Dagur - 01.04.1967, Blaðsíða 2

Dagur - 01.04.1967, Blaðsíða 2
r 2 3lkið hefur orðið RITSTJÓRI: INGÓLFUR SVERRISSON Ungir Framsóknarmenn lögðu fram drjúgan skerf ur þeirra um brottflutning hersins samþykktar á flokksþinginu Á HINU glæsilega flokksþingi Framsóknarflokksins, sem nú er nýlokið, voru gerðar fjöl- margar samþykktir, sem þeg- ar hafa vakið verðskuldaða athygli alþjóðar. Ungir Framsóknarmenn fagna þar mörgu, en þó öllu fremur því, að flokksþingið samþykkti sem stefnu Fram- sóknarflokksins tillögur þær í herstöðvarmálum, sem ungir Framsóknarmenn áttu frum- kvæðið að. Sýnir það eitt með fleiru, að Framsóknarflokkur inn er flokkur unga fólksins, sá flokkur þar sem sjónarmið þess eru virt og tekið tillit til þess, sem unga fólkið hefur fram að færa í þjóðmálum. Hér birtist svo orðréttur sá kafli í samþykkt 14. flokks- þings Framsóknarflokksins, sem fjallar um erlenda her- setu og fleira: „Flokksþingið telur rétt, að óbreyttum aðstæðum, að ís- lendingar séu aðilar að vam- arsamtökum vestrænna þjóða, en telur eðlilegt, að fylgzt sé rækilega með öllum breyting- um, sem verða kunna á At- lantshafsbandalaginu og tekið sé til gaumgæfilegrar athug- unar í sambandi við uppsagn- arákvæði sáttmálans, þegar þar að kemur, hvort Islending ar eigi að vera áfram í banda- laginu. Flokksþingið vill jafn- framt minna á þann fyrirvara, sem gerður var af hálfu íslend inga er þeir gerðust aðili að Atlantshafsbandalaginu, að meginefni hans var á þá lund, að á íslandi yrði ekki herlið á friðartímum, að það væri al- gerlega á valdi íslendinga sjálfra, hvenær hér væri er- lent herlið, og að Islendingar hefðu ekki eigin her og ætl- uðu ekki að setja hann á fót. Samkvæmt þessum fyrir- vara og í samræmi við fyrri yfirlýsingar vill Framsóknar- flokkurinn vinna að því, að varnarliðið hverfi úr landi í áföngum. Flokksþingið telur að stefna eigi að því, að Is- lendingar sjálfir taki við gæzlu ratsjárstöðva og nauð- synlegra vamarmannvirkja, er hið bandaríska varnarlið hverfur á brott og meðan þeirra er talin þörf. Sú breyt- ing verður að gerast með skipulegum hætti og stig af stigi.' Telur þingið tímahært, að hafnar séu viðræður um að gerð sé fjögurra ára áætl- un um brottflutning vamar- liðsins og að þjálfaðir verði íslenzkir kunnáttumenn, sem tækju við starfrækslu ratsjár- söðvanna og gæzlu nauðsyn- legra mannvirkja stig af stigi, samhliða því að bandarískum hermönnum á íslandi yrði fækkað. Þess sé vandlega gætt að leyfa ekki framkvæmdir á vegum varnarliðsins, sem tor- veldað gætu þessar breyting- ar.“ HVERNIG Á NORÐURLAND AÐIIALDA SÍNUM HLUT? | -KVISTIR- ! KOSNINGAHROLLUR í í UNGUM SJÁLFSTÆÐIS- j MÖNNUM. Ungir Sjálfstæðismenn á Ak- ureyri rjúka heldur betur upp í nýlegu tölublaði íslendings og eru þar engir aukvisar á ferð, I sjálfur ritstjórinn og Halldór Blöndal upprisinn. Hyggjast þeir nú setja ofan í við unga Framsóknarmenn á Akureyri. Þetta eru sömu mennirnir, sem börðust sem harðast sl. vor fyrir „glæsilegum sigri Sjálfstæðis- flokksins“ í bæjarstjórnarkosn- ingunum á Akureyri, en þá tókst þeim að fá einum bæjar- fulltrúa færra, en við síðustu kosningar og þá sennilega vegna þess að „obbinn af unga fólkinu“ á Akureyri kaus þá! i I HUGHREYSTA SJÁLFA SIG. Það er greinilegt af skrif- um ungra Sjálfstæðismanna, að þeir eru einungis að reyna að liughreysta sjálfa sig, og telja sér trú um að Vörður sé „öflug asta