Dagur - 28.05.1966, Page 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1168 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Bændnr á
fundi
EYFIRZKIR bændur og nágrannar
úr Þingeyjarsýslu fjölmenntu á árs-
fund Mjólkursamlags KEA á fimmtu
daginn, sem er 38. ársfundur eða
aðalfundur stofnunarinnar. Og all-
an þennan tíma hefur Jónas Krist-
jánsson veitt henni forstöðu af sín-
um alkunna dugnaði og hagsýni.
Nokkrir Jiröngsýnir bændur fluttu
kýr sínar úr héraðinu þegar Mjólk-
ursamlag IvEA var stofnað og mót-
mæltu á þann hátt þessari grein sam-
vinnustarfs við Eyjafjörð. En Mjólk-
ursamlag Kaupfélags Eyfirðinga átti
eftir að verða eyfirzkum bændum og
framförum þeirra mikil lyftistöng.
Eyfir/.kir bændur hafa síðan verið
stórstigir í framfaraátt, hafa t.d. auk-
ið mjólkurframleiðslu sína tvítugfalt
á þessu árabili. Aukin ræktun og
framleiðsla hinna ágætustu matvæla
hefur lengi verið stolt Eyfirðinga
samfara margþættri menningu, eink-
um á sviði félagsmála. Ræktun og
menning hafa átt samleið í Eyjafirði
eins og víðast annarsstaðar.
Nokkrir örðugleikar steðja nú að
bændastéttinni vegna offramleiðslu
á smjöri, vonandi þó aðeins tíma-
bundnir. Hin geigvænlega verðbólga
j og hækkun framleiðslukoslnaðar inn
anlands, hefur breikkað bilið milli
innanlandsverðsins og þess verðs,
sem erlendis fæst fyrir þá vöru og
aðrar útfluttar búvörur, svo útflutn-
ingsbætur hrökkva skammt. Innvigt-
unargjald hefur nú verið lagt á
mjólk og nemur það yfir sumarmán-
uðina um krónu á lítra, en jafnhliða
var smjörverðið lækkað niður í 50 kr.
■ í heildsölu hvert kíló. Innvigtunar-
gjaldið er tilfinnanlegtekjuskerðing,
sem óséð er, að bætt verði. Mjög er
þetta á annan veg hjá sjávarútvegin-
um. Nú síðast fékk Iiann 80 milljón
króna styrk, sem tekinn var af mat-
arpeningum almennings. I fyrra
sigldu öll síldarskip af miðunum til
hafna, til að mótmæla nýjum síldar-
: skatti. Ríkisstjórnin lét undan síga.
Útvegsmenn hé»ta stöðvnn bátaflot-
ans þegar þeim býður svo við að
horfa, og samtök launþega hóta verk-
föllum til að knýja fram úrbætur í
kjarmálum. Allir þessir aðilar hafa
neytt stjórnarvöldin til að breyta
stefnunni. Nú eru bændur beinlínis
víttir fyrir að framleiða of mikið, en
ríkisvaldið neitar að veita þeim að-
i stoð í tímabundnum örðugleikum.
! Sýnilegt er, að hér er ein stétt órétti
l»eitt, svo freklega að furðu sætir.
Ég man vel komu ykkar
tveggja Laugamanna og þótti
hún ánægjuleg. Einir allra
manna, þeirra sem hér fengu
engi í mínu minni og þeir
skiptu tugum tuga, hlupuð þið
á sund frá heyþurrki svo ég
vissi til. Ég horfði á spretthlaup
ykkar á bakkanum þegar upp
úr kom og langaði í leikinn,
hafði látið þetta sama eftir mér
einstaka sinnum og helzta
íþróttaafrek mitt mun hafa ver-
ið að synda yfir Laxá fram og
aftur, í nokkrum straumþunga
af Fjallsengi í Langey.
