Dagur - 05.11.1966, Blaðsíða 5
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-1166 og 1-1167
Bitstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Áfengismál á Alþingi
HINN 13. maí 1964 samþykkti Al-
þingi að kjósa 7 þingmenn í nefnd
til þess, eins og í samþykktinni seg-
ir, að „rannsaka svo sem verða má
ástandið í áfengismálum þjóðarinn-
ar og eðli og orsakir þessa mikla
vandamáls“. Var nefndinni ætlað að
kynna sér framkvæmd áfengismála
og starfsemi bindindissamtaka, end-
urskoða áfengislöggjöfina og gera
rökstuddar tillögur um úrbætur. í
nefndina voru kosnir alþingismenn-
imir Alfreð Gíslason, Axel Jónsson,
Einar Ingimundarson, Ingvar Gísla-
son, Jón Þorsteinsson, Magnús Jóns-
son og Sigurvin Einarsson. Magnús
var kosinn formaður, Sigurvin ritári
og Ingvar framkvæmdastjóri nefnd-
arinnar. Nefndin mun hafa skilað
áliti tímanlega á þessu ári.
Nú hafa verið lagðar fram á Al-
þingi tillögur nefndarinnar um
breytingar á áfengislögum. Fylgir
því Iöng greinargerð, um 70 blaðsíð-
ur prentaðar. Koma þar fram athuga
semdir nefndarinnar og hugleiðing-
ar ásamt fjölda fylgiskjala, en í þeim
skjölum em álitsgerðir, skýrslur og
tillögur ýmissa stofnana og forstöðu-
manna, sem nefndin hefur leitað til.
Ekki er kunnugt um, hvað einstakir
nefndarmenn kunna að hafa haft
fram að færa til úrbóta í þessum efn-
um, en í tillögunum, sem fram eru
komnar á Alþingi er það eitt, sem
allir nefndarmenn hafa orðið sam-
mála um. Þar er m. a. lagt til að
hverju veitingahúsi, sem vínleyfi
hefur, skuli skylt að hafa fjórða
hvert laugardagskvöld vínlaust.
Einnig er lagt til að ökumönnum
verði bannað að taka „ölvuð ung-
menni yngri en 21 árs til flutnings
í bifreiðum sínum eða leyfa þeim
áfengisnyezlu þar“. Því miður
eru lagasmiðir þjóðarinnar meiri
óhófsmenn í notkun áfengis en vera
ætti. Betra en smábreytingar á áfeng-
islöggjöf þjóðarinnar væri það, að
núverandi áfengislöggjöf væri virt
og framkvæmd undanbragðalaust.
A bls. 61—62 í nefndarálitinu eru
prentaðar tillögur og ábendingar í
22 töluliðum, sem Stórstúka íslands
hefur sent þingmannanefndinni.
Þar er m. a. lagt til:
Að danskennsla sé gerð almenn í
skólum.
Að opinber styrkur til félaga, sem
starfa að æskulýðsmálum og telji
unglinga innan sinna samtaka, sé
bundinn því skilyrði að þau haldi
fullkomið vínbindindi í félagsstarf-
semi sinni og á félagssamkomum.
Að svonefnt skipa- og flugvéla-
áfengi verði afnumið.
Að bindindismenn gangi, að öðru
jöfnu, fyrir um val til opinberra
starfa og að drykkfelldir menn séu
alls ekki til þeirra ráðnir. O
^ s> . ^ •s'%
Háls í Fnjóskadal.
SÉRA FriSrik A. Friðriksson
prestur á Hálsi í Fnjóskadal og
fyrrum prófastur 4 Húsavík er
sjötugur orðinn. Hann átti því
að vera hættur prestskap sam-
kvæmt "laganna hljóðan. En svo
vel ber hann aldurinn og svo
vel endist honum eldur fjörs og
gáfna, að hann kaus að halda
áfram prestskap í stað þess að
setjast í helgan stein og meta
Fnjóskdælir það að verðleikum,
að hafa fengið hann fyrir sálu-
sogara.
