Dagur - 28.05.1966, Page 8
8
Ít' '
SMÁTT OG STÓRT
h’ < fci
■
,,
ti Mrj
*&■:r~••
Snjóskaflinn mikli í Vaðlaheiði var 12 nielra hár 10. maí.
(Ljósm.: E. D.)
Ja rðabólaf ra m k væmd i r drógust saman
I SKÝRSLU þeirri, um jarða-
bætur og búnaðarframkvæmd-
ir, sem lögð var fyrir aðalfund
Búnaðarsambands Eyjafjarðar í
vetur kennir margra grasa. En
jarðræktarráðunautur er Jón
Tr. Steingrímsson.
Hann segir, að jarðabóta-
menn á félagssvæðinu hafi ver-
ið 327 á árinu 1965 eða nokkru
færri en árið áður. Af birtum
tplum skýrslunnar megi sjá,
segir ráðunauturinn, að allar
framkvæmdir hafi dregizt sam-
an, nema hlöðubyggingar og
súgþurrkunarkerfi.
Nýræktir voru 315.411 m’ í
ptað 483.266 m= árið 1964.
Vélgrafnir skurðir voru
108.247 m3 á móti 178.825 m0 ár-
ið 1964.
Votheyshlöður voru 460 m'
en 786 m“ árið áður.
Þurrheyshlöður voru 15.340
ms en voru 12.406 m3 árið áður.
Sauðfjárrækt.
Á síðasta ári skiluðu 9 sauð-
fjárræktarfélög skýrslum til
ráðunauts. í þeim eru 61 félagi
og höfðu þeir skýrslufært 1807
ær.
Það tvennt virðist koma fram
íhaldið tapaði
á Dalvík
Á DALVÍK urðu úrslit kosn-
inganna þau, að Framsókn
bætti við fulltrúa — tók hann
frá Sjálfstæðisflokknum. Sveit-
arstjórnin er skipuð 7 mönnum.
Framsóknarflokkurin fékk 3
xnenn kjörna, Alþýðubandalag
2, Alþýðuflokkur 1 og Sjálfstæð
isflokkur 1 mann kjörinn.
FuIItrúar B-listans eru: Bald-
vin Magnússon, Jón Stefánsson
cg Inga Ásgeirsdóttir. Auglýst
hefur verið starf sveitarstjóra.
í skýrslum þessum, að vest-
firzku ærnar skili meira kjöti
en þær þingeysku séu frjósam-
ari. Þá getur ráðunauturinn sér
staklega um „sæðingarlömbin"
undan hrútum frá Holti í Þist-
ilfirði og skyldum hrútum, sem
þaðan voru keyptir og notaðir
hér á sæðingarstöð. Segir hann,
að mörg lambanna séu góð og
sum afbragðsgóð. Jafnbeztu
hrútarnir væru undan Þokka,
en Spak myndi hann velja fyrir
ærföður.
Rúningsnámskeið voru all-
víða haldin um landið á vegum
Bí og sendi BSE menn þangað
til að læra að fara með vélklipp
ur og að vetrarklippa sauðféð.
Skýrslur hinna tveggja ráðu-
nauta BSE, þeirra Ævars Hjart-
arsonar og Stefáns Þórðarsonar,
verða gerðar að umtalsefni síð-
ar. O
Mikill kosningasigur
á Sauðárkróki
BLAÐIÐ spurði Guðjón Ingi-
mundarson á Sauðárkróki, sem
var efsti maður á lista Fram-
sóknarflokksins þar, um kosn-
ingaúrslitin og hinn mikla sigur
flokksins, sem í því fólst, að
bæta við sig tveim bæjarfull-
trúum.
Nú hafið þið þrjá bæjarfull-
trúa?
Já. Höfðum einn áður, en höf-
um nú þrjá. Að þessu sinni var
um hreint flokksframboð fjög-
urra stjórnmálaflokkanna að
ræða, en svo hefur ekki verið
við síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar og „óháðir“ listar truflað.
Við síðustu kosningar, 1962,
fengu Framsóknarmenn 113 at-
kvæði, en nú 274 atkvæði.
Hverju þakkar þú þennan
mikla sigur?
Það var einhuga samstaða um
(Framhald á blaðsíðu 7.)
Guðjón Ingimundarson.
TÖLUR — SEM TALA
Kosningatölur liafa verið birtar
og lesnar í útvarp. Þær tala
skýru máli. Málgögn flokkanna
tála svo til kjósenda og gefa
skýringar á sigrum og ósigruni,
fagna eða hryggjast. fslending-
ur, sem út kom 26. maí, er ein
allsherjarstuna, skætingur og
mótsagnir. En vonandi er, að
„Eyjólfur hressist“ og sviðinn
yfir ósigri Sjálfstæðisflokksins
hér í bæ minnki þegar frá líð-
ur, en jafnvægi Iiugans gæti
meira en nú.
MARGAR SKÝRINGAR
Sjálfstæðismenn, sem nú una
allra manna verst sínum hlut eft
ir bæjarstjórnarkosningarnar,
hafa á liendinni ýmsar skýring-
ar, snúa jafnvel ósigri í sigur.
Morgunblaðið segir t. d. nú eft-
ir kosningarnar: „Sjálfstæðis-
menn lögðu áherzlu á það í
þessari kosningabaráttu, að
leggja verk sín skýrlega fyrir
kjósendur.“ Já, ekki var við
gcðu að búast, þegar slíkt var
gert!
