Dagur - 19.10.1966, Blaðsíða 8
8
„SKÁK OG MÁT“.
í liöfuðborginni, og umhverfi
hennar, virðist a.m.k. vera mikil
ánægja með íslenzka sjónvarpið,
eftir fréttum að dæma, og sjón-
varpstæki renna út í verzlunum
eins og „heitar bollur“. Dag-
blöðin eru byrjuð að birta sér-
staka þætti um sjónvarpsdag-
skrána, og þá getum við lesið
hér, þó að útsending nái ekki til
okkar. Hér er sj'nishorn af því,
sem þarna var á boðstólum í
vikunni sem leið, samkv. frá-
sögn eins dagblaðsins:---Á
eftir skákinni kemur svo þriðji
þátturinn um Dýrlinginn. Þar er
að venju háð tafl upp á Iíf og
dauða, en BYSSUKJAFTARN-
IR ERU VENJULEGA LÁTNIR
l héraðssýningunni á Ásláksstöðum í Arnarneshreppi. Bændur hlýða á ræðu Árna G. Péturssonar ráðunauts B. í. (Ljósm.: E. D.)
STJÓRNARFRUMVÖRP
í yfirlýsingu þeirri, er flutt var
á Alþingi 13. okt. af hálfu ríkis-
stjórnarinnar, sagði forsætisráð-
herra frá ýmsum stjórnarfrum-
vörpum, sem flutt yrðu á þessu
þingi. Nefndi hann þá m.a. frv.
um breytingu á áfengislögum,
frv. um fávitastofnanir, frv; um
skipun prestakalla, frv. um
Kristnisjóð, frv. til skólaköstn-
aðarlaga, frv. til höfundaríaga,
frv. um greiðslu til höfunda
vegna útlána úr bókasöfnum, —
frv. um Viðíækjaverzl. ríkisins
ins, frv. um áframhaldandi heim
ild fyrir landanir erlendra veiði
skipa, frv. um breytingu á Iax-
veiðilögum, frv. um jarðakaupa-
sjóð og Iiagræðingarsjóð land-
búnaðarins, samkv. samningum
við Stéttarsambandið. — Ýmis
þessara mála hafa verið undir-
búin í nefndum milli þinga.
VERÐUR HAFNA- OG
VEGAFÉ AUKIÐ?
Ráðherrann lét þess m.a. getið,
að unnið væri að endurskoðun
hafnarlaga og tillögum um öfl-
un nýrra tekna fyrir vegasjóð,
en ekkert fullyrti hann um það,
að frumvörp um þessi efni yrðu
lögð fyrir þing það, er nú situr.
Um bæði þessi mál hefur Fram-
sóknarflokkurinn flutt frum-
vörp á undanförnum þingum,
og frumvarp til nýrra hafnar-
laga, samið af stjórnskipaðri
nefnd, er búið að vera í vörzlu
ríkisstjórnarinnar undanfarin
fimm ár.
TILLÖGUR UM HÆKKUN
Eins og kunnugt er, lögðu
Framsóknarmenn til í fyrra, að
ríkisframlag til hafna yrði hækk
að úr 40% upp í 50, 60 og 70%,
en jafnframt greidd upp skuld
ríkissjóðs við liafnarsjóði, sem
uni næstu áramót nema 55 millj.
kr., og staðið í skilum eftir-
leiðis, samkv. 2 ára áætlunum,
sem gerðar yrðu um hafnargerð.
Varðandi vegasjóðinn, hafa
Framsóknarmenn lagt til, að
hann fái Ieyfisgjald af bifreið-
um, sem á næsta ári er áætlað
169 millj. kr. Vera má, að bar-
átta Framsóknarmanna fyrir
auknum framkvæmdum á þess-
um sviðum, sé nú í þann veginn
að bera nokkurn árangur.
ÚTTEKT VERRUR AÐ
FARA FRAM
í ræðum þeim a nýbyrjuðu
þingi, sem útvarpað var, vakti
(Framhald á blaðsíðu 7.)
Rjiipurnar sjást IHa
Ilúsavík, 18. október. Rjúpna-
skyttur hafa fengið lítið þessa
fyrstu daga rjúpnaveiðanna. —
Snjóföl hefur verið á jörð og
erfitt að koma auga á rjúp-
una. Mesta dagsveiði er 18
rjúpur, veiðimaður Karl Hann-
esson. Veiðisvæði Húsvíkinga
er Reykjaheiði og Aðaldals-
hraun.
Línuafli hefur verið mjög
saemilegur hjá Húsavíkurbátum
að undanförnu. Stöðugt er róið
þegar gæftir leyfa. — Þ. J.
Héraðssýningin í Eyjafirði
SEGJA SKAK OG MAT. —
Bersýnilega er hér um glæpa-
sögu að ræða. En nú spyrja sum
ir norðanfjalla: Er þetta og því-
líkt eins og t.d. eitthvað sem
heitir „Svarti sjóræninginn“
ætlað amerískum dátum eða
bara yngstu kynslóðinni í
Reykjavík?