Séra Friðrik er málsnjall hug
sjónamaður, frjálslyndur í skoð
unum, bindindissinnaður gleði-
maður, listhneigður mjög og
með afbrigðum vinsæll. Mikill
lífsþróttur og starfsgleði hafa
enn haldið þreytu og lífsleiða í
fjarlægð.
Hinn sjötugi prestur er víð-
förull maðui- og vel menntaður,
og hann er einna lengst frá
þeirri ósjálegu mynd, sem ég á
í huga mínum um pokapresta.
Hann varð guðfræðingur frá
Háskóla íslands árið 1921 en
hélt síðan vestur um haf til
framhaldsnáms í kirkjusögu,
trúarsálfræði og prédikunEU'-
fræði og gerðist að því búnu
prestur vestra, bæði í Kanada
og Bahdaríkjunum. En Húsavík
urprestakalli þjónaði hann frá
1933 til ársins 1962 og prófastur
í Suður-Þing.prófastsdæmi litlu
skemmri tíma.
Þátttaka séra Friðriks í fé-
lags- og menningarmálmn á
Húsavík og í Þingeyjarsýslu hef
ur verið mikil og margþætt og
verður hér ekki rakin, en til
gamans má á það minna, að
hann var lengi söngstjóri Þryms
og hefur bæði fengist við tón-
smíðar og ljóðagerð. Drátthag-
ur er hann og nótnaskrift hans
er talin listaverk. Um það vitna
Passíusálmasönglög, valin og
teiknuð af honum og kórlög,
sem hann einnig teiknaði og
valdi til útgáfu.
Kona séra Friðriks A. Frið-
rikssonar er Gertrud Estrid
Eb'se, dóttir Holgeirs Nielsens
skjalavarðar í Kaupmannahöfn
og hafa böm þeirra stofnað eig-
in heimili.
Séra Friðrik var svo vinsam-
legur að líta inn á skrifstofur
blaðsins í haust. Hann varð vel
við þeim tilmælum að svara
nokkrum spurningum blaðsins.
Léttur er hann í máli og gaman
samur, en undir niðri mun
hann vera mikill alvöru- og trú
maður. Ljúkum svo þessum for
mála og fer viðtalið hér á eftir.
Er trúarlifið áð breytast á
landi hér?
Sú trúrækni, sem almennust
var og ég ólst upp við um og
eftir aldamót, hefir mikið
breytzt. Húslestrar svo að segja
horfnir og kirkjusókn orðin lít-
il, einkum í þéttbýlinu. Fólk er
orðið óskaplega tímalaust. Vinn
andi fólk hefir engan frið fyrir
annríki, og tómstundafólk eng-
an frið fyrir glaumi, sem upp á
það er troðið nótt og nýtan dag.
Ýmislegt bendir þó til þess vor
á meðal, að um trúmál sé hugs-
að. Söfnuðir gera myndarleg
átök vegna kirkna sinna, svo að
nú fækkar þeim stöðum, þar
sem guðshúsið er eins og hrör-
(Ljósm.: E. D.)
benda á afkristnaða menn, sem
í krafti skoðana sinna afnámu
mannréttindi og drýgðu fjölda-
morð. Hlutlægt séð, eru þetta
vondir menn. Þó eru þeir sjálf-
um sér samkvæmari en margir
grandvarir og ágætir vantrúar
menn, sem telja siðferðilega
yfirburði sina og sinna líka til
orðna af sjálfu sér.
En ég skal nefna dæmi um
trúað fólk.
Á fyrstu prestsskaparárum
vestan hafs kynntist ég ís-
lenzkri landnámskonu, norður-
þingeyskri að uppruna. Hún
var fátæk móðir margra barna.
