Dagur - 28.01.1967, Page 1
L. árgangur — Akureyri, laugardaginn 28. janúar 1967 — 7. tbl.
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 30.00 á
mán. í lausasölu kr. 5.00
ÍÞRÓTTASKEMMAN VÍGD í DAG
I. DEILDAR LIÐ VALS LEIKUR VIÐ ÍBA
í DAG kl. 3.30 fer fram í íþrótta
skemmunni á Akureyri vígslu-
atliöfn. Þar flytja ávörp Stefán
Stefánsson, form. byggingar-
nefndar, Jens Sumarliðason,
form. fþróttaráðs, og fsak Guð-
mann, form. ÍBA.
Kl. 4 Iiefst svo keppni í hand
knattleik milli 1. deildarliðs
Vals úr Reykjavík og 2. deildar
liðs ÍBA. Lið Vals er eitt hið
bezta á Iandinu, og mun marga
fýsa að sjá það leika liér.
Þess má geta að Sigurður Sig
urðsson íþróttafréttamaður út-
varps og sjónvarps kemur norð
ur og verða telcnar niyndir fyrir
sjónvarpið hér nyrðra bæði í
íþróttaskemmunni og víðar. O
Framboð ákveðið á sunnudaginn?
Blönduósi 27. jan. Á sunnu-
daginn verður kjördæmisþing
haldið í Húnaveri á vegum
Framsóknarfélaganna og þá
væntanlega ákveðið framboð til
Alþingiskosninganna í vor.
Skíðamót á morgun
KEPPNI drengja og stúlkna á
Akureyrarmótinu í svigi hefst
í Hlíðarfjalli á morgun, sunnu-
dag kl. 12. Keppni unglinga
hefst kl. 13.
Ferðir verða frá Lönd og
leiðum kl. 9, 10 og 13. Q-
ÞRÍR SKÁRUST ILLA
SAMKVÆMT upplýsingum lög
reglunnar á Akureyri hafa þrír
menn verið fluttir á sjúkrahús
með stuttu millibili, allir illa
skornir af gleri. Tveir þessara
manna voru í heimahúsum, öl-
óðh-, en sá þriðji datt úti á götu
og skar sig á brennivínsflösku
sinni. □
Sagt er, að nokkrir hafi fram
boðshroll.
Menn stunda fjallaferðir og
er það óvenjulegt um þetta
leyti árs. Um síðustu helgi fóru
sex menn og ein kona á þrem
jeppabifreiðum allt til Hvera-
valla og var færið all gott. Snjór
ekki mikill og harðfenni og ár
auðar. Þó var farið á snjóbrú
yfir aðra ána á þessari leið, en
á vaði á hinni. Þetta var
skemmtiferð, sem þótti hin
ánægjulegasta og einsdæmi á
þessum árstíma. Ferðafólkið
hitti fólkið á veðurathugunar-
stöðinni á Hveravöllum, mann
og konu sem eigi höfðu orðið
vör mannaferða síðan í nóvem-
ber í haust.
Athuganir hafa farið fram
viðvíkjandi nýrri hafnargerð á
Blönduósi og er mikill áhugi í
héraði um framkvæmd hennar.
En um þessa framkvæmd velt-
ur á skilningi þeirra manna,
sem peningamálum ráða. Ó. S.
Frá Akureyrarflugvelli. Nýja flugskýlið til hægri.
(Ljósm.: E. D.)
YFiR 36 ÞÚSUND FARÞEGAR FÖRU UM
AKUREYRARFLUGVOLL
Aukning í farþega, vöru- og póstflutningi
A SÍÐASTA ARI fóru 36.698
farþegar um Akureyrarflugvöll
á vegum Flugfélas íslands og er
það 10.9% aukning frá fyrra
ári. Vöruflutningar jukust lun
58.8% og voru 545 tonn. Póst-
flutningur var nálega 104 tonn
og jókst um 111.8%.
í vetur starfa 5 menn við flug
afgreiðslu og umferðarstjórn á
Akureyrarflugvelli en í sumar
voru starfsmenn 9 talsins.
Á síðasta sumri voru malbik-
aðir 500 lengdarmetrar á flug-
brautinni og verður því verki
haldið áfram næsta sumar, von
andi af miklum krafti.
Helmingur mikils flugskýlis
var reistur við flugvöllinn og
er bygging þessi hin þarfasta.
Flugtök og lendingar á Akur
eyrarflugvelli á síðasta ári voru
sex þúsund.
Sextán flugdagar fellu niður á
árinu vegna óhagstæðs veðurs.
Gler var sett í flugtuminn, er
lengi hafði verið beðið eftir. Q
INNBROT OG STÓRÞJÓFNAÐUR
Á SEYÐISFIRÐIER í RANNSÓKN
Krefjast virkjmiar Lagarfoss
fyrii* Austurland
Egilsstöðum 25. janúar. í gær,
24. janúar, var haldinn fundur
Sambands sveitarfélaga T Aust-
urlandskjördæmi, á Egilsstöð-
um, og var fundarefnið: Raf-
orkumál Austurlands. Fundur-
inn var boðaður á þessum
óvenjulega tíma vegna þess að
Mælskunámskeið FUF
NÆSTI fundur námskeiðsins
verður n. k. þriðjudag kl. 8.30
e. h. að Ilótel KEA. Þá verður
rætt um málefnið, „ER OF
MIKLU FÉ VARIÐ TIL
IÞRÓTTAMÁLA“.