stjórnmálafélag unga fólks ins á Akureyri14. Eða hvernig vita ungir Sjálfstæðismenn hve margir meðlimir eru í samtök- um unga fólksins hjá öðrum stjórnmálaflokkum í bænum? Ekki benda síðustu bæjarstjórn arkosningar til að ungir Sjálf- stæðismenn séu öflugir hér í bæ, síður en svo. Allar stað- reyndir benda hins vegar í þá átt, að unga fólkið flykki sér undir merki Framsóknarflokks ins og kemur það raunar bezt fram í því hve ungu fólki er ætlaður ríflegur hlutur á fram- boðslista flokksins hér í kjör- dæminu við Alþingiskosning- amar í vor. Það er því sízt undr unarefni, hve sá framhoðslisti hefur dregið að sér athygli ungu kynslóðarinnar og þá um leið skyggt á aðrá. KOSNINGAALDUR FÆRÐUR NIÐUR í 20 ÁR. Nýlega var lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um að lækka kosningaaldurinn úr 21 ári í 20 ár. Til að frumvarp þetta geti orðið að lögum, þarf að sam- þykkja það á tveim þingum í röð með kosningum á milli. Er því að vænta, að við þarnæstu kosningar fái fólk, sem náð hef ur tvítugsaldri að kjósa full- trúa á löggjafarsamkundn lands ins. Ungir Framsóknarmenn fagna þessum áfanga, sem ger- ir ungu fólki kleift að láta æ meir til sín taka í þjóðmálun- um. Jafnframt vilja þeir livetja allt ungt fólk til að kynna sér sem bezt uppbyggingu og starfs hætti þjóðfélagsins og viða að sér fróðleik, sem að gagni má koma við að taka þá stóru ákvörðun hverjum fela eigi að stjórna landinu. Ungir Fram- sóknarmenn treysta íslenzkri æsku til að færa sér aukin rétt- indi vel i nyt, og eru þess full- vissir, að með auknum áhrifum unga fólksins mun ferskur straumur leika um íslenzk stjórnmál. F.U.F. FÉLAGAR! MUNIÐ fundinn að Hótel KEA n.k. mánudag kl. 20.30. Ingvar Gíslason alþingismaður segir fréttir af flokksþinginu. □ f MJÖG athyglisverðu erindi Áskels Einarssonar fyrrverandi bæjarstjóra á Húsavík, er liann flutti á kvöldverðarfundi hjá FUF nýlega, fórust honum m. a. orð á þessa leið um byggða- jafnvægið: „Ég hefi kosið mér þetta um- ræðuefni með ykkur, ungir Framsóknarmenn, sérstaklega vegna þess, að það er nauðsyn- legt fyrir ykkur, sem eigið að erfa þetta land, að hugleiða hvert þið viljið leiða hesta ykk- ar fram í baráttunni. Menn verða að gera sér ljóst, að byggðaröskunin er það geig- vænleg, að 8 af hverjum 10 börnum, er fæðast í landinu, rnunu velja sér búsetu við Faxaflóa, ef fylgir sömu þróun sem hingað til. Það er ekki nóg með það að Faxaflóabyggðirn- ar taki til sín alla fólksfjölgun- ina í landinu, lieldur meir. — Tilflutningur fólks til þéttbýlis- ins hefur svarað til að meðal fjölskylda flýtti, á hverjum virkum degi burt úr strjálbýl- inu. f dag ættu að vera búsettir um 70 þúsund manns á Norður- landi, ef Norðurland hefði hald ið hlutfalli síðustu 25—30 árin, en hér eru aðeins 34 þúsundir manna. Um næstu aldamót verður þjóðin orðin um 400 þúsund manns eða íbúatalan tvöfölduð. Hver verður hlutur Norðurlands í þeirri þróun? — Þetta er brennandi spurning nú og verður um næstu ár. Getuin við gert það átak í uppbyggingu Norðurlands, að það haldi a. m. k. hlut sínum? Allt þetta verð- um við að hafa í huga, þegar við mörkun stefnu okkar í upp- byggingarmálum þess.