Dagur - 02.06.1966, Side 8
*
SMÁTT OG STÓRT
Við Glerá á Akureyri var þessi nýi benzínsölustaður formlega opnaður fyrir hvítasunnuna og
flaggað í tilefni dagsins. Hér er um byrjunarframkvæmdir að ræða, sem eigandinn, BP, hefur
^ryggt sér með lóðarréttindum á staðnum. Þarna er gott að koma og snyrtilegt úti og inni. Ak-
ureyringar hafa nú marga útsölustaði á benzíni, olíum og öðru því, sem þykir við hæfi á slík-
um stöðum. (Ljósm.: E. D.)
Stærsti gagnfræðingahópur GA
Nemendur skólans í vetur yfir sjö hundruð
NEMENDUR í Gagnfræðaskcl-
anum á Akureyri voru í vetur
710 og skiptust í 25 bekkjar-
deildir, 18 bóknáms- og 7 verk-
nómsdeildir. Kennarar voru 41,
þar af 25 fastir kennarar. Skóla
stjóri er Sverrir Pálsson.
BrautskráSir gagnfræðingar
voru 107 talsins og langstærsti
gagnfræðingahópur skólans.
Efst á gagnfræðaprófi varð
Ragna Kristjónsdóttir með 8,22
en næstar Lilja Sigurðardóttir
iPg Anna Guðjónsdóttir. Efstur
í verknámsdeild varð Gunnar
Atspar með 7,57.
Undir landspróf gengu 64 en
ekki er enn vitað um úrslit á
því prófi. Hæstu einkunn í
skólanum hlaut Þórgunnur
Skúladóttir, 1. ág. einkunn 9,35
og bókaverðlaun.
I Lionsklúbburinn Huginn gaf
verðlaun fyrii beztan árangur í
stærðfræði, vélritun og bók-
færslu á gagnfræðaprófi, ætluð
pilti og stúlku. Verðlaunin
hlutU, Stefanía Einarsdóttir og
Guðmundur Sigurbjörnsson.
LáGARFLJOTSORM-
URINN EYÐILAGÐUR
A ÞRIÐJUDAGINN skaut Lag
ai-fljótsormurinn upp kiyppum
sínum, fyrir sjónum margra
manna. Sem vænta mátti kom
íréttin í útvarpinu. Því miður
var hraðbátur mannaður og
aendur á vettvang út á fljótið
til að athuga fyrirbærið. Reynd
ist þetta rusl eitt sem vindar og
straumar höfðu rekið saman á
Hti'aumamótum. Þar með eru
hinar ágætu sagnir um hið
mikla dýr í Lagarfljóti að engu
orðnar. □
Verðlaunabikar (íarandgrip)
fyrir beztu frammistöðu í ís-
lenzku á gagnfræðaprófi hlaut
Lilja Sigurðardpttir. Ennfremur
fengu bókaverðlaun fyrir dyggi
lega' urinTn’stÖff, Jón Ólafur Sig
fússon umsjónannaður skóla,
Hannes Óskaisson og Svanbei'g
Ámason.
10 og 5 ára gagnfræðingar
færðu skólanum gjafir við skóla
slit. Orð fyrir þeim höfðu fyrrv.
umsjónarmenn, Gísli Bragi
Hjartarson og Jónas Þórisson.
Að loknu prófi fóru gagn-
fræðingarnir skólaferð til Nor-
egs, sex daga ferð undir farar-
stjóm skólastjórans og kennar-
anna Einars Helgasonar, Har-
aldar Sigurðssonar og Skúla
Magnússonar. Sú för var öllum
til ánægju og fróðleiks. □
NEMENDÁMÓT AÐ LÁUGALANDI
LAUGARDAGINN 14. maí síð-
á'stliðinn var mikið um að vera
í Húsmæðraskólanum á Lauga-
landi, þegar 44 tíu og tuttugu
árá' námsmeyjár komu í heim-
sókn. Kom mikill þorri þeirra
--frá Reykjgyjk og fylltu þær
næstúm' því' eiria af flugvélum
Flugfélags íslands.
