á síld. Grá-
sleppuveiði er lokið. Fisklaust
er hér að kalla. B. S.