Dagur - 22.04.1967, Qupperneq 1
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
skrifstoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
L. árgangur — Akureyri, laugardaginn 22. apríl 1967 — 29. tölublað
r *■ I >r 1 r Túngötu 1.
Feroaskrifsfofan simi im75
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
Úr stjórnmála- i
ályktun
flokksþingsins
-■niiiiiiiiiiit 1111 • 1111 iiiii«
„Framsóknarflokkurinn starf
ar sem alhliða umbótaflokkur
og stefna hans hefur verið og
er í megindráttum þessi:
Að vernda og efla menningar-
legt, efnalegt og stjórnar-
farslegt sjálfstæði þjóðar-
innar og afsala í engu
réttindum hennar.
Að gera hið ítrasta til að efla
jafnvægi í byggð landsins.
Að vinna að efnalegu sjálf-
stæði sem allra flestra ein-
staklinga á grundvelli sam-
vinnu og einkaframtaiks.
Að vinna að jafnrétti og jafn-
ræði, m. a. með því að
sporna gegn yfirráðum auð
hringa og óeðlilegum af-
skiptum ríkisvaldsins og
með auknum almannatrygg
ingum og góðri aðstöðu til
menntunar fyrir alla.
Að efla vísindi, tækni og verk-
kunnáttu.
Að beina fjármagni til aukning
ar framleiðslu og fram-
leiðni atvinnuveganna og
að dreifa því til atvinnu-
greina og landshluta með
viðráðanlegum kjörum.
Að vinna að því að sætta fjár-
magn og vinnuafl og tryggja
svo sem hægt er, að hver
og einn beri réttan hlut frá
borði af þjóðartekjunum.
Að vinna gegn verðbólgu og
dýrtíð og jafnvægisleysi í
fjármálum þjóðarinnar.“ Q
FRÁ BÆJARSTJÖRN
Um frumvarp til nýrra hafnar-
laga.
Tekin var fyrir fundargerð
hafnarnefndar Akureyrar varð-
andi frumvarp að nýjum hafn-
arlögum, sem nýlega var lagt
fram á Alþingi.
Bæjarráð Akureyrar átelur
þau vinnubrögð, sem við hafa
verið höfð við samningu frum-
varps til hafnarlaga, sem nú
liggur fyrir Alþingi, þar sem
það hefir hvorki verið sent
hafnarnefnd né bæjarstjórn Ak
ureyrar til umsagnar.
Jafnframt samþykkir bæjar-
ráð tillögu hafnarnefndar um
breytingu á 3. gr. frumvarpsins
og ákveður að tillagan verði
send öllum þingmönnum kjör-
dæmisins og þeim falið að
fylgja málinu eftir á Alþingi.
En 3. greinin er svo hljóðandi:
„Hafnarmálastofnun ríkisins
annast allar framkvæmdir, sem
styrktar eru af ríkisfé sam-
kvæmt lögum þessum.
Hafnarmálastofnunin skal
hafa umráð yfir vélum og
tækjum, sem nauðsynleg eru
til að annast þau verkefni, sem
henni eru falin, svo og hafa í
þjónustu sinni sérþjálfað starfs
lið.
Heimilt er hafnarmálastjóra,
með samþykki ráðherra, að
veita bæjar- eða sveitarfélagi
leyfi til að hafa á hendi eigin
hafnarframkvæmdir, undir
tækni- og fjárhagslegu eftir-
liti hafnai-málastjóra.“
Nefndin leggur til við bæjar-
(Framhald á blaðsíðu 7)
ADENAUER LATINN
SÍÐASTA vetrardag lézt hinn
heimskunni þýzki þjóðarleiðtogi
dr. Konrad Adenauer, fyrrum
kanslari Vestur-Þýzkalands, 91 árs
að aldri.
ÝMSIR munu hafa veitt því
athygli í útvarpinu, að forseti
Sameinaðs Alþingis sagði í þing
slitaræðu, að þing það sem nú
er nýlokið hefði verið „athafna
samt“. Hins vegar kemur í ljós
við atliugun að yfirlit lians um
fundarfjölda og afgreiðslu þing
mála segir aðra sögu.
Forsetinn sagði að þingið
hefði staðið 147 daga en fundir
verið samtals 185. Þegar þess er
gætt að þingið starfar í tveim
deildum samtímis, auk Samein-
aðs þings, og að stundum eru
haldnir nokkrir skyndifundir
sama daginn, er þetta ekki há
fundartala. Forseti gat þess
einnig að fyrir þingið hefðu
verið lögð 201 mál til afgreiðslu
af ríkisstjórn og einstökum
þingmönnum. En af þessum
rúmlega 200 þingmálum voru
113 óútrædd, þ. e. a. s. fengu
enga afgreiðslu í þinginu. Þau
voru sem sé hvorki samþykkt
né felld, ekki afgreidd með rök
studdri dagskrá og ekki vísað
til ríkisstjórnarinnar. Meðal
þessara mála voru fimm fyrir-
spurnir sem ekki var svarað.
