Dagur - 15.03.1967, Qupperneq 1
HOTEL Herbargis-
pantanir.
Ferða-
skrifstofan
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
Ferðaskrifsfofan
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
Sjónleikurinn „Á útleið”
LEIKFÉLAG AKUREYRAR, sjónleikur þessi er sviðsettur á
sem að undanfömu hefur æft
sjónleikinn Á útleið eftir Sutton
Vane í þýðingu Jakobs J.
Smára, ætlar að frumsýna leik-
inn í Samkomuhúsi bæjarins
n.k. laugardag. Ágúst Kvaran
er leikstjóri, en leikendur eru
9 talsins.
Þetta er í þriðja sinn sem
STÓRHRÍD Á
I GÆR var óhemju snjókoma á
Norðurlandi austanverðu og
víða hvasst. Vegir voru að lok-
ast, enda víða kominn mikill
snjór. I
Akureyri, fyrst 1926, þá 1935 og
nú í þiúðja sinn, á fimmtugasta
starfsári L. A. Á útleið er þriðja
verkefni Leikfélags Akureyrar
á yfirstandandi leikári, en
fjói-ða verkefnið er í undirbún-
ingi og verður það sýnt á af-
mæli félagsins síðar á þessum
vetri. O
NORÐURLANDI
Á Akureyri var stöðug hríð
og hvessti af norðri er á daginn
leið. Á Dalvík var stórhríð og
allir vegir að teppast. í Hrísey
mokaði niður snjó í logni fram-
undir kl. 6 en þá tók að hvessá.
Hafnarstræti á Akureyri reyndist of þröngt fyrir alla þessa bíla, eða bílamir örlítið breiðari en
bílstjóramir álitu. (Ljósm.: F. Vestmann)
Fyrsta loðnan veidd
Á LAUGARDAGINN veiddist
fyrsta loðnan hér norðanlands.
Þá fengu Húsvíkingar 60—70
tunnur sunnan við hafnar-
bryggjuna og.er hún notuð til
beitu svo sem unnt er. En und-
anfarið hefur allur þorskur sem
veiðzt hefur hér fyrir norðan,
verið úttroðinn af loðnu og kom
hún að þessu sinni óvenju
snemma. En ógæftir hafa mjög
hamlað sjósókn.
Á Þórshöfn var grenjandi
hríð í allan gærdag. Þar er kom
inn mjög mikill snjór. Flugvöll-
urinn er þó snjólaus, en vegur-
inn þangað öllum farartækjum
öfær nema snjóbil og snjósleða.
Á Húsavík var afar mikil snjó-
koma og norðan stormur. Þar
voru allir vegir tepptir.
Á Sauðárkróki var gott veður
í gær og Sauðárkróksflugvöll-
ur opinn, sá eini á landinu utan
Reykjavíkur. □
FLOKKSÞING FRAMSÓKNARMANNA HAFIÐ
ÓVÍST UM ÞÁTTTÖKU VEGNA ÓVEÐURS UM ALLT LANDIÐ
FLOKKSÞING Framsóknar-
manna, sem er hið 14. í röðinni,
átti að hefjast í Súlnasalnum í
Bændahöllinni í gær kl. 8 síð-
degis. 1 upphafi þingsins mun
Eysteinn Jónsson, formaður
Framsóknarflokksins, hafa flutt
yfirlitsræðu um stjórnmálin.
Helgi Bergs, ritari flokksins,
Kennsla og próf við Vélskóla íslands á Akureyri
Fjórtán nemendur luku námi fyrsta stigs
LOKIÐ er á Akureyi-i nám-
skeiði fyrsta stigs við Vélskóla
íslands, því fyrsta sinnar teg-
undar utan Reykjavíkur. Sam-
kvæmt lögum frá Alþingi í
fyrra á Vélskóli íslands að sjá
um alla vélstjóramenntun á ís-
landi, bæði verklega og bók-
lega. Þetta er í fyrsta sinn í
52ja ára sögu Vélskólans, að
hann hefur rekið starfsemi utan
Reykjavíkur og afhent skírteini
utan síns heimabæjar. En áður
hafði Fiskifélag íslands vél-
stjóranámskeið m. a. hér á Ak-
ureyri.