Snæddu þær miðdegisverð í
skólanum og færðu honum dýr-
indisgjafir, borðbúnað bæði úr
silfri og stáli. Einnig færðu þær
kennurum blóm og gjafir. Náms
meyjarnar dvöldu allan þennan
dag í skólanurri og á prestssetr-
inu og rifjuðu Upp gamlar minn
ingár. Veður var hið fegursta,
hlýjasti vordagurinn, sem kom-
ið hafði til þess tíma, svo að vel
lá á öllum, bæði gestum og
heimafólki, en í skólanum hafa
á liðnurri vetri dvalið um 40
nemendur.
Við miðdegisverðinn voru
ræðuhöld, og töluðu gestimir
hlýlega í garð sins gamla skóla,
en forstöðukonan þakkaði rausn
arlegar gjafir og hlýhug, sem
skólanum væri auðsýndur með
heimsóknum eins og þessum, og
væii það skólastofnuninni bæði
til mikillar ánægju og uppörv-
unar, þegar eidri nemendur
kæmu í heimsókn. Formaður
skólanefndar gat þess, að sér
hefði þótt för hinna eldri náms-
meyja, sem nú væru orðnar
stórar og stásslegar frúr, hin
skörulegasta, þar sem þær fóru
eins og valkyrjur í skýjum him
ins. En þegar það væri hugleitt,
að Laugaiandsmeyjar væru nú
orðnar svo margar, að þær
mundu geta fyllt allan flugvéla-
flota landsins, ef þær ferðuðust
í einum hóp, væri það sýnilegt
hvílíkt stórveldi þær væru
orðnar í landinu og gætu ráðið
miklum örlögum, ef þær vildu.
Um kvöldið skemmtu náms-
meyjarnar eldri og yngri sér
hver með annarri af miklu fjöri,
unz þær skildu með miklum
(Framhald á blaðsíðu 4.)
NÝJA BÆJARSTJÓRNIN
Hin nýkjörna bæjarstjórn Ak-
ureyrarkaupstaðar hefur enn
ekki Iialdið sinn fyrsta fund.
Kosningarnar breyttu styrk-
leikahlutföllum flokkanna í
stjórn kaupstaðarins á þann
veg, að Framsóknarflokkurinn
á þar fjóra fulltrúa, Sjálfstæðis
flokkurinn 3 fulltrúa, Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag tvo
fulltrúa hvor flokkur. Jafnvel í
bæ hinna seinu svifa og kunna
rólyndis í málefnum bæjarins,
er hin nýja „taflstaða“ eða nýju
styrkleikahlutföll bæjarins kært
umtalsefni þessa daga.
MÖGULEIKAR
Fulltrúar Framsóknarmanna í
bæjarstjórn hafa nú þá aðstöðu
að geta myndað meirihluta í
bæjarstjórn með hvaða flokki
einum, sem vera skal. Fræði-
legir möguleikar eru þess vegna
margir, bæði möguleikar til að
stjórna bæjarfélaginu með ein-
um flokki eða fleiri, ef eftir er
leitað og um semdist. En að
sjálfsögðu getur málefnaágrein
ingur einnig vcrið margskonar
við hvern flokk fyrir sig. Eins
og fyrr er frá greint hófu bæði
Alþýðubandalag og Alþýðu-
flokkur bréflegar umleitanir um
samstarf í bæjarstjórn, Alþýðu-
flokkur með þátttöku Sjálfstæð
ismanna í huga. Viðræður í
framhaldi af þessu, hafa blaðinu
vitanlega, ekki leitt til niður-
stöðu.
ÓSAMNINGSBUNDIN
FORYSTA
Eflaust eru skiptar skoðanir
meðal. kjósenda B-listans um,
hversu haga beri samstarfi við
aðra flokka í bæjarstjórn. Slíkt
er eðlilegt umræðuefni um
flokk, sem hafna vill öfgum til
hægri og vinstri en starfa sem
ábyrgur félagshyggju og fram-
faraflokkur. Sá möguleiki er
vissulega fyrir hendi ef ekki
tekst að mynda ábyrgan meiri-
hluta í bæjarstjórn, nægilega
traustan, m. a. vegna óaðgengi-
legra skilyrða, að Framsóknar-
menn, sem nú hafa mest fylgi
bæjarbúa og flesta kjörna full-
trúa í bæjarstjórn, standi einir
og hefji ósamningsbundna for-
ystu í bæjarmálum. Sú forysta
sé byggð á stefnuyfirlýsingu
þeirri, sem Framsóknarmenn
birtu fyrir kosningar og nýrri
framkvæmdaáætlun, sem gerð
sé með aðstoð sérfræðinga og
Fyrsla síldin til Ólafsfjarðar
Ólafsfirði 1. júní. Fyrsta sildin
kom hingað á föstudaginn, en
þá kom Stígandi með 176 tonn,
síðan Loftur Baldvinsson með
224 tonn. Síldarverksmiðjan er
þegar byrjuð að bræða.
