Dagur - 10.06.1967, Page 2
:
I
2
óðin lifir ekki án landbúnaðarins
Viðtal við Odd Gmrnarsson á Dagverðareyri
VIÐ hiitum nýlega að máli ung
an mann, Odd Gunnarsson á
Dagverðareyri í Gíæsibæjar-
hreppi. Hann ætlar að svara hér
láeinum spumingum.
— Mjólkurframleiðslan er aS
minnka eins og kunnugt er, og
þaS kemur mörgum vitanlega illa
að þurfa að draga saman seglin.
Auðvitað kemur bændum heldur
— Hvað viltu segja okkut at
félagslífinu í þinni sveit?
— Ég hef starfað ofurlítið í
■ungmannafélaginu, og sótt þing
UMSE á þess vegum. Það haml-
ar þó félagsstarfsemi hjá okkur,
i að hásnæði skortir, því að sam-
i komuhúsið ofan við Skjaldarvík
í er bæði lítið og orðið gamalt.
j — Hafið þið í hyggju að reyna
j að bæta úr þessu?
j — Það hefur iengi staðið til.
Talið var athugandi að byggja
sameiginiega fél.heimili þriggja
hreppa á Laugalandi á Þelamörk,
en nú er kominn þar skóli, og að
mörgu leyti óheppilegt aö~félags
heimili rísi við hliðina á allstór-
, um skóla. Nú kann að vera hugs-
anlegt, að við látum okkur nægja
að byggja nýtt, en lítið samkomu
hús í Glæsibæjarhreppi.
; — Svo ertu við búskapinn?
! — Ég vinn við bú föður mír.s
á Dagverðareyri. Við erum með
meðalstórt bú eftir því sem gerist
hér um sveitir. Tíðarfarið hefur
reynzt okkur erfitt síðustu miss-
erin, ekki síður en öðrum bænd-
um. Við urðum að kaupa mjög
mikið kjarnfóður í vor, enda sauð
fé á gjöf út maímánud.
— Hvernig lízt þér á framtíð-
arhorfurnar?
Oddur Gurmarsson.
ekki vel, að verð sjávarafurða
skuli lækka, því að við það
minnkar kaupgetan í kaupstöð-
unum.
— Hvernig firmst þér hfjóðið
í bændum í garð ríkisstjórnar-
innar?
— Það er vitanlega misjafnt,
en þó held ég að fæstir þeirra
reyni að mæla stefnu Alþýðu-
flokksins - bót. Því eru takmörk
sett, hvað fólki má fækka mikið
í sveitunum, og víst er um það,
að islenzka þjóðfélagið kemst
ekki af án landbúnaðar. Mörg
búin eru vitanlega of lítil, en þeir
sem með þau búa stunda þá líka
oft einhverja aukavinnu. Ein og
ein smájörð getur farið í eyði að
skaðlausu, en ekki heii byggðar-
lög. Þegar fólkinu fækkar veru-
lega, fer líka að verða erfitt að
halda uppi félagslífinu, sem þó
er svo nauðsynlegt að gert sé, ef
menn eiga að una um kyrrt. Raun
ar býst ég ekki við að byggðir
Eyjafjarðar eyðist í bili. Mér
heyrist á bændum, segir Oddur
Gunnarsson að lokum, að flestir
þeirra telji sig helzt geta treyst
Framsóknarflokknum til að gæta
hagsmuna sinna svo að viðunandi
sé.
Dagur þakkar Oddi svörin.
Bj. T.
YFIRLYSING
FRÁ ENDURSKOÐENDUM KEA
SÍÐARI DAGINN, sem aðalfundur KEA stóð yfir birtist í
blaðinu „Verkamaðurinn“ greinarkorn eftir „félaga nr. A-
1408“, þar sem látið er liggja að því að laun erindreka Fram-
sókuarflokksins hafi um árabil verið greitt úr rekstursreikn-
ingi KEA. Við sem kjörnir erum endurskoðendur viljum
lýsa yfir að þetta eru staðlausir stafir.
En af þessu tilefni viljum við benda „félaga nr. A-1408“ á,
að fjöldi manna og félaga hefir opinn viðskiptareikning og
ávísa þar á innistæður, hvort lieldur er vegna greiðslu vinnu
launa eða annars.
Þetta þekkja sennilega bændur bezt enda nota þeir sér
þetta í ríkum mæli. Teljum við ekkert efamál, að allir stjórn-
málaflokkarnir geti opnað viðskiptareikninga í KEA og greitt
laun erindreka sinna úr þeim.