“ Af þessum athyglisverðu orð- um sést, að það er ekki auðvelt verkefni, sem vinna þarf að á næstu árum, og verður ekki gert nema Framsóknarflokkur- inn hafi áhrif á gang mála. — Það er ekki nóg að semja áætlanir, það þarf einnig að sýna fram á, hvernig þær skuli framkvæmdar. Norðurlands- áætlunin verður aldrei annað en pappírsplagg, ef ekki á sér stað stórkostlegur tilflutningur á framkvæmdafé frá Suður- landi til Norðurlands. Allir vita, að íslendingar hafa ekki nema takmarkað fé til að verja til framkvæmda ár hvert, og skipt ing þess fjár þarf mikið að breytast frá því sem nú er, ef framkvæmd Norðurlatidsáætl- unarinnar á að koma að tilætl- uðum notum. En þar verður við ramman reip að draga, ef nú- verandi stjórnarstefna ríkir áfram. „Athafnamenn“ í Sjálf- stæðisflokknum syðra taka því eflaust ekki hljóðalaust er rýra á þeirra hlut og veita miklu stærri upphæðum af fram- kvæmdafé þjóðarinnar út á landsbyggðina. Það má því segja, að það sé unga fólkið, sem nú ræður úr- slitum. Það verður og mun knýja á. Þeir, sem fæddir eru á Norðurlandi vilja flestir eiga þar heima áfram, en vilja ekki láta sogkraft fjármagnsins neyða sig til að flytja suður, heldur reyna að mynda mót- vægi gegn því með tilstyrk rík- isvaldsins. EKKERT SMÁMÁL. Það, sem hér hefir verið rætt um á undan, er ekkert smámál. Það er í raun og veru um það að tefla, hvort halda á áfram á sömu braut eða snúa blaðinu við. Það verður að sjálfsögðu ekki gert í einu vetfangi, held- ur með samræmdum aðgerðum valdhafa og heimamanna. Þó ræður stjórnarstefnan þar um mestu. Ef öllum stórfyrirtækj- um landsins, menntastofnunum ýmiss konar og þjónustufyrir- tækjum verður hrúgað á einn stað í landinu eins og nú er gert er voðinn vís. Þess vegna hlýtur það að vera krafa allra Norðlendinga, að nú verði blað inu snúið við. Miklu stærri hluta af athafnafé þjóðarinnar verði beint út um landið og ýmsum stofnunum ríkisins, sem nú eru aðeins í Reykjavík, verði dreift um landið. Hver fjórðungur ráði meiru um sín mál en verið hefur og t. d. að bankaútibúin verði sjálfstæðar stofnanir, sem fái aukið fé til ráðstöfunar, því eðlilegra verð- ur að teljast, að heimamenn viti betur hvar skórinn kreppir, en menn suður í Reykjavík. Það er ekki ósanngjarnt, að fara fram á, að hver fjórðungur hafi sína húsnæðismálastofnun, hafnarmálastofnun og auk þess verði fólki út um land í ríkari mæli gefinn kostur á alhliða menntun heima hjá sér en ver- ið hefur. Einnig þarf að skapa fólki út um land betri skilyrði til listsköpunnar og kynningu á hverskonar listum. Þetta er það verkefni, sem unga kynslóð in þarf að vinna að á næstu ár- um og áratugum. Það er höfuð- nauðsyn, að skapa sem áþekk- ust lífsskilyrði allra þjóðfélags- þegna hvar sem þeir búa á land inu, með því m. a. mynda þétt- býliskjarna þar sem bezt hentar og blómlega byggð í sveitum. Fjöldamiðlunartækjum, eins og t. d. sjónvarpinu þarf að dreifa út um allt land sem fyrst til að sporna gegn straumnum suður, því að víst er, að þegar tímar líða fram veitir okkur ekki af að nýta allt okkar land, hvort sem það heitir Suðurland eða Norðurland. Fyrir þessum verkefnum munu ungir Framsóknarmenn beita sér sem bezt þeir geta og takist að breyta þeirri stefnu, er nú ræður ríkjum og koma á uppbyggingastefnu byggðanna þá er mikill sigur unninri og þá þarf fólk ekki að flytja úr sín- um heimabyggðum suður að Faxaflóa eins og verið hefur undanfarið, heldur geti hver byggð tekið við og skapað líf- vænleg skilyrði þeim þjóðfélags þegnum, sem þar fæðast og alast upp. □ Frá kvöldverðarfundi FUF á Akureyri. (Ljósm.: P. A. P.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.