ÞRÍFÆTT FOLALD í LAND-
EYJUM
Það þykir tíðindum sæta, að
nú í vor fæddist þrífætt folald
suður í Landeyjum og vantaði
aði annan framfótinn. Folaldið
er að öðru leyti hið sprækasta
og ber sig furðu fimlcga yfir á
þrem fótum.
DÝR VEIÐIVIKA
Stangveiðimönnum til huggun-
ar (og konum þeirra) skal þess
getið, að ferðaskrifstofur í Eng-
landi bjóða fólki upp á viku-
dvöl við laxveiðar í Víðidalsá
í Húnavatnssýslu, ásamt ferða-
kostnaði öllum og veiðileyfinu,
fyrir nálega 60 þús. ísl. krónur.
Þetta er dýrt sport og sýnir, að
útlendingum er vel til þess trú-
að, að fórna stærri peningaupp-
hæð fyrir leyfi til laxveiða, en
hér þykir við hæfi venjulegs
fólks.
HUNDAR BlTA
Um það leyti er sölubúðum var
lokað á miðvikud.kvöldið varð
5 ára telpa fyrir því óhappi, að
hundur beit liana í andlit og
varð af nokkur áverki. Hundur
inn var gulur að lit. Eigandi
fyrirfannst enginn. — Þetta er
ekki í fyrsta sinn, að liundar
bíta börn hér í bænum, slikt
hefur borið við nokkrum sinn-
um á undanförnum vikum. —
Hér verður að taka í taumana.
SlLDARLEITARSKiP OG SlLDVEIÐAR
UNDANFARNA daga hefur
mátt heyra í útvarpinu auglýs-
ingu, þar sem óskað er eftir
skipi til síldarleitar í sumar.
Undanfarin sumur hafa tvö skip
auk Ægis annazt þessa leit m/s
Hafþór og m/s Pétur Thorsteins
son. Skip þessi eru að flestra
dómi mjög hentug til þessara
starfa og hafa tvímælalaust kom
ið að mjög miklu gagni og auk-
ið aflamagn veiðiskipanna veru-
lega. Ríkið hefur nú eignazt Haf
þór en Pétur Thorsteinsson ver-
ið leigður. Nú fæst hann ekki í
leigu þar sem eigendur hyggj-
MÁNUÐI Á EFTIR
Vegamálaskrifstofan syðra tel-
ur, að vegirnir séu mánuði
seinna en venjulega, að lagast
eftir veturinn. Á Norður- og
Austurlandi var vetrarríki þó
meira, en vegirnir eru óðum að
lagast, þótt sumir fjallvegir séu
raunar lokaðir.
BÆJARSTJÓRNAR-
MEIRIHLUTI?
Alþýðuflokkur og Alþýðubanda
lag hafa bréflega óskað við-
ræðna við Framsóknarflokkinn
á Akureyri, með myndun bæjar
stjórnarmeirihluta í huga. Mál
þessi eru nú til athugunar og á
fyrsta viðræðustigi. Slúðursög-
ur eru á kreiki og ættu menn
að trúa varlega.
LÖG Á AÐ VIRÐA
Benedikt Kristinsson, vistmað-
ur á Kristneshæli minnir á í
góðu bréfi, hvað Alþingi sam-
þykkti í vetur um sinubruna
um varptímann. En sinu má
ekki brenna eftir 1. maí. Og
hann segir: „Hvað ætla Eyfirð-
ingar Iengi að halda áfram þeim
Ijóta sið, að brenna sinu eftir
að varp fuglanna er hafið?“ Og
enn segir Benedikt: „Ég hafði
aldrei heyrt getið um það fyrir
norðan, að sinubrennsla væri
nauðsynleg og ekki þrifust
skepnur verr þar“. Bréfritarinn
hefur lög að mæla.
STRÍÐSFRÉTTALETUR!
Alþýðumaðurinn segir frá sigri
flokks síns með stríðsfréttaletri
í gær. Rétt er, að flokkurinn
bætti við sig atkvæðum hér á
Akureyri og náði manni frá
íhaldinu, einnig í Reykjavík.
En þegar litið er á kosningarn-
ar í heild stendur fulltrúatala
Alþýðuflokksins í stað.
HÆTTULEGT BÁTUM
Sjómenn hafa kvertað yfir því,
að sjór brjóti timbur úr bryggju
á Oddeyri og reki það um fjörð-
inn. Sé slíkt bátuni hættulegt,
sem rétt er, og væri þörf á, að
rífa það, sem undir skemmdum
liggur eða gera við það ella.
ast gera hann út á síldveiðar.
Er því allt útlit fyrir að einu
leitarskipi verði færra en und-
anfarin sumur, og er það illa
farið.
Á aðalfundi LÍU sl. haust var
samþykkt tillaga frá Utvegs-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Akureyringar leika
við Þrótt á mánudag
á Laugardalsvell-
inum í Reykjavík
FYRSTI leikurinn í Knatt-
spyrnumóti íslands (I. deild) !;
fer frain á Laugardalsvellin-'
um í lícykjavík n. k. mánu-
dag (annan í hvítasunnu) og
mæta Akureyringar Þróttur
um, nýbökuðum Reykjavík-
urmeisturum. Engu er hægt
að spá um úrslit leiksins, en
ÍBA-liðið er nú í Noregi og
leikur þar æfingaleiki.
Beztu óskir fylgja I. deild-
arliði okkar Akureyringa og
vona menn að það standi sig
vel í sumar. □