Framsögumenn verða Svavar
Ottesen og Gunnar Berg Gunn-
arsson.
Blaðið livetur ungt fólk að
fjölmenna á þetta námskeið og
þjálfa sig í hverskonar félags-
störfum. □
menn grunar, að ákvarðanir
verði teknar mjög fljótlega í
raforkumálum Austur og Norð
urlands.
Þrátt fyrir erfiðar samgöng-
ur mættu 37 fulltrúar frá 25
hreppum og kaupstöðum. En
fjarlægustu hrepparnir, norðan
Smjörvatnsheiðar og sunnan
Breiðdalsheiðar gátu ekki sent
fulltrúa.
Allir þingmenn kjördæmisins
voru mættir, og frá Rafmagns-
veitum ríkisins þeir Valgarð
Thoroddsen og Jakob Gíslason.
Hins vegar mætti Ingólfur Jóns
son raforkumálaráðherra ekki,
en honum var sérstaklega boð-
ið á fundinn. Ber hann við em-
bættisönnum. Fundarstjóri var
formaður stjórnar sveitai-félag-
anna, Sveinn Jónsson bóndi á
Egilsstöðum. Fundurinn stóð
lengi dags og voru umræður
miklar. Fundarritai'i var Hrólf-
ur Ingólfsson bæjarstjóri á
Seyðisfirði.
í fundarlok var eftii'fai’andi
samþykkt samhljóða:
„Fundur Sambands sveitar-
félaga í Austurlandskjöx'dæmi
haldinn á Egilsstöðum 24. jan.
1967 telur að brýn þöx'f sé orð-
in á, að rafoi'kumál Austurlands
verði leyst með nýrri vatns-
aflsstöð á Austurlandi. Fund-
urinn bendir á, að raforkunotk
un á Austui-landi hefur aukizt
mjög mikið á síðustu árum og
hlutfallslega meira en annars-
staðar á landinu. Allar líkur
benda til þess, að áfram muni
raforkunotkun á Austurlandi
fara hratt vaxandi. Enda er nú
svo komið, að þýðingarmesti
fiskiðnaður landsins hefur mið-
stöðvar sínar hér eystra.
Fundurinn telur, að þar sem
fyrir liggur, að hægt er að gera
hagstæða rafoi-kuvii'kjun við
(Framhald á blaðsíðu 5).
SÍÐASTLIÐNA þi'iðjudagsnótt
var framið innbrot á Seyðis-
firði. Brotizt var inn í skrifstofu
Síldarverksmiðju ríkisins, skor
ið gat á peningaskáp og þar stol
ið peningum og öðrum verð-
mætum, er námu 115 þús. ki\
Njöi'ður Snæhólm í'annsókn-
arlögreglumaður frá Reykjavík
hefur í-annsakað málið en fór til
Reykjavíkur í gær.
Peningaskápui-inn var skor-
inn upp með logsuðutækjum og
bar handbragðið vott um kunn-
áttu í meðferð þeirra tækja.
Svo stóð á, að í peningaskápn-
um voru venju fremur miklir
fjái-munir þennan dag, svo sem
launaumslög starfsmanna.
í viðtali við Erlend Bjöms-
son bæjarfógeta á Seyðisfirði í
gær, sagði hann, að málsrann-
sókn væri ekki lokið. Yfirheyrð
ir hefðu verið um 40 manns og
yi'ðu e. t. v. fleh-i. Ennþá væri
ekki svo sterkur grunur fallinn
á neinn sérstakan, sem réttlætti
sérstakar aðgerðir í málinu. Q
Ný snyrtislofa opnuð á Akureyri
NÝ SNYRTISTOFA hefur ver-
ið opnuð á Akureyri í Hafnar-
stræti 100. Snyrtiséi'fi'æðingur
er Anna Lilja Gísladóttir og
hái-greiðslukona er Þórunn Páls
dóttir. Stofan er tvískipt. í hár-
greiðsludeildinni eru fjórir stól
ar og fljótvirkar hái'þuri’kur af
nýjustu gei'ð. f snyi'tideildinni
eru tæki til andlitsböðunar og
húðhreinsunar, sem fram-
kvæmd er með gufu og geislum.
Ennfremur er hægt að fá þar
andlitsnudd og megrunai'nudd,
handsnyrtingu og samkvæmis-
snyrtingu.
Leiðbeiningar um val og notk
un snyrtivara ei'u einni veittar,
og snyrtivörur seldar. Af-
greiðsla á að geta gengið fljótt.
Ollum útbúnaði er haganlega
fyrir komið. Vörusalan rekur
hið nýja fyrirtæki. Q
SETTUR
BÆJARSTJÓRI
ÁKVEÐIÐ mun vera, að Val-
garður Baldvinsson verði settur
bæjarstjóri á Akureyri á thna-
bilinu frá 1. febrúar og þar til
Bjarni Einarsson kemur hingað
norður og tekur við bæjar-
stjórastarfi. Gert er ráð fyrir,
að það verði í aprílbyrjun. □