Dagur - 28.05.1966, Qupperneq 2
2
r
Utflutningur Vestur-Evrópu til vanþróaðra
landa f jórum sinnum meiri en Bandaríkjanna
ÞEGAR HEIL STÉTT ER VITT
FYRIR DUGNAÐ
MARGT var rætt í hópi þeirra
280 bænda, sem sátu ársfund
Mjólkursamlags KEA á fimmtu
daginn. Og í fyrsta sinn um ára-
bil voru bændur verulega
óánægðir með sinn liag, eftir að
stórkostleg tekjuskerðing
þeirra, sem mjólkurframleiðslu
stunda, liggur Ijós fyrir, enda
barðorð mótmæli samþykkt á
fundinum.
En þrátt fyrir óánægju, sem
er eðlileg og þjóðfélagið sem
heild hefur ekki viljað bæta úr
sérstaklega, má vænta þess, að
úr rætist. Verðlagning búvara
mörg undanfarin ár var óheppi-
leg, svo sem nú er komið í Ijós,
en það tekur mörg ár að breyta
þróuninni á þann veg, sem'nú
er talin æskilegast, þ. e. að auka
sauðfjárframleiðslu en draga úr
mjólkurframleiðslunni.
í heild munu Eyfirðingar í
bændastétt hafa allbreið bök til
að þola nokkur áföll, án þess að
bugast, enda um hinar ágætustu
sveitir að ræða við Eyjafjörð,
ræktun mikil, byggingar góðar
og félagssamtök traust. Það
kom fram í skýrslu samlags-
stjórans, Jónasar Kristjánsson-
ar, að á siðustu 4 árum hefur
mjólkurframleiðendum á félags
svæðinu fækkað um 86. En að
meðaltali lagði hver mjólkur-
framleiðandi inn 41 þús. lítra
mjólkur. Framleiðendur eru 492
„BÆRINN OKKAR"
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
sýnir Bæinn okkar í Iðnó í
Reykjavík annan í hvítasunnu
kl. 3 og 9. Leikstjóri er Jónas
Jónasson. □
r
- Osekkjað korn . ..
(Framhald af blaðsíðu 1).
Vonandi er hér um að ræða
byrjun á hagkvæmari flutning-
um korns hingað til lands en
tíðkast hefur fram að þessu. Er
Jíklegt, að innan tíðar þyki eins
fráleitt að flytja sekkjað korn
ogiþað þykir nú, að flytja olíu í
tunnum landa í milli. □
talsins. Af sveitadeildunum er
Qngulsstaðadeild hæst í mjólk-
urframleiðslu, lagði inn 3.126.014
Itr. á árinu, næst Saurbæjar-
deild með 2.531.711 ltr. og í
þriðja sæti var Svarfdæladeild
með 2.513.209 ltr. Tala þeirra
innleggjenda, sem á síðasta ári
sendu yfir 100 þús. ltr. til sam-
lagsins hafði hækkað úr 10 í 14.
En hæst meðaltal mjólkurinn-
leggjenda, utan Akureyrar, er í
Hrafnagilsdeild. Þar hafði með-
albóndinn 59.660 ltr., bændur á
Svalbarðsströnd 57.890 að meðal
taii.
Smjörbirgiðir um sl. áramót
voru 432 tonn og af ostum 145
tonn. Á árinu 1964 voru seld
héðan til útlanda 332 tonn
smjörs, en á síðasta ári ekkert.
Samlagsstjórinn ræddi nokk-
uð um nýju mjólkurvinnslustöð
ina, sem bygging er hafin á.
Hann hvað þá hættu óðum nálg-
ast vegna þrengsla í gamla sam-
laginu, að mjólkurvörur frá Ak-
ureyri skipuðu ekki þann sess
í áliti neytendanna, sem verið
hefði til þessa. Bankar og lána-
stofnanir neita nú að lána fé til
byggingarinnar. Afleiðing þess
er stöðvun framkvæmdanna.
ÞÓ UNDARLEGT megi virðast,
jókst útflutningur Vestur-
Evrópu til vanþróaðra landa
enn um 12 af hundraði árið 1965,
en árið áður nam aukningin 7
af hundraði. Virðist sem Vestur-
Evrópa hafi mjög styrkt að-
stöðu sína á þessum vettvangi
í samkeppninni við Bandaríkin.
Útflutningur þeirra til vanþró-
aðra landa nam á liðnu ári ein-
ungis 3 af hundraði, en árið 1964
nam aukningin 13 af hundraði.
Þessir útreikningar hafa ver-:
ið gerðir af Efnahagsnefnd Sam
einuðu þjóðanna fyrir Evrópu
(ECE), sem jafnframt komst að
þeirri niðurstöðu, að sú mjög
útbreidda skoðun, að vanþró-
uðu löndin munu neyðast til að
haga innflutningsaukningu
sinni eftir útflutningsaukning-
unni á árinu 1965, hefði ekki
reynzt rétt enn sem komið er.
Þetta stafar af því að innflutn-
ingur Vestur-Evrópu, Banda-
ríkjanna og Japans til vanþró-
uðu landanna jókst að verð-
mæti um ca. 6 af hundraði á
fyrstu þremur ársfjórðungum
1965 miðað við sama tímaskeið
1964. Verzlunin hina leiðina
jókst um 12 af hundraði.
Aukning Japana á útflutningi
til vanþróuðu landanna var
veruleg, eða samtals um 40 af
hundraði.
Mismunurinn á innflutnings-
aukning Efnahagsbandalags-
landanna og EFTA-landanna
var ekki mikill árið 1965, þrátt
fyrir samdráttinn í brezkum
innflutningi og verulega aukn-
ingu þýzks innflutnings. Inn-
flutningur Frakka og Svisslend
inga var óbreyttur, en innflutn-
ingur ítala dróst saman. Á
Spáni og í Grikklandi varð
veruleg aukning á innflutningi,
en í Júgóslavíu minnkaði hann.
