Dagur - 30.05.1967, Blaðsíða 1

Dagur - 30.05.1967, Blaðsíða 1
Á FIMMTU SÍÐU íslendings sem út kom fyrir skömmu, er einkennileg ritsmíð sem senni- lega hefur slæðzt á þrent af vangá. Þetta er „tossalisti11, sem einhver ræðumaður eða starfs- maður Sjálfstæðisflokksins hef- ur sennilega skrifað upp sér til minnis af einhverjum ástæðum, og ber yfirskriftina „punktar um framkvæmdir". Þessi minn- ispunktar eru um 40 talsins og aðeins nefndar á nafn einstaka framkvæmdir eða framkvæmda áfarm, en án nokkurra skýringa eða umsagnar. Þarna eru t. d. nefndar margar framkvæmdir sem byrjað var á fyrir 20—30 árum, en ólokið enn, og aðrar, sem ekkert hefur verið byrjað á, t. d. ný Laxárvirkjun, skóla- hús á Stóru-Tjörnum, Hafra- læk og Hrafnagili o. s. frv. „Punktar" þessir minna á það enn einu sinni, hve margt er hér ógert eða örskammt á veg komið, þrátt fyrir afla- og markaðsgóðæri undanfarinna ára og gífurlega hækkun ríkis- teknanna. □ Dagur kemur út á morgun. Klukkuturn skátanna á Ráðhústorgi. (Ljósm.: E. D.) SKÁTAR Á AKUREYRI MINN- AST FIMMTÍU ÁRA STARFS FYRIR 50 árum komust ung- menni á Norðurlandi fyrst í kynni við hugsjónir, leiki og störf skáta. Ungur Dani, Viggo Ofjörd, sem kom til Akureyrar ,1914, varð upphafsmaður skáta- hreyfingarinnar. Ýmsir af eldri Varla minnzl á síldarsöllun á Sigluliríi »<S>-»«><Í><S><S>3*S><Í^<Í><S><^^ KOSNINGAFUNDUR F ramsóknarf lokks- ms a Akur eyn FR AMSÓKN ARFLOKKUR INN á Akureyri efnir til almenns kjósendafundar að Hótel KEA næstkomandi fimmtudag 1. júní kl. 9 e. h. I*ar munu fimm efstu menn framboðslista Framsóknar- flokksins flytja ávörp, þeir Gísli Guðmundsson, Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirs- son, Jónas Jónsson og Björn Teitsson. Auk þess mun Guð mundur Jónsson óperusöngv ari syngja með undirleik Ólafs Vignis Albertssonar og séra Sveinn Víkingur les upp. Fundarstjóri verður Sig urður Jóhannesson. Siglufirði 29. maí. í sl. viku land aði Hafliði hér 270 tonnum eftir 14 daga útivist. Var aflinn af heimamiðum, mest ufsi og karfi. Niðurlagningaverksmiðja S. R. mun hætta nú um mán- aðamótin og tekur sér mánaðar hvíld, mun svo aftur taka til starfa í júlíbyrjun. Unnið verð- ur þá fyrir Rússlandsmarkað, fram eftir árinu. Engar ráðstaf- anir munu enn hafa verið gerð- ar til þess að útvega hráefni í sumar en verksmiðjan mun eiga nóg til að vinna úr til næstu ára móta, hvað meira verður veit víst enginn. Tunnuverksmiðjan er hætt störfum og starfaði hún frá 5. desember og fram að síðustu helgi. Smíðaðar voru 65 þús. tunnur og er þá lokið efninu, sem til var á staðnum. Um 40 manns unnu í verksmiðjunni og koma þeir nú á vinnumarkað- inn. S. R. mun hefja móttöku síld (Framhald á blaðsíðu 7) og ráðsettari borgurum bæjar- ins ruitu handleiðslu Viggós, er þeir voru börn að aldri, og fyrsta skátafélagið var svo stofn að 1917. Bláþræðir hafa verið í starfinu, en nú virðist skáta- hreyfingin vera orðin traust, bæði