Jafnframt var hún ólaunuð Ijós
móðir og læknir byggðarinnar,
ins. En þar skjátlaðist mér: All
h-, sém þekktu mann þennan
vel, fullyrtu að hann væri ein-
lægur trúmaður, og — að trúar
legur hugsunarháttur hans
væri þessi: Ég er óupplýstur
maður og allsófær um að hafa
eigin skoðanir á trúarefnum.
Lærðu mennirnir, prestarnir,
verða að bera ábyrgð á þeim.
Ég trúi því, sem þeir segja mér,
og geri það, sem af mér er kraf
izt, — sæki kirkju reglulega,
geld sóknargjöld og geng um
með samskotadiskinn, þegar
þess er óskað. Ég er syndari.
En skuldir mínar við Guð, get
ég ekki sjálfur greitt, hvorki
stórar né smáar. Það gerir
Kristur fyrir mig. Og hann er
svo ríkur og góður, að það mun
ar hann engu, hvort skuldin er
stór eða smá. Þess vegna má
ég alveg eins vera stórsyndari.
Gegn þessari guðfræði hefir
þú barizt?
Barizt? Nei, ekki verulega.
Ég er satt að segja lítt lærður
guðfræðingur og auk þess mein
laus friðsemdarmaður, — miklu
hneigðari til hollustu en upp-
reisnar. Ég hefi bara aldrei skil
ið það, að viðleitni syndugs
manns til að betra sig væri með
öllu gagnlaus til sáluhjálpar, og
þá heldur ekki predikað það.
Mér er ómögulegt að skilja hin
biðst gistingar. Þetta vár að
vísu allra vænsti'karl, en svaka'
fenginn nokkuð og ekki ávallt
orðprúður. Engin ástæða til að
gruna hann um guðrækni. Mér
er engin launung á þvi, að mér
leiðist heldur að sofa hjá karl-
mönnum, og ég varð seinn til
svefns, eins og raunar oftar, —
samvizkan, sjáðu til! Gamli
maðurinn sofnaði von bráðar
út frá skrafi okkar. En þegar
hann var á milli svefns og
vöku, heyrði ég að hann var að
tauta bænarvers, sem við kunn
um báðir. Eftir þetta sá ég
mann þennan í dálítið öðru
ljósi en áður, og hefi oft um
þetta hugsað.
Margir biðja, en miklu fleiri
hafa bænarþörf. Helzta hindr-
unin þar er vitundin um eigin
vilja, sem ekki sé í samræmi
við Guðs vilja. Til einskis er að
ætla sér að fara á bak við Guð,
og þá kannske bezt að segja
ekki neitt, biðja ekki neins. Það
er breysku barni erfitt, að eiga
þann föður, þótt harla góður sé,
sem veit allt, sem gerist, og allt,
sem er hugsað. Og þó — alltaf
má af einlægni biðja eins og
beðið var forðum: Guð vertu
mér syndugum líknsamur. Ég
bygg að það veiti ævinlega
svölun.
Prestarnir eiga að ganga á
:ég*því«ifrarn eftir öllum árum,
að umgengni mín við fermingar
börn og ungt fólk væri til nokk
urs góðs, og mér því óheimilt
að bregða mér yfir á aðx'a
„hillu“. Ég var seinn til að við-
urkenna, að ungmenni létu
ferma sig eingöngu fyrir siða-
sakir og fermingartekjur. En
Friðrik A. Friðriksson.
þegar mig fór að gruna, að þess
gei'ðust dæmin, hætti ég að
vera fjölbýlisprestur, — vár að
vei-ða gamall og taldi rétt að
víkja fyrir yngri mönnum, sem
Enginn getur neitað sambandi
trúar og siðgæðis,
segir séra FRIÐRIK A. FRIÐRIKSSON
þrestur á Hálsi í Fnjóskadal
legur skúr við hliðina á hinum
nýju, reisulegu mannabústöð-
um. Mikið er lesið og rætt um
dulræn efni. Alltaf er talsvert
hnjóðað í kirkjuna sem stofn-
un, sumpart þarflega, sumpart
af gömlum innantómum vana.
