Dagur - 29.04.1967, Page 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
ÍHALDSSTEFNAN ER
GJALDÞROTA
í YFIRLITI um viðskipti Seðla-
bankans á liðnu ári er margan fróð-
leik að finna. Og í hádegisverðar-
boði, í tilefni ársreikninga bankans,
flutti Jóhannes Nordal bankastjóri
erindi um efnahagsmál landsins. I
ræðu hans var glögg aðvörun um
hættur þær í efnaliagsmálum, sem
nú blasa við. Aðvaranir þessar eru
nærgætnislegar, enda er bankastjór-
inn nokkuð tengdur þeirri viðreisn-
arstefnu ríkisstjórnarinnar sem er að
leiða atvinnuvegina til gjaldþrots.
En glöggar eru þær engu að síður.
Ríkisstjórninni er nú mjög annt
um þann vonarneista, sem hún þyk-
ist hafa í hendi, í sambandi við verð-
stöðvunina. En vonin er veik þegar
hugsað er til ársins 1959 og 1963, en
þá lýsti sama ríkisstjórn því blákalt
yfir, að búið væri að stöðva verðbólg
una. Þetta gerir hún einnig nú. All-
ir vita hvað varð um verðstöðvunina
1959 og 1963, að þar var aðeins um
blekkingar að ræða. Út á þá blekk-
ingu fengu stjórnarflokkamir þó
eitthvert atkvæðamagn. Stjómarlið-
ar ætla að leika sama leikinn enn,
en ótrúlegt má telja að hann komi
þeim að gagni.
Verðbólgan hefur leikið sjávarút-
veginn svo grátt, að hann hefði stöðv
azt fyrir löngu að óbreyttu verðlagi
erlendis. Hækkandi verðlag erlendis
hefur bjargað honum um mörg ár,
en nú síðast ríkissjóður. Eigendur
fiskiðjuvera hafa haldið því fram, að
rekstursafkoman sé orðin slík, að á-
fram verði ekki haldið, nema með
stórkostlegu tapi og síðan hruni.
Verðbólgan hefur einnig leikið
landbúnaðinn á þann veg, að útflutn
ingur landbúnaðarvara til sölu er-
lendis er útilokaður nema með stór-
felldum uppbótum.
Iðnaðurinn á við vaxandi örðug-
leika að stríða. Kyrrstaða og sam-
dráttur eru einkenni hans síðustu
misseri. Hann þolir illa samkeppni
við erlenda framleiðslu, innflutta,
vegna óhóflegrar verðbólgu innan-
lands og hins háa framleiðslukostn-
aðar, sem af henni leiðir.
I reynd hefur viðreisnarstefnan
svokallaða orðið verðbólgustefna
með þeim afleiðingum fyrir atvinnu
vegi þjóðarinnar, sem nú blasa við.
Bráðabirgðaverðstöðvunin á að
koma eins og græðandi smyrsl, upp
fundin fyrir kosningar, og lætur vel
í eyra. En verðstöðvunarstefnan er of
seint á ferðinni og er kosningabrella.
Hún leynir því á engan hátt, að efna
hagsmál þjóðarinnar eru gjörsam-
lega úr skorðum gengin, grundvöll-
ur atvinnulífsins brostinn og íhalds-
stefnan gjaldþrota. □
Gufformur J. Gufformsson skáld
NOKKUR KVEÐJUORÐ
Falla mínir fomu vinir,
falla traustir ættarhlynir.
Auðn í vorum skáldaskóg.
Hátt þig bar í lundi Ijóða,
Ijómi þinna kvæðaglóða
bjarma á ættjörð björtum sló.
Þessar ljóðlínur fæddust, þeg
ar mér barst fregnin um andlát
Guttorms J. Guttormssonar
skálds. Vel má vera, að þær séu
ekki mikill skáldskapur; hinu
verður ekki á móti mælt, að
þær eru sannmæli. En Guttorm
ur lézt, eins og kunnugt er, á
sjúkrahúsi í Winnipeg 23. nóv.
