Dagur - 31.05.1967, Page 7

Dagur - 31.05.1967, Page 7
7 - Bæfa verður menntunaraðstöðu (Framhald af blaðsíðu 4) yrðir. Hver hluti um sig tekur því einn fjórða hluta af vetrin- um fyrir hvern einstakan nem- anda. Þótt ég kenni nú mat- reiðsluna ætlaði ég ekki að taka þann hlutann í upphafi, þótt þannig hafi farið. — Hvaðan koma nemendurn- ir helzt í þennan skóla? — Þeir koma mjög víða að af landinu, þó sízt af Suðurlands- undirlendinu, en samt gjarna lengra að, t. d. frá Vestfjörðum og Austfjörðum. Stúlkur á Akur- eyri sækja svo aftur mikið út fyrir héraðið, t. d. til ísafjarðar þessi árin á skólann þar. Yfirleitt eru nemendurnir jöfnum höndum úr sveitum og kaupstöðum. — Hvorar eru betur undir skólarm búnar, þær sem koma úr sveitum eða hinar ur kaup- stöðunum? — Sveitastúlkurnar koma yfir- leitt betur undirbúnar. Þær eru vanari algengri heimilisvinnu og kunna því fremur til verka. Hin- ar hafa þá ef til vill fremur ver- ið við barnagæzlu eða í búðar- vinnu. Þó að margar stúlkurnar séu vanar heimilisstörfum eru þær samt ekki orðnar svo gaml- ar þegar þær koma hingað (ald- urinn er um 17—20 ára), að þær séu orðnar bundnar ákveðnum venjum. Þær eru því mjög leit- andi og tiltölulega auðvelt að leiðbeina þeim. — Hvað finnst þér svo al- mennt um uppeldi nemendanna, sem þið fáiðl — Auðvitað er ekki hægt að gefa neitt ákveðið svar um það, stúlkurnar eru innbyrðis gjör- ólíkar að öllu sem varðar gáfur og uppeldi. Því miður óttast ég samt, að uppeldi hafi hrakað á Islandi síöustu árin. Agann vant- ar, og of mikið frjálsræði fyrir ungmennið er skaðvænlegt að mínum dómi. Það geta nefnilega fáir alið sig upp sjálfir svo að nokkurt lag verði á. — Hvað finnst þér almennt utn aðstöðu unélingartna í sveit- unum tií að afla sér menntunar nú á timum? — Þa aðstöðu þarf að bæta stórlega frá því sem nú er. Allir eiga að hafa sem jafnasta að- stöðu til að afla sér almennrar undirstöðumenntunar, og ég álít höfuðskilyrði, að allir fái hina lögboðnu menntun, en á því er víða misbrestur nú. Ég held líka að óheppilegt sé að senda 14— 15 ára unglinga í kaupstað í skóla. Heimavistarskólarnir, hér- aðsskólarnir eins og Laugar í Reykjadal og Reykir í Hrúta- firði þyrftu að vera mun fleiri. Um skólamál í dreifbýlinu hefur auðvitað víða verið mjög hvim- Til leigti er nýleg 4 HERBERGJA ÍBÚÐ Upplýsingar gefnar í síma 1-12-92 fimmtudaginn 1. júní kl. 20-22. Upplýsingar ekki gefnar á öðrum tíma. leið hreppapólitík að því er varðar staðsetningu skóla og fleira í því sambandi, og það hefur hamlað framkvæmdum. Þetta nær reyndar til félagsheim- ila ekki siður, t. d. er furðulegt og óhagkvæmt að þrír hrepparn- ir í Fram-Eyjafirði skuli hafa hver sitt félagsheimili. — Finnst þér þá að ríkið eigi að hafa forgöngu um staðsetn- ingu skóla og félagsheimila? — Þess háttar ákvarðanir verður auðvitað að taka í fullu samráði við fulltrúa frá viðkom- andi hreppum, en geti þeir ekki komið sér saman, verða utanað- komandi yfirvöld vitanlega að skerast í leikinn. — En svo við snúum okkur nú að stjórnmálunum, viltu þá lýsa því í fáum orðum, hvers vegna þú styðiir einmitt Framsóknar- flokkinn? — Það er fyrst og fremst vegna þess, að hann er þjóðleg- astur íslenzkra stjórnmálaflokka, enda tel ég mig hafa allríka þjóðerniskennd. Framsóknar- flokkurinn reynir að samræma kenningar sínar íslenzkum að- stæðum, en fer ekki eftir nein- um erlendum kenningakerfum lítt breyttum. Að vísu er sam- eignarstefna kommúnismans svo sem nógu falleg sem kenning, og það væri mjög skemmtilegt, ef hún væri framkvæma'nleg í reynd, en svo er bara ekki, mannkynið virðist ekki vera nægilega þroskað til að það sé unnt. Annars myndu sjálfsagt fleiri aðhyllast þá stefnu, ef ekki væri búið að búa til grýlu úr orðinu kommúnisti. — Svo fylgi ég Framsóknarflokknum ekki síður vegna þess, að hann hugsar mest allra flokka um hag allra landsmanna, ekki aðeins þeirra, sem á suðvesturhorninu .