Ég véfengi það ekki sem þú
segir um námskeiðið. Fullviss
að ég hefði numið eitthvað ung
ur af rosknum bónda í Borgar-
firði eða Eyjafirði, en hér er
komið að raunalegu umræðu-
efni. Máli okkar hrakar þrátt
fyrir margföld fjárframlög og
dýra vinnu fræðimanna í skól-
um landsins. Viljinn ræður
meiru en þekkingin um málfar
alls þorra fólks sem annars
teldist fullvita. Dæmin sýna að
margur alls ólærður maður tal-
ar og ritar enda betra mál, þó
honum verði á í réttritun og
greinarmerkjum, en sprenglærð
ur háskólamaður. Málsspell-
virkjum má skipta í þrennt.
í fyrsta flokki eru þeir sem
vinna að skemmdum tungunn-
ar í ræðu og riti, í blöðum, bók-
um og útvarpi, flestum ætlandi
að vita betur. Þar er — svo ný-
leg dæmi séu nefnd — lands-
kunnur náttúrufræðingur sem
komst „í kritiska situation".
Heimskunnur liagfræðingur,
sem komst svo að orði: „Ég
mundi telja að rétt mundi vera“
ásamt tugum af „rnundum" í
stuttu máli — útvarpsviðtali.
Höfundurinn sem hafði „litríkan
persónuleika“ að nafni á tíma-
ritsgrein, bætti svo skáldi við.
Bóndinn, er vantaði mannskap
til að smala heimahagana —
ekki mannafla, menn eða lið —.
Blaðamaðurinn, sem alltaf segir
það ku, — væntanlega borið
fram þó ku — og segir: Hinn 39
ára N. N. ætlar — ekki þó ku
ætla — að ganga í það heilaga
með hinni 16 ára gömlu S. S.
o. s. frv. Skáldsagnaþýðandi, er
leggur yngismey af mikils met-
inni ætt þessi orð í munn við
unnustann, eftir ótal vonbrigði
og raunir „en hvað þú hefur
verið sætur gæi“. Útvarpsmað-
urinn, sem ræddi um sjarma og
tradition í sömu andrá og „plat-
aði“ litlu síðar.
Þannig mætti telja endalaust
og liggur hverjum manni í aug-
um uppi alls ólærðum hvað þá
hinum.
Annar flokkur og margfalt
stærri er svo sá sem tekur þetta
allt upp mótþróalítið, elur
ósómann í barmi sér og á vör-
um, sumir án þess að gera sér
nokkra grein fyrir því, nægir ef
hann skilur hvað aðrir segja
svona nokkurn veginn, leiðrétt-
ir aldrei böm sín eða unglinga
hvað þá fullorðið fólk. Þetta
fólk skoar og neblear, speguler-
ar. Það reddar og græjar á víxl
fer í bransa og bisniss, kuplar
t. d. „úr kúm yfir í sauðfé“, það
hífar og halar og bakkar og
tommar. Tommustokkur og trei
tomma eru á tungu smiðsins.
Þetta fólk telur flest í stykkj-
um, treitommuna, „mannskap-
inn“, „beljur og rollur“, rjúpur,
lax og silung, vörupartíin ....
Unga fólkið sem nú nefnir
„skvísur og gæa“ veit fæst um
uppruna orðanna. Börnin ekki,
þetta verður þeirra móðurmál,
og svo er um allt annað sams-
konar.
Þriðji flokkurinn er sá harka
lýður, sem steypir sér yfir þau
útlend orð og bögumæli sem
hann kemst yfir eins og hrafn
á hræ eða þorskur á agn. Vinn-
ur á í sínu umhverfi þó virðing
in sé öllu minni en 1. flokkn-
um hlotnast.
Móti þassum þunga straumi
er svo í andófi sá hluti þjóðar-
inar, sem vill vernda málið og
leggur það á sig að tala ekki
óhugsað, hverju sinni, árangur
viðleitninnar er misjafn, en
þetta skilur, að vilja, eða vilja
ekki. Hér skiptist ekki eftir
starfi og stöðu né búsetu. Þenn-
an flokk fylla börn á skólaaldri
í bæjum og sveitum jafnt og
þeir menntamenn þjóðarinnar,
sem bera hæst hróður hennai'
og allir þar á milli. Málfræði-
þekking ræður hér minnstu um,
en greind óneitanlega. Hálærð-
ur heimskingi talar oftast
hrognamál.
