Dagur - 19.10.1966, Page 1
HOTEL Herbeigjo-
pantonir.
FerSa-
ekriístofan
Túngötu 1.
AkureyiL
Síml 11475
Dagu
XLIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 19. október 1966. — 73. tbJ.
FerðaskrifsíofanTún95,u L
I Sími 11475
Skipuleggjum
ferðir skauta
á milil.
Farseðlar með
Flugfél. ísL og
Loitleiðum.
Tunnuefni komið
NORSKT flutningaskip kom
með efni í 8 þúsund tunnur nú
um helgina. Mun eiga að smiða
úr því efni í Tunnuverksmiðj-
unni á Akureyri.
Blaðið hefur ennþá ekki get-
að fengið um það öruggar upp-
lýsingar, hve mikið á að fram-
leiða af síldartunnum í verk-
smiðjunum á Akureyri og
Siglufirði á komandi vetri. Og
ekki hefu'r heldur um það
heyrzt, að byggja eigi hér
tunnuskemmu, en vöntun henn-
ar stendur í vegi fyrir hag-
kvæmum rekstri Tunnuverk-
smiðjunnar.
Mýsnar voru kveðnar niður
IHrísey, 1. október. Menn eru
að skaka ögn við róðra en gæft-
ir eru stopular og aflinn lítill.
Stærri bátarnir eru með línu
og fá 2—2,5 tonn í róðri, en trill
urnar reyta svolítið á færi. En
þetta er ekkert fiskirí. Tveir
bátar eru með dragnót ennþá,
og fá eitt tonn, þegar bezt læt-
ur. — Við eigum von á nýja
prestinum nú í vikunni, Kára
Valssyni, með fjölsk. sína. Hann
mun kenna við unglingaskólann
þegar hann hefst. í barnaskól-
anum eru heldur færri börn en
x fyrra og ná ekki 50 í vetur.
Skólastjóri er Alexander Jó-
bannesson frá Hh'ð, og með hon-
,um kennir Guðjón Björnsson
smiður.
Ný brú á Eyja-
fjarðará?
Oddvitar og skólanefndir
hreppanna þriggja framan Akur
eyrar hafa farið þess á leit við
Vegagerð ríkisins, að hún athugi
möguleika á smíði nýrrar brúar
yfir Eyjafjarðará, gegnt skóla-
setrunum Hrafnagili og Lauga-
landi. En á Hrafnagili er nú
ákveðið að byggja heimavistar-
(Framhald á blaðsíðu 2)
í féiagsmálum gerist ekki
neitt ennþá. Kvenfélagskonur
ætluðu að halda fund, en voru
trufiaðar af aðkomnum skemmti
kröftum, því konur eru alltaf
áhrifagjarnar, og enginn fundur
var haldinn.
Unnið er fyrir sunnan að
áætlanagerð um notkun heita
vatnsins. En það er 8—10 lítrar
á sek. og 65 gráðu heitt. Varma-
veita er mikið áhugamál okkar,
og áreiðaniega það, sem koipa
skal.
Búið er að endurbæta vatns-
veitu kauptúnsins, og eru vatns
æðar allar úr plasti. Neyzlu-
vatn er nú nægiiegt.
Við erum að mestu lausir við
slátrun, eigum rúml. 100 fjár.
Kýr eru engar né heldur hestar
og hundar. — Ketti höfum við
nokkra, enda rottur hér, sem
hingað komu fyrir 40 árum. En
við höfum farið útrýmingarher-
ferð gegn rottunum með góð-
um árangri, einkum í fyrra og
sjást þær naumast síðan. Mýs
voru hér þangað til sá kröftugi
maður, Þorvaldur bóndi á
Sauðanesi, setti þær niður í hóli
þeim, sem síðan er kallaður
Músahóll, og er hann á syðri
eyjarendanum.
Rjúpurnar eru flestar farnar,
en þær, sem eftir eru, ganga
heima við hús. — Þ.V.
Svipmynd úr Innbænum á Akureyri. Minjasafnið að mestu hulið í einum elzta skógræktarreit
á íslandi. (Ljósm.: E. D.)
Rjúpnaskyfta lá úti í Blikðlónsdal
Gekk sér til hita og borðaði hráar rjúpur
ÞAÐ bar til tíðinda á sunnu-
daginn, að 18 ára piltur frá
Húsavík, Valgeir Guðmundsson,
Ásgarðsvegi 13, villtist í rjúpna
ferð á Hólaheiði upp af Núpa-
sveit cg lá úti.
Valgeir fór för þessa, ásamt
tveim föðurbræðrum sínum, —
þeim Haildóri og Jónasi Þor-
grímssonum, snemma morguns.
