Dagur - 10.06.1967, Síða 6
SMÁTT C (G STÓRT Fjárlögin hafa hækkað um 1200 millj. kr. á
Nigrún jiQuröðrdótlír (Framhald af blaðsíðu 8.) stöðu þeir taki til framboðslista
frá Torfufelli stæðishúsinu. Sl. laugardags- Hannibals Valdemarssonar. Og
kvöld reyndist aðgangseyrir þar enn er allt í óvissu og ræðst á óvenju liár. Kom í ljós eftir að Alþingi, hversu með Hannibals fveim ráðherraárum
Fædd 13. júlí 1871 - Dáin 3. júní 1967 inn var komið, að Alþýðuflokk- atkvæðin verður farið. Kjósend Magmísar Jónssonar.
urinn hélt skemmtun, en ekki ur Alþýðubandalagsins vita því —
Sigurðardóttur frá Torfufelli, er
lézt hinn 3. júní sl. nær 96 ára að
aldri. Hún var fædd að Gilsá í
Eyjafirði og dvaldi þar til 8 ára
aldurs en þá missti hún móður
sína og ólst eftir það upp á ýms-
um bæjum þar fram frá, síðast í
Melgerði.
Hún giftist Sigurði Sigurðssyni
frá Leyningi og bjuggu þau nær
allan sinn búskap í Torfufelli í
Saurbæjarhreppi.
Vorið er komið. Trén eru að
sprengja brumknappa sína og
upp úr moldinni gægjast frjóang-
ar, sem innan tíðar verða að lit-
skrúðugum blómum. Alls staðar
vakir hinn vaknandi gróður. Hún
Sigrún frá Torfufelli trúði á æsk-
una og vorið og því hlaut það að
verða á sólbjörtum vordegi, sem
hún kveddi sinn slitna jarðarbún-
ing. Eftir langa og lýjandi göngu
gekk hún inn í Ijósið og vorið í
sólskini og sunnanblæ. Þreytt
var hún orðin og hvíldina þráði
hún og mikil eigingirni væri að
fagna ekki nú, þegar hvíldartím-
inn er kominn.
Við sem miðaldra erum og
yngri þekkjum lítið til þeirrar
baráttu og þrauta, sem kynslóð
þessarar konu bjó við. Hún sagði
hógværlega, er ég spurði um ár-
in um síðustu aldamót:
„Þau voru stundum erfið og
ekki allt dans á rósum.“ Hvað í
þessum orðum fólst kom svo í
ljós við nánari kynningu og eftir-
grennslan.
I Torfufelli sér ekki til sólar
frá því um miðjan desember og
fram í janúar. Eitt árið í svart-
asta skammdeginu veiktust og
dóu tvö ung börn þeirra Torfn-
fellshjóna. Þau hjón höfðu engin
orð um söknuð sinn og sorg, en
þau lýstu þessu tímabili ævi
sinnar með þessum orðum:
„Aldrei urðum við endurkomu
sólarinnar fegnari en þennan vet-
ur.“
Þessi eina setning segir í raun
og veru langa og sára sögu þessa
myrka vetrar í lífi þeirra. En þó
hin jarðneska sól skyni ekki, þá
slokknaði ekki þeirra eigið trúar-
ijós, það lifði í sálum þessarar
kynslóðar og þess vegna gat hún
sigrast á ýmsum erfiðleikum sem
eirtstaklingarnir í dag eiga erfið-
ara með að mæta.
Nokkru áður en Sigrún dó kom
ég til hennar og las henni frá-
sögn frá þeirri vorveröld, sem
hún er nú horfin til. Hún fagn-
aði því sem þar vár lýst og hún
fagnaði yfir því að vera að hverfa
til þessarar fegurðar. Er ég
kvaddi hana tók hún hönd mína
í báðar sínar þreyttu hnýttu
hendur og bað hinn stóra föður
á hæðum að blessa allt sem ég
tæki mér fyrir hendur og allt sem
ur og heilbrigður fann mátt
þeirrar bænar og styrk þeirrar
sálar, sem bar hana fram, þó lík-
amsþrekið væri horfið.
Eg er ekki að skrifa eftirmæli.
Eg er að skrifa kveðju við tíma-
mót, þakkir fyrir að fá að þekkja
Sigrúnu þessi síðustu ár, þakkir
fyrir þá blessun sem hún veitti
mér með bænum sínum og
þreyttum höndum, þakkir fyrir
það sem þessi gamla kona og
hennar kynslóð gaf okkur sem
landið eigum í dag. Fólk þeirra
tíma barðist harðri baráttu við
myrkur, kulda og stundum skort.
Það þráði menntun en aðstæður
til sliks voru engar. En það
þraukaði, þakkaði og bað Guð
sinn um kraft og styrk til þess
að standa og það fékk hann. Það
bað Guð einnig um að allt sém
það sjálft fór á mis við mætti
falla börnum þeirra og barna-
börnum í skaut og í þrengingum £
áranna um síðustu aldamót lagði í
það grundvöll þeirra miklu lífs-
þægindatíma, sem síðustu ára-'
tugir hafa verið íslenzku þjóð-
inni.
