Dagur - 15.02.1967, Side 8
8
Fremsta röð: Fulltrúar sem komu til að stofna félagið. Miðröð: Nýkosin stjórn (gjaldkerann vantar á
myndina). Aftasta röð: Framkvæmdanefndin. (Ljósm.: N. H.)
Félag ísienzkra ungtemplara stofnað á Akureyri
SMÁTT OG STÓRT
UM SÍÐ.USTU HELGI komu
góðir gestir frá Reykjavík og
Siglufirði til þess að undirbúa
félagsstofnun ungs bindindis-
fólks á Akureyri. Voru það þrír
félagar úr Ungtemplarafélaginu
Hrönn í Reykjavík og Júlíus
Júlíusson frá Ungtemplarafé-
laginu Hvönn á Siglufirði.
Þessir gestir, ásamt heima-
mönnum kynntu stefnu og
markmið hins nýja félags í Al-
þýðuhúsinu á laugardaginn.
Kynningunni stjórnaði Júlíus
Júlíusson, Hildur Torfadóttir,
Aðalheiður Jónsdóttir og Torfi
Ágústsson. Jónas Ragnarsson
undirbjó kynninguna. Á eftir
voru sýndar skuggamyndir af
starfi félaga Hranna og Hvanna.
Félag íslenzkra Ungtemplara
var svo stofnað í Landsbanka-
salnum næsta dag með 32 stofn
ÞAÐ bar við á Dalvík um helg-
ina að jeppabíl, sem þar stóð
ólæstur, var stolið og ekið til
Akureyrar. Bílþjófurinn, sem
grunaður er um ölvun, náðist á
heimleið nálægt Hrísum. Bíll-
inn var óskemmdur.
Nokkrir árekstrar hafa orðið
síðustu daga á götum bæjarins,
nokkrir ökumenn teknir fyrir
brot á umferðarlögum, einkum
Hlýr borri
Blönduósi 14. febrúar. Hið hlýja
þorraveður hefur gert menn
vonbetri en menn voru fyrr í
vetur, þegar harðfenni lá yfir
landinu og jarðlaust var um
meginhluta héraðsins. En þótt
hér sé snjólaust er oft skafrenn
ingur og ófærð á Holtavörðu-
heiði, en þar mun vera vel fært
í dag.
Víðidalsá, sem var góð veiðiá
í fyrrasumar miðað við aðrar
laxveiðiár hér í grennd, hefur
nú verið leigð og er leigan
hærri en í fyrra. Laxá á Ásum
hefur nú verið boðin út en óvíst
er með Blöndu og Svartá. Ó. S.
endum. Stjórn þess skipa: Hall-
dór Jónsson form., Pálmi Matt-
híasson varaform., Halldór
Matthíasson gjaldkeri, Heið-
björt Antonsdóttir ritari, Gunn
ar Lórenzson fræðslustjóri og
Grímsey 13. febrúar. Á föstu-
daginn var haugasjór við Gríms
ey en næri-i logn. Á laugardags
nóttina hvessti af suðvestri og
gerði eitt mesta rok á laugar-
daginn, sem orðið hefur hér í
Grímsey. Mældust 16 vindstig
og geta menn af því séð að
ýmsu var hætta búin, ekki sízt
þeim fjórum trillubátum, sem
lágu hér_á legunni. Trillubátur
Valdimars Traustasonar, 3—4
glannalegan akstur. Vörubíll
sem stóð bak við afgreiðslu
Flóru var stórskemmdur með
grjótkasti. Báðar framrúður bíls
ins voru brotnar svo og hliðar-
rúða og ljósakúplar. Ennfremur
var framið skemmdaverk í bíl
er stóð bak við Bókaverzlunina
Huld. Þá voru margar rúður
brotnar í nýbyggingu Dúka-
verksmiðj unnar.
Snemma á sunnudagsmorgun
varð sprenging í brennara I mið
stöðvarkatli í húsi einu í
Kringlumýri. Skemmdir urðu
ekki teljandi á húsinu. Q
íslenzkir fálkar
FYRRUM voru íslenzkir fálkar
mjög eftirsóttir erlendis, enda
verðmæt útflutningsvara. Fálk-
amir voru notaðir til fugla-
veiða, en slíkt var mikið höfð-
ingjasport og góðir veiðifálkar
í mjög háu verði. í gömlum út-
flutningsskýrslum má sjá ár-
legan útflutning þessara fugla
og í sögum segir frá þeim í sam
skiptum æðstu manna.