Ég mundi telja að jákvæðan
árangur mundi nást svo gripið
sé til orðalags hagfræðingsms
lieimskunna ef málfræðikennsl-
unni, í þeirri mynd sem hún er
nú, væri vikið þannig við að úr
lienni drægi um %—Yz- í þess
stað kæmu leiðbeiningar kenn-
ara, studdar jöfnum höndum
lestri úrvalsbóka og úrkasti,
jafnframt því sem hann leiðrétti
þeirra eigin málfræði, götumál
bæjanna, orðfæri sveitafólksins.
Ég styð þetta mál mitt með eig-
in raun. Ég las íslendingasögur
flestu öðru fyrt' og meir og
margt bóka á góðu máli, blöðin
á uppvaxtarái'um mínum voru
rituð á annan veg en nú er tíð-
ast um dagblöðin.
Foreldrar mínir töluðu gott
mál. Faðir minn leiðrétti orð
mín „þetta er ekki gott mál,
þetta er bögumæli, þetta er
dönskusletta, þetta er nú af út-
lendum toga spunnið.“ Hann
kenndi mér fyrstu atriði mál-
fræði og 4 mánaða barnaskóla-
nám jók þar litlu við, en ég
lærði að hugsa og spyrja, vildi
ekki vera verrfeðrungur, og
hafðir þú veitt einhverju at-
BARNASKÓLANUM í Sól-
garði í Saurbæjarhreppi var
slitið í byrjun maí. 60 nemend-
ur voru í skólanum í vetur, þar
af 15 í unglingadeild. Hæstu
einkunn í unglingadeild hlaut
Ingibjörg Angantýsdóttir, 9,57.
Hæstu einkunn á fullnaðarprófi
barna hlaut María Ingadóttir,
Stóradal, 8,88.
Skólastjóri er Angantýr H.
Hjálmarsson. Frú Edda Eiríks-
dóttir, Stokkahlöðum, kenndi
við skólann, eins og síðastliðið
ár. Daníel Pálmason, Gnúpu-
felli, kenndi líka nokkurn tíma
af vetrinum í forföllum Eddu.
Skólinn í Sólgarði er heiman-
gönguskóli. Það skólafyrirkomu
lag reyndist illa í vetur, vegna
illviðra og ófærðar. Alls féllu
niður þrjár vikur af kennslu af
þeim sökum. Ófærðin bitnaði
eingöngu á yngx'i deildum skól-
hygli um málfæri mitt þá er
ráðningin hér. Áhrif þessarar
kennslu eða áhi'ifa heimilisins
má og ráða af öðru. Óttar bróð-
ir minn, sem er klakfræðingur
og var langyngstur okkar syst-
kina, kom heim frá Ameríku fyr
ir rúrnu ári eftir 16 ára dvöl
meðal þeirra, er töluðu öll önn-
ur mál en íslenzku. Aldrei man
ég eident orð, bögumæli né
í'anga beygingu af vörum hans
og lagði þó hlustir við. Þetta vit
um við að er ekkert einsdæmi,
þax-na er ákveðinn vilji að baki,
sem mætti verða möx'gum minn
isstæðari en er og til þess að
líkja eftir.
III.
Orðum þínum og ágizkun um
að mér muni hafa verið kæi'ari
bókin, en skóflan vil ég víkja
ögn við, láta bókina liggja milli
hluta, en gera samanbui'ðinn á
reku, kvísl, fyrii’skei'a og undir
ristuspaða annars vegar, oi’fi og
hrífu hins vegar. Ég varð aldrei
bygginga- né jarðabótamaður,
ekki handgenginn þeim vei'k-
fæi-um er þarf að beita við þau
stöi'f, hefði þess þó vei’ið full
þörf. Túnið hér á Fjalli var
lengi 18 dagsláttur og fóðraði
aðeins 3 kýr. Örðugt með aukn-
ingu, gi’jótholt og melhólar eða
láréttar mýrar á alla vegu.
