Dagur - 14.06.1967, Blaðsíða 7
7
Til sölu nýlegt reiðhjól
með hraðamæli og gírum
o. fl.
Uppl. í Reynivöllum 2,
sími 1-17-59.
Til söliu vel með farinn
Pedegree barnavagn.
Uppl. í síma 2-12-68 milli
kl. 1 og 3 á daginn.
RADlÓFÓNN.
Glæsilegur radíófónn til
söfu.
Uppl. í síma 1-26-31.
Til sölu vegna brottflutn-
ings: Borðstofuborð, sófi
og átta stólar.
Tækifærisverð.
Upplýsingar í Víðivöllum
12, eftir kl. 7 í kvöld og
annað kvöld.
FJÓRTÁN KÝR
til sölu.
Magniis Kjartansson,
Árgerði.
BARNAVAGN
til sölu.
Uppl. í síma 1-26-36, kl. 7
til 7,30 næstu kvöld.
T.IIL SÖLU
er Tan Sad bamavagn í
HAFNARSTRÆTI 21,
sími 1-24-14.
TIL SÖLU .
LÍTIL ÞVOTTAVÉL,
■ sem sýður — og nýlegur
ÞVOTAPOTTUR,
75 ltr. — Selst ódýrt.
Uppl. í síma 2-11-55
milli kl. 7 og 9 e. h.
5» t,| j fi
Þ*' H/.i ; iL’’
TAPAÐ
Svart karlmanns-
PENIN G A VESKI
með peningum og öku-
skírteini tapaðist s.l. laug-
ardagsikvöld. Vinsamlegast
skilist á lögreglustöðina
eða afgreiðslu Dags, gegn
fundarlaunum.
MORCUNKVEÐJA
til vinar míns,
Jóns Benediktssonar, prentara.
Guð þér veiti góðan dag,
gakktu ávallt heill um bæinn,
semdu margan sómabrag
sólskin drekk og fjallablæinn.
Sæmundur G. Jóhannesson.
- Engin eggjataka
(FramhUd af blaðsíðu 1).
ið í röð sem kosningu líkur svo
snemma. Kjörsókn var góð.
Varðskipið Þór sótti kjörkass-
ann í gærmorgun. S. S.
- Vegirnir slæmir
(Framhald af blaðsíðu 8).
borizt af síld. Síldin er komin
mjög norðarlega og leita skipin
frekar hafna á Norðurlandi.
Undirbúningur undir síldarsölt
un er ekki enn hafinn og á flest
um plönum er meira og minna
af fullum síldartunnum, með
óseljanlegri síld frá því í fyrra-
sumar. Lítið mun verða um
stórframkvæmdir hér ef þær
verða þá nokkrar. Hér eru flest
ir ennþá með hugann við Lagar
foss, sérstaklega eftir að fram
kom ný kostnaðaráætlun, sem
er hagstæðari heldur en sú sem
áður yar. Það er áætlað að þetta
verði 6500 kílóvatta orkuver og
kostar 76 millj. kr. samkvæmt
frumáætlun. Það verður knúið
fast á þetta mál af háifu heima-
manna. . _V.,S.
HÚSBYGGJENDUR!
Vil kaupa litla íbúð, helzt
á Suðurbrekkunni, fok-
helda eða tilbúna undir
‘ífóyÚk^ÞárUekki að vera
tilbúin fyrr en í haust.
Guðmundur Jóhanns,son,
sími 1-24-36.
LÍTIL ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu í sumar eða
haust. Fyrirframgreiðsla
ef óskað er.
Uppl. í síma 1-29-35,
milli kl. 7 og 8 á kvöldin.
Innilegt þakklæti til allra hinna mörgu nær og fjær,
sem sýndu samúð og vinarhug með kveðjum, blómum
og minningargjöfum við andlát og útför
AXELS BJÖRNSSONAR.
Eiginkona, dætur, tengdasynir og barnabörn.
Innilegasta þakklæti vottum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför
MAGNÚSAR ALBERTSSONAR
og heiðruðu minningu lians. Guð blessi yrkur öll.
Sveinbjörg K. Pálsdóttir. Sigrún Magnúsdóttir.