Lokið er við að ryðja snjó af
Lágheiði, en hún mun þó ekki
opnuð til umferðar fyrr en eftir
helgi.
Sumir bændur urðu heytæp-
ir, enda hefur þurft að gefa öll-
um búpeningi fram til þessa. ís
er enn á Ólafsfjarðarvatni.
Guðbjörg er á leið á síldar-
miðin, en Ólafur Bekkur, Sæ-
þór og Þorleifur munu einnig
sigla á miðin innan skamms.
B. S.
miðuð við greiðslugetu bæjar-
sjóðs. Framgangur mála eða
jafnvel framkvæmdaáætlunin í
heild er þá undir fylgi hinna
flokkanna komin og ráðist þá
við afgreiðslu en ekki fyrirfram.
FORYSTAN
En hversu sem fer um samn-
inga um svokallaðan meirihluia
í bæjarstjóm eða þá leiðina,
sem hér var síðast nefnd, munu
bæjarbúar almennt, ekki aðeins
kjósendur B-listans, til þess
ætlast,' að Framsóknarmenn
taki forystuna i bæjarmálunum
og er það sanngjöm krafa og
Hklegust leið til heilla í okkar
bæjarfélagi.
BÆJARSTJÓRINN
Ýmsir hita sér í umræðum um
það, hvað framundan sé í hin-
um einstöku málum. Þar ber
bæjarstjórastarfið á góma m. a.
Starfstími hans er útmnninn
sainkvæmt samningi, er um
starf bæjarstjóra almennt gildir.
Hann hlaut fylgi allra bæjar-
fulltrúa til þessa starfs og hafði
því óvenjulega góða aðstöðu til
mikilla og framkvæmdasamra
starfa. Af mörgum er þess
vænzt, má enda eðlilegt telja,
að starf bæjarstjóra verði aug-
lýst og núverandi bæjarstjóri
eða annar síðan ráðinn, cftir
hæfni umsækjenda. Bæjarbúar
virðast una því bezt, að bæjar-
stjóri þeirra taki ekki opinber-
an þátt í kosningabaráttu flokk
anna og eigi þá auðveldara með
að sameinast um hann. Núver-
andi bæjarstjóra er þetta eflaust
eins vel Ijóst og öðrum bæjar-
búum, og honum . mun einnig
Ijóst, að Iiann hefur nú, með
þátttöku sinni í, kosningabar-
áttunni teflt í tvísýnu þeirri
óvenjulegu aðstöðu, sem liann
hefur notið vegna einróma
stuðnings bæjarfulltrúanna i
upphafi starfslímans.
BRÚARVIÐGERÐ
Þessa daga er unnið að lagfær-
ingum á brúm Eyjafjarðarár.
Sett er slitlag úr. nýju efni á
brúargólfin og á viðgerðinni að
Ijúka um helgina.
SVEITARSTJÓRNIN
Á BLÖNDUÓSI
Blönduósi 1. júní. Vorið er kom
ið og grundirnar gróa, einkum
nú síðustu dagana. Vorið hefur
verið bændum erfitt og dýrt, en
sauðburðurinn hefur gengið á-
fallalaust og nú eru menn að sjá
fram úr mestu erfiðleikunum.
í sveitarstjórnarkosningunum
hér unnu Framsóknarmerin og
óháðir fulltrúa frá Sjálfstæðis-
mönnum og hafa nú 3 af 5 í
sveitarstjórninni. Þeir eru: Ól-
afur Sverrisson kaupfélagsstj.,
ÞórhaHa Davíðsdóttir húsfrú og
Jónas Tryggvason iðnaðarmað-
ur.
Ó. S.