Dagur - 31.05.1967, Qupperneq 7
7
- Bæfa verður menntunaraðstöðu
(Framhald af blaðsíðu 4)
yrðir. Hver hluti um sig tekur
því einn fjórða hluta af vetrin-
um fyrir hvern einstakan nem-
anda. Þótt ég kenni nú mat-
reiðsluna ætlaði ég ekki að taka
þann hlutann í upphafi, þótt
þannig hafi farið.
— Hvaðan koma nemendurn-
ir helzt í þennan skóla?
— Þeir koma mjög víða að af
landinu, þó sízt af Suðurlands-
undirlendinu, en samt gjarna
lengra að, t. d. frá Vestfjörðum
og Austfjörðum. Stúlkur á Akur-
eyri sækja svo aftur mikið út
fyrir héraðið, t. d. til ísafjarðar
þessi árin á skólann þar. Yfirleitt
eru nemendurnir jöfnum höndum
úr sveitum og kaupstöðum.
— Hvorar eru betur undir
skólarm búnar, þær sem koma
úr sveitum eða hinar ur kaup-
stöðunum?
— Sveitastúlkurnar koma yfir-
leitt betur undirbúnar. Þær eru
vanari algengri heimilisvinnu og
kunna því fremur til verka. Hin-
ar hafa þá ef til vill fremur ver-
ið við barnagæzlu eða í búðar-
vinnu. Þó að margar stúlkurnar
séu vanar heimilisstörfum eru
þær samt ekki orðnar svo gaml-
ar þegar þær koma hingað (ald-
urinn er um 17—20 ára), að þær
séu orðnar bundnar ákveðnum
venjum. Þær eru því mjög leit-
andi og tiltölulega auðvelt að
leiðbeina þeim.
— Hvað finnst þér svo al-
mennt um uppeldi nemendanna,
sem þið fáiðl
— Auðvitað er ekki hægt að
gefa neitt ákveðið svar um það,
stúlkurnar eru innbyrðis gjör-
ólíkar að öllu sem varðar gáfur
og uppeldi. Því miður óttast ég
samt, að uppeldi hafi hrakað á
Islandi síöustu árin. Agann vant-
ar, og of mikið frjálsræði fyrir
ungmennið er skaðvænlegt að
mínum dómi. Það geta nefnilega
fáir alið sig upp sjálfir svo að
nokkurt lag verði á.
— Hvað finnst þér almennt
utn aðstöðu unélingartna í sveit-
unum tií að afla sér menntunar
nú á timum?
— Þa aðstöðu þarf að bæta
stórlega frá því sem nú er. Allir
eiga að hafa sem jafnasta að-
stöðu til að afla sér almennrar
undirstöðumenntunar, og ég álít
höfuðskilyrði, að allir fái hina
lögboðnu menntun, en á því er
víða misbrestur nú. Ég held líka
að óheppilegt sé að senda 14—
15 ára unglinga í kaupstað í
skóla. Heimavistarskólarnir, hér-
aðsskólarnir eins og Laugar í
Reykjadal og Reykir í Hrúta-
firði þyrftu að vera mun fleiri.
Um skólamál í dreifbýlinu hefur
auðvitað víða verið mjög hvim-
Til leigti er nýleg
4 HERBERGJA ÍBÚÐ
Upplýsingar gefnar í síma
1-12-92 fimmtudaginn 1.
júní kl. 20-22.
Upplýsingar ekki gefnar á
öðrum tíma.
leið hreppapólitík að því er
varðar staðsetningu skóla og
fleira í því sambandi, og það
hefur hamlað framkvæmdum.
Þetta nær reyndar til félagsheim-
ila ekki siður, t. d. er furðulegt
og óhagkvæmt að þrír hrepparn-
ir í Fram-Eyjafirði skuli hafa
hver sitt félagsheimili.
— Finnst þér þá að ríkið eigi
að hafa forgöngu um staðsetn-
ingu skóla og félagsheimila?
— Þess háttar ákvarðanir
verður auðvitað að taka í fullu
samráði við fulltrúa frá viðkom-
andi hreppum, en geti þeir ekki
komið sér saman, verða utanað-
komandi yfirvöld vitanlega að
skerast í leikinn.
— En svo við snúum okkur nú
að stjórnmálunum, viltu þá lýsa
því í fáum orðum, hvers vegna
þú styðiir einmitt Framsóknar-
flokkinn?
— Það er fyrst og fremst
vegna þess, að hann er þjóðleg-
astur íslenzkra stjórnmálaflokka,
enda tel ég mig hafa allríka
þjóðerniskennd. Framsóknar-
flokkurinn reynir að samræma
kenningar sínar íslenzkum að-
stæðum, en fer ekki eftir nein-
um erlendum kenningakerfum
lítt breyttum. Að vísu er sam-
eignarstefna kommúnismans svo
sem nógu falleg sem kenning, og
það væri mjög skemmtilegt, ef
hún væri framkvæma'nleg í
reynd, en svo er bara ekki,
mannkynið virðist ekki vera
nægilega þroskað til að það sé
unnt. Annars myndu sjálfsagt
fleiri aðhyllast þá stefnu, ef ekki
væri búið að búa til grýlu úr
orðinu kommúnisti. — Svo fylgi
ég Framsóknarflokknum ekki
síður vegna þess, að hann hugsar
mest allra flokka um hag allra
landsmanna, ekki aðeins þeirra,
sem á suðvesturhorninu .þý^.