1966, rúmum degi eftir að hann
varð 88 ára, en hann var fædd-
ur að Víðivöllum í Nýja íslandi
21. nóv. 1878. Með honum er
eigi aðeins að velli fallið svip-
mikið skáld og merkilegt, held-
ur einnig sterkur og mjög sér-
stæður persónuleiki, er lengi
mun minnisstæður samtíðar-
mönnum hans, og þeim lengst,
sem kynntust honum mest og
bezt.
Hann var, eins og þegar hefir
verið sagt, kynborinn sonur
Nýja íslands í Manitoba, fædd-
ur og alinn upp í íslenzku land-
námsbyggðinni á þeim slóðum,
þegar frumhei’jarnir háðu þar
sína raunaþungu en hetjulegu
brautryðjendabaráttu. Fór það
að vonum, að bernsku- og æsku
umhverfið og hin hörðu kjör,
sem foreldrar hans og aðrir ís-
lendingar áttu þar við að búa
framan af árum, orkuðu djúpt
á Guttorm og settu varanlegt
mark á lífshorf hans og skáld-
skap.
Sama máli gegnir um menn-
ingarlega umhverfið, sem hann
ólst upp í, en það var háís-
lenzkt, í rauninni beint fram-
hald af íslenzkri alþýðumenn-
ingu heima á ættjörðinni. Hefði
þessu eigi verið þannig farið,
hefði Guttormur hvorki orðið
eins mikill íslendingur né held-
ur eins sérstætt skáld og raun
ber vitni. Trúnaðurinn við ætt
og erfðir var honum runninn í
merg og bein, og er ósjaldan
bæði uppistaðan og ívafið í
kvæðum hans. Réttilega og vit-
urlega sækir hann að vísu
ósjaldan yrkisefni sín í daglega
lífið umhverfis sig, en hann fer
um þau íslenzkum höndum, ef
svo má að orði kveða, bæði um
mál og Ijóðform. Þannig sver
hann sig ótvírætt í ættina til
eldri íslenzkra skálda.
„Fjórðungi bregður til fóst-
urs,“ segir hið fomkveðna. Ætt
emislega sannaðist það á Gutt-
ormi í ríkum mæli. Hann var af
traustum og kunnum austfirzk-
um ættstofni, og foreldrar hans
voru bæði prýðilega gefin og
bókhneigð. Móðir hans, er var
söngelsk og hafði fallega söng-
rödd, var skáldmælt vel, og fað
ir hans, er var gæddur snjallri
frásagnargáfu, var einnig bæði
sönghneigður og listfengur.
Sjálfur var Guttormur söng-
elskur mjög og stofnaði hljóm-
leikaflokka og stjómaði þeim í
Nýja íslandi og víðar í byggð-
um Vestur-íslendinga.
Foreldra sinna, Jóns Gutt-
ormssonar og Pálínu Ketilsdótt
ur, brautryðjendabaráttu þeirra
og æskuheimilis síns, hefir Gutt
ormur minnzt sonarlega í
ágætri og mjög fróðlegri grein
í bókinni Foreldrar mínir
(Réykjavík 1956). En ungur að
aldri missti hann þau bæði og
varð því snemma að fara að sjá
fýrir sér sjálfur. Vann hann
fram eftir árum að margvísleg-
um störfum, en lengstum ævinn
ar var hann bóndi, og frá 1911
og til dauðadags bjó hann á
föðurleifð sinni, Víðivöllum við
íslendingafljót. Það er því ekki
orðum aukið, að hann hafi orð-
ið að hafa skáldskapinn og önn-
ur ritstörf sín í hjáverkum frá
tímafrekum og lýjandi skyldu-
störfunum. Af fyrrgreindum
ástæðum má það einnig aug-
Ijóst vera, að skólaganga Gutt-
orms var af mjög skornum
skammti, en hann bætti sér það
upp með víðtækum lestri, og
átti stórt og merkilegt bóka-
safn.
Þegar þess er hins vegar gætt,
við hve andstæð skilyrði
Guttormur vann hin bók-
menntalegu störf sín, verður
það ennþá athyglisverðara og
aðdáunarverðara, hve mikið
liggur eftir hann af ritstörfum
í bundnu máli og óbundnu og
hve margt af því bar aðalsmark
hins sanna skáldskapar um hug
kvæmni, frumleik og málsnilld.
