Dagur - 02.09.1967, Side 1
HOTEL Horbergis-
pantanir.
Ferða-
skrifstoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
Dagur
L. árg. — Akureyri, laugardaginn 2. septeniber 1967 — 58. tölubL
Ferðaskrifstofan
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
FLYTJA SÍLD í KÆLDUM PÆKLI
í BLAÐINU Fiskeren er í síð-
asta mánuði rætt um nýtt fersk
síldarflutningaskip Norðmanna
„Kloster“, sem dældi úr nót í
4500 kassa síldar á miðunum og
var þetta magn allt komið um
borð eftir 4 klst. Þetta gerðist
í fyrstu ferð skipsins. Skipið
hefur flutt ferska síld á markað
í Þýzkalandi, Englandi og Dan-
mörku og fengið mjög hátt verð
fyrir. Sagt er, að isað sé í botn
og ofan á kassana, en þeir taka
um 60—70 kg. af síld og getur
skipið flutt 8 þús. kassa í ferð.
í sama blaði segir frá smíði
hringnótabáts, sem byggður er
með það fyrir augum, að flytja
síld í pækli og niðurkælda af
fjarlægum miðum. Báturinn
heitir Uksnöy og getur flutt
(Frairihald á blaðsíðu 7).
Málverkasýnmg
STEINGRÍMS SIGURDSSONAR
í DAG, kl. 2.30 e. h. 2. septem-
ber, opnar Steingrímur Sigurðs
son málverkasýningu í Lands-
bankasalnum á Akureyri. Stein
grímur sýnir 51 mynd, þar af
46 nýjar. Þetta eru olíumálverk
að meiri hluta en auk þess
myndir í japönskum litum og
dekk- og vatnslitamyndir.
Málarinn er, sem kunnugt er
Akureyringur, en um allmörg
ár starfandi blaðamaður í
Reykjavík, fyrst hjá Tímanum
fyrir nær tveim áratugum en
nokkur síðari ár hjá Vísi. Hann
gaf út á sínum tíma Líf og list.
Steingrímur leit inn á skrif-
stofu blaðsins í fyrradag. Hann
sagði þá að hann hefði fengizt
við að mála í leynum í um það
bil 20 ár. En í vetur hefði hann
hætt blaðamennsku og einbeitt
sér að málaralistinni. Hann
hefði svo sýnt verk sín í Boga-
salnum rétt fyrir jólin og að
þessi sýning hér á Akureyri
væri því önnur í röðinni. Þá
sagði hann aðspurður, að ný
bók væri að koma út eftir sig,
7 ára safn af ýmsu rituðu máli,
sumu áður útkomnu, en hann
gaf fyrir nýju árum út smá-
sagnasafn í bókarformi hér á
Akureyri. Marga Akureyringa
mun fýsa að sjá þessa fyrstu
málverkasýningu Akureyrings
í heimabæ. □
Við komu skipsbrotsmanna til Ólafsfjarðar.
(Ljósm.: Brynjólfur Sveinsson.j
NORÐLENDINGAR FÖGNUÐU
ÁIIÖFN STÍGANDA
SKIPBRÓTSMENNIRNIR af Stíganda komu til Ólafsfjarðar á
fimmtudagskvöldið, heilir á húfi og var fagnað þar innilega af
miklum mannfjölda. Höfðu þeir velkzt í björgunarbátum 4 sólar-
hringa og 17 klukkustundum betur, matarlitlir, eða lengur en
nokkrir aðrir sem um er vitað
Það var mánudaginn 28.
ógúst, sem leit var hafin að síld
arskipinu Stíganda frá Ólafs-
firði En hann var á heimleið af
síldarmiðunum nálægt Sval-
barða með 240—250 tonna afla.
Ekkert hafði þá heyrzt frá skip
inu frá miðvikudeginum 23.
ágúst.
Slysavarnafélag íslands skipu
lagði víðtæka leit og tóku þátt
í henni 80 skip eða fleiri, enn-
fremur flugvélar. Allur íslenzki
síldveiðiflotinn var gerður að
leitarflota, en einnig tóku þátt
í leitinni norsk og rússnesk síld
veiðiskip. Leitarsvæðið var
stórt. Það er 700 sjómílna leið
Fegurstu garðarnir á Akureyri
frá íslandi á sildarmiðin.