— Og þu ert ekki hrifin af
undirlæéjuhætti gagnvart erlend-
um stórveldum?
— Nei, allt slíkt ber að for-
dæma, og þá er sama hvert
þeirra á í hlut. Við erum frið-
söm þjóð hér á Islandi, og við
viljum fá að eiga okkar land sem
mest í friði. Til dæmis álít ég,
að vegna þjóðernis okkar og
menningar væri langæskilegast
að losna við bandaríska varnar-
liðið hið fyrsta úr landinu. Að
minnsta kosti finnst mér ófært
að varnarliðið fái aðstöðu til að
/
koma sér upp kafbátastöð í Hval-
firði. Yfirleitt er þetta hervernd-
armál í heild hið mesta vand-
ræðamál, og ég óttast að við för-
um að verða of sein að losna við
herinn. Nú verður að vinda bráð-
an bug að því að gera áætlun um
brottför hans á allra næstu ár-
um, og því má maður ekki trúa
að óreyndu að Bandaríkjamenn
neiti að treysta okkur, banda-
mönnum sínum í Atlantshafs-
bandalaginu, fyrir nauðsynlegri
gæzlu radarstöðvanna, ef banda-
lagið þá ekki leysist upp.
— Hvernig lízt þér á starf
ungra Framsóknarmanna undan-
íarið?
— Ég er mjög ánægð með það
starf, enda skilst mér, að SUF
hafi tæplega starfað af meiri
þrótti áður. Undir forystu Bald-
urs Oskarssonar hafa samtökin
samstillt kraftana á einkar æski-
legan hátt með prýðilegum ár-
angri. Ferðalög stjórnarinnar um
landið hafa verið mjög vel
heppnuð og vakið mikla athygli.
Yfirleitt hefur maður séð það á
boðskap ungra Framsóknar-
manna, að þeir bera hag þjóðar-
innar allrar fyrir brjósti, en það
gera Sjálfstæðismenn ekki. Ég
hef líka orðið þess vör, að til-
lögurnar um gerð fjögurra ára
áætlunar um brottför hersins
hafa vakið sérstaka athygli, enda
sjá æ fleiri, að þar er um að
ræða einu raunhæfu leiðina til
að losna við herinn á næstunni.
— Hvað viltu svo segja að
lokum við háttvirta kjósendur,
Guðríður?
— Það er bæði óvenjulegt og
óheppilegt, að íhaldsstjóm skuli
hafa setið svona lengi að völd-
um í landinu, — enginn dregur í
efa að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur verið að heita má einn um
að ráða ferðinni —, og nú verð-
ur stefnubreyting að koma til.
Verðbólguþróun síðustu ára hef-
ur skapað geysimikla spillingu í
þjóðfélaginu, bæði í húsnæðis-
málum og á ýmsum öðrum svið-
um, óg stjórnarflokkamir bera í
þeim efnum þunga ábyrgð. Ég
vil því að lokum, segir ungfrú
Guðríður Eiríksdóttir, hvetja allt
hugsandi fólk til að fylkja sér
um Framsóknarflokkinn í kosn-
ingunum og stuðla þannig að því
með atkvæði sínu að teknir
verði upp heilbrigðari stjórnar-
hættir í fjármálum þjóðarinnar
og jafnframt íslenzkari stefna að
því er varðar samskipti við er-
lenda aðila.
Dagur þakkar ungfrú Guðríði
mikilíega greið og góð svör og
óskar henni allra heilla. Bj. T.
AKUREYRARPRESTAKALL.
Messur falla niður næstkom-
andi sunnudag vegna ferm-
ingarbarnamótsins. — Sókn-
arprestar.
GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundar
þingaprestakalli. — Saurbæ,
sunnudaginn 4. júní kl. 1.30.
VDE) bjóðum yður að sjá hina
lifandi og hrífandi nýju lit—
kvikmynd GUÐ GETUR
EKKI F VRIÐ MEÐ LYGI.
Sjáið sögu Biblíunnar frá 1.
Mósebók til Opinberunarbók-
arinnar. Sjáið skýrar sann-
anir um uppfyllingu biblíu-
spádóma! Sjáið hvernig Biblí
an getur hjálpað yður í dag!
Sunnudaginn 4. júní kl. 15.00
að „Bjargi“ Hvannavöllum 10
Akureyri. Allt áhugasamt
fólk velkomið. Ókeypis. —
Vottar Jehóva.