Páll Magnússon. Halla Jónsdóttir.
Álfheiður Magnúsdóttir. Helgi Sigfússon.
Sveinn Magnússon. Kolbrún Jóhannsdóttir.
og bamabörn.
Unnu verðlaun í rit-
gerðasamkeppni ÆSK
Á SL. VETRI efndi 7ESK í Hóla
stifti til ritgerðarsamkeppni
meðal ungs fólks um einhverja
dæmisögu Jesú eftir eigin vali.
Hlutskarpastur varð Kristján
Sigurbjömsson, Hlíð, Köldu-
Kristján Sigurbjörnsson.
Jón Guðni Kristjánsson.
kinn og fékk, hann fyrstu verð-
laun fyrir ritgerð sína. Önnur
verðlaun hlaut Jón Guðni Kristj
ánsson, Sigtrúnum, Ónguls-
staðahreppi. Báðir eru piltar
þessir í þriðja bekk M. A. Er
þetta í fyrsta sinn að ÆSK í
Hólastifti éfnir til slíkrar sam-
keppni, en •sen.niiega yerður því!
haldið áfram., „ . .
Á morgun leggja þessir ungu
menn af stað til Reykjavíkur,
dvelja þar nokkra daga og taka
á móti verðlaunum sínum úr
hendi biskupsins, herra Sigur-
björns Einarssonar. □
- Fyrsta síldin
(Framhald af blaðsíðu 1)
Hrólfur Ragnarsson, hafa keypt
stóra bifreið til vöruflutninga á
langleiðum og hefst rskstur
hennar nú um leið og Hálsa-
vegur verður fær. Enn er mikill
snjór á Öxarfjarðarheiði og veg
urinn um hana ófær.
Innvegið mjólkurmagn á
Mjólkurstöðinni á Þórshöfn hef
ur aukizt með vorinu. Æðar-
varp mun vera méira en í fyrra.
Grásleppuútgerð var ekki telj-
andi á þessu vori. G.
- Gísli Magnússon
(Framhald af blaðsíðu 4).
líta í bókina til að fullvissa mig
um, að ekki væri um rangminni
að ræða. Nú eru loforðin öll
löngu svikin — og þá er ekki
lengur neitt að lesa, segir Gísli
Magnússon í Eyhildarholti að
lokum, og þakkar blaðið við-
talið. □
MESSAÐ í Akureyrarkirkj u
n.k. sunnudag kl. 10.30 f. h.
Sálmar nr. 530 — 354 — 358
— 223 — 201. P. S.
AKUREYRINGAR! Brigader
Ingibjörg Jónsdóttir stjórnar
og talar á samkomu Hjálp-
ræðishersins n.k. sunnudag
kl. 8.30 e. h. Einnig mun Ing-
vald Hustad frá Noregi .taka
þátt í samkomunni. Allir vel.
komnir.
NÁMSKEIÐI Biblíuskólabama
á Akureyri lýkur 16. júní.
Foreldrar barnanna og áðrif,
sem áhuga hafa á þessum mál
um, eru velkomin- í Barna-
skóla Akureyrar. kl, 2.30 á
fimmtudaginn, þar sém.hám-
skeiðinu verður slitið og sýnd
föndurvinna bamanna. Þar
fer og fram aðalprógrammið.
Allir velkomnir.
FRÁ Ferðafélagi Akureyrar. —
Næsta ferð verður 16,—18.
júní, Ásbyrgi — Fofvöð —
Mývatnssv'eit. Allar upplýs-
ingar gefnar á skrifstofu fé-
lagsins á þriðju-, fimmlu- og
föstudagskvöldum frá 8—10,
sími 1-27-20.
- Baldur Helgason
(Framhald af blaðsíðu 5)
Var mikil óregla á mönnutn í
þínu ungdæmi?
Það var mjög misjafnt eins og
ætíð síðan. Sjálfur bragðaði ég
stöku sinnum vín til hressing-
ar. En mér varð það fljótt ljóst
af því sem ég sá í kringum mig,
að slíkt bæri að varast. Má því
segja að ég hafi yerið bindindis-
sinnaður og lengst af.bindindis-
maður á vín og tóbak.