Fálkar eru al-friðaðir hér á
formaður framkvæmdanefndar
er Hörður Hafsteinsson.
Hið nýstofnaða félag er ný
grein á meiði íslenzkra bindind
issamtaka. Dagur árnar því
allra heilla. Q
tonn að stærð, rak á land og var
honum þegar bjargað undan
sjó. Hann er liðaður og brotinn
og sennilega ónýtur. Hina bát-
ana sakaði ekki. —
í dag er sólskin og blíðviðri
og bjart að sjá til landsins. S. S.
TRILLUNA RAK UPP
Hrísey 14. febrúar. í vestanrok-
inu fyrir helgina slitnaði trilla
Sigurjóns Kristinssonar upp og
rak upp í Lambhagafjöru og
brotnaði í spón.
Sjósókn er lítil í Hrísey um
þessar mundir. Aðeins einn bát
ur er á sjó og er það Auðunn,
sem rær með net en afli er mjög
lítill. Þ. V.
O • ' C r r rl*
ðjor ior í velma
Húsavík 14. febrúar. Á fimmtu-
daginn var slitnaði trillubátur
Jóns A. Jónssonar upp og rak á
land. Sjór fór í vélina og bát-
urinn skemmdist lítilsháttar.
Afli hefur verið sæmilegur
þegar á sjó gefur, en ógæftir
hafa komið í veg fyrir stöðuga
sjósókn. Þ. J.
landi, en öðru hverju hafa
menn orðið varir áhuga er-
lendra manna á því að veiða þá
og koma þeim úr landi.
íslenzkir fálkar eru flugfimir,
grimmir og tignarlegir fuglar,
sem öllum verður starsýnt á og
eru af þeim margar sögur.
Olafsfirðingar hafa að undan
förnu kynnzt fálka einum, senni
lega ungum, er gerði sig heima
kominn þar í kaupstaðnum og
VARANLEGT SLITLAG
Oft er talað um „hið varanlega
slitlag“ gatna og vega og er þá
átt við drauminn um steypta
vegi eða malbikaða. En hið var
anlega slitlag virðist naumast
til, ef marka má umsagnir um
malbikaða vegi í höfuðborg
landsins nú í vetur. Keðjurnar,
nagladekkin og saltausturinn á
göturnar vinna sitt verk og
spæna og sprengja upp hið var-
anlega slitlag. Rætt hefur verið
um takmörkun á notkun keðj-
anna til að hlífa vegunum, en
það þykir naumast fært af ör-
yggisástæðum.
EINS OG FJALLVEGIR
Hið hörmulega ástand malar-
og moldarvega okkar í bæjum
og byggðum minnir á tröllauk-
in verkefni í vegagerðinni. Þær
þúsundir fólksbifreiða, sem hér
eru í yfirgnæfandi meirihluta á
vegunum, eru smíðaðar fyrir
steinsteypta vegi og hrynja í
sundur á vegunum okkar. Mal-
argötur bæjanna, t. d. hér á
Akureyri eru oft ógreiðfærar
þótt snjólausar séu og svipaðar
fjallvegum.
KIRKJUSIÐIR
Síðan Andrés Kristjánsson rit-
stjóri flutti útvarpserindi sitt 2-
janúar sl. og gerði kirkjusiði að
umtalsefni, liefur málið verið á
dagskrá. Vígslubiskupinn syðra,
svo og lierra biskupinn yfir ís-
landi og guðfræðiprófessor við
Háskóla Islands hafa kvatt sér
liljóðs í blöðum og útvarpi og
tveir þessara manna boðið rit-
stjóranum til einvígis í útvarpi
o. s. frv. Með því að ætla má,
að þessar umræður hafi til þess
orðið að vekja menn til um-
hugsunar um kirkjumál og trú-
mál í landinu, ættu þær að vera
hinar þörfustu.