Á það ber líka að líta, að hér
í okkar skikkanlega þjóðlífi hef
ir til skamms tíma verið svo
lítið um spennandi árásarefni,
að rithöfundar urðu að grípa til
prestanna, allt frá dögum Sig-
valda klerks í „Manni og konu“.
Nú njóta stjómmála- og kaup-
sýslumenn vaxandi athygli, og
ætti þá að létta ögn á okkur
prestunum. En þrátt fyrir allt
hnjóð, hygg ég að kirkjan og
málstaður hennar sé miklum
meiri hluta þjóðarinnar kær.
Og víst er um það, að menn eru
yfirleitt hættir að hampa van-
trú sinni sem gáfnavottorði.
Ytri trúarleg viðhorf hafa
ávallt verið breytileg frá þjóð
til þjóðar, frá manni til manns.
Nýjar hugsanir, ný tækni,
breyttir þjóðhagir, hljóta
hvexju sinni að hafa áhrif á
form og túlkun trúar. En trúar
kjaminn er ávallt hinn sami.
Traustið á æðri mátt, sem yfir
oss vaki, ásamt þeim skilningi,
að mannlegur persónuleiki sé
stei'kari en hnignun og hel, —
þetta breytist ekki.
Viltu nefna dæmi um trúað
fólk eða vantrúað?
Ég held ég láti vanti'úardæm
in vera. Þar hefir fólk úr nógu
að moða á vorri tíð. Nóg er að
og yfirleitt öllum ótrauð hjálp-
ai'hella í vanefnum og bágind-
um frumbýlisins. Hún lét lítið
af trú sinni. Börn sín ól hún
upp í lotningu fyrir Kristi og
kærleiksboðum hans. En vitað
var, að um Krist trúði hún því
einu, sem henni sjálfri þótti trú
legt. Kona þessi dó af slysför-
um rúmlega sextug. Sumir nán
ir vandamenn hennar, sem
vissu öll skil á „réttri trú“,
töldu að vantrúar vegna mundi
hún fara illa eftir dauðann. Jafn
framt sættu þeir sig við það
sem Guðs vilja. Hvílík trú!
Á þessum árum varð maður
nokkur oft á vegi mínum, þótt
ekki minnist ég þess, að við yrt
um nokkurn tíma hvor á ann-
an. Hann var rumur vexti og
stórskorinn í andliti, og kom
mér allskuggalega fyrir sjónir.
Enginn vissi uppruna hans né
hvort hann hefði haft fjái'muni
meðferðis, er hann settist að í
byggðinni. Hitt vissu allir, að
hann var leynivínsali. Félítil
bæjaryfirvöld og kaupsýslu-
menn settu það ekki fyrir sig,
því að kreppan lá þungt á og
hann hafði alltaf nóg fé til út-
lána. Loks átti hann hálfan bæ
inn. Nú er það svo um mig, að
mér hættir mjög til að vanmeta
leynivínsala, þótt ýmsir aðrir
líti á þá sem þjóðhetjur. Og þú
getur nærri hvemig ég tor-
trygginn maður og þröngsýnn í
þessum efnum, lagði það út, að
þessi leynivínsali var einn allra
kirkjuræknasti maður bæjar-
alvöruþrungnu siðgæðisboðorð
Fjallræðurmar og alls Nýja-
testamentisins þannig, að góð
breytni sé bara sáluhjálpar-
punt. Kannske á ég eftir að
skilja það, — og er ég þá minnt
ur á orð ágæts kennara míns
forðum, þegar honum fannst ég
óþarflega og meinlega seinn til
að skilja eitt stærðfræðidæmið.