Þeir héidu sem leið liggur, óku
ruddan veg upp á heiði og hófu
rjúpnaveiðarnar. Bar ekkert til
tíðinda fyrr en eftir hádegi, þá
hittust þeir allir. Valgeir ætlaði
eftir það að bíl þeirra félaga,
til að fá sér nestisbila og losa
sig við nokkrar rjúpur, sem
hann þá hafði skotið. En á leið
til bílsins sá hann rjúpur og fór
að elta þær og villtist í dimmu
éli og fann ekki áttir upp frá
því um daginn, en gekk lengi
og hélt á sér hita. Um nóttina
sofnaði hann tvisvar. Hann fann
mjög til hungurs, og tók það ráð
að neyta rjúpnakjöts. Ekki kvað
hann sér hafa orðið verulega
kalt, og var hann þó bæði húfu-
laus og berhentur, en í skinn-
jakka, hlýjum.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Þotuskóli Boeiiii
Valgeir Guðmundsson
Landsími íslands sextíu ára
A ÞESSU ÁRI er Landssími ís-
lands 60 ára. Símastarfsemi
hófst 29. sept. 1906, en þann dag
var lokið við að byggja síma-
líriu milli Seyðisfjarðar og
Reykjavíkur, um Norðurland.
Var unnið að undirbúningi línu-
lagningarinnar árið 1905, en lín-
an lögð sumarið 1906. Yfirstjórn
Kvöldverðarfundur
n.k. föstudag
N.k. fösludag 21. okt. kl. 7,30
heldur FUF kvöldverðarfund að
Hótel KEA. — Sigurður ÓIi
Brynjólfsson, bæjarfulltrúi, ræð
ir bæjarmálin. — Félagar eru
hvattir til að fjölmemxa.
þessa verks hafði Olav Forberg,
norskur maður, en hann varð
síðan fyrsti landssímastjórinn,
gegndi því embætti í 21 ár. —
Aðrir landssímastjórar hafa ver
ið Gísli J. Ólafsson, 1927—’31,
Guðmundur Hliðdal 1931—1956,
og síðan Gunnlaugur Briem
landssímastjóri. Siðan á árinu
1935 hefir landssímastjóri jafn-
framt verið yfirmaður póstmála,
og nefnist póst- og símamála-
stjóri.
Afmælisrit um Landssímann
er nýkomið út, og er þar bæði
þennan og ýmsan annan fróð-
leik að finna. Þar er þess m.a.
getið, að Telefónfélag Reykja-
víkur hafi árið 1890 lagt h'nu
mihi Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar, og að árið 1904 hafi ver-
ið stofnað Talsímahlutafélag
Reykjavíkur, með 15 notendum.
22 STÖÐVAR FYRSTA
ÁRIÐ
Hinn 25. ágúst 1905, eða rúm-
um mánuði áður en Landssím-
inn tck til starfa, var lokið lagn-
ingu sæsimahnu til íslands,
og var hún lögð í land á Seyð-
isfirði. Línan frá 1906 milli
Seyðisfjarðar og Reykjavíkur,
var 614 km. Frá Seyðisfirði lá
hnan upp að Egilstöðum, þaðan
norður til Vppnafjarðar, þaðan
yfir Haug, Hólsfjöll og Mývatns
öræfi, en síðan vestur um land
að norðan og suður um Borgar-
(Framhald á blaðsíðu 2)
FYRIR um það bil tíu árum,
eða nánar tiltekið þegar þotu-
öldin var að he.fjast með til-
komu Boeing 707 þotanna á
áætlunarflugleiðum stóru flug-
félaganna, stofnuðu Boeing flug
vélaverksmiðjurnar í Seattle
skóla fyrir þá, sem áttu að ann-
ast rekstur þessara nýju flug-
véla, bæði í lofti og á láði. —
Þessi skóli, sem hefir oiðið
þekktur undir nafninu „The
College of Jet Knowledge“, hef-
ir á þessu tíu ára tímabili þjálf-
að starfsmenn 56 flugfélaga, á-
samt fjölmörgum starfsmönn-
um stjórna erlendra ríkja og
manna úr flughernum banda-
ríska. í ágústmánuði s.l. út-
skrifaði skólinn tuttuguþúsund-
asta nemandann. Til viðbótar
kennslu í meðferð þota af gerð-
unum 707, 720 og 727, hefst um
þessar mundir kennsla um hina
nýju Boeing 737 þotu, sem er
ætluð til flugs á stuttum vega-
lengdum og ennfremur um risa-
þotuna Boeing 747.
Margir Flugfélagsmenn munu
stunda nám við þennan skóla.
Og er það liður í undirbúningi
við komu Boeing-þotunnar, er
F.í. hefur keypt og kemur til
íslands að vori.
Dræm rjúpnaveiði íyrsfu Épna
Norðlenzkar i"júpnaskyttur
fengu litla veiði fyrstu daga
veiðitímans, sem hófst s.l. laug-
ardag.
Fjölm. Akureyringar lögðu
leið sína upp á fjöll og heiðar
með byssur urri öxl. Sá heppn-
asti kom með 30 rjúpur, en flest
ir fáar eða engar. Skyggni er
víða vont, og rjúpurnar munu
ekki hafa hópað sig ennþá, og
þær eru styggar.
Líklegt er talið, að mikið sé
af rjúpum á þessu hausti, þrátt
fyrir hret það í sumar, sem
stytti aldur ungviðisins, svo sem
viða rnátti sjá.
Sunnanlands fengu rjúpna-
skyttur víða sæmilega veiði, —
eða upp í 40 rjúpur. En af þeim
fara ekki sögur, er ekkert
fengu.