Sigrúnu hlotnaðist sú mikla
gæfa að eyða síðustu árum sín-
um í návist fjögurra dætra sinni,
sem allar umvöfðu hana því
bezta, sem þær áttu til, en inni
á hinni duldu leið biðu hennar
þrjú börn og fyrir hugskotssjón-
um mínum get ég séð það augna-
blik er hún vaknar og rís upp af
rósabeðnum, sem öllum er búinn
við þangað komuna. Eg get séð
fyrir mér gleðiblik augna hennar,
sem um árabil hafa ekki greint
mun dags og nætur, er hún sér,
— fyrst Ijósið og svo ástvinina,
börnin, eiginmanninn og alla
hina. Og þess vegna segi ég ekki
við ástvini hennar sem eftir lifa:
Eg samhryggist ykkur, heldur:
Takið þátt í fögnuði þessarar
stundar. Gleðjist, því ljósrík sál
hefur lokið ströngum áfanga á
þroskaleið sinni, skilað erfiðu
prófi með mestu prýði,. þú að-
stæður væru oft erfiðar í jarð-
lífsins skóla.
Við mætumst síðar öll að
Guðs vilja á grænum leiðum ei-
lífðarvorsins eftir eina stund eða
áratugi.
Stefán Eiríksson.
anum. Hafði flokkur sá heldur
ekki auglýst það að einu ráði,
að hann hefði húsið. Er nú bros
legt að sjá í Alþýðumanninum,
að hann telur það sanna „sam-
heldni og sóknarhug jafnaðar-
manna“ að margir skyldu koma
í Sjálfstæðishúsið þetta laugar-
dagskvöld sem endranær.
HIN MESTA „GLATKISTA“
Lúðvik Jósefsson og Magnús
Kjartansson hafa neitað að gefa
um það yfirlýsingu hvaða af-
- SPORIN HRÆÐA
(Framhald af blaðsíðu 4)
þeirra, greiðsluþroti hraðfrysti-
húsa, samdrætti atvinnulífs í
ýmsum sjávarþorpum, skulda-
söfnun hjá bændum og þannig
mætti lengi telja. Það er líklega
þetta, sem fjármálaráðlierra
kallar bara vaxtarværki".
Og Ólafur spurði að lokum:
„Er nokkurt vit í því að fram
lengja umboð stjórnar, sem
reynzt hefur 'jafn vanmegnug til
forystu í aðalstefnumálum sín-
um? Er hægt að treysta henni
til að gera það á næstu fjórum
árum, sem hún hefur vanrækt
að gera eða mistekist að gera á
umliðnum átta árum?“ □
borðinu á morgun, t. d. liér í
kjördæminu, hvorn þeir eru að
kjósa, er þeir setja krossinn við
lista Alþýðubandalagsins. Það
er því meira en lítið ábyrgðar-
leysi af þeim, sem ihaldsand-
stæðingum og e. t. v. líka sem
kommúnistaandstæðingum, að
kasta atkvæðum sínum í þá
„glatkisku“.
BRÉFIN HANS BRAGA
Það hefur vakið eftirtekt, að
efsti maður á lista Alþýðuflokks
ins hér í kjördæminu skuli
byggja útvarpsræður sínar nú
fyrir kosningarnar á bréfum frá
„huldufólki“ og samtölum við
ónafngreinda menn, og þykir
slíkur ræðustíll óskemmtilegur.
En Bragi lætur ekki sitt eftir
liggja í bréfaskriítum, því hann
hefur látið Ijósprenta eigin-
handarskrift sína í fjöldafram-
Ieiðslu til að dreifa út meðal
ungra kjósenda, og vera má
líka, að hann hafi skrifað sjálf-
um sér það, sem hann var
að svara í útvarpinu. Hins vegar
virðist hann forðast að skrifa í
Alþýðumanninn, og er það
kannski skiljanlegt eins og á
stendur með það blað.
VINDSÆNGUR!
Má gera úr þeim stól; verð kr. 495.00.
Hver hefur efni á að eignast ekki sæng
fyrir svo hagstætt verð.
PÓSTSENDUM*
JARN- 06 GLERVÖRUDEILD
AKUREYRI! - NAGRENNI
Opnum í dag
laugardaginn 10. júní
verzlun með dömu-
°g
unglingafatnað
nýjustu tízku hverju sinni.
VERZLUNIN LOLÝ - Skipagötu 6
ATH. Opnum kl. 11 f. h. nema
laugardaga kl. 9.
TIL SÖLU:
Tvíbreiður SVEFNSÓFI
á 4.500 kr.
Stór FATASKÁPUR
úr tekki á 3.500 kr.
Einnig BARNARÚM og
BURÐARRÚM.
Uppl. í síma 2-13-60.
SPÁNARFERÐ!
Faraniði fyrir skemmti-
ferð til Spánar er til sölu.
Selst með afslartti.
Uppl. í síma 1-20-91.
Spírað GULLAUGA
útsæði til sölu.
Jónas Halldórsson,
Riíkelsstöðum.
BRIO-
BARNAVAGN
til sölu.
Uppl. í sírna 2-10-18.
HERBERGI ÓSKAST
til leigu.
Uppl. síma 1-23-00.
Biiftlifieiii
TIL SOLU:
LAND ROVER (diesel)
árg. 1962.
Klæddur innan og á nýj-
um dekkum.
Ekinn 80 þús. krn.
Bragi Benediktsson,
Grímsstöðum, Fjöllum.
TIL SÖLU:
BIFREIÐIN A-1931,
VAUXHAL VICTOR
’62 módel.
Uppl. hjá Björgvin,
Löngumýri 13, eða ;
Bjama Björgvinssyni,
Fosshóli.
Óska eftir ATVINNU
frá kl. 1—6. Vön verzlurj-
ar- og skxifsL;úústö.rlum.
Uppl. í síma 1-26-52.
Fjórtán ára dóttur míná
VANTA VINNU
í sumar.
Aðalsteinn Valdimarsson,
Raflagnadeild KEA
Heimasími 1-16-92