meðal karla og kvenna, en kvenskátafélagið Valkyrjan er 6 árum yngra en hið fimmtuga skátafélag piltanna. Skátafélög- in eiga nokkur hús fyrir starf- semi sína, þau njóta trausts samborgaranna og þau hafa, bæði innanlands og utan, getið sér gott orð, jafnvel umtalsvert frægðarorð og síðast en ekki sízt hafa þau sannað það í sín- um heimabæ, hve vel þjálfaðir ÞAÐ, SEM ÞJÓÐINNIVAR SAGT í BYRJUN „VIÐREISNAR“ „í STEFNUYFIRLÝSINGU, sem ríkisstjórnin birti, þegar hún tók við völdum í nóvember síðastliðnum, taidi hún það höfuðverkefni sitt að koma atvinnulífi þjóðarinnar á traustan og heilbrigðan grundvöll.“ . „„„„ ,, „ s s Viðreisn 1960, bls. 1. „Bótakerfi það, sem útflutningsframleiðslan hefur búið við síðan 1951, verði afnumið, en skráningu krónunnar breytt þannig, að útflutningsframleiðslan verði rekin hallalaust án bóta og styrkja.“ . Víðreisn 1960, bls. 2. skátar eru skjótir til hjálpar þegar þörfin kallar á vel skipu- lagðar sveitir vaskra manna og kvenna. Á laugardaginn reistu skátar tum mikinn á Ráðhústorgi á Akureyri, sem í var klukka, fánar blöktu þar og hljómlistin barst yfir nágrennið. Ungir skátar gættu þess, að þar færi allt vel fram og gengu um fylktu liði öðru hverju. Bæjar- (Framhald á blaðsíðu 6). Tryggvi Þorsteinsson. STJÓRNMÁLAUMRÆDUM útvarpað frá Skjaldarvík í kvöld kl. 8.20 og á föstudagskvöld kl. 8.30 ÚTVARPAÐ verður frá Skjaldarvík stjórnmálaumræðum stjórnmálaflokkanna í þessu kjördæmi. Hefjast þær umræð- ur í kvöld, þriðjudaginn 30. maí, kl. 8.20 og verður þeirn fram haldið á föstudagskvöldið 2. júní kl. 8.30. Um röð flokkanna er enn ókunnugt. En fyrra kvöldið tala þessir menn fyrir B-listann: Gísli Guðmundsson, Stefán Valgeirsson og Jónas Jónsson. Ræðutími hvers flokks er 45 mínútur. Tossalisti íslendings ADEINS EINN Blönduósi 29. niaí. Við höfum aðeins fengið einn hlýjan dag í langan tíma. Gróður er því nær enginn og fénaður á fullri gjöf. Kjarnfóðurkaup bænda 5 fyrstu mánuði ársins eru nær tvöfalt meiri en venjulega. Um daginn urðum við að senda nokkra bíla til Akureyrar til þess að flytja HLYR DAGUR kjarnfóður, sem við áttum í skipi þar, til að vinna tvo daga. Erfiðleikar við búskap bænda eru mjög miklir, útgjöld tilfinn- anleg og fyrirsjáanlegt afui’ða- tjón vegna harðindanna. Ofan á þetta bætist svo lánsfjárskort- urinn. Ó. S- „Þá er gert ráð fyrir því, að gerðar verði ráðstafanir til þess að koma á jafnvægi í peningamálum innanlands.“ Viðreisn 1960, bls. 3. „Leggur ríkisstjómin til, að óheimilt sé að miða kaupgjald við vísitölu.“ . „„„„ , , , Vtðretsn 1960, bls. 4. | „Hins vegar verður hækkun vísitölunnar allrar líklega |' I ekki meira en 13%.“ ,, „„ Vtðreisn 1960, bls. 19. I Óhagstæður vöru- skiptajöfnuður FYRSTU 4 mánuði ársins var vöruskiptajöfnuðurinn við út- lönd óhagstæður um rúmlega 391 millj. kr. í stað 63.5 millj. króna óhagstæðs vöruskipta- jafnaðar árið 1966. Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.