Að viðureign lokinni vai'ð hon-
um að orði: „Gott, þegar Frið-
rik segist skilja, þá skilur
hann“.
Guðfræðilegt skilningsleysi
er spauglaus hlutur, og ekkert
gaman að baka sér andúð
mætra manna, sem öðruvísi
hugsa, og svo stöku sinnum
nokkur vel útilátin illmæh.
Hvað viltu segja um kvöld-
bænina?
Bænin er bezta tækið, sem
mönnum er almennt tiltækt í
baráttunni við freistni og hvers
konar vanmátt. Að biðja moi'g-
unbænar er að slá ákveðinn,
hreinan tón fyrir sönglag dags-
ins. Og sérhver sá, sem af nokk
urri einlægni og skilningi gerir
ráð fyrir tilvist ósýnilégs heims,
þar sem bæði ill og góð öfl séu
að vei-ki, hlýtur að gera sér
grein fyrir gildi þess, að ákalla
vernd hins góða, þegar hann
sjálfur sleppir tökum í dvala
svefnsins. Enda munu fleiri
biðja kvöldbænar en af er lát-
ið. Ég man ævagamalt atvik. Ég
var þá ókvæntur og bjó einn i
litlu húsi. Seint að kvöldi kem
ur til mín gamall maður og
undan í fögru lífemi, er ekki
svo?
Finnst þér kannske að við
gerum það ekki? Nú er ég
hissa. Jú, víst eigum við að
gei'a það, og vonandi er þá fag-
urt líferni einhvers virði í til-
verunni. En siðgæðisforusta er
áhættusamt fyrirtæki og í viss-
um skilningi svo mikið fórnar-
starf, að næstum er óhugsandi
að ófullkomnir menn leggi út á
þá braut án þess, að hafa von
um að oi'ka einhverju til góðs,
þrátt fyrir allt. Það er varhuga
vert, að gerast kennari í góð-
akstri og eiga það á hættu, að
aka útaf. En nauðsynlegt er, að
einhver taki á sig þá áhættu.
Og auðvitað skeikar okkur
pi'estuniun mai'gvíslega, — til
allrar lukku fyrir skáldin. í
myrkviðum torveldrar heim-
speki og sundurleitra siðgæðis-
skoðana er vegurinn vandratað
ux'. Þar er skiljanlega gagns-
laust, að „blindur leiði blind-
an“. En það getur verið blind-
um manni betra en ekki, að
láta leiðast af þeim, sem er bara
hálfblindur, —* og skilur þá
sennilega betur, sakir eigin sjón
depru, böl blindingjans. Það
kemur sér betur, að þú ert ekki
skriftafaðir minn, svo að ég
þai-f ekkert að segja þér um
minn „góðakstur“. En mér hef-
ir verið margságt að ég væri á
skakkri hillu, og einstaka mað-
ur hefir látið hafa það eftir sér
að ég væri söfnuðum mínum
sálarháski. Eigi að síður trúði
skildu samtíð sína betur. En,
út af þessu skrafi um ekki-
óskeikula siðgæðisforustu okk-
ar prestanna, skal ég segja þér,
að fyrir 37 árum sótti ég 3 mán
aða námskeið í predikunar-
fræði. Ég man alltaf fyrsta verk
efnið. Við áttum að gera sundur
liðað uppkast að predikun um
Salómon konung Davíðsson
sem dæmi þess, hvernig Guð
getur notað breyska og skamm
sýna menn til að gera góða og
veglega hluti. Þú skilur að mér
og mínum líkum verði slík sjón
armið minnisstæð.
Nú, og úr því að ég minntist
á fermingartekjur barna, (hin-
ar koma ekki þessu máli við),
þá skal ég bæta við sannri sögu.
Fyrú nokkrum árum var ég
gestur í einu stói-hýsi Reykja-
víkur, margra hæða og margra
fjölskyldna. Ungmenni í einni
af þessum fjölskyldum hafði
vei-ið fermt fyrir hádegið. Síð-
degis kemur amman (nýkomin
til Reykjavíkur) og spyr, hvei-j
um hafi verið boðið í veizluna.