TRJAPLÖNTUSALA hjá Skóg
ræktarfélagi Eyfirðinga er nú
að hefjast eins og kemur
fram í auglýsingu í blaðinu í
dag. Hefur félagið til sölu
ýmsar tegundir af trjáplönt-
um og runnum.
HAPPDRÆTTI Háskóla íslands
vill minna þá, sem fara í sigl-
ingar, á að endurnýja áður
en þeir fara.
LEIÐRÉTTING. f frásögn af
róðrarsveit pilta af Árskógs-
strönd, fékk blaðið röng nöfn.
Róðrarsveitina skipuðu þess-
ir menn: Hörður Gunnarsson,
Sigurður Konráðsson, Brynj-
ar Baldvinsson, Eiríkur Krist
valdsson, Vigfús Jóhannsson
og Gunnlaugur Konráðsson.
Leiðréttist þetta hér með. Þá
er þess að geta að þetta er í
fimmta sinn, sem róðrarmenn
af Árskógsströnd vinna róðr-
arkeppni Sjómannadagsins á
Akureyri.
é •
S Ykkur öllum, œttingjum og yinum, sem heimsóttup
mig óg glödduð með gjöfuriújþíkeyiiimVbl&mum og, *
í
I
ánægjulegri samverustund, á lÖMm afmælinu þann 23.
maí, færi ég hjartans þökk og bið ykkur allra heilla.
INDÍANA SIGURÐARDÓTTIR, Ártúni.
f
i
1
f
Innilega þakka ég börnum minum og öðrum er f
minntust mín á 70 ára afmæli minu sl. haust með Jilýj- %
| um kveðjum, gjöfum og skeytum. — Lifið heil!
&SÍ2
f MAGÐALENA SIGURGEIRSDÓTTIR, Hvammi. f
f f
Hjartkær móðir okkar,
VIGFÚSA VIGFÚSDÓTTIR,
Helgamagrastræti 46,
sem lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 25. maí
sl., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
2- júní kl. 1.30 e. h.
Fyrir hönd aðstandenda.
Böm hinnar látnu.
Útför
ÞÓREYJAR HELGADÓTTUR,
fyrr húsfreyju að Hranastöðum, fer fram að Gmnd
föstudaginn 2. júní, kl. 2 e. h.
Vandamenn.
HJÚSKAPUR. Hinn 28. maí
voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Kristín Björns-
dóttir, sjúkraliði, og Stein-
grímur Steingrímsson, sjó-
maður. Heimili þeirra verður
að Ránargötu 13, Akureyri.
HJÚSKAPUR. Laugardaginn
27. maí voru gefin saman í
Ólafsfjarðarkirkju af sr. Ing-
þóri Indriðasyni Kristín R.
Trampe, Hafnarstræti 29, Ak
ureyri, og Björn Halldórsson,
Strandgötu 9, Ólafsfirði.
BRÚÐHJÓN. Á Sjómannadag-
inn voru gefin saman í hjóna-
band brúðhjónin ungfrú Sig-
ríður Kristjana Kristjáns-
dóttir og Guðmundur Hreinn
Árnason sjómaður. Heimili
þeirra er að Eyrarlandsvegi 8,
Akureyri.
BRÚÐHJÓN. Sl. laugardag
voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Sigrún Vignis-
dóttir og John Philips
Jenkins píanóleikari. Hiemili
þeirra verður að Munkaþver-
árstræti 19, Akureyri.
I.O.G.T. STÚKAN BRYNJA
NO. 99 heldur fund að Bjargi
fimmtudaginn 1. júní kl. 8.30.
Dagskrá: Venjuleg fundar-
störf. Inntaka nýliða. Lagðir
fram reikningar Varðborgar.
Kosið í framkvæmdanefnd.
Kaffi eftir fundinn.
HENRY HINRIKSSON, Gránu
félagsgötu 33, hefur beðið
blaðið að færa þakkir þeim
fjölmörgu, sem sýndu hjálp-
semi og vinarhug eftir hús-
brunann (sjá. 42. tbl), enn-
fremur manninum, sem lok-
aði fyrir olíuleiðsluna að mið
stöð hússins og hann veit
ekki hver er.
Simdmót á Akurevri
m!
á sunnudaginn
SUNDFÉLAGIÐ ÓÐINN efni-v
til sundmóts í Sundlaúg Ákur-
eyrar á sunnudaginn kl. 2 e. h.
Keppt verður í öllum helztu
keppnisgreinum sundsins og
reynt við nokkur Akureyrar-
met. Er þessu sundmóti ætlað
að reyna að koma verulegu lífi
í sundiðkanir hér í bænum. Þátt
takendur í móinu verða um 20
talsins, þar á meðal allir helztu
sundmenn staðarins. Aðgangur
kostar 10 krónur fyrir böm og
25 krónur fyrir fullorðna. □
SÓLSKÝLI
hefur nú verið sett upp sunnan
við sundlaug bæjarins og getur
fjöldi manns legið þar í sólbaði
og notið hvíldar.
Sundbolir
margar stærðir
TERYLENE-KÁPUR
34 sídd
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61