Á laugardaginn fóru fram
formleg skólaslit þessa fyrsta
stigsnámskeiðs á Hótel KEA.
Björn Kristinsson forstöðumað
ur námskeiðsins ávarpaði nem-
endur og gesti en síðan flutti
(Framhald á blaðsíðu 7)
og Sigurjón Guðmundsson,
gjaldkeri, áttu einnig að flytja
skýrslur sínar unt flokksstarfið.
Nefndarkosningar áttu að hefj-
ast að ræðum þessum loknum.
Flokksþingið átti að hefjast
fyrr þennan dag en var frestað
um 6 klukkutíma vegna þess
hve rnargir voru ókomnir til
þings. En flestar landleiðir voru
lokaðar eða því sent næst og
einnig var röskun á áætlunar-
flugi vegna óveðurs og snjóa á
flugvöllunt norðanlands og
sunnan.
Þingstörf fara fram nteð svip
uðum hætti og fj'rri flokksþing
in en á laugardaginn verður
sérstök hátíðarsamkoma í Há-
skólabíói í tilefni af 50 ára af-
mæli Framsóknarflokksins. Dag
skráin þar verður mjög fjöl-
breytt.
Eftir hádegi á sunnudag hefst
aðalfundur miðstjómar flokks-
ins í Átthagasalnum í Hótel
Sögu, og kl. 7 sama dag hefst
afmælis- og lokahóf flokksins í
Súlnasalnunt í Hótel Sögu.
Fjöldi manns víðsvegar af
landinu mun sækja 14. flokks-
þing Frantsóknarmanna, taka
þátt í störfum þess og marka
stefnu flokksins, ennfremur til
að taka þátt í hátíðarhöldunum
í tilefni af fimmtugsafmæli
flokksins.
Margir fulltrúanna, sem sitja
munu flokksþingið, voru komn
ir til höfuðborgarinnar í gær,
en óvíst um ferðir annarra
vegna ltinna skyndilegu sam-
göngutruflana. □
FLESTIR YEGIR
AÐ LOKAST
Nemendur og kcnnarar á námskeiði Vélskóla fsiands á Akureyri. Sitjandi frá vinstri: Sigurður Ó. Jónsson, Ríkarður Kristjánsson, Hall-
dór Blöndal, Kristján Pálsson, Gunnar Bjarnason, Bjöm Kristinsson, Gunnar Ágústsson og Björn Þorkelsson. Nemendumir eru í aftari
röð, frá vinstri: Þorsteinn Friðriksson, Árskógsströnd, Hilmar Sigurðsson, Árskógsströnd, Ingólfur Guðmundsson, Ak., Bjami Thorar-
ensen, Ak., Ingvar Kristjánsson, Stöðvarfirði, Hermann Haraldsson, Fljótum, Stefán Stefánsson, Ak., Sveinn Pótursson, Vopnafirði,
Heimir Tómasson, Ak., Bjarni Bjarnason, Ak. og Sigurður Sigurpálsson, ÁrskógsströnJ. (Ljósm.: E. D.)
VEGAGERÐIN hefur í vetur
oftast hjálpað bifreiðum á leið-
inni milli Akureyrar og Reykja
víkur tvo daga í viku, á þriðju-
dögum og föstudögum. í gær
féll þessi aðstoð niður og var
ekki reynt að opna Holtavörðu
heiði eða Oxnadalsheiði, enda
mikil snjókoma, víða renningur
og stórhríðarspá.
Vegir við Eyjafjörð voru í
gær færir stórum bílum en
mjög blindað og útlit fyrir að
allir vegir lokuðust. í Suður-
Þingeyjarsýslu voru allir vegir
taldir ófærir í gær. Q
Á Akureyri voru vegir í út-
hverfunum að verða þungfærir,
jafnvel ófærir og öðru hverju
svo mikið hríðarkóf, að illkeyr-
andi var. Nokkrir smáárekstrar
urðu en þó ekki venju fremur,
enda færri bílar í gangi en í
heiðarlegu veðri og færi. Q