Hitt teljum við hins vegar alvarlegt fhugunarefni að „fé-
lagi nr. A-1408“, sem mun hafa verið fulltrúi á aðalfundin-
um, skyldi ekki láta þessa athugasemd koma fram þar, hafi
hann raunverulega trúað að hún væri á rökum reist.
Akureyri, 8. júní 1967
Sigurður Óli Brynjólfsson,
Guðmundur Eiðsson.
-................. ........... -
Leiábemingar fyrir kjósenJur
í YFIRKJÖRSTJÓRN Norður-
landskjöz'dæmis eystra eru:
Ragnar Steinbergsson formað-
ur, Jóhann Skaptason, Einar
Jónsson, Sigurður M. Helgason
og Brynjólfur Sveinsson.
í yfirkjörstjórn á Akureyi'i
eru: Sigurður Ringsted, Hallur
Sigurbjörn3son og Hallgrímur
Vilhjálmsson.
Á Akureyri verður kosið í
sjö kjördeildum að þessu sinni.
Kosning fer fram í Oddeyrar-
skólanum (gengið inn um suð-
urdyr) og hefst kl. 10 f. h. Kjör-
stað verður lokað kl. 23.00
.(11.00 e. h.)
Á kjörstað verða festar upp
leiðbeiningar um kosningarnar,
og í anddyri skólans verður
fólk, sem veitir leiðbeiningar.
.Skipting eftir götum .í kjör-
deildir á Akureyri er sem hér
segir:
1. Kjördeild:
Aðalstræti, Akurgerði, Álfa-
byggð, Ásabyggð, Áshlíð, Ásveg
ur, Austurbyggð, Barðstún,
Byggðavegy.r,, Bjarkarstígur og
Bjarmastígur.-, - ý
2. Kjördeild:
Brekkugata, Eiðsvallagata,
Einholt, Eyrarlandsvegur, Eyrar
vegur, Engimýri, Fagrahlíð,
Fjólugata, Fróðasund, Geisla-
gata, Gilsbakkavegur, Glerár-
eyrar, Glerárgata og Goða-
byggð.
3. Kjördeild:
Gránufélagsgata, Grenivellir,
Grundargata, Grænagata,
Grænamýri, Hafnarstræti, Ham
arstígur og Helgamagrastræti.
4. Kjördeild:
Hj altey rargata, Hlíðargata,
Hólabraut, Holtagata, Hrafna-
gilsstræti, Hríseyjargata,
Hvannavellir, Kaldbaksgata,
Kambsmýri, Kaupvangsstræti,
Klappastígur, Klettaborg, Kotár
gerði, Krabbastígut', Kringlu-
mýri, Langahlíð, Langamýri,
Langholt, Laugargata, Laxa-
gata, Lyngholt, Lundargata og
Lækjargata.
> >.»> • •
Lögbergsgata, Lögmannshlíð,
Matthíasargata, Mýrarvegur,
Munkaþverárstræti, Möðruvalla
stræti, Norðurbyggð, Norður-
gata, Oddagata, Oddeyrargata,
Ráðhússtígur, Ráðhústorg og
Ránargata.
6. Kjördeild:
Rauðamýri, Reynivellir,
Skarðshlíð, Skipagata, Skóla-
Á UNDANFÖRNUM ÁRUM
hefur 17. júní nefnd Akur-
eyrarbæjar gert ítrekaðar til-
raunir til þess að koma því til
leiðar, að vín sé ekki haft um
hönd hátíðisdaginn 17. júní —
hvorki í samkomuhúsum bæjar-
ins eða uta þeirra — byggt á
þeirri reynslu, að ölvun á al-
mannafæri er með öllu óæskilegt
og oft til stórra leiðinda og sam-
rýmist ekki þeim þjóðlega virðu-
leik, sem yfir deginum á að
hvíla.
Nefndin sneri sér því til bæj-
arstjómarinnar með eftirfarandi
bréf, dags. 26. maí s.l.:
i.Bæjarstjórn Akureyrar,
Akureyri.
17. júní-nefnd telur það grund-
vallaratriði fyrir því, að hátíða-
höld þjóðhátíðardaginn fari fram
á viðeigandi hátt hér í bænum,
að vínbarir og vínveitingahús
verði lokuð meðan hátíðahöldin
standa yfir, þ. e. allan 17. júní,
frá hádegi til kl. 02 18. júní.