KIRKJAN LEITAR
Mörgum er það áhyggjuefni
live kirkjusókn er lítil og að
kirkjan virðist hafa færzt í
skuggann á síðari ármn en sviðs
ljósin varpað því meiri birtu á
ýmislegt annað í þjóðlífinu,
bæði gott og miður gott. Kirkj-
unnar menn hafa á sama tíma
leitast við að finna kirkju sinni
greiðari leið að hjörtum fólks-
ins og færa störf sín á víðari
vettvang, svo sem æskulýðs-
starfsemin ber með sér. Sumir
kirkjunnar menn hafa leitað til
löngu aflagðra kirkjusiða og
gert tilraunir með þá við guðs-
var gæfur. Hann hremmdi dúf-
ur á götum bæjarins, en var
loks lokkaður í dúfnabúr og
fangaður þar. Finnur Guð-
mundsson fuglafræðingur ósk-
aði að fá hann sendan suður og
var það gert. Var hann meðal
þeirra er tóku sér far frá Akur-
eyri til Reykjavíkur á mánu-
daginn. Gæzlumaður hans var
Sigmundur Jónsson. En fálkinn
þoldi ekki flugferðina. Q
þjónustur. Aðrir hallast að því,
að kirkjan verði að aðlaga sig
hverjum tíma og þess muni
kirkjunni meiri þörf nú. Um
þetta og fleira er nú rætt.
FÓTFESTAN
Á breytingatímum, sem nú eru
og aldrei fyrr liafa verið eins
miklir hér á landi, virðist nokk-
urt los á uppeldismálum. Ungt
fólk virðist vanta þá fótfestu í
lífinu, sem liinir eldri öðluðust
í heimi fárra tækifæra og harðr
ar lífsbaráttu. Trú og siðgæði
liafa ekki aukizt í hlutfalli við
tækifærin til góðs og ills. Fót-
festuna hefur skort og hana
verðum við að finna ungu fólki
til að létta því erfiða göngu.
Boðskapur Krists er traustast-
ur vegvísir til fagurs mannlífs
og í honum finna menn þá fót-
festu í lífinu, sem er öðru traust
ara og fullkomnara. Megi áður-
nefndar umræður auka mönn-
um skilning á þessu, og þá er
vel.
AFSKIPANIR GANGA
GREIÐLEGA
Raufarhöfn 14. febrúar. Afskip-
anir síldarafurða ganga nú bet-
ur en oftast áður. Haföminn
kom hér nýlega og tók 1700
tonn af lýsi en var búinn að
koma áður og tók þá fullfermi.
Á síðasta hálfum mánuði hafa
þrjú flutningaskip tekið hér
síldarmjöl og eitt skip tók salt-
síld. Efth- eru um 1000 tonn af
mjöli og önnur 1000 tonn af lýsi.
Lýsið tekur Haförninn í næstu
ferð.
Hér hefur þorrinn verið góð-
ur, og má kalla einmuna tíð.
Lítið hefur verið róið, einkum
vegna ógæfta. H. H.
Vakniugasamkomur
á Akureyri
ÞEKKTUR vakningaprédikari
Hjálpræðishersins, Brigader
Olga Briistad frá Noregi, talar
í sal Hjálpræðishersins í kvöld
og næstu kvöld. Sérstök fjöl-\
skyldusamkoma verður haldin
á sunnudaginn kemur kl. 16 og
barnasamkomur eru á hverju
kvöldi kl. 5. Q
AFMÆLISRIT L.A.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
hefur í undirbúningi vandað
afmælisrit í tilefni af 50 ára
afmæli sínu. Haraldur Sigurðs-
son bankagjaldkeri annast út-
gafu ritsins og hefur hann beð-
ið blaðið að koma þeirri ósk á
framfæri við þá, sem kynnu að
eiga gamlar ljósmyndir frá starf
semi félagsins, leikskrár og önn
ur gögn, að hafa samband við
sig sem fyrst, eða framkvæmda
stjóra Leikfélagsins, Jóhann
Ögmundsson.
Eflaust munu þeir, sem slíka
hluti hafa undir höndum, góð-
fuslega lána þá til þess að af-
mælisritið megi verða svo vand
að, sem kostur er. Q
Frá lögreglunni
SEXTÁN VINDSTIG í GRÍMSEY
íyrrum taldir konungsgersemar