Umfangsmest er ljóðagerð hans
og hæst náði hann í þeirri skáld
skapargrein, en um upptalningu
ljóðabóka hans og önnur rit og
ritstörf leyfi ég mér að vísa til
ritgerðar minnar um hann átt-
ræðan í ársriti Þjóðræknisfé-
lagsins 1959.
En skáldskapur Guttorms er
eigi aðeins mikill að vöxtum,
heldur einnig harla fjölskrúðug
ur um viðfangsefni, meðferð
þeirra og svip. Ljóðagerð hans
er, í stuttu máli, ágætlega lýst
í þessum orðum Helga Sæ-
mundssonar í grein hans í til-
efni af Islandsferð Guttorms
1963, „Skáldbóndi í heimsókn“
(Alþýðublaðið, 19. júní 1963):
„Guttormur hugsar iðulega
austur um haf í ljóði, en hann
yrkir líka oft um fóstui-jörð
sína, Nýja ísland, og ber henni
söguna af karlmannlegri hrein-
skilni. Kvæði hans um baráttu
frumbýlingsáranna þarf varla
að kynna, en af þeim ber senni-
lega Sandy Bar hæst. Guttorm-
ur man glöggt þraut foreldx-a
sinna og samferðamenna þeirra
heiman af íslandi. Sjálfur hefir
hann átt við fátækt að stríða,
unnið hörðum höndum langan
dag og verið úti í misjöfnum
veðrum. Alls þessa gætir í ljóð
um hans, en Guttormur yrkir
líka um frjósemd og mi'ldi
Kanada, sléttuna, sem hefur
brauðfætt hann, vatnið og bjart
an morgun, fagurt hádegi og
blítt kvöld. Jafnframt eru á
skáldhörpu hans strengir, sem
túlka fjalladyn, stoi'mþyt og
vatnagang, æsta hríð, dimma
nótt og vindbarinn skóg. Enn-
fremur lýsir hann ógleymanlega
daglegum störfum vestur-ís-
lenzka bóndans og einnig á tákn
rænan hátt, því hann er meist-
ari tvíleikans, þegar honum
tekst bezt upp í kvæðum sín-
um. Þá rís skáldskapur Gutt-
orms eins og fjall af sléttu, og
ljóðstíll hans verður í senn
sterkur og margþættur. Sá
kveðskapur er íslenzkum bók-
menntum mikill fengur.
Frásagnir og lýsingar láta
Guttormi J. Guttormssyni vel í
Ijóði, en þó finnst mér kannski
mest til um þann skáldskap
hans, sem er táknrænn og heim
spekilegur. Guttormur er harla
ádeilugjarn, en tvíleikur þeirra
kvæða hans bjargar þeim bless-
unarlega oft frá því hlutskipti
að vera aðeins hávær áróður.
Þess vegna munar um Gutt-
orm, þegar hann fordæmir rang
læti og tekur málstað smæl-
ingja, sem standa höllum fæti.
Loks ber þess að geta, að
Guttoi-mur er fyndinn og hnitt-
inn, ef hann vill beita þeirri
íþrótt. Ég ætla, að hann sé
snjallasta kímniskáld Vestur-
íslendinga eftir Káin, og á þeim
glímupalli reynist hann bæði
fjölbrögðóttur og harðskeyttur.
Þar sameinar hann skemmti-
lega hugkvæmni og skapi'íki."
Hér verður ekki farið út í
það að rekja efni einstakra
kvæða Guttoi’ms, þó meir en
verðugt væri. En réttilega legg
ur Helgi Sæmundsson áherzlu
á það í skilningsi-íkum ummæl-
um sínum um skáldið, hve sterk
um böndum hann er tengdur
ættjöx-ðinni, íslandi, og fæðing-
ai-sveit sinni og heimahögum í
Nýja íslandi.
