Dagur - 29.03.1967, Side 7
7
ELDRI-DANSA
KLÚBBURINN
Dansað verður í Alþýðn-
húsinu laugard. 1. apríl.
Hefst kl. 9 e. h.
Húsið opnað fyrir miða-
sölu ikl. 8 sania kvöld.
LAXAR leika.
Stjórnin.
\Tel með farinn
PEDEGREE barnavagn
til sölu.
Uppl. í Norðurgötu 40,
niðri.
BÆNDUR!
Til sölu er lítið notaður
„Lundell“ sláttutætari.
Verð aðeins kr. 6000.00.
Upplýsingar hjá
Gunnari Jónassyni,
Rifkelsstöðum, og í
Véladeild K.E.A.
PÍANÓ TIL SÖLU,
nýuppgert.
Tækifærisverð.
Uppl. í síma 1-26-98.
Auglýsingasími Dags
er 1-11-67
AÐALFUNDUR
BÚNAÐARSAMBANDS EYJAFJARÐAR verður að
Hótel KEA fimmtudaginn 6. og föstudaginn 7. apríl.
Fundurinn hefst kl. 10 fyrri daginn.
STJÓRNIN.
BLAÐBURÐUR
Tímann vantar krakka til að bera blaðið út í efri
hluta GJerárhverfis. Upplýsingar í síma 1-14-43.
Sala á VIKUNNI fylgir.
NÝKOMIÐ:
HERRAINNISLOPPAR
frotté, mjög fallegir.
Verð aðeins kr. 585.00.
HERRADEILÐ
Systir mín og mágkona,
KRISTBJÖRG JÓNATANSDÓTTIR,
fyrrverandi kennslukona,
sem andaðist 22. þ. m. verður jarðsett fimmtudaginn
30. marz kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeir sem vildu minn-
ast hennar eru beðnir að láta Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri njóta þess.
Rósa Jónatansdóttir, Þór O. Björnsson.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ÞÓRMUNDA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skarðshlíð 14,
verður jarðsett laugardaginn 1. apríl kl. 13.30 frá Ak-
ureyrarkirkju.
Valdimar Jónasson.
Sverrir Valdimarsson, Anna Hjaltadóttir.
Kristín Valdimarsdóttir, Einir Þorleifsson.
Birgir Valdimarsson, Kolbrún Theódórsdóttir
og barnabörn,
- Saurbæjarhreppur
(Framhald af blaðsíðu 5)
ar í Hrísabæ, en þar dó séra
Jón. Hvað sem segja má um
sanngildi sögu þessarar, er það
víst að á búskaparárum Gunn-
ars Sigfússonar á Hrísum,
kringum 1940, var þar til haus-
kúpa af manni, vistuð milli þils
og veggjar. En síðar nokkru, er
leit var gerð að hauskúpunni
fannst hún hvergi, hvað sem
valdið hefir. Nú býr á Hrísum
ungur bóndi Sveinbjörn Hall-
dórsson. — Æsustaðir er syðsti
bærinn í Möðruvallasókn. Þar
hafa verið gerðar stórfelldar
húsa- og jarðabætur nokkur
síðustu árin, og rekinn stórbú-
skapur. Ábúendur eru Stein-
grímur Níelsson og kona hans
Sigríður Pálmadóttir frá
Gnúpufelli. H. Þ. (Framhald)
- ÍSHRAFL
(Framhald af blaðsíðu 1)
seinlegt að opna vegina. f ná-
grenni Akureyrar tepptust allir
vegir. Engin mjólk barst land-
leiðina án hjálpar snjóruðnings
tækja. Neyzlumjólk skortir þó
ekki í bænum.
Stórhríð skall á skíðafólk á
skíðalandsmótinu á Siglufirði
og jafnvel í Hlíðarfjalli lenti
fólk í nokkrum harðræðum.
Flugferðir hafa verið stopulli
undanfarin ótíðarkafla en oft-
ast áður. Víða er haglaust orðið
með öllu fyrir hross, þar sem
sjaldan tekur þó fyrir beit. —
Flutningaerfiðleikarnir koma
einna harðast niður á bændum,
sem mjólkurframleiðslu hafa og
miða búskap sinn við daglegar
ferðir á markaðsstað. Q
Loforðin sem brugðust
(Framhald af blaðsíðu 4).
— Hefur skattheimtuglíma
þessarar ríkisstjórnar við
íbúa landsins orðið sann-
kölluð fjölbragðaglíma af
stjórnarinnar hendi. Mikið
á annan tug skatta hafa ver-
ið innleiddir.
En aðalstefnuyfirlýsing
ríkisstjórnarinnar snerti
sjálft atvinnulífið og kjama
efnahagslífsins og í því sam-
bandi var sagt m. a.: „Það
hefur verið augljóst ein-
kenni allra þeirra efnahags-
ráðstafana sem gripið hefur
verið til árlega undanfarið,
að þær hafa verið gerðar til
bráðabirgða, enda ekki stað-
izt nema stuttan tíma í
senn“.
Síðar segir svo:
„Af þessum sökum er það
megin tilgangur þeirrar
stefnubreytingar sem ríkis-
stjórnin leggur til, að fram-
leiðslustörfum og viðskipta-
lífi landsmanna sé skapaður
traustari, varanlegri og heil-
brigðari grundvöllur en at-
vinnuvegirnir hafa . átt við
að búa undanfarin ár“.
Og í yfirlýsingunni er svo
enn til viðbótar lögð áherzla
á, að ríkisstjórnm teldi það
liöfuðverkefni sitt að koma
atvinnulífi þjóðarinnar á
traustan og heilbrigðan
grundvöll.
O RÚN 59673297 - Frl.-. Atkv.
