Dagur - 02.09.1967, Page 8

Dagur - 02.09.1967, Page 8
8 SMÁTT OG STÓRT BÆNDUR FARA TIL HEIDA MEÐ ORF OG LJÁ segir Hrafn Benediktsson kaupfélagsstjóri H R A F N BENEDIKTSSON kaupfélagsstj. á Kópaskeri var staddur á Akureyri nú í vik- unni og greip blaðið tækifærið að spyrja hann frétta. Hann sagði m. a. að Kalnefndin svo- kallaða, en hana skipa Halldór Pálsson, Einar Ólafsson og Jón Arnalds, hefði boðað oddvita og búnaðarfélagsformenn á sinn fund á Kópaskeri á þriðjudag- inn. Lögðu oddvitar ifram skýrsl ur sínar um heyfeng í þeim hluta Norður-Þingeyjarsýslu, sem þessi fundur náði yfir. En eins og kunnugt er hefur kal í túnum verið mjög tilfinnanlegt á þessu ári og heyfengur bænda er nú víða 30—50% minni en í fyrra. En Kalnefndin sem einn- ig 'hélt fund í Þistilfirði og áður 'hér á Akureyri, mun síðar leggja frarn skýrslur sínar og tillögur fyrir ríkisstjórnina. Kaupfélagsstjórinn sagði, að beðið væri í ofvæni eftir ein- hverju svari stjórnarvaldanna. Tíminn væri orðinn naumur og sláturtíð nálgaðist óðum og bændur þyrftu að vita hvaða bústofn þeim væri óhætt að setja á í vetur. Norður-Þingeyinga hefur nú milligöngu um kaup á 1500 hest um af heyi frá Hvoisvelli, þar sem Sambandið hefur mikla grasframleiðslu og grasmjöls- verksmiðju sína. Heyskap er að ljúka og sumir bændur hafa lagt í engjahey- skap, bæði þar sem vélum er hægt að koma að en einnig heyja sumir bændur með gamla laginu og sækja heyskapinn jafnvel upp til heiða. Bændur liggja því ekki á liði sínu að afla nauðsynlegs fóðurs, sagði Hrafn kaupfélagsstjóri, enda um dugnaðarmenn að ræða, er ekki leita hjálpar að þarflausu. Engin útgerð er á Kópaskeri en stai'fsmenn kaupfélagsins skjótast stundum á handfæri á báti félagsins og hafa stöku sinnum veitt vel. Blaðið þakkar Hrafni Bene- diktssyni kaupfélagsstjóra þess ar upplýsingar. □ NY HLJOMPLATA Svavar Gests hefur sent á mark aðinn hljómplötu með fjórum lögum, sem Hljómsveit Ingi- mars Eydal leikur og er það fjórða plata þeirra félaga, sem út er gefin. Einsöngvari er Þor- valdur Halldórsson. Von er á enn einni hljómplötu sömu hljómsveitar eftir nokkrar vik- ur. En á hinni nýútgefnu hljóm plötu eru tvö lög eftir einsöngv arann, en hin eru erlend með íslenzkum textum eftir Ómar Ragnarsson og Kristján frá Djúpalæk. MALVERKASÝNING Um þessar mundir eru Akur- eyringar ekki í listaverkasvelti, eins og oft áður a. m. k. ekki á sviði málaralistar. Hér eru sýn- ingar málverka og mynda bæði í Landsbankasalnum og í Varð- horg. Og í dag verður enn ein sýning opnuð, þ. e. myndasýn- ing Akureyringsins Steingríms Sigurðssonar. Sýningar þessar eru góðra gjalda verðar, því margir kunna að njóta þeirra. BILAKIRKJUGARÐUR Á bifreiðaöld þarf að koma fyr- ir óhemjiunörgum ónýtum bíl- um og eru mörgum kunnir hin- ir stóru bílakirkjugarðar erlend is. Á meðan enginn járnbræðsla er hér á Iandi verður að hafa sama hátt á. Hér á Akureyri eru ónýtir bílræflar hél- og þar og fyrst og fremst þar sem þeir eiga ekki að vera. Koma þarf upp þeim stað, þar sem eigend- ur ónýtra bíla geta látið bíla sína að síðustu, þar sem þeir eru- engum þyrnir