Eins og ég hefi sagt annai-s
staðar, sameinar Guttormur
þetta tvermt á hinn fágætasta
og eftirminnilegasta hátt. í
skáldskap hans renna straum-
arnir fx-á hinu landfi-æðilega og
menningarlega umhvei-fi hans í
Canada og áhrifum frá íslenzk
um bókmenntum og menningar
erfðum saman á mjög mei-ki-
legan hátt. Yrkisefni hans er
ósjaldan rammCanadisk, gripin
beint úr daglega lífinu umhverf
is hann, t. d. í kvæðunum „Bý-
flugnaræktin", „Indíánahátíð-
in“, „Bimimir" o. fl., en þau
eru fæi-ð í frábærlega íslenzkan
málbúning, bæði um bragar-
hætti og orðalag, þó að skáldið
fari oft eigin götur í þeim efn-
um, smíði algerlega nýja ljóð-
hætti og noti orðin í óvenjuleg-
um samböndum til þess að
túlka nýjar hugsanir. Málfar
hans er í senn bæði kjammikið
og rammíslenzkt.
Beint og óbeint hefir þegar
vex-ið vikið að lífsskoðun Gutt-
orms, eins og hún lýsir sér í
kvæðum hans. Hann greiddi
óréttlæti og hverskonar kúgun,
óheilindum og yfirborðs-
mennsku, þung svipuhögg í
ádeilum sínum. En lífsskoðun
hans var eigi að síður jákvæð.
— Víða kemur fram í kvæðum
hans djúp og stei-k samúð með
þeim, sem eiga ,í vök að verjast
og bera skarðan hlut frá lífsins
nægtarborði. Enda komst hann
svo að orði í merku viðtali við
Matthías Jóhannessen ritstjóra
(Morgunblaðið, 16. júní 1963):
„Ég trúi á mannúðai-kenningar
Krists.“ Það var kjaminn í
hans trúarskoðun. Annai-s mun
honum ekki gert rangt til, þó
sagt sé, að harm hafi verið efa-
semdarmaður, leitandi andi, í
trúarefnum.
En upp á Guttorm má hik-
laust og afdráttarlaust heim-
færa þessi oi-ð hans um Káinn:
Þar er mei-kur, mætur, heill
maður á bak við kvæðin.
Það var íslenzkt haustveður,
svalt og bjart, þegar Guttoi-mur
var til moldar boriim í River-
ton á heimaslóðum sínum. Þeg-
ar við ókum af stað þaðan á leið
til Wirmipeg, varð mér litið í
áttina til Sandy Bar, og orð
skáldsins úr samnefndu, fögru
og frægu kvæði hans ui-ðu mér
að lifandi veruleika:
.....heiður himinn
hvelfdist yfir Sandy Bar,
himinn, landnám landnemanna
Ijómaði yfir Sandy Bar.
Landnámsmaður í ríki and-
ans, sem numið hafði íslenzk-
um bókmenntum nýtt landnám,
hafði hoi-fið á vit feðra sinna í
landinu ókunna handan grafar.
(Tímarit Þjóði-æknisfélags ís
lendinga).
Dr. Richard Beck.
5
„Lukkuriddarinn" kemur fil Eyjafjarðar
LEIKFÉLAG HÚSAVÍKUR
hefur sýnt Lukkuriddarann
11 sinnum, þar af 9 sinnum
á Ilúsavík og tvisvar á
Breiðumýri í Reykjadal,
ætíð fyrir fullu húsi. Næsta
sýning verður að Freyvangi
í Eyjafirði kl. 8.30 á laugar-
dagskvöld og á sunnudag
kl. 4 síðdegis. Það er fyrsta
leikför Leikfélags Húsavík-
ur til Eyjafjarða. Leikstjóri
er Magnús Jónsson.
Meðfylgjandi sviðsmynd
er úr Lukkuriddaranum. —
Fluoridar koma sennilega í veg fyrir æðakölkun
Chirago, 18. apríl (AP)
TILKYNNT hefur verið að ný-
legar rannsóknir liafi leitt í Ijós,
að miklar líkur bendi til að
fluoridar, sem mjög víða eru
notaðir í drykkjarvatni til að
koma í veg fyrir tannskemmdir,
muni sennilcga draga úr bein-
rýmun í öldruðu fólki og koma
í veg fyrir æðakölkun.