Þetta er jörð sem Pétur þjóð-
hagfi’æðingur hefði dæmt
óbyggð og ráðstafað okkur sem
hér búum á eitthvert eyðigóð-
býli eða suður að Straumi.
Hluta þess túns hefi ég slegið í
60 ár og finnst ekkert vei'k
skemmtilegi'a á sumardag, en
að fara með oi'f og hrífu, í'aun-
ar engu síður á engi en túni.
Fjárhii'ðing á vetri, skógrækt
og græðsla örfoka lands mun
ánægjulegri en grasrækt, enda
þótt hún varði okkur bænd-
ux-na mestu, hefir ávallt gei’t
það og aldrei meir en nú. Ég
oi'ðlengi þetta ekki meir þó
mörgu mætti við auka. Bréfið
er orðið helzt til langt, en þú
mátt að nokkru sjálfum þór um
kenna.
Ég vona að þú haldir svo áfx'am
stefnunni sem vei'ið hefur.
Fjalli 3. mai'z 1966.
Ketill Indriðason.
ans. Þeim unglingum og böi’n-
um úr eldri deild, sem lengst
áttu að sækja í skólann, var um
tíma komið fyrir á bæjum í
nánd við skólastaðinn, svo hægt
væri að halda áfram kénnslu,
þótt ófærð væx'i á vegum. —
Vatnsskortur var almennur í
Saui'bæjarhi’eppi, þegar leið á
veturinn. Þá þx-aut einnig vatn
í Sólgarði.
Daníel Pálmason bóndi í
Gnúpufelli bauðst þá til að
skjóta skjólshúsi yfir skólann,
svo þar fór kennsla fram á
þriðju viku.
Ellen Hákanson á Mógili ann-
aðist leikfimikennslu í öllum
barnaskólum fi'aman Akureyr-
ar, en sú grein kennslunnar féll
alveg niður seinni hluta vetrar,
vegna snjóa á vegum.
(Fréttatilkynning).
Frá barnaskólanum í Sólgarði
5
Hann fann upp barnavapinn
Þórarinn Kr. Eldjárn átlræður
Fréftebrél úr Reykjadel
HVER fann upp barnavagninn,
þetta gagnlega og bráðnauðsyn-
lega fai’artæki? Charles Burton,
(Bandaríkjamaðui', sem uppi
var í tíð Viktoríu drottningar)
var orðinn ákaflega leiður á að
snúast í kringum litlu börnin.
— Hann gætti barnsins síns, þeg
ar konan hans var veik, og einn
daginn datt honum í hug að fara
ÞRESTIR SYNGJA
Á AKUREYRI
EINS og getið var um í síðasta
blaði syngja Þrestir í Hafnai'-
firði hér í Samkomuhúsinu á
hvítasunnudag kl. 5. Söngstjóri
er Hei'bert Hriberschek. Undir-
leikari er Skúli Halldórsson og
einsöngvarar eru Árni Gunn-
laugsson og Ólafur Eyjólfsson.
Söngskrá 16 atriði er mjög fjöl-
breytt og glæsileg. — Sjá aug-
lýsingax-. — Miðar eru seldir í
Bókabúð Jóhanns Valdimai's-
sonar og við innganginn. □
OFT HEFUR það skeð, að ýms
tízku- og menningarfyrirbæi’i
hafa borizt hingað til landsins í
þann mund, þegar þau voru að
verða úrelt erlendis. í þessu
sambandi verður mér hugsað til
þess áróðurs, sem sumir af lækn
um okkar hafa rekið um nokk-
urt skeið gegn neyzlu mjólkur
og smjörs hér á landi. Spyrji
maður starfsbræður sína á Norð
urlöndum um svona áróður hjá
þeim, eru viðbi'ögðin alls staðar
svipuð og á þessa leið: „Eruð
þið með þetta núna. Það er um
gai'ð gengið hjá okkur“. Og nú
auglýsa þeir þessar vörur sem
hollustu fæðuna, án afskipta
læknavísindanna.