Hvert var mesta keppikefli
ungra manna þegar þú varst að
alast upp? '•
Keppikefli okkar var það að
duga vel S.Aidíi?lIt®?KÍ« ‘§etn það’
var. Þá var hlegið aþ uppskafn-
ingum. Manngildið var metið
eftir verkunum, pg’-ætjá svp að
vera enn.
Hvað hefur þú stundað iðn
þína lengi á Akureyri?
Síðan 1921, er ég fljRti iunggð.
og hef stundað jöfnum höndum
bátasmíði og húsasmíði ©g sv-o
unnið ýmislegt a verkstæði
mínu.
Hvert er mesta happ þitt á
lífsleiðinni?
Hvað ég hefi kynnzt mörgu •
góðu fólki. Ég hefi .sevinlega
mætt góðu, hvar sem ég hefi
verið og er það ómetanlegt. Af
vandalausum met. églnest vin-.
áttu Sveinbjarnar Jónssonar 'í'
Ofnasmiðjunni.
Nokkuð dularfuílt boríð fyrir
þig?
Nei, en fyrrum di'eymdi mig
fyrir daglátum. Og ekki hefur
mig dreymt um úrslit'koshing-
anna. Spádómar og draumar
eru svo sem ágætir, „en það er
nú einu sinni svo, að við, hátt-
virtir kjósendur, ráðum þann
dag sem kosið er. Tæplega sit
ég heima, verði ég heill heilsu,
enda eiga memi að nota atkvæð
isrétt slnn, segir Baldur að lok-
um, og þakkar blaðið við talið.
E. D.
HJÓNAEFNI. Á Sjómannadag-
inn opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Eygló Ingimarsdóttir,
Hrísey og Ámi Kristinsson.
sjómaður, Hrísey.
BRÚÐHJÓN. Nýléga voru gef-
in saman j hjónaband Soili
Hellman læknanemi og Sig-
fús Karl Erlingsson viðskipta
fræðingur frá Akureyri. Brúð
kaupið fór fram í Helsingfors
en heimili þeirra e,r Álfheim-
ar 26, Reykjavík.
SYSTRA- og BRÆÐRABRÚÐ
KAUP. Þann 10. júní sl. voru
gefin saman í hjónaband í
Akureyrai’kirkju brúðhjónin
ungfrú Anna Jóhannesdóttir
sjúkraliði og Smári Helgason
bóndi, Árbæ, Hrafnagils-
hreppi, og brúðhjónin Ema
Guðrún Jóhannesdóttir
sjúkraliði og Ketill Helgason
bóndi, Finnastöðum, Hrafna-
gilshreppi. — Systurnar eru
frá Stíflu, Akureyri.
NONNAHÚS verður opið laug-
ardaga og sunnudaga fram að
17. júní kl. 2—4 e. h. Síðan
daglega á sama tíma.
DAVIÐSHÚS verður opnað
fimmtudaginn 15. júní og
verður opið daglega kl. 5—7
eftir hádegi.
MALBIKUN
við Akui-eyrarflugvöll er að
hefjast og verða malbikaðir 75Ó
metr-ar af flugbrautinni. Breidd
30 metrar. I fyrra voru þar mal
bikaðir 500 metrar. □
FLÆÐIR YFIR VEG-
INN HJÁ VÖLLUM
í GÆR flæddi vatn yfir veginn
hjá Völlum í Hólmunum í
Skagafirði og var ófært bif-
riúðum. Sama dag var opnað
fyrir allri umferð á Vaðlaheiði
og Fljótsheiði. □
Töluverður lax í Laxá
1 VIÐTALI við Laxamýri í gær,
hafði blaðið fréttir af því, að
mikið hefði sézt af laxi í Laxá
undanfama daga og strax fyrsta
veiðidaginn 10. júní komu þrír
laxar á land.
Áin er í vexti og dálítið skol-
lituð, en veiðimenn, sem þessa
dagana eru frá Húsavík, telja
veiðihorfur allgóðar að þessu
sinni. □
nn
} TÖSKUR l
enskar og hollenzkar
FYRIR17. JLJNÍ:
Kápur, kjólar,
hanzkar og slæður
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61