Síldarleitarskipið Snæfugl
fann skipsbrotsmennina 180 mil
ur norður af Jan Mayen, 12 að
tölu í björgunarbátum, að
kveldi sl. mánudags. Um að-
draganda slysins er ekki vitað
með neinni vissu, að öðru leyti
en því, að skipið sökk, eftir
árangurslausar tilraunir skips-
manna við að halda þvi á floti.
Mennirnir komust í björgunar-
bátana og bundu þá saman. Þá
rak um 60 mílur norður í hægri
sunnanátt. Veður var fremur
gott.
Snæfugl skilaði skipsbrots-
mönnunum um borð í Guð-
björgu frá Ólafsfirði, við Langa
nes, og var þegar haldið heim
(Framhald á blaðsíðu 7).
Steingrímur Sigurðsson.
STJÓRN Fegrunarfélags Akur
eyrar boðaði nokkra eigendur
fagurra skrúðgarða bæjarins og
fréttamenn á sinn fund í Varð-
'borg í fyrrakvöld. Tilefnið var
það, að veita viðurkenningu fyr
ir fjóra skrúðgarða í bænum,
sem sérstök dómnefnd hafði
gert tillögur um.
Jón Kristjánsson formaður
félagsins bauð gesti velkomna,
lýsti víðtækum verkefnum
Fegrunarfélagsins og þakkaði
þeim, er vel hefðu unnið að
fegrun bæjarins. Hann afhenti
síðan viðurkenningu félagsins
eftirtöldum skrúðgarðaeigend-
um: Hrefnu Jónsdóttur og Er-
lendi Snæbjörnssyni, Byggða-
vegi 138A, ^Ólu Þorsteinsdóttur
GÍFURLEGT BRUNATJON í REYKJAVÍK
Á FIMMTDD AGINN
brunnu tvær stórar vöru-
skemmur Eimskipafélagsins
við Borgartún í Reykjavík
og logði cnn í rústunum í
fyrrakvöld. Talið er, að hér
hafi orðið mesta eignatjón,
sem um getur liér á landi
af bruna. Brunamat á vöru-
skemmunum var 17 millj. kr.
en i'örurnar, sem þar voru
geymdar á ábyrgð eigenda,
eru taldar hafa verið margra
tuga milljóna króna virði og
sumt af þeim ekki bruna-
tryggt. Það gerði slökkvi-
starf mjög erfitt, að skemm-
urnar féllu niður á vörumar,
en næstu byggingum náði
eldurinn ekki.
Margt er rætt um eldsupp
tök en það .mál er ekki upp-
lýst ennþá. Margir kaup-
menn liafa orðið fyrir stór-
kostlegu tjóni, jafnvel millj-
ónatjóni, en eigendur þeirra
vara, sem þama voru geymd
ar, skiptu hundruðum. Allt
brann, sem brunnið gat í
báðum vöruskemmunum. —
Ekki urðu slys á fólki í voða
eldi þessum. □
og Magna Friðjónssyni, Rauðu-
mýri 22, Maríu Stefánsdóttur
og Þorvaldi Jónssyni, Hrafna-
gilsstræti 32, og Jóhönnu Jó-
hannsdóttur og Sigtryggi Júlíus
syni, Byggðavegi 99. Viður-
kenningin var áritað skjal og
fylgdi því Skrúðgarðabókin. —
Dómnefnd skipuðu: Jón Rögn-
valdsson, Helgi Steinarr og Ing-
ólfur Árnason. Ennfremur færði
Fegrunarfélagið Halldóri Hall-
dórssyni lækni Skrúðgarðabók
(Framhald á blaðsíðu 7).
KEYPTI
FLUGVÉL
HARALDUR JÓHANNES-
SON í Grímsey hefur keypt
eins hreyfils flugvél af
Peper-Cherokee-gerð og
ætlar henni að flýta för
sinni milli lands og eyjar.
Flugskýli er ekkert til í
Grímsey og verður hún því
ekki staðsett þar í bráðina.
Ferðamannagjaldeyrir
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að frá
og með 1. september skuli gjald
eyrisskammtur til éinstakra
ferðamanna lækka úr 15 þús.
kr. í 10 þús. kr. Börn fái hálfan
skammt. Þeir, sem fara í svo-
kallaðar IT-ferðir á vegum
ferðaskrifstofa skulu fá 6 þús.
kr. í gjaldeyri, en ferðaskrif-
stofur fá allt að 360 krónur á
dag fyrir dvalarkostnaði þeirra.
Þá er lækkuð heimild til að
’flytja íslenzka peninga úr landi,
úr 2500 kr. í 1500 krónur. Bann-
aður er útflutningur þúsund
króna seðla. □