D. M. Hegsted, Ph. D., við
næringai-efnadeild Harvard
School of Public Healthj sagði í
gær, að samanburðarrannsókn-
ir sem gerðar hefðu verið á
tveim svæðum í Norður-
Dakota, þar sem fluoridamagn
drykkjai-vatns væri ýmist mjög
hátt eða mjög lágt, hefði leitt
þetta í Ijós.
Á aðalfundi Sambands
amerískra félaga um tilraunir í
lífeðlisfræði sagði Hegsted með
al annars, í umræðum um nær-
ingai-fræði og beinrýrnun:
„Rýrnun í beinvefjum
hryggjaliða í fullorðnum kon-
um var um það bil helmingi
meiri á því svæði sem hafði lágt
fluoridamagn í drykkjarvatni.
Æðakölkun var tvisvar til fjór-
um sixmurn meira áberandi á
því svæði sem lxafði lágt
fluoi-idamagn í vatni. Þetta virð
ist benda til þess, að ef líkam-
inn fær töluvert magn fluorida
með neyzlu drykkjai-vatns, þá
virðist það hjálpa til að við-
halda styx-kleika beinagrindax--
innar, sérstaklega hjá kven-
fólki, sem er hættara við bein-
vefjarrýmun, og getur auk þess
komið í veg fyrir áberandi æða
kölkun, sérstaklega í karl-
mönnum.“
Beinvefjarýrnun orsakar það
að beinin verða stökk og er
hættara við að brotna.
Hegsted sagði í blaðaviðtali
að þrenging á vefjum slagæðar
væri byrjunareinkenni æðakölk
Vatnsneyzlan er frá
SVO MIKILL munur er á vatns
neyzlu í hinum ýmsu hlutum
heimsins, að þéir sem mest nota
af vatni verða að fá 5000 sinn-
um meira af því en þeir, sem
minnst nota. Þetta er engan veg
BJÁRNI á móti þjóðstjórn
í ANNAÐ SINN á einu misseri
lagði Bjarni Benediktsson opin
berlega lykkju á leið sína til að
andmæla þeim mönnum í Sjálf
stæðisflokknum, sem eru orðn-
ir þreyttir á „viðreisninni" og
vilja láta reyna samstarf allra
flokka. í setningarræðu lands-
fundar Sjálfstæðismanna sagði
Bjarni m. a.:
„Fram úr þessum viðfangs-
efnum verður ekki skjótlega
ráðið. Þess vegna er það út í
hött, þegar sumir tala um það
að við ætlum að lækna verð-
bólguna með myndun þjóð-
stjómar“.
Það hefir víst í seinni tíð rifj -
ast upp fyrir ýmsum, sem til
þessa hafa verið í stjómarlið-
inu, að Framsóknarmenn lögðu
til fyrir 7—8 árum, að þingflokk
arnir kysu fulltrúa í sameigin-
lega nefnd til að reyna að kom-
ast að samkomulagi um efna-
hagsmál. En ráðamenn Sjálf-
stæðisflokksins voru þá boru-
brattari en nú og þóttust ætla
að leysa vandann einir, enda
voru þeir þá nýbúnir að ráða
Alþýðuflokkinn í sína þjónustu
og töldu sig báðum fótum i jötu
standa. Nú er „viðreisnin“ að
vísu fyrir löngu farin út um
þúfur, en Bjami virðist enn
hugsa sér að láta Alþýðuflokk-
inn passa „stólana". Þess vegna
er honum meinilla við þjóð-
stjómartal í sínum herbúðum.
Til vonar og vara lét hann þó
einn af verkalýðsleiðtogum
kommúnista fá „krossí' í hitteð
fyrra svo sem kunnugt er og í
flimtingum haft. □
unar. Hann sagði að enda þótt
hjartaslag orsakaðist af ónógu
bróðrennsli frá kransæðunum,
sem eru í sjálfum hjartavöðvan
um, þá virtust samanburðar-
rannsóknir „benda til þess að
fluoridar komi í veg fyrir
aukna æðakölkun."