Móðir barnsins svaraði því.
„Hvað! Blessað bamið hefir
ekkert upp úr þessu!“, sagði
amman hneyksluð. Gamla kon
an tók svo málið í sínar hendur
og bauð um 30 manns.
Er ekki prestsstarfið mann-
bætandi?
Það held ég hljóti að vera.
Sæmilega gefinn og vandaður
maður í slíkri stöðu hlýtur að
ganga ofurlítið hægar um dyr
veraldlegra lystisemda og hugð
arefna en hann hefði ef til vill
annars gert. Ég hefi oft hugsað
um það, að staðan hafi verið
mér siðferðileg vernd, þótt eng
an veginn dygði til fulls. Stund
um hefir meira að segja hvarfl-
að að mér, þegar starfsárangur-
inn virtist smár, að forsjónin
hafi frekar vei-ið að hugsa um
mig en söfnuði mína, þegar hún
lét það viðgangast, að ég yrði
prestur. En ég hefi hririt þeirri
hugsun frá mér, — hefði verið,
séi'ðu, alltof tillitslaust við söfn
uðina.
Hvað viltu segja okkur um
trú og siðgæði?
Það helzt, sem allir ættu að
geta sagt sér sjálfir, að í-öklega
séð eru trú og siðgæði í órofa
sambandi. Það er ein mesta
ógæfa mannkynsins, að mönn-
um skuli sjást yfir þá stað-
reynd. Það er dauðasyndin
sjálf. Það, sem einkum ruglar
hugsun manns í þessu efni, er
hið alkunna, að til ei'u misindis
menn, sem lýsa yfir trú sinni,
og vandaðasta fólk, sem afneit-
ar alli'i trú. Misræmið í orðum
°g gjörðum smælingjanna er
auðskilið sem ein hlið mann-
legs veikleika. Hitt er toi'skilið,
að vitrir menn og upplýstir
skuli ekki koma auga á það, að
siðgæðisþroski er að langmestu
leyti arfur frá trúuðum kynslóð
um — uppskera af akri, sem
búið er að erja og ei-fiða við
frá ómunatíð. Meginþorri
manna, a. m. k. á Vesturlönd-
um, byrjar að njóta þessarar
uppskei-u þegar í móðurlífi,
öðlast lífsréttindi við fæðing-
una, (annai-s hefðum við marg-
ir verið boi-nir út), tekur smám
saman fyrii-hafnarlaust við inni
eign í banka almenm-a ki-isti-
legra siðgæðishugmynda, og
nýtur síðan mannréttinda, sem
eiga sér engan annan grunn en
rök trúai-. Því að réttur af
sjálfum sér er ekki til í þessum
heimi. Rödd samvizkunnar má
þagga með kaldri skynsemi.
Landslög styðjast við vald. Og
réttur kærleikans byggist á trú,
og þá helzt og fremst, virðist
mér, á kristinni trú. Það er
ekki sjálfrátt, hve ýmsir skyn-
ugir menn keppast við að af-
sanna samband trúar og sið-
gæðis. Það getur vei-ið van-
hugsun. Raunalegar yfirsjónir
kirkjunnar eiga þar eflaust
mikinn hlut að máli. En hér
getur einnig vei’ið um að ræða
sjálfshlífð, meðvitaða eða ómeð
vitaða. Akuryrkja, andleg sem
veraldleg, er ávallt ábyrgðar-
og erfiðisvinna. Sæll er sá, sem
hefir nóg brauð á borðum, en
hefir engar skyldur við akur-
inn, þótt á þeirri tæpu foi-sendu
sé, að akur og hveiti séu óskyld.
ir hlutir. Þannig er fyrir hendi
spúrningin um einlægni bæði
þeirra, er játa, og þeirra er
neita. Munurinn sá einn, að
spurningai-mex-kið gnæfir neon
lýst yfir höfði okkar prestanna,
en leynist undir frakkafóðri
göfugra afneitai-a.