í áróðri sínum hafa læknar
okkar haldið því fram, að svo
mikils sé neytt hér á landi af
mjólk og í-jóma, að það geti
valdið aukningu kolesterols í
blóðinu, og orsakað á þann hátt
hjarta- og æðasjúkdóma. Ef hér
er átt við, að neyzla mjólkur-
fitu sé miklu meiri hér en alls
staðar annars staðar, þarf að
skoða það nánar. Þessi sama
fita er vitanlega í öllum mjólk-
urafurðum, sem á boðstólnum
eru, en þær eru: neyzlumjólk,
rjómi, smjör ostar og mjólkur-
og rjómaís. Þó að allmikið sé
drukkið hér af mjólk, er smjöx’-
neyzlan ekki sérlega mikil, og
neyzla í'jóma, osta og ístegunda
er lítil. Þegar á heildina er litið
er notkun mjólkurfitu því ekki
meii'i hér á landi en í sumum
nágrannalöndunum.
Fi’á því að kenningin um
skaðsemi mjólkui'fitunnar kom
fyi’st fram, hefur lækna og nær-
ingarfi-æðinga greint mjög á um
í’éttmæti hennai’, Raddir þeirra,
sem telja hana ranga, hafa
smám saman orðið háværari, og
í gönguferð. En hann varð að
taka barnið með, en það var
þungt og hann var örþreyttur á
að bei'a það. Þegar hann svo
kom lreim, tók hann stóran
kassa, setti undir hann fjögur
hjól og handfang framan á. Og
svona vai'ð fyrsti barnavagninn
til. Þetta var árið 1848, en mikið
var hlegið að Burton, þegar
hann kom akandi með barnið í
stað þess að bera það. Fólk benti
á hann — og glotti, og þetta
þótti svo bráðfyndið, að blöðin
skrifuðu gamangreinar um þenn
an furðulega mann. Seinna fór
svo Burton til London til að
reyna að fá uppfinningu sína
fi'amleidda. En það gekk ekki
vel. Hann var að vei'ða gjald-
þi'ota, þegar Viktoi'ía drottning
heyi'ði getið um uppfinningu
hans. Hún pantaði strax barna-
vagn handa nýfæddu barni sínu.
Og bráðlega bar það vott um
velmegun að eiga barnavagn,
og hver móðir með sjálfsvirð-
ingu, keypti barnavagn handa
börnum sínum. □
heyrðust loks svo um munaði á
fundi, sem haldinn var í Salz-
burg og Bad Reichenhall í
Þýzkalandi í fyrri hluta septem-
ber 1965. Þetta var alþjóðlegur
Stefán Björnsson.
fundur um næringu og menn-
ingarsjúkdóma. (11. INTERNA-
TIONAL KONVENT FUR VI-
TALSTOFFE, ERNÁHURNG,
UND ZINILISATIONSKRANK
HEITEN). Hann sátu pró-
fessorar, læknar og næring-
arfræðingar frá mörgum lönd-
um. Umræðurnar snerust mikið
um áhrif fæðunnar, einkum fit-
unnar í fæðunni, á þróun hjarta-
og æðasjúkdóma, enda sagði
pi'ófessor Parade í fi’amsögu-
erindi sínu, að tilgangur fund-
arins væri að finna á vísinda-
legum grundvelli samhengið á
milli fæðunnar og þróunar æða-
kölkunai-.
Þáttur smjörfitunnar í fæð-
unni var mikið ræddur, og þá
fyrst og fremst kenningin um
skaðsemi hennar fyrir æðakex'f-
ið. í 36. ályktun fundarins seg-
ir, að þessari kenningu hafi ver-
ið hai'ðlega mótmælt, einkum af
I FYRRADAG, 26. maí, varð
Þórarinn Kristjánsson Eldjái-n,
hi-eppstjói'i á Tjöi-n í Svarfaðar-
dal, áttræður.
Hann hefur alla ævi átt heima
á Tjöx-n, fæddist og ólst þar upp,
bjó þar síðan lengi búi sínu og
eyðir þar nú ævikvöldinu hjá
ástvinum.
Ef tína ætti saman og telja
fram störf Þórarins í þágu al-
mennings, yrði það langur listi,
enda fyrr skjalfestur hér í blað-
ínu og víðar.