Dr. Richmond W. Smith Jr.,
læknir við Lyflæknisdeild
Henry Ford sjúkrahússins í
Detroit sagði að kölkun í slag-
æðum í kviðarholi væri áber-
andi meiri á því svæði, sem
hafði lágt fluoridamagn í
drykkjarvatni.
Hann bætti því við, að hærra
hlutfall æðakölkunarsjúklinga
fyndist einnig í hópi þeirra sem
þjást af beinvefjarýrnun heldur
en hjá öllum almenningi. Q
1 upp í 5000 einingar
inn til marks um að tiltekið
fólk sé hreinlátara en annað
fólk, heldur er það vatnsneyzl-
an í iðnaði og landbúnaði, sem
reiknuð er eftir íbúatölu og
skapar þennan gríðarlega mis-
mun. Þetta sýnir hins vegar
hversu lífsnauðsynlegt vanþró-
uðum löndum er að komast yfir
meiri vatnslindir þegar þau leit
ast við að auka landbúnað sinn
og iðnað.
Þetta vandamál var tekið fyr
ir á ráðstefnu um „hegðun“
vatnsins, sem haldin var í Vín-
arborg um miðjan nóvember að
frumkvæði Alþjóðakjarnorku-
stofnunarinnar (IAEA.)
Á ráðstefnunni ræddu vatna-
fræðingar frá 37 löndum, þeirra
á meðal íslandi og Svíþjóð, um
það, sem gerist með vatnið allt
úr 16 km hæð frá yfirborði jarð
ar niður í 1 km undir jarðskörp
unni í mynd, snæs, íss, regns,
skýfalls, forarleðju og árfram-
burðar. Viðfangsefnið var „Not
kun ísótópa í vatnafræðinni",
og ráðstefnan var þáttur í hin-
um alþjóðlega vatnafræðiára-
tug Sameinuðu þjóðanna, sem
hófst fyrir rúmu ári.
Búnaðarframkvæmdir minni en áður
RÁÐUNALTAR B.S.E. SEGJA FRÁ anna í vetur er ekki vitað, en:
Á AÐALFUNDI Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar, sem nýlega
var haldinn og lítillega var áður
sagt frá, fluttu ráðunautar sam
bandsins skýrslur sínar, þeir
Ævar Hjartarson og Stefán
Þórðarson. Jón Trausti Þor-
steinsson hefur látið af ráðu-
nautarstörfum.
í skýrslu Ævars Hjartarsonar
segir m. a. svo:
Nýrækt var 287.5 ha. og vél-
grafnir skurðir 121.720 rúmm.
Tala jarðabótamanna var ár-
ið 1966 257, en að meðaltali árin
1959 til 1965 345. Flestir liðir
framkvæmda hafa minnkað eða
eru lægri nú síðastliðið ár en
þeir voru að meðaltali síðastlið
in 7 ár. Tala eða fjöldi jarða-
bótamanna hefin sjaldan verið
lægri en árið 1966.
Túnamælingar.
Á síðastliðnu ári var hafizt
handa með mælingar á túnum
hér á sambandssvæði BSE. Að-
ferð sú, sem mælingarnar voru
framkvæmdar eftir, nefnist þrí
hyi-ningamæling. Aðrar aðferð-
ir hafa ekki verið samþykktar
af Landnámi ríkisins.
Mælingar í sumar voru fram
kvæmdar í þremur hreppum:
Skriðuhreppi, Árskógshreppi og
Ólafsfirði. Auk þess var mælt á
nokkrum jörðum í Saurbæjar-
hreppi og nokkrum annars stað
ar á svæðinu. Til aðstoðar við
mælingarnar hafði ég Guð-
mund Steindórsson frá Þríhyrn
ingi í Skriðuhreppi.
Jarðvegssýni voru tekin úr
Skriðuhreppi og Árskógshreppi.
Ur þessum hreppum voru sýni
tekin á hverjum bæ eða hjá öll-
um, sem þess óskuðu. Einnig
voru tekin nokkur jarðvegssýni
utan þessara hreppa hjá þeim,
sem þess óskuðu og tök voru á
að ná þeim. Alls var fjöldi sýna
rúmlega 500. Tími vannst ekki
til að taka fleiri.