ERFIÐLEIK A R
VIÐSKIPTABANKANNA
Á síðari hluta þessa árs hafa
komið fram vaxandi erfiðleikar
í starfsemi viðskiptabankanna
og verða margir þess varir.
Tvennt veldur hér miklu um,
eftir því sem blaðinu er tjáð af
ýmsum. Síldaraflinn er meiri
en nokkru sinni fyrr og út á
hann er lánað, en íreglega geng
ur að selja lýsi og mjöl erlendis
og útflutningsbirgðir í landinu
því miklu meiri en undanfarin
ár. Samtímis er áukning á inn-
lánsfé bankanna nú miklu
meiri en fyrr, og af þessari inn-
lánsaukningu tekur Seðlabank-
inn bróðurpartinn til frysting-
ar. Peningaveltan er að vísu
mikil manna á milli, en pening-
ar fara í vaxandi mæli til kaupa
sem margir ráðast í vegna ótta
við minnkandi verðgildi krón-
unnar, t.d. á bílum og sjónvarps-
tækjum, svo að eitthvað sé
nefnt. Annars eru það síðustu
fréttirnar í sjónvarpsmálum, að
litsjónvarp sé á þessu ári að
ryfija sér til rúms, bæði austan
liafs og vestan ,og að hér séu
menn þá e.t.v. aðeins of
snemma á ferðinni með stöð og
tækni.
Þessi mynd var tekin á landsmóti hestamanna á Hólum í sumar.
(Ljósm. E.D.).
ÞÓTT eyfirzkir bændur séu
þekktastir sem miklir naut-
griparæktarmenn og mjólkur-
framleiðendur, hafa þeir aldrei
lagt sauðfjárbúskapinn á hill-
una og stunda hana flestir sem
aðra aðalbúgreinina og eiga all
•nragt fé.
I Við fjárskiptin voru fluttir
inn nýir sauðfjárstofnar. Innan
við Lónsbrú nam Vestfjarðaféð
land, bæði hyrnt og kollótt, en
norðan Lónsbrúar fé af þing-
eyskum stofni. Þessi skipti hafa
haldizt ennþá í stórum dráttum.
Menn deila gjarnan um kosti og
galla þessara stofna, en allir
þessir fjárstofnar — Vestfjarða
•féð tveir stofnar — gefa góðan
arð, þar sem vel tekst til og
heyskapur er ódýr. En í þessu
héraði eru sauðlönd ekki talin
mikil eða góð og óvíða mikil
vetrarbeit til heysparnaðar, mið
að við beztu sauðfjárræktarhér
uð landsins.
Flestir sauðfjárræktarbænd-
ur hér um slóðir fóðra ærnar til
hámarksafurða, fá margar ær
tvílembdar og hafa margir
meiri áhuga á þeirri búgrein en
mjólkurframleiðslunni, þótt
nautgriparæktin hafi lengi gef-
ið meiri arð. En innistöðutími
sauðfjár er of langur og á sum-
um stöðum sýnist það hafa rýrt
hreysti fjárins.
Takmörkuð sauðlönd hafa
bændur í vaxandi mæli bætt
upp með því að beita fénu á
ræktað land á vorin, einkum
tvílembunum, og einnig á haust
in. Notkun tilbúins áburðar á
afréttarlönd hefur ekki verið
upp tekin ennþá og lítt er rann
sakað beitarþol hinna einstöku
afréttarlanda.
I haust voru haldnar hrúta-
sýningar á 13 stöðum í sýslunni,
að meðtöldum sýningum á Ak-
ureyri og Ólafsfirði. Gafst
mönnum þá kostur á að kynn-
ast því bezta í hverjum hreppi,
gera samanburð á hinum ýmsu
kynbótagripum og hlýða á mál
þeirra manna, sem leiðbeina í
sauðfjárræktinni. Því miður var
aðeins um sýningu einstakling
anna að ræða, en ekki á af-
kvæmum þeirra. En afkvæmin
eru óhlutdrægustu dómararnir
á búfjársýningum. Afkvæma-
sýningar er það, sem koma skal,
einnig í sauðfjárræktinni.
Á þessum hreppasýningum
voru yfir 500 brútar, veturgaml
ir og eldri. Þar af hlutu 210
hrútar fyrstu verðlaun eða 42%,
161 hrútur fékk önnur verðlaun
eða 32,1% og 85 hrútar þriðju
verðlaun. Enga viðurkenningu
fengu 44 hrútar.
Á sýningum þessum dæmdi
Árni G. Pétursson sauðfjárrækt
arráðunautur Búnaðarfélags ís
lands og með honum Egill
Bjamason, Sveinn Hallgríms-
son, Jón T. Steingrímsson og
Ævar Hjartarson. Sh'kar sýning
ar voru næst áður haldnar árið
1962 en aukasýningar þó síðar.
Að þessu sinni voru vetur-
gamlir hrútar yfirleitt rýrir.
Meðaltalsþungi þeirra 77,5 kg.,
en fullorðinna 95 kg. Veturgaml
(Framhald á blaðsíðu 7)
Hnokki frá Hálsi var þriðji bezti hrúturinn.
(Ljósm.: E. D.)
SMÁTT OG STÓRT