þý^. — Og þu ert ekki hrifin af undirlæéjuhætti gagnvart erlend- um stórveldum? — Nei, allt slíkt ber að for- dæma, og þá er sama hvert þeirra á í hlut. Við erum frið- söm þjóð hér á Islandi, og við viljum fá að eiga okkar land sem mest í friði. Til dæmis álít ég, að vegna þjóðernis okkar og menningar væri langæskilegast að losna við bandaríska varnar- liðið hið fyrsta úr landinu. Að minnsta kosti finnst mér ófært að varnarliðið fái aðstöðu til að / koma sér upp kafbátastöð í Hval- firði. Yfirleitt er þetta hervernd- armál í heild hið mesta vand- ræðamál, og ég óttast að við för- um að verða of sein að losna við herinn. Nú verður að vinda bráð- an bug að því að gera áætlun um brottför hans á allra næstu ár- um, og því má maður ekki trúa að óreyndu að Bandaríkjamenn neiti að treysta okkur, banda- mönnum sínum í Atlantshafs- bandalaginu, fyrir nauðsynlegri gæzlu radarstöðvanna, ef banda- lagið þá ekki leysist upp. — Hvernig lízt þér á starf ungra Framsóknarmanna undan- íarið? — Ég er mjög ánægð með það starf, enda skilst mér, að SUF hafi tæplega starfað af meiri þrótti áður. Undir forystu Bald- urs Oskarssonar hafa samtökin samstillt kraftana á einkar æski- legan hátt með prýðilegum ár- angri. Ferðalög stjórnarinnar um landið hafa verið mjög vel heppnuð og vakið mikla athygli. Yfirleitt hefur maður séð það á boðskap ungra Framsóknar- manna, að þeir bera hag þjóðar- innar allrar fyrir brjósti, en það gera Sjálfstæðismenn ekki. Ég hef líka orðið þess vör, að til- lögurnar um gerð fjögurra ára áætlunar um brottför hersins hafa vakið sérstaka athygli, enda sjá æ fleiri, að þar er um að ræða einu raunhæfu leiðina til að losna við herinn á næstunni. — Hvað viltu svo segja að lokum við háttvirta kjósendur, Guðríður? — Það er bæði óvenjulegt og óheppilegt, að íhaldsstjóm skuli hafa setið svona lengi að völd- um í landinu, — enginn dregur í efa að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að heita má einn um að ráða ferðinni —, og nú verð- ur stefnubreyting að koma til. Verðbólguþróun síðustu ára hef- ur skapað geysimikla spillingu í þjóðfélaginu, bæði í húsnæðis- málum og á ýmsum öðrum svið- um, óg stjórnarflokkamir bera í þeim efnum þunga ábyrgð. Ég vil því að lokum, segir ungfrú Guðríður Eiríksdóttir, hvetja allt hugsandi fólk til að fylkja sér um Framsóknarflokkinn í kosn- ingunum og stuðla þannig að því með atkvæði sínu að teknir verði upp heilbrigðari stjórnar- hættir í fjármálum þjóðarinnar og jafnframt íslenzkari stefna að því er varðar samskipti við er- lenda aðila. Dagur þakkar ungfrú Guðríði mikilíega greið og góð svör og óskar henni allra heilla. Bj. T. AKUREYRARPRESTAKALL. Messur falla niður næstkom- andi sunnudag vegna ferm- ingarbarnamótsins. — Sókn- arprestar. GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundar þingaprestakalli. — Saurbæ, sunnudaginn 4. júní kl. 1.30. VDE) bjóðum yður að sjá hina lifandi og hrífandi nýju lit— kvikmynd GUÐ GETUR EKKI F VRIÐ MEÐ LYGI. Sjáið sögu Biblíunnar frá 1. Mósebók til Opinberunarbók- arinnar. Sjáið skýrar sann- anir um uppfyllingu biblíu- spádóma! Sjáið hvernig Biblí an getur hjálpað yður í dag! Sunnudaginn 4. júní kl. 15.00 að „Bjargi“ Hvannavöllum 10 