Hitt er líka meira um vert
fyrir hann sjálfan, sveitunga
hans og sýslunga, að hann er
mikið karlmenni, vitur dreng-
skaparmaður, hjartahlýr og ráð
hollur. Þess hafa margir notið
og munu senda afmælisbarninu
kveðjur sínar og þakkir svo sem
verðugt ei’.
Það má um Þórai'in segja,
að hann yrði leiðtogi og mikill
héraðshöfðingi „af sjálfum sér"
vegna mannkosta sinna og vits-
muna. Eyfix’ðingar þakka hon-
um nú leiðsögn hans og forustu
prófessor Pchweigart. Hann
sýndi fram á að kolstei’ol er lífs-
nauðsynlegt efni, sem líkaminn
myndar að mestu leyti sjálfur,
og nemi dagleg eigin fram-
leiðsla 3—5 grömmum. Úr fæð-
unni fái líkaminn 1 gr. af kole-
steroli, og af því eina grammi
stafi aðeins 1/10 frá smjöri, og
er þá miðað við miðlungs smjör
neyzlu. Neyzla smjörs hafi því
í rauninni enga þýðingu.
í sama streng tók dr.
Anemueller og lagði áherzlu á,
að kolesterolmagn smjörsins
væri skaðlaust.
í skýrslu fundarins er gerður
samanburður á kolestex-olmagni
YFIRLEITT er ekki gerður
greinarmunur á kynjum við
upptöku í háskóla, þó að Banda
ríkin svöruðu þessari spurningu
á þá leið, að „þegar tveir um-
sækjendur um háskólavist, ann
ar kai-lmaður, hinn kona, upp-
fylla sömu skilyrði, eru meii’i
líkindi til að karlmaðui'inn fái
upptöku.... Séu báðir um-
sækjendurnir teknir í skólann,
eru meiri líkur fyrir því að
karlamaðurinn ljúki prófi, og
Ijúki báðir umsækjendur prófi,
eru miklu meiri líkindi til að
karlmaðurinn leggi út í fram-
haldsnám og sérhæfi sig á ein-
hverju sviði en að kvenstúdent-
inn gei’i það.“
Iijónaband veldur fráhvarfi frá
nárni.
Danmörk, Noregur og Finnland
og þakka skapara sínum fyrir
góðan samfylgdarmann.
Sjálfum finnst ég vera betri
maður af því að kynnast Þór-
arni og læt aðrar vangaveltur
lönd og leið. Fyrir það er ég
þakklátur og gleðst yfir því að
mega votta það á meðan sól er
enn ekki til viðar gengin.
Ég sendi Þórarni á Tjörn
mínar innilegustu hamingjuósk-
ir í tilefni af á.tti’æðisafmælinu,
minnugur max’gra hollráða hin
síðai’i ár. E. D.
ýmissa fæðutegunda. Þar segir,
að úr 30 gr. af smjöri fái líkam-
inn aðeins um 50—80 mg. af
kolestei-oli, úr Yz ltr. af mjólk
aðeins 60 mg., úr 150 gr. af kjöti
eða pylsum aftur á móti 250—
1000 mg. og úr 2 eggjum 400—
600 mg. Fleiri tegundir eru tekn
ar til samanburðar, svo sem
fiskilýsi, sem inniheldur 4500—
7600 mg. af kolestei-oli í 100 gr.
En það var ekki látið hér við
sitja á þessum septemberfundi í
Þýzkalandi, heldur voru ýmsir
kostir smjörfitunnar sem fæðu,
undiistrikaðir mjög greinilega.
í 10. greininni í yfirlitinu um
(Framhald á blaðsíðu 7.)
eru meðal þeiri-a landa, sem
láta í té þær upplýsingar, að
konum sé miklu gjarnara að
hætta námi en kai’lmönnum.
Svíar gex-a engan samanbui’ð,
en upplýsa hins vegar að milli
20 og 30 af hundraði allra kven
stúdenta hætti námi áður en að
px’ófi kemur. Ástralía, Nýja-
Sjáland og Líbería skýra frá
þveröfugri niðurstöðu, sem sé,
að karlmenn hætti oftar námi
en kvenstúdentai’.