Sauðfjárræktarfélögin.
Á liðnu ári skiluðu 10 félög
skýrslum um starfsemina, og er
það einu félagi fleira en árið
áður. Fjöldi félaga í þessum fé-
lögum er 68 með 2049 ær á
skýrslu.
Þeir félagsmenn, sem mestar
Eifurðir höfðu eftir vetrarfóðr-
aða kind, voru:
Gestur Sæmundsson, Efsta-
landi 31.00 kg. 85.0% tvíl.
Sveinn Jóhannesson, Hóli
29.78 kg. 88.8% tvíl.
Snorri Kristjánsson, Krossum
29.27 kg. 86.6% tvíL
Ármann Þorsteinsson, Þverá,
Öxnadal 28.99 kg. 83.3% tvíl.
Sigurður Jónasson, Hálsi
28.20 kg. 84.6% tvíl.
Grímur Jóhannesson, Þóris-
stöðum 28.18 kg. 83.6% tvíl.
Sigfús Þorsteinsson, Rauðu-
vík 28.06 kg. 80.0% tvíl.
Munur á afurðum hinna ein-
stöku félaga og einstaklinga
innan félaganna er mjög mikill.
Afurðamunur eftir vetrarfóðr-
aða kind hjá þeim einstaklingi,
sem hefir mestar afurðir, og
þeim, sem hefir þær minnstar,
er 14.5 kg.
Eftir niðurstöðum þessum
virðist fé af Vestfjarðastofni
vera bæði frjósamara og gefa
betri arð. Ef til vill er þó ekki
rétt að flokka æmar í sauðfjár-
ræktarfélögunum eins og hér er
gert í vestfirzkar og þingeyskar,
þar sem þetta fé er nú orðið
viða mjög mikið blandað sitt á
hvað.
Hrútasýningar.
Hrútasýningar fóru fram hér
á sambandssvæðinu nú á síð-
astliðnu sumri. Fyrirkomulag
og framkvæmd sýninganna var
með sama sniði og verið hefir
undanfarin ár. Að loknum sýn-
ingum var svo haldin héraðs-
sýning á beztu hrútunum í
hverjum hreppi. Héraðssýning-
in var í tvennu lagi, að Ásláks-
stöðum í Arnameshreppi og
Hjarðarhaga í Öngulsstaða-
hreppi.
Sýningar voru haldnar í. öll-
um hreppum sýslunnar og auk
þess í Ólafsfirði, Siglufirði og
Ævar Hjartarson ráðunautur.
Grímsey. Alls voru sýndir 581
hrútur og flokkuðust þeir eftir
verðlaunum þannig:
I. v. hlutu 245 eða 42.16%
II. v. hlutu 184 eða 31.67%
III. v. hlutu 101 eða 17.91%
0. v. hlutu 51 eða 8.79%
Nokkrar afkvæmasýningar
voru haldnar. Tvær ær hlutu
I. v. fyrir afkvæmi: Bletta Sig-
urjóns Steinssonar, Lundi, og
Rúnuhvít Jóns Tr. Steingríms-
sonar, Vegamótum. Einn hrútur
hlaut I. v. fyrir afkvæmi: Dverg
ur 45, eigandi Arnbjörn Karles
son, Ytra-Dalsgerði, Saurbæjar
hreppi.
Eins og fyrr segir var haldin
héraðssýning á hrútum á sam-
bandssvæðinu nú á síðastliðnu
hausti. Sýningarstaðir urðu að
vera tveir vegna sauðfjárveiki-
varna og veru þeir á Ásláks-
stöðum í Amarneshreppi og
Hjarðarhaga í Öngulsstaða-
hreppi. Á sýningu komu 45
hrútar. Teknir voru beztu hrút-
ar úr hverjum hreppi og var
fjöldi þeirra ákveðinn þannig,
að 1000 ær væru á bak við
hvern hrút. Hrútamir voru
flokkaðir í þrjá flokka, þ. s.:
Heiðursverðlaun, I. v. A og
I. v. B. Af þessum 45 hrútum
fóru 4 í Heiðursverðlaun, 20 í
I. v. A og í I. v. B fóru 21.
Þeir, sem hlutu Heiðursverð-
laun, voru:
1. Dofri, eigandi Haraldur
Kristinsson, Öngulstöðum.