Akureyri. Allt áhugasamt fólk velkomið. Ókeypis. — Vottar Jehóva. TRJAPLÖNTUSALA hjá Skóg ræktarfélagi Eyfirðinga er nú að hefjast eins og kemur fram í auglýsingu í blaðinu í dag. Hefur félagið til sölu ýmsar tegundir af trjáplönt- um og runnum. HAPPDRÆTTI Háskóla íslands vill minna þá, sem fara í sigl- ingar, á að endurnýja áður en þeir fara. LEIÐRÉTTING. f frásögn af róðrarsveit pilta af Árskógs- strönd, fékk blaðið röng nöfn. Róðrarsveitina skipuðu þess- ir menn: Hörður Gunnarsson, Sigurður Konráðsson, Brynj- ar Baldvinsson, Eiríkur Krist valdsson, Vigfús Jóhannsson og Gunnlaugur Konráðsson. Leiðréttist þetta hér með. Þá er þess að geta að þetta er í fimmta sinn, sem róðrarmenn af Árskógsströnd vinna róðr- arkeppni Sjómannadagsins á Akureyri. é • S Ykkur öllum, œttingjum og yinum, sem heimsóttup mig óg glödduð með gjöfuriújþíkeyiiimVbl&mum og, * í I ánægjulegri samverustund, á lÖMm afmælinu þann 23. maí, færi ég hjartans þökk og bið ykkur allra heilla. INDÍANA SIGURÐARDÓTTIR, Ártúni. f i 1 f Innilega þakka ég börnum minum og öðrum er f minntust mín á 70 ára afmæli minu sl. haust með Jilýj- % | um kveðjum, gjöfum og skeytum. — Lifið heil! &SÍ2 f MAGÐALENA SIGURGEIRSDÓTTIR, Hvammi. f f f Hjartkær móðir okkar, VIGFÚSA VIGFÚSDÓTTIR, Helgamagrastræti 46, sem lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 25. maí sl., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 2- júní kl. 1.30 e. h. Fyrir hönd aðstandenda. Böm hinnar látnu. Útför ÞÓREYJAR HELGADÓTTUR, fyrr húsfreyju að Hranastöðum, fer fram að Gmnd föstudaginn 2. júní, kl. 2 e. h. Vandamenn. HJÚSKAPUR. Hinn 28. maí voru gefin saman í hjóna- band ungfrú Kristín Björns- dóttir, sjúkraliði, og Stein- grímur Steingrímsson, sjó- maður. Heimili þeirra verður að Ránargötu 13, Akureyri. HJÚSKAPUR. Laugardaginn 27. maí voru gefin saman í Ólafsfjarðarkirkju af sr. Ing- þóri Indriðasyni Kristín R. Trampe, Hafnarstræti 29, Ak ureyri, og Björn Halldórsson, Strandgötu 9, Ólafsfirði. BRÚÐHJÓN. Á Sjómannadag- inn voru gefin saman í hjóna- band brúðhjónin ungfrú Sig- ríður Kristjana Kristjáns- dóttir og Guðmundur Hreinn Árnason sjómaður. Heimili þeirra er að Eyrarlandsvegi 8, Akureyri. BRÚÐHJÓN. Sl. laugardag voru gefin saman í hjóna- band ungfrú Sigrún Vignis- dóttir og John Philips Jenkins píanóleikari. Hiemili þeirra verður að Munkaþver- árstræti 19, Akureyri. I.O.G.T. STÚKAN BRYNJA NO. 99 heldur fund að Bjargi fimmtudaginn 1. júní kl. 8.30. Dagskrá: Venjuleg fundar- störf. Inntaka nýliða. Lagðir fram reikningar Varðborgar. Kosið í framkvæmdanefnd. Kaffi eftir fundinn. HENRY HINRIKSSON, Gránu félagsgötu 33, hefur beðið blaðið að færa þakkir þeim fjölmörgu, sem sýndu hjálp- semi og vinarhug eftir hús- brunann (sjá. 42. tbl), enn- fremur manninum, sem lok- aði fyrir olíuleiðsluna að mið stöð hússins og hann veit ekki hver er. Simdmót á Akurevri m! á sunnudaginn SUNDFÉLAGIÐ ÓÐINN efni-v til sundmóts í Sundlaúg Ákur- eyrar á sunnudaginn kl. 2 e. h. Keppt verður í öllum helztu keppnisgreinum sundsins og reynt við nokkur Akureyrar- met. Er þessu sundmóti ætlað að reyna að koma verulegu lífi í sundiðkanir hér í bænum. Þátt takendur í móinu verða um 20 talsins, þar á meðal allir helztu sundmenn staðarins. Aðgangur kostar 10 krónur fyrir böm og 25 krónur fyrir fullorðna. □ SÓLSKÝLI hefur nú verið sett upp sunnan við sundlaug bæjarins og getur fjöldi manns legið þar í sólbaði og notið hvíldar. Sundbolir margar stærðir TERYLENE-KÁPUR 34 sídd MARKAÐURINN SÍMI 1-12-61

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.