Þó oi’sakaskráin sé löng, er
hjónaband algengasta oi’sök
þess að námi sé hætt. Mörg
lönd í Austui’-Evrópu nefna
alls ekki hjónabandið, en benda
á að rangt val námsgi-eina og
annað sé meginorsökin. Ef kven
stúdent á Nýja-Sjálandi giftist,
er mál hennar tekið fyrir af
(Framhald á blaðsíðu 7)
TELJA MÁ það til tíðinda, að
bílakaup hafa verið óvenjumikil
hér í sveit síðustu mánuðina og
þó langmest af einni tegund,
Ford Bronco. Frá því í febrúar
og til api’ílloka hafa 9 slíkir bíl-
ar komið í byggðarlagið.
Hlýtur að vera fágætt, að svo
margir bílar af einni og sömu
gerð séu keyptir í einu í byggð-
ai’lag, sem telur rúmlega 400
íbúa. Mætti af þessu ýmsar
ályktanir di’aga, en ein hin nær-
tækasta er, að í þessu opinberist
á eftirtektai’verðan hátt máttur
auglýsinganna í nútíma þjóðfé-
lagi.
Einnig má að miklu leyti
rekja þessi kaup til hinnar vafa
sömu aðfex’ðar, sem viðhöfð var
í vetur, þegar landsfeður
ákváðu að leggja 30% leyfis-
gjald á jeppabifreiðir. Allir áður
nefndir 9 bílar eru keyptir á því
verði, sem gilti fyrir álagningu
leyfisgjaldsins.
Auk þeii-ra hafa á sama tíma
komið einn vörubíll og éinn
Landi’over nýir í sveitina. Fjár-
festing í nýjum bílum í byggðar
laginu er þá oi’ðin eitthvað á
þi’iðju milljón króna á ca. tveim
ur mánuðum og þykir sumum
nóg um .
Allir þessir nýju, ágætu bílar
hafa því miður ekki fengið góða
vegi til umferðar. Fyrst voru
snjóþyngslin í vetur, en þegar
hlánaði, kom það ástand veg-
anna, sem er næstum því árvisst
á hverju vori. Vegii-nir þola
ekki umferðarþungann, þegar
klaki þiðnar og leysingai’vatn
liggur á þeim.
Breytast þá lengi’i og skemmri
kaflar í forarvilpur og kvik-
syndi stundum líkust því, sem
fuglar himinsins mundu þar ein
ir yfir komast. Ástandið í þessu
efni hefur þó alls ekki verið með
versta móti í vor. Leysing hef-
ur verið hæg og þeir vegakafl-
ar, sem nýir eru, háir og vel
upp hlaðnir, hafa alveg sloppið
við skemmdir. Þeir hafa þornað
fljótt, þar sem leysingai’vatn
mæðir ekki á þeim.
í þessu sambandi kemur sú
spurning í hug manns, hvort
hinir áðurnefndu ágætu lands-
feður hafi lagt það dæmi vand-
lega niður fyrir sér, hvort rétt sé
að kosta tugum milljóna til að
leggja vandaðan veg styztu leið
frá kísilgúrverksmiðju við Mý-
vatn til Húsavíkur, um óbyggt
land að nokkru leyti og svo
snjóþungt á s.l. veti’i, að við
sjálft lá, að rafiínustaura fennti
í kaf.
Kemur ekki til álita að byggja
upp Þingeyjarsýslubraut frá
Húsavík um Aðaldal, Réykja-
dal og Mývatnssveit?
Enn er hún að miklu leyti
40—60 ára gamall vegur, sokk-
inn sums staðar undan umferð-
arþunga, svo að hann er lægri
en landið umhverfis. Kemur
þetta svo fram í snjóþyngslum
að vetrarlagi og ófærð að vox’-
lagi.