Nefndin væntir þess, að bæjar-
stígur, Sniðgata, Sólvellir, Spít-
'alkvégúr,’' Stafholt, " Steírfholt,'
Stekkjargerði, Stórholt, Strand-
gata, Suðurbyggð og Vana-
byggð.
•I r ( .
7. Kjördeild:
Víðimýri, Víðivellir, Þing-
vallastræti, Þórunnarstræti,
Þverholt, Ægisgata og býlin,
innan og utan Glerár. □
stjórn taki þetta erindi til vel-
viljaðrar afgreiðslu.
„Virðingarfyllst.“
Bæjarstjórnin kom ekki til móts
við nefndina.
Nefndin hefur einnig snúið sér
bréflega til húsnefndar Sjálfstæð-
ishússins, en án árangurs. Enn-
fremur hefur nefndin leitað til
bæjarfógetans á Akureyri, með
tilmælum um að vínveitingar
verði ekki leyfðar umræddan
dag. Jákvæðar undirtektir hafa
ekki fengizt.
Þó segir svo í 14. gr. áfengis-
laganna:
„Lögreglustjórum er heimilt
að loka áfengisútsölu eða banna
vínveitingar á veitingastöðum,
sem leyfi hafa til áfengisveit-
inga, fyrirvaralaust um lengri
eða skemmri tíma, þegar sérstak-
lega stendur á.“
Þar sem viðkomandi aðilar
hafa ekki orðið við beiðni nefnd-
arinnar, snýr hún sér til almenn-
ings og væntir þess, að bæjarbú-
ar setji metnað sinn í það, að
halda vínlausa þjóðhátíð.
Dalvíkingar!
Kosiimgaskrifstofa Framsóknarflokksias
á koseingadaginn er í SÓLGÖRÐUM.
Sími 6-12-98.
FRÁ ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND
MARGIR MEÐ GÓÐ-
AN SÍLDARAFLA
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Neskaupstað fyrir hádegi í gær,
var vitað um 10 báta á leið til
lands, en þeir koma til Raufar-
hafnar, Vopnafjarðar, Seyðis-
fjarðar, Neskaupstaðar og Eski-
fjarðar. Bátarnir eru þessir:
Harpa RE með 290 lestir, Jör-
undur III með 300 lestir, Nátt-
fari ÞH með 280 lestir, Sæfari II
MK með 290 lestir, Haraldur AK
með 210 lestir, Þorsteinn RE
með 270 lestir, Seley SU með
300 lestir, Árni Magnússon GK
með 140 lestir, Reykjaborg RE
og Örn RE voru einnig á leiðinni
til lands með afla. Mikil síld er
á svæðinu en stendur djúpt og
kemur yfirleitt ekki upp fyrir 80
faðma.
Tveir bátar voru í gær á leið
með fyrstu síldina til Raufar-
hafnar, Sigurður Bjarnason EA
með 150 lestir og Haraldur frá
Akranesi með 210 lestir. Verk-
smiðjan á Raufarhöfn er tilbúin
til bræðslu, hin nýju löndunar-
tæki hennar verða nú notuð í
fyrsta skipti þegar bátarnir
koma. Löndunartækin eru þrjú
með samtals 360 lesta afköstum
á klukkustund. Bára frá Fá-
skrúðsfirði kom inn í fyrrakvöld
með fyrstu síldina sem barst til
Fáskrúðsfjarðar í sumar, 150
lestir. Verksmiðjan þar er tilbú-
in. að bræða.
- LEIFTURSÓKN
(Framhald af blaðsíðu 1)
um fyrir botni Miðjarðarhafsins
væri undir samningum Israels-
manna og Araba komin.
Á viðræðufundi brezka útvarps
ins í fyrrakvöld, þar sem kunn-
áttumenn sögðu álit sitt á horf-
unum í löndunum fyrir botni
Miðjarðarhafs, var m. a. sagt, að
trúlega myndu Israelsmenn nú
krefjast þess, að Akabaflói yrði
lýst alþjóða siglingaleið, enn-
fremur, að Arabarxkin viður-
kenndu tilverurétt og sjálfstæði
Israels. Loks myndu Israels-
menn lýsa yfir því, að þeir
myndu ekki láta af hendi virkið
mikla við mynni Akabaflóa, né
heldur Jórdanska hluta Jerúsal-
em.
Það er stórsigur fyrir Israels-
menn, að höfuðandstæðingar
þeirra, Egyptar, Jórdaníumenn
og Sýrlendingar hafa tilkynnt, að
þeir fallist á tillögur öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna um vopna-
hlé, eftir fárra daga viðureign. □