I.O.O.F. 1483318 U — I
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl.. 10.30
fyrir hádegi. (Ferming). —
Sálmar: 648 — 590 — 594 —
648 — 591. B. S.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 2. apríl: Al-
menn samkoma kl. 20.30.
Benedikt Arnkelsson cand.
theol. talar. Allir velkomnir.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Oll böm velkomin.
BRÚÐHJÓN. Laugardaginn 25.
marz voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju
brúðhjónin ungfrú Guð-
munda Eirný Ingólfsdóttir og
Jens Christian Reisenhus
verkamaður. Heimili þeirra
verður að Gránufélagsgötu
53, Akureyri. — Sama dag
voru gefin saman í hjóna-
band brúðhjónin ungfrú
Oddný Guðrún Friðriksdóttir
og Sverrir Viðar Pálmason
húsgagnasmíðanemi, Heimili
þeirra verður að Bjannastíg
6, Akureyri.
RAUNVERULEG þúsund ára
stjóm Guðsríkis yfir mann-
kyninu. Opinber fyrirlestur
fluttur af Kjell Geelnard fúll
trúa Varðturnsfélagsins
sunnudaginn 2. apríl kl. 16.00
að Bjargi, Hvannavöllum 10,
Akureyri. Allir velkomnir. —
Aðgangur ókeypis. — Vottar
Jehóva.
FRÁ Þingeyingafélaginu. Mun-
ið síðasta spilakvöld félagsins
að Bjargi laugardaginn 1.
apríl n.k. kl. 20.30. Skemmti-
atriði. Fjölmennið. Nefndin.
MINNINGARSPJÖLD Kven-
félagsins Hlifar verða fram-
vegis seld í Bókabúðinni
Huld og hjá Laufeyju Sig-
urðardóttur.
HNÍFSDALSSÖFNUNIN. Kr.
1000 frá S. J. Beztu þakkir.
Birgir Snæbjörnsson.
ÉFRÁ SJALFSBJÖRG.
Annað spilakvöld
verður á Bjargi föstu-
daginn 31. marz kl.
8.30 e. h. Mynda-
sýning á eftir. Nefndin.
TIL Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri. Gjöf frá Sigurlínu
Sigurgeirsdóttur, að upphæð
kr. 10.000.00, til minningar
dótturdóttur hennar Jónu
Sigurlínu Alfreðsdóttur. Með
þökkum móttekið. — G. K.
Pétursson.
- Látiaus hörkuyéður
Framhald af blaðsíðu 1)
náðu tveir heilu og höldnu til
stöðva sinna, en hinum tveim
var hjálpað, með aðstoð snjó-
bíls frá Þórshöfn.
Það bar við á laugardagsmorg
uninn í Tunguseli, að tvær kind
ur, útigengnar, stóðu við fjár-
húsdyrnar, ær með dilk sinn.
Ærin var orðin mjög mögur.
Þær mæðgur fengu skjóta og
góða aðhlynningu. Þær eru af
Langanesströnd og þótti sýnt,
að ekki máttu þær seinna til
byggða leita. Ó. H.
BRÚÐHJÓN. Þann 23. marz
voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju brúð
hjónin ungfrú Ólína Erla
Konráðsdóttir og Sveinn Egg
ertsson bakari. Heimili þeirra
er að Hafnarstræti 88, Akur-
eyri. — Þann 25. marz ung-
frú Guðrún Þóra Kjartans-
dóttir frá Pálmholti og Frið-
jón Heiðar Eyþórsson. Heim-
ili þeirra er að Brekkugötu
34, Akureyri.
BRÆÐRABRÚÐKAUP. — Á
páskadag voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrar-
kirkju ungfrú Sigríður Val-
gerður Jósteinsdóttir og Unn
ar Halldór Ottesen verka-
maður. Heimili þeirra er að
Spítalavegi 1, Akureyri. —
Og ungfrú Anna Guðríður
Rinæsted og Arnljótur Geir
Ottesen verkamaður. Heimili
þeirra er að Aðalstræti 8,
Akureyri.
I.O.G.T. St. ísafold Fjallkonan
nr. 1. Fundur í Alþýðuhúsinu
fimmtudaginn 30. marz kl.
8.30 e. h. Fundarefni: Vígsla
nýliða. Kvikmynd eftir fund.
— Æ. T.
- Lífgun úr dauðadái
(Framhald af blaðsíðu 8).
dráttarvéla o. fl. frá starfi
S.V.F.Í.
;,Brúðan“ verður til heimilis
í Laugaskóla í umsjá Óskars
Ágústssonar kennara og er ætl-
unin, að auk skólanemenda
verði öllum börnum, sem þang-
að sækja sundnámskeið kennd
lífgunaraðferðin.
Frekari hagnýting tækisins
mun ekki ákveðin að sinni, en
ástæða er til að hvetja sem
flesta að kynna sér þessa lífgun
araðferð, sem tekur fram öðr-
um áður þekktum og hefur
bjargað mörgum mannslífum.
Enginn veit fyrir, nema þau
atvik geti að höndum borið að
það velti á kunnáttu hans hvort
annar hlýtur líf eða dauða,
kannske einhver nákominn.
I. K.
AÐALFUNDUR
SKÓGRÆKTARFÉLAGS EYFIRÐINGA verður að
Hótel KEA láugárd. 8. apríl og hefst kl. 1.30 e. h.
STJÓRNIN.
AUGLÝSING
Starfræki járnsmíðaverkstæði við Óseyri 4, Akureyri
(norðan Glerár). Ánnast hvers ikonar járnsmíðavinnu,
jafnt smærri, sem stæni verk.
SVERRIR ÁRNASON, Ránargötu 16, sími 1-24-52.