Talið er, að flutningaþörf
kísilgúrverksmiðjunnar sé ekki
ýkja mikil a. m. k. ef talinn er
fjöldi daglegra fex-ða. Hugsan-
legt er, að flutningar til Aust-
urlands og umferð skemmti-
ferðafólks færist að mestu eða
öllu leyti yfir á hinn væntan-
lega veg. Eftir sem áður er
Þyngeyjarsýslubraut öll eða
kaflar hennar mjólkurflútninga
og aðdráttaleið fyrir 4 sveitir:
Aðaldal, Reykjadal, Bái’ðardal
og Köldukinn, og opinberar
stofnanir, þar sem eru Laxár-
virkjun og skólar hér að Laug-
um, eru háðar flutningum um
hana. Eftir sem áður þarf hið
opinbei-a að kosta til viðhalds
og snjómoksturs, en þeir kostn-
aðarliðir verða einnig áreiðan-
lega fyrir hendi á vegi kísilgúr-
vei’ksmiðjunnar.
Kemur ekki til greina að
bæta kísilgúrvei’ksmiðjunni
þann kostnað, sem yi-ði vegna
lengri flutningaleiðar um Þing-
eyjarsýslubraut af því fé, ei’
sparast við, að hætt yx’ði við
lagnjngu kísilgúx-vegar a. m. k.
í bili? i
Hafa öll þessi atriði verið
vandlega athuguð?
Á þessum vettvangi liggur
næst að beina spurningunni til
ágætra þingmanna Norðui’lands
kjördæmis eystra, sem báðir
eru stjórnarmenn Kísiliðjunnar
h.f. þeirra Karls Kristjánssonar
og Magnúsar Jónssonar. Er það
hér með gert.
Þegar þessar línur eru ritað-
ar er veður bjart ög sólríkt,
en kalt svo sem verið hefur
undanfarna daga.
Gróðri miðar því sáralítið, að-
eins sést litur á túnum, sem
notuð eru til beitar fyrir lamb-
féð, því að ekki kemur enn til
greina að sleppa á úthaga.
Ekki heyrist hér um nein
vandkvæði vegna heyskorts.
Þeir, sem bii’gir eru miðla þeim,
sem minna hafa.
Undanfarnar vikur hefur leg-
ið í loftinu, að inflúensa mundi
koma í sveitina helzt frá Húsa-
vík eða Akureyri. Hún hefur
reyndar vei’ið tíður gestur og
óvelkominn undanfai’in ár. Þó
hefur svo brugðið við nú, að
ekki hefur hún enn skotið upp
kollinum, þrátt fyrir einstök
hugsanleg tilfelli hér í Lauga-
skóla. Helzt eru þó horfur á að
hún sé upp komin í Húsmæðra-
skólanum, en þar lágu einac 8
námsmeyjar nú um helgina.
Hávaðinn af átökum kosninga
baráttunnar í kaupstöðum og
kauptúnum voru sem fjarlægar
reiðarþrumur hér fyrir helgina,
en engar blikur sjást enn á lofti
hér vegna sveitarstjórnarkosu-
inga seinast í júní.
Laugum 23. maí 1986. ;
Guðinundur Gunnarsson.
r >
- Utflutningur ... !
(Framhald af blaðsíðu 2).
íku og Austur-Evrópu var á
fyrstu þremur ársfjórðungum
1965 25 af hundraði meii’a en á
samsvarandi skeiði árið áður.
Efnahagsvöxtur Vestui’-Ev-
rópu varð jafnmikill og búizt
hafði verið við, þ. e. a. s. brúttó
þjóðai’tekjur landanna jukust
um 3,5-5 af hundraði. Á fyrsti/
þremur ársfjórðungum 1965
varð innflutningurinn 8 af
hundraði verðmætai’i og 7 af
hundi’aði umfangsmeiri en á
samsvarandi tímabili 1964. Út-
flutningux-inn jókst á sama tíma
að umfangi um 10 af hundraði.
LEIÐRÉTTING
1 UPPTALNINGU um braut-
skráða iðnnema á Akureyri féll
niður nafn Jóhanns R. Sigurðs-
sonar húsasmiðs. Hann haíði
I. einkunn 8,84, sem var þriðja
hæsta einkunnin. □
SMJÖR OG ÆÐASJÚKDÓMAR
Karlmenn eiga anð-
veldari námsleið