Niðurstaða sem fyrr segir: Átta
tíu og átta mál afgreidd, 113
mál ekki afgreidd. Af 133 laga-
frumvörpum hlutu 70 enga af-
greiðslu og af 52 tillögum til
þingsályktunar hlutu 38 enga
afgreiðslu.
Svo er talið að þingforsetar
og formenn þingflokka sem áll-
ir eru úr stjórnarflokkunum
séu verkstjórar í þinginu en í
Heybirgðir eru í minnsta lagi
Kasthvammi 7. april. — Ágætt veð-
ur hefur verið í gær og dag, snjór
sígur töluvert, og farið er að
skjóta upp holtskollum á stiiku
stað. Snjór er mjiig mikili, svo
ekki munar miklu frá í fyrra, sé
það nokkuð. Frá Þorralokum til
þriðjudagsins 4. þ. m. voru ekki
nema 5 sólarhringar hríðarlausir,
og stundum mikil snjókoma. En
frost liafa ekki verið mikil nema
dag og dag, en þá um 20 stig og
þar yfir. Tveir svona miklir snjóa-
vetur eru sjaldan saman. Hér í
Laxárdal var alltaf mikill snjór
eftir nýár. Þótt beitt væri flesta
daga frá 12. jan. til 19. febrúar,
var mjög takmörkuð beitarjiirð.
Hér var búið að gefa inni í 12
vikur á mánudagskvöld 3. þ. m.
Allir innistöðudagar frá því tek-
ið var í hús reiknaðir. Bílar hafa
ekki komizt hér um dalinn síðan
í fyrstu viku Góu, en farið hefur
verið á dráttarvélum niður í Að-
aldal nokkrum sinnum undanfar-
ið. Ekki er farið að skoða ennþá.
Heybirgðir sumra munu í minnsta
lagi, gjafatíminn cr orðinn lang-
tir, eða frá 17. nóvember og hey
hafa reynzt ódrjúg eftir áætlun í
haust.
G. Tr. G.
reyndinni haga þeir vinnubrögð
um mjög í samráði við ríkis-
stjórnina. Staðreyndin er sú að
lengst af þingtímanum voru
fundir í deildum aðeins þrjá
daga í viku og í Sameinuðu
þingi einn dag í viku. Með
þessu vinnulagi 'hrúguðust upp
mál, sem ekki komust til
nefnda, en ekkert mál getur
komizt til afgreiðslu í nefnd, og
hafi hlotið meðferð í nefnd, og
mörg í tveim nefndum, nefnd-
um beggja þingdeilda. En í
nefndum var líka hin mesti
seinagangur, eftir því sem blaðið
hefur sannfrétt. Hér stoðar ekki
þó að margir þingmenn hafi
lagt vinnu í málin og verið
reiðubúnir til að taka afstöðu,
ef forsetar og nefndarformenn
hirða ekki um eða draga á lang
inn hina formlegu afgreiðslu.
Að þessu sinni var stjómin
mjög síðbúin með ýmiss stór-
mál sem hún þó að lokum lagði
fyrir þingið. Hér má nefna til
dæmis frumvarp til nýrra hafn-
arlaga, nýrra skólakostnaðar-
laga og orkulaga, að ógleymdri
endurskoðun vegaáætlunar,
sem skylt er að lögum að leggja
(Framhald á blaðsíðu 2)
KVITTUN SJÁLFSTÆÐISMANNA FYRIR
HJÁLP ALÞÝÐUBANDALAGSINS 1963
„FYRSTU tölur bentu til þess,
að Framsóknarmenn mundu fá
þrjá kjörna í Vestfjarðakjör-
dæmi en kommúnistar engan,
og þá hefði viðreisnarstjórnin
misst starfhæfan meirihluta á
Alþingi og Sjálfstæðisflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn ekki
fengið samanlagt kjörna nema
31 þingmann, en þá hefðu verið
jöfn atkvæði í annarri deild Al-
(Framhald á blaðsíðu 7)
Kommúnistaspjall Sjálfstæðismanna
„ÞINGSTYRKUR kommún-
ista nægir nú ekki til þess
að þeir fái kjörinn fulltrúa í
5 manna nefndir, sem Al-
þingi kýs. Áhrif þeirra munu
því fara dvínandi nema þá
að Framsóknarflokkurinn
hlaupi undir bagga með
Kommúnistum og afhendi
þeim annan fulltrúa sinn í
nefndunum — hið ánægju-
lega við úrslit kosninganna
er því meðal annars það, að
áhrif kommúnista fara nú
dvínandi. Unnt verður að
einangra þá víðar en áður og
þá mun líka brátt koma að
því, að menn geri sér grein
fyrir , hvers konar fyrirtæki
kommúnistaflokkurinn er í
raun og veru“. (Úr forystu-
grein Mbl. 2. júlí 1963).
Menntskælingar heimsækja kennara sína síðasta vetrardag.
(Ljósm.: E. D.)
VAR ÞINGIÐ ATHAFNASAMTÍ