2. Sléttbakur, eigandi Bene-
dikt Alexandersson, Ytrf-
Bakka, Arnameshreppi.
3. Glæsir, eigandi Sigurður
Jónson, Efstalandi, Öxnadal.
4. Hnokki, eigandi Þorvaldur
Þorsteinsson, Hálsi, Svarf.
Dómur á héraðssýningu verð
ur aldrei annað en einstaklings-
dómur, en afkvæmadómur ér
það, sem þarf að byggja á og sá
dómur er öruggastur.
Afkvæmasýningar á sauðfé
þarf því að auka, ef auknar af-
urðir og betri stofn á að fást.
Sauðfjársæðingarstöðin að
Lundi starfaði í vetur með líku
sniði og undanfarið. Sæddai-
voru hér á svæðinu rúmlega
1000 ær. Um árangur sæðing-
það, sem vitað er, virðist lofai
góðu um árangurinn. Hrútar.
þeir, sem notaðir voru í vetur,
voru þessir: Þokki og Leiri, en
þeir hafa verið í stöðinni und-
anfarin ár. Til viðbótar þessum
hrútum voru keyptir 4 hrútar
austan úr Mývatnssveit. —■
Þeir eru: i
Spakur. Fæddur að Grásíðu
í Kelduhverfi.
Kjarni. Áður eign Sf. Austra
í Mývatnssveit. i
Rosti. Frá Baldursheimi. Fað
ir: Spakur. ^
Fífill. Frá Vindbelg í Mý-
vatnssveit. i
Einnig var sætt lítillega úr
hrútunum Dofra og Sléttbak,
þeim, er efstir stóðu á héraðs-
sýningunni.
Um það, hvort rétt sé stefnt
í sauðfjárræktinni hér í hérað--
inu með starfrækslu þessarar
sæðingarstöðvar eða útbreidd-
um sæðingum á sauðfé, skal ó-
sagt látið, þótt það sé trú okk-
ar, sem að þessum málum vinn-
um. Ur því verður reynslan að
skera.
í skýrslu Steíáns Þórðarson-
ar, vélaráðunautar( segir svo:
Rekstur Búvélaverkstæðisins.
Starfsemi verkstæðisins es
nú mjög svipuð því sem var á
síðastliðnu ári. Starfsmanna-
fjöldi var að meðaltali svipaður
og áður. Verkefnin voru heilt
yfir nægjanleg fyrir þennan.
starfsmánnafjölda, þannig að
ekki var um neina vinnu að
ræða sem ekki tókst að selja,
en þó mátti þetta ekki tæpara
standa á vissum árstímum. Til
Stefán Þórðarson ráðunautur.
að átta sig betur á starfsemi og
viðskiptum verkstæðisins var
gerð sundurliðun á þeim við-
fangsefnum, sem ' verkstæðið
vann úr talið í klst. í töflu
þeirri, sem hér fer á eftir, er
verkefnum skipt í 16 flokka,
þannig að ég tel óþarft að hafa
þá fleiri, þótt hægt hefði verið.
Upphaflega var ætlunin að tafl-
an gæfi einnig til kynna skipt-
ingu verkefna eftir árstíma, en
því miður vannst ekki tími til
þess.
1. Jarðýtur ...........4.701
2. Dráttarvélar ...... 2.855
3. Vörubílar.........1.961
4. Sniglar ............1.828
5. Jeppar ............ 1.592
6. Bílar aðrir en í lið
3 og 5........... 1.067
7. Heyvinnslutæki .... 978
8. Mjólkurbílar ........ 820
9. Jarðvinnslutæki .... 354
10. Vagnar og kerrur ... 331
11. Dreifarar ............ 247
12. Skurðgröfur .......... 235
13. Blásarar ............. 198
14. Tumar ................ 195
15. Ýmislegt ............. 179
16. Byggingin ............ 176
Alls 17.807
(Framhald á blaðsíðu 7)