Svo virðist að þeir menn séu
til, sem hafna trú á Guð og
framhaldslíf af fullri einlægni.
Þeir menn eru hins vegar ekki
til, sem með frambærilegum
rökum geti neitað hinu dýpra
sambandi trúar og siðgæðis.
Það gefur auga leið í ; þessu
efni, að þær persónur mann-
kynssögunnai-, sem hæst hafa
risið í hreinleik og mannást,
hafa — næstxxm eða. alveg án
undantekningar — gengið fram
í nafni og krafti trúar. Ekki síð
ur hitt, að voldugir rnenn telja
sig tilneydda að afkristna þjóð-
ii-nai-, áður en skundað er til
óhæfuvei-ka. Tveir voru mestir
atburðir ái-sins 1945:' Tilkoma
atómsprengjunnar og afhjúpun
fangabúðanna, sem sýndu hvert
stefnir fyrir hinum hámennt-
aða, tæknimáttUga, en afkristn
aða og þess vegna samvizku-
laus hvíta villimanni.
En trúarreynsla þín sjálfs,
séra Friðrik?
Þar verð ég að tala hóflega.
Ég er enginn dulreynslumaður.
Það er helzt, að ég þekki frið
og fróun bænai-. Þróunarleið
mín á sviði trúar og prestsskap
ar hefst með því, að móðir mín
kenndi mér ki’istindóm mjög
ungum. Sem bai-n grét ég yfir
því, hvemig farið var með Jesú.
Þegar ég stálpaðist, heyrði ég
úr öllum áttum vantrúaryfh--
læti hinna gáfuðu, og margir
hinna miður gáfuðu tístu með.
Ég slapp ekki hjá efasemdúm.
En þær voru ekki sársaukalaus
ar. Því að hollustan var alltaf
trúai-megin. Síðan hefir svó allt
það, sem ég hefi valdið af skyn-
samlegri hugsun, fest mig í
þeirri skoðun, að ékkert annað
en lífsskýi-ing ki-istindómsins sé
boðlegt slíkri furðuverur sem
maðurinn er — vitur, syndug* •
ur, dásamlegui-, daúðlegur.’ ',í"''
Þú hefir alltaf dáð fágrar
listir?
Já, dáð, en ekki drýgt. Úneit
anlega eru í mér einhvei-jh-
strengir, sem alltaf eru þægi-
lega snortnir af því, sem fyrr-
um var kallað fögur list. Frá
blautu barnsbeini heyi'ði ég
móður mína fara með vísur óg
Ijóð. Hún var sjáíf veí hagmælt
og kunni ósköpin öll af kyeð-
skap. Ég var snemma látirin
lesa í'ímur á kvöldvökum og
varð stálsleginn í eddukenning
um og rími. Ég fór að hnoða
saman vísum, hafði gaman af
að söngla falleg lög og hafði
hneigð til að krota, en til slíks
mátti ekki nota pappír á þeii'ri
tíð. Þetta listræna gaman hefir
svo alltaf tollað við mig. Nú í
ellinni er það mín helzta
skemmtun að teikna nótur —
líklega vegna þess, að þar er ég
kominn í einskonar samsull af
dráttlist, hljómlist og ljóðlist!
En nú veit ég ekki framar hvað
fögur list er. Ég veit bara að
jazzið og allt þess sæði er mér
líkamleg pynting, — enda eiga
þessar organdi, gii-ndai-fullu lag
Ieysur sökina á því, að eldrí
kynslóðin varð að hætta áð
skemmta sér með hinni yngri,
til tjóns fyrir báðar. Atómljóð
og óræð málverk og höggmynd
ir vekja mér enga gleði. Og ég
er hálfhræddur um, að allur
þessi flótti frá ábyrgri hugsun
til duttlunga imdirvitimdarinn-
ar stýri ekki að öllu Ieyti góðri
lukku. En ég er ekki listamað-
ur, því síður listdómari, er bráð
um úr sögunni og læt allt skraf
niður falla um nýju fötin keis-
arans.
Þú hefir tekið mikinn þátt í
félagsmálum?
Hefi talið skyl'du mína, að
liðsinna þar eftir mætti. Félags
líf er meltingarfæri hugsjón-
anna. Menn verða að koma sam
an, blanda geði, læra að leggja
á sig fórnir og ei-fiði fyi-ir góð
málefni, keppa saman að settu
marki. Það er furðulegt og
mjög meinlegt, hve margir láta
sinn hlut eftir liggja i félags-
málum.
Finnst þér ekki umgengnis-
venjum áfátt hér á landi?
Jú, það finnst mér. Og ég skil
ekki að íslendingar hafi efni á
því til lengdar, einir allra sið-
aðra þjóða, að fella niður og
fordæma öll kurteisisform í
ávarpi og umgengni. Mér hefir
oft dottið í hug að skrifa um
þetta. Kannske kem ég því í
verk.
Mér er sagt að þú hafir
ákveðnar skoðanir í áfengis-
málum?
Hvergi nærri nógu ákveðnar,
þ. e. a. s. ég veit ekkert hvernig
á að losna við áfengið.
Ég hygg að það séu erigar
ýkjur, að 75—80% af allri bölv-
un marmkynsins stafi frá áfeng
inu. Án áfengis hefðum við
betri leiðtoga, betri embættis-
menn, margfalt betra félags- og
samkvæmislíf, spöruðum stórfé
við löggæzlu, læknishjálp o. s.
frv., áynnum feikn af, vinnu-
tíma og vinnuafköstum, sæjum
minna af heimilisböli færri slys,
"fáerri eyðilögð mannslíf, færri
'•» glæpi. Það er eldgömul saga, að
þegar einhvern skal svíkja eða
glepja eða meiða, þá er áfengi
feynda húsráðið. Hins vegar
riiá segja ýmislegt smávegis
gott um áfengið. Margir segja
að það hafi bjargað lífi sinu sem
hitagjafi. Til er fólk, sem gert
getur áfengi að skemmtilegu og
skaðlausu punti. Og svo má
ekki gleyma því, að áfengi er
sælugjafi. Og við verðum að
hugsa út í það, hvé harkaleg
áníðsla það væri, að svipta þá
menn áfenginu, sem telja sig
hafa þetta eina líf til að lifa,
þekkja enga aðra sælulind, hafa
engin verðug áhugamál að lifa
fyrir og eru að deyja úr leið-
indum. Það er ljóst, að áfengið
borgar sig ekki þjóðfélagslega,
þrátt fyrir „ríkið“. Bann er
æskilegt, en örðugt viðfangs.
Vínandaauðug hráefni eru alls
staðar. Hver getur bruggað,
sem kann, vill og má. Betri
borgarar og embættismenn yfir
leitt heimta sitt „persónufrelsi“,
hvað sem tautar. Þeim virðist
skapi nær að steypa banni en
styðja það. Vínekrur hylja stór
svæði jarðarinnar. Áfengisfram
leiðsla er veigamikið atvinnu-
spursmál fjölda þjóða. Áfengis-
jöfrar eru menn, sem ekki láta
að sér hæða. Vel þeim, er finn-
ur lausn þessa stórfellda vanda
máls og leysir það!
Skemmtanalífið
Á fjáröflunarskemmtun, sem
haldin var í loflegum tilgangi,
árið 1937, upplifði ég það í
fyrsta sinn, að skammast mín
fyrir þjóð mína. Vestan hafs
(Framhald á blaðsíðu 2)