Breytingar á útflutningi voru
áþekkar. í öllum iðnaðarlönd-
um Vestur-Evrópu jókst hann
um ca. 10 af hundraði, en á í-
talíu um heil 20 af hundraði.
Gagnstætt útreikningum
beindist útflutningsaukningin
ekki að svæðisbundnum við-
skiptum, heldur að útflutningi
til annarra svæða. Vei'ðmæti út
flutningsins til Norður-Amer-
(Framhald á blaðsíðu 5.)
Innanlandsflug Flugfélags íslands
- Síldarleitarskip eg síldveiðar
(Framhald af blaðsíðu 8).
mannafélagi Eyjafjarðar að þeg-
ar yrði hafinn undirbúningur að
smíði síldarleitarskips og and-
virði skipsins yrði greitt af út-
vegsmönnum og sjómönnum og
yrði tekið (4% af óskiptum síld
arafla og kaupendur síldarinn-
ar legðu fram 14% á móti. Það
virðist því að ekki hefði mátt
dragast öllu lengur að koma
þessu máli af stað. Hinn 17. maí
sl. var undirritaður samningur
um smíði síldarleitarskips og
verður skipið byggt í Bretlandi
og á að afhendast eftir 13 mán-
uði frá undirskriftardegi. Má
því telja að tillaga Útvegsmanna
félags Eyjafjarðar hafi borið
skjótan og góðan árangur.
Dauft er yfir síldveiðum á
Austfjarðármiðum. Sl. nótt
fengu 11 skip um 1600 lestir eða
um 11 til 12 þúsund mál. Settar
hafa verið upp vigtar við flest
löndunartæki síldarbræðslanna
og verður öll bræðslusíld vegin
í sumar. Talið hefur verið að
135 kg. (150 Itr.) væri í hverju
síldarmáli. Við athugun sl.
haust og nú í vor hefur þessi
þungi reynzt nokkru meiri eða
uppí 147 til 148 kg. úr máli enda
síldin sem vegin hefur verið
mjög mögur, eða 8 til 9% feit.
Eins og sagt var frá hér í blað
inu fyrir nokkru koma síldar-
og hafrannsóknarskipin saman
hér á Akureyri að loknum sín-
um rannsóknum. Ákveðið hafði
verið að skipin kæmu hingað
14. júní n. k. en að beiðni Norð-
manna verður komið hingað
tveim dögum fyrr eða 12. júní.
ÞEGAR sumaráætlunin hefir að
fullu gengið í gildi verður flug-
inu hagað þannig:
Frá Reykjavík til Akureyrar
verða þrjár ferðir á dag, nema
á miðvikudögum, þá eru tvær
ferðir. Af þessum tuttugu ferð-
um í viku verða 18 með Friend-
ship og tvær með DC-3 flug-
vélum.
TU þessa hafa miðdagsferðir.
milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar oftast haft viðkomu á fleiri
stöðum norðanlands. í sumar
verða þessar ferðir að mestu
leyti flognar beint milli stað-
anna t. d. á föstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum.
Til Vestmannaeyja verða 18
ferðir í viku, þar af þrjár á
mánudögum, miðvikudögum,
föstudögum og laugardögum, en
Stangveiðitíminn fer senn að hefjast. Veiðisögur rifjast upp, aðrar
eru framundan. Og hér bregður írskur skopteiknari upp mynd af
veiði og veiðimönnum.
tvær ferðir aðra daga. Fjórtán
ferðir verða flognar með Friend
ship og fjórar með DC-3.
Til Egilsstaða verða ellefu
ferðir í viku beint frá Reykja-
vík, en auk þess ferðir um Akur
eyri á þriðjudögum, fimmtudög
um og á sunnudögum frá ísa-
firði, Akureyri og Höfn í Horna
firði.
Til ísafjarðar . verða ferðir
allá dága Vikúnnar.
Til Hafnar í Hornafirði verða
4 ferðir í viku, á mánudögum,
miðvikudögum, föstudögum og
Iaugardögum.
Til Sauðárkróks verða einnig
fjórar ferðir, og sú nýbreytni
tekin upp, að flogið vei'ður milli
Reykjavíkur og Sauðárkróks án
viðkomu annars staðar, á mánu
dögum, miðvikudögum, föstu-
dögum og laugardögum.
Til Húsavíkur verða þrjár
ferðir í viku, á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum.
Til Patreksfjarðar verður
einnig flogið þrisvar í viku, á
þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum.
Til Fagurhólsmýrar verður
flogið á miðvikudögum.
Til Þórshafnar og Kópaskers
verður flogið þrisvar í viku, á
mánudögum, fimmtudögum og
laugardögum.
í sambandi við sunnudagsferð
ina frá Reykjavík til ísafjarðar
skal þess getið, að flugvélin held
ur áfram frá ísafirði til Akur-
eyrar, Egilsstaða og Hafnar í
Hornafirði, snýr þar við og hef-
ir viðkomu á sömu stöðum. Fyr-
ir þá, sem viljá skoða landið úr
lofti er hægt að fljúga með þess
um ferðum kl. 10.00 á sunnu-
dagsmorgni frá Reykjavík, fara
alla leið til Hoi'nafjarðar og aft-
ur til Egilsstaða, en taka þar
flug beint til Reykjavíkur.
í sambandi við flugferðir inn
anlands verða í samráði við um
ferðardeild póstþjónustunnar og
sérleyfishafa, skipulagðar áætl-
unarbílferðir til byggðarlaga í
nágrenni flugvallanna.