í auga. Hrafn Benediktsson. Margir bændur hafa keypt mikil hey í sumar og flutt aust- ur, sagði hann, og Kaupfélag H-DAGURINNI SViÞJÖÐ Hriseyjabálar afla nú vel Hrísey 1. september. Hér er góður afli og er nú svo komið, að frystihúsið 'hefur ekki undan og urðum við í dag að senda frá okkur tvo báta með afla. Ufsa- veiði er góð og stunda hana bátaimir Auðunn og Haförninn. Utilegubátar fá 4—6 tonn eftir fjögurra daga útivist. Nýi hafnargarðurinn er orð- inn 150 metra langur. Verið er að byggja póst- og símahús fyr- ir sjálfvirka stöð. Svo sem sjá má á þessu er nóg að gera á meðan þessi haldast. góðu aflabrögð S. F. Á MORGUN hyggjast Svíar breyta umferðarreglum og taka upp hægri handar akstur, svo sem gert verður hér á landi næsta vor. Margir íslendingar hafa farið utan til þess að fylgjast með þegar hægri handar reglan tek- ur gildi, því margt verður þar án efa hægt að læra. Breyting- in verður kl. 4.30 að morgni, en þá eru fæstir á ferðinni. Rekinn hefur verið kynning- aráróður undanfarið til þess að auðvelda þessa umferðarbylt- ingu og tugþúsundir manna í borgum og sveitum veita að- stoð þennan fyrsta dag og þá næstu. □ $&$»$>&&$&&&<$x$x$x$>4xSxSxS><sx$xSx$x$x$>g&$x$x$x$xSx$x$x$xSxSx$xSxMxSxSxSx§xSx$x$x$xSx$x$x$x$x$xSxSx$x$xSx$xS>Qx&$x&$*&$x&$^ M M Dagu kemur næst út á miðvikudag- inn kemur. Mikið efni bíður. Auglýsingar þurfa að berast snemma. HX$^X$X^$^X$x$X$X$x^x$^x$x$x$x$x$> $x$x$<$X$X$x$x$»$>$X$>$x$X$x$X$X$X$X$<$x$x$X&&$>QX$<$*$Q>®®<$»$«$X$«$x$«$X$x$>Qx$x$X$<$X$X$x$>$>Gx§x$>Q>3x$>$X$x$X$GX$>®Q’®$X$X$>&$X$4 BLOÐHUNDAR Það má víst með réttu kalla þá hunda blóðhunda, sem skráðir eru á dýrasjúkrahúsi í London, og tilbúnir að gefa blóð þegar þörfin kallar. Þegar hundar slasast eða eru skomir upp, er leitað til „blóðliundanna“ og úr þeim tekið blóð. Blóðgjafinn fær góða máltíð að launum og eigandinn sígarettupakka ©ða súkkulaðiöskju, ef það hentar betur. OFNOTKUN MEÐALA Allir læknar vilja leysa vanda þeirra, sem til þeirra leita. En margir eru þeir sjúklingar, sem ekki gera sig ánægða með góð orð og góð ráð en vilja líka fá töflur eða lyf til inntöku. Þetta hefur í mörgum tilfellum leitt til ofnotkunar lyfja, og töfluátið er ólióflegt í sumum læknis- héruðum. Ýmsir læknar vinna gegn þessu, en eiga erfitt um vik. í erlendu blaði var nýlega að þessum máliun vikið og talið ógæfulega horfa í þessu efni, einkum vegna ásækni fólks í meðöl, umfram það, sem nauð- synlegt er. GEÐVEIKUR MAÐUR f Stokkhólmi varð uppi fótur og fit á dögunum þegar geð- truflaður maður tilkynnti á svalarþrepi á sjöttu hæð bygg- ingar, að liann hefði fengið nóg af heiminum og ætlaði að stökkva dauðastökkið. Fólk safnaðist saman og gerðar voru ráðstafanir til björgunar, en maðurinn bannaði allt slíkt og hótaði að stökkva samstundis ef nokkur reyndi að trufla áform hans. Svo stökk hann, en ekki niður á götuna, sem var mjög þröng, heldur yfir á þak á gagn stæðs liúss, fótbrotnaði í fallinu og var gripinn af slökkviliðs- mönnum. VATNIÐ Víða um heim er háð barátta fyrir verndun landsvæða, til þess að ekki verði eyðilagt eða spillt vatni horgarbúa. