Dagur - 16.11.1966, Page 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Bílar sáust „þvers og krus“ í hálkunni.
(Ljósm.: P. A. P.)
A í
Rætt við Guðmimd skipstjóra og Röðvar bryta
TJM HÁDEGI á mánudaginn
korp strandferðaskipið Hekla til
Akureyrar í siðustu ferð sinni
til Norðurlands. En skipið hef-
ur verið selt slcipafélagi einu i
Grikklandi fyrir 16—17 milljón
ir ísl. króna og verður afhent
hinum nýju eigendum síðar í
þessum mánuði. Blaðið náði
sem snöggvast tali af skipstjór-
anum Guðmundi Guðjónssyni
og- brytanum Böðvari Stein-
þórssyni.
breið, 10 ár me'ð Esju og 5 ár
með Heklu. Það er mál að
hætta áður en elliglöpin henda
mann. Þetta hefur gengið slysa
lítið hingað til og gott að geta
lokið störfum á þann hátt.
Og þegar í land er komið?
Kapngki g.æti ég ■ fengið að
bera út bloð, ségir skipstjórinn
hlæja'ndi,’ en bætir síðan við:
Það er erfitt að hætta og fara
í land. Þeir erfiðleikar stafa
méðfram af því, að það vantar
störf við okkar hæfi þegar í
land er komið, og það er ekkert
gamanmál.
Ilvernig skip er Hekla?
Langbezta ríkisskipið, 18 ára
gamalt, 1456 brúttósmálestir
með 156 farþega rými. En nú er
Blikur, hið færeyska, nýja skip,
byrjað strandferðir og bætir úr
brýnni þörf, segir hinn yfirlæt-
islausi skipstjóri, sem nú er að
láta af farsælli og langri skip-
stjórn, og þakkar blaðið sam-
talið.
Böðvar Steinþórsson bryti.
Við leggjum fyrst þá spurn-
ingu fyrir brytann, Böðvar
Steinþórsson, hvort hann ætli
líka í land, er Hekla hættir
strandferðum.
Nei, við förum fjögur af
Heklu yfir á Esju, auk mín þau
Ellert Valdimarsson þriðji
stýrimaður, Vilhjálmur Odds-
son búrmaður og Jónína Guð-
jónsdóttir þerna, en við vorum
(Framhald á blaðsíðu 7). '
Guðmundur Guðjónsson
skipstjóri.
Þetta er síðasta ferð Heklu,
hér við land, Guðmundur?
Já, hingað til Akureyrar. Við
erum á leið vesturum, áttum að
skreppa til Seyðisfjarðar síðar
í vikunni, en af því verður ekki.
Þeíta er því síðasta ferðin, áður
en skipið verður afhent nýjum
eigendum.
Við hvaða skipi tekurðu nú,
skipstjóri?
Ég hætti nú skipstjórn, er orð
inn 66 ára, búinn að vera 40 ár
á skipum ríkisins, fyrst stýri-
maður en síðan 4 ár með Skjald
Möðrudalsöræfr lokasl
Grimsstöðum 15. nóv. Hér er
nú norðanátt og kominn ofur-
lítill snjór. Margir voru búnir
að taka fé sitt í hús en hinir
gera það nú. Það fé, sem ekki
er heima, er skammt undan og
vei'ður því smalað nú í dag ef
veður leyfir.
Ekki er mikill snjór á vegum
og dálítil umferð hefur verið
um Möðrudalsöræfi fram undir
þetta. Vegagerðin hefur hjálpað
bílum nokkrum sinnum. Síðast
á sunnudaginn fóru tveir bílar
um og héldu leiðar sinnar aust-
ur, og á sunnudagsnóttina
komu tveir vörubílar að austan.
En nú lokast vegurinn án efa.
K. S.
GAMANSAMUR
ÞINGMAÐUR
Skúli Guðmundsson alþingis-
maður er skáldmæltur vel og
oft gamansamur. Nýlega flutti
hann á Alþingi tillögu um at-
liugun á því að leggja Fálka-
orðuna niður. í greinargerð
segir:
„Hér er farið frarn á það að
fella niður orðuveitingar og
spara útgjöldin, sem til þess'
fara.
Örðan barst frá okkar grönn-
um eins og fleira þarflaust tild-
ur. Þeir eru vanir þessu, til að
mynda Danir. Og sagt er, að
Rússar sæmi ýmsa svona
skrauti. Það er hengt á vildar-
vini valdhafanna í heiðurs-
skyni.
Þó að sumir þrái krossa, þá
munu fleiri mæla, að enginn ís
lendingur ætti að dýrka þannig
glingur“.
FAA GRUNAÐI
Fáa mun hafa grunað við lest-
ur þessara orða, að sér var um
bundið mál að ræða, sem hljóð-
ar svo:
Hér er farið fram á það
að fella niður
orðuveitingar og spara
útgjöldin, sem til þess fara.
Orðan barst frá okkar grönnum
eins og fleira
þarflaust tildur. Þeir eru vanir
þessu, til að mynda Danir.
Og sagt er að Rússar sæmi ýmsa
svona skrauti.
Það er hengt á vildarvini
valdhafanna í heiðursskyni.
Þó að sumir þrái krossa
þá munu fleiri
mæla, að enginn íslendingur
ætti að dýrka þannig glingur.
ERLEND HÚS
Það vekur jafnan hina mestu
athygli þegar flutt eru hús frá
öðrum löndum og sett hér upp.
Má í því sambandi minna á
norsk hús í Mosfellssveit og
íbúðarhús kísiliðjunnar í Mý-
vatnssveit. Það er annars furðu
Frá Framsóknarfélðgi Eyfirðinga
HINN 4. nóvember var haldinn
fundur í fulltrúaráði Fram-
sóknarfélags Eyfirðiriga.' f upp-
hafi fundarins var Einars Sig-
fússonar í Staðartungu 'minnzt,
en hann var formaður félags-
ins. Vottuðu fundarmenn hon-
um virðingu sína með því að
rísa úr sætum.
í stjórn voru kosnir: Stefán
Valgeirsson Auðbrekku formað
ur, Guðlaugur Halldórsson
Merkigili varaformaður. Aðrir
í stjórn: Angantýr Jóhannsson
Hauganesi, Þórir Valgeirsson
Auðbrekkú-og- Ketill Guðjóns-
son Finnastöðum.
Varamenn: Jón Jónsson Dal-
vík, Jónas Halldórsson Rifkels
stöðum. Eridurskoðendur voru
kjörnir: Kristinn Sigmundsson
Arnarhóli og Jón Hjálmarsson
Villingadal.
í blaðstjórn Dags: Jón Jóns-
son, Kristinn Sigmundsson og
form. Stefán Valgeirsson, sjálf-
kjörinn. Q
** #
„Fullt að gera“ og nógur snjór til að moka.
(Ljósm.: E. D.)
legt, ef það er þjóðfélagslegur
hagnaður að því, að reisa erlend
liús í Mývatnssveit, þar sem ís-
lenzk verksmiðja er framleiðir
steina í alla veggi venjulegra
íbúðarhúsa stendur við hliðina
á innfluttu húsunum. Ef slíkur
innflutningur er hagkvæmur, er
byggingariðnaður okkar sjálfra
naumast á háu stigi, svo ekki
sé nú meira sagt.
SKÓLI FYRIR BLAÐAMENN
Blaðamannafélag íslands hefur
tvisvar farið þess á leit við Há-
skóla íslands, að hann komi á
fót námskeiðum fyrir starfandi
og þó einkum verðandi blaða-
menn. Tilviljun hefur að
nokkru ráðið því, hverjir eru
blaðamenn við íslenzk blöð.
Sérstaks náms hefur ekki verið
krafizt af blaðamönnum. Það er
erfitt ve'rk og vandasamt, fyrir
blöðin, að. „ala upp“ sína blaða-
mannastétt. Mikil gagnrýni á
liendur blaðamönnum er ekki
ástæðulaus. En námskeið í
blaðamennsku gætu leyst ýms-
an vanda á þessu sviði.
„FARÐU VARLEGA“
\
Við ókum fram hjá stórum
flutningabíl á Öxnadalsheiðinni
nýlega. Iiann stóð tæpt á vegar
brún og bílstjórinn búinn að
bera út úr honum farangur og
stafla upp. Stöðuljós og inni-
ljós voru á bíl þessum og manna
von, sýndist okkur. Við nám-
um staðar gengum hringin í
kring, sáum að bílnum mátti
ekki róta um hársbreidd með
eigin vélarorku, því að þá
myndi hann steypast fram af
háum vegarkanti. Enginn mað-
ur var sjáanlegur úti og opnuð-
um við því bílhurðina, sem var
ólæst. Þá hvað við rödd er
sagði: „Farðu varlega". Hikuð
um við í dyrunum og datt okk-
(Framhald á blaðsíðu 7)
Ritgerðasamkeppni
í TILEFNI af 50 ára afmæli
Lionshreyfingarinnar verður
efnt til ritgerðasamkeppni
hvarvetna, sem hún starfar, og
eiga kost á þátttöku allir á aldr
inum 14—22 ára. Ritgerðarefn-
ið er Leið til friðar. Lionsklúbb
arnir annast framkvæmd sam-
keppninnar á íslandi, og skulu
ritgerðirnar hafa borizt þeim
eigi síðar en 10. desember.
Bezta ritgerð, er berst hverjum
klúbbi, fær 2.500, króna verð-
laun. Síðan verður dæmt milli
ritgerðanna, sem klúbbarnir
verðlauna, og hlýtur íslenzki
sigurvegarinn í samkeppninni
10.000 krónur í verðlaun.
Lionsklúbbarnir á íslandi eru
nú 34 og starfa víðs vegar um
land. Mun því mikill fjöldi
ungra íslendinga eiga kost á
þátttöku í samkeppnínni, en
klúbbarnir leita samstarfs við
skólana um framkvæmd henn-
ar.
Dómnefnd íslenzka umdæm-
isins skipa: Guðmundur Ingvi
Sigurðsson, hæstaréttarlögmað
ur, Helgi Sæmundsson, ritstjóri,
og Magnús Þ. Torfason, pró-
fessor. Metur hún ritgerðirnar,
sem hljóta verðlaun hinna ein-
stöku klúbba, og slcer úr um
hver þeirra beri af.
(Framhald á blaðsíðu 7)