Dagur - 01.04.1967, Blaðsíða 1
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
skriístoian
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
r *¥ | ■ # i r Túngötu 1.
Feroaskrifstofan sími n475
Skipuleggjum
ódýrustu
íerðirnar
til
annarra
landa.
GÓÐ I
BYRJUN
í GÆR hcimsótti II. bekkur »
Ga"nfræðaskólans á Akur-
eyri ýmsar atvinnustöðvar í >í
bænum. Eflaust hefur verið «
tekið vel á móti námsfólk-
inu og vonandi taka allir
skólar bæjarins það upp, í
eins ríkum mæli og við verð
ur komið, að kynna nemend
um sínum þær lielztu at- ;í
vinnugreinar, sem atvinna
fólks og lífskjör bæjarbúa
byggist á. Það nám er nauð-
synlegt. Og hvar er að fá «
betra ritgerðarefni að skoð- <|
un atvinnulífsins lokinni? ?!
Hluti af stóðinu í Hlíðarfjalli. Þama er fremur grunnt á jörð og hrossunum líður vel. (Ljósm.: E. D.)
IÐJA H.F, Á AKUREYRIBYGGIR10
TIMBURHÚS FYRIR KÍSILIÐJUNA
KÍSILIÐJAN óskaði tilboða í
byggingu 10 einbýlishúsa, er
reisa á í Reykjahlíðarlandi við
Mývatn, nálægt þeim íbúðar-
húsum Kísiliðjunnar, sem þar
eru fyrir. Iðja h.f. á Akureyri
hreppti verkefni þetta og hafa
samningar þar um verið undir-
skrifaðir.
íbúðarhúsin 10 verða byggð
úr timbri og öll eins. Þau verða
83 fermetrar að flatarmáli,
byggð á steyptum grunni, sem
aðrir aðilar byggja og eiga þau
að vera tilbúin fyrir 30 septem-
ber næsta haust.
Framkvæmdastjóri Iðju h.f. á
Akureyri er Ármann Þorgríms
son. Stjórnarformaður Iðju er
Hannes Arason og meðstjórn-
endur Magnús Guðmundsson
og Ármann Þorgrímsson. Bárð-
ur Daníelsson teiknaði húsin.
Húsin verða vélunnin á Akur
eyri en sett saman á byggingar
stað. Vei-kstæðið mun bæta við
sig 10—20 mönnum vegna þessa
verkefnis. Yfirverkstjóri þess-
ara húsbygginga verður Þor-
steinn Williamsson.
Hér er um að ræða vísi að
verksmiðjubyggðum húsum.
Nokkuð kemur það mönnum
spánskt fyrir sjónir, að þessi
hús skuli ekki byggð úr steini.
En stuttan spöl frá byggingar-
stað er steinasteypuverkstæði.
Sagt er, að byggingartími sé of
stuttur til að nota það bygg-
ingarefni.
BJARMIIINÁÐIST OT
Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ
náðist Bjarmi II frá Dalvík af
strandstað, nálægt Baugsstaða-
vita, en þar strandaði hann 6.
marz sl. Skipið laskaðist ekki
mikið er það strandaði, náðist
inn fyrir skerjagarðinn og hef-
ur síðan legið í sandfjöru.
Skipið komst út með eigin vélar
krafti. Tólf manna björgunar-
flokkur vann á strandstað dag
og nótt áður en skipið náðist út.
SÍÐAN um páska hafa um-
hyggjusamir borgarar og dýra-
vinir mjög oft hringt til blaðs-
ins eða komið á skrifstofur þess
til að mimia á óumhyggjusama
hrossaeigendur og bjargarvana
útigönguhross á gaddinum. Allt
er þetta í góðri meiningu gert
og vekur til almennrar umhugs
unar um, að eigendur þeirra
hrossa, sem úti ganga, þurfa að
fylgjast með þeim og hjúkra
þeim þegar þess er þörf. Og til
er, að umhirðulaus hross bæjar
búa flækist um meðal hrossa
bændanna.
Nú fyrir páskana barst sýslu-
manni Eyfirðinga munnleg
kæra um, að hross stæðu í
svelti í Hlíðarfjalli og gætu
ekki fært sig til vegna snjóa. Og
úr öðrum áttum bárust honum
einnig ábendingar af líkum
toga. Settur sýslumaður, Sigurð
ur M. Helgason, tók málið í sín-
ar hendur. Fór hann m. a. fram
á, að bændur í Glæsibæjar-
hreppi tækju hross sín úr Hlíð-
arfjalli til hjúkrunar, af framan
greinum ástæðum. En sumir
bændur þar brugðust við þess-
um fyrirmælum á þann veg, að
þeir vísuðu ákæruatriðunum á
bug og kröfðust þess, að rann-
sókn færi fram, fyrr hreyfðu
þeir ekki við hrossum sínum.
Með því að dráttur varð á
rannsókn sýslumanns, sem mun
þó hafa farið fram í gær, fór ég
á stúfana, gekk í Hlíðarfjall
ásamt tveim valinkunnum
mönnum, þeim Birni Jónssyni,
kunnum hestamanni og Árna
Magnússyni varðstjóra í lög-
regluliði Akureyrarkaupstaðar.
í leiðinni skoðuðum við 4 hross
á Dvergasteini, nýkomin úr um
ræddum hrossahópi í Hlíðar-
fjalli, en síðan skoðuðum við. 24
hross, útigengin, uppi í fjallinu.
Af þeim eru 6 utansveitar en
hin eign bænda í Glæsibæjar-
hreppi. Þar efra er nokkur skel
(Framhald á blaðsíðu 7)
Þrjár útigönguhryssur á Dvergasteini. (Ljósm.: E. D.)
Morgunblaðshöllin
við Aðalstræti í Reykja-
vík er reisulegt hús og ekkert
hefur þar verið sparað. En nú
þegar líður að kosningum eru
sumir farnir að kalla þetta
„musteri óttans“, því að óttinn
við úrslit alþingiskosninganna
setur svip á margt, sem þaðan
berst út um liöfuðborg og
landsbyggð, ýmist í Morgun-
blaðinu sjálfu eða fylgiblöðum
þess hér og þar, svo og með
erindrekum, sem komnir eru
á kreik.
Sá ótti, sem nú magnast í
musterinu, er ótti við minnk-
andi kjörfylgi Sjálfstæðis-
flokksins og ótti við Fram-
sóknarflokkinn. Margt ber til:
Viðreisnin löngu strönduð og
frelsið reynist stjórnleysi. —
Bjarni Bcnediktsson þykir
ekki sigurstranglegur foringi.
Magnús Jónsson ræður ekki
við fjármálin, varð að hækka
skatta í fyrra og neyðist nú
til að ausa tollvörum inn í
landið í trássi iðnaðinn. Jó-
liann Hafstcin stendur í stríði
við læknastéttina, ríkisútvarp
ið og almenningsálitið, — og
stjórnarmenn í útvarpsráði
orðnir að gjalti fyrir ritskoð-
un. Niðurskurður opinberra
framkvæmda og upptaka fjár
frá sveitarfélögum sætir nú
hörðum mótmælum jafnvel
hjá borgarfulltrúum Sjálfstæð
isflokksns í Reykjavík. Kjara
samningar ógerðir. Bændur
og sjómenn þungir á brún. Og
„slagari“ * skemmtistaðanna:
„Hvað á að ger við Þorvald
Garðar — þegar hann kemur
að vestan?“ Iætur ámátlega í
eyrum þeirra, sem áður liöfðu
nóg á sinni könnu.
Hér á Akureyri og í nársveit
um hvísla farandmenn að
sunnan, að Magnús sé í hættu
staddur — og bæta stundum
við: Ef Jónas frá Yztafelli
kemst að, er stjórnin fallin.
Þetta er hræddra manna á-
róður við gamla fylgismenn,
sem nú þykja lausir á svelli.
Auðvitað er Jónas í baráttu-
sæti og eðlilegt, að fylgi Fram
sóknarflokksins vaxi hér eins
og annarsstaðar. Framsóknar
(Framh. á bls. 7)
r
BERA VÖRUR Á
BAKI SÍNU
Raufarhöfn 31. marz. Snjór er
hér meiri en elztu menn muna.
Erfitt er því að komast um með
flutning. Vérða merrn að bera
varning á baki sér eða draga
hann á sleða. Engir bílar fara
um þorpið.
Opnaður var í fyrradag veg-
urinn út á gamla flugvöllinn og
komu tvær flugvélar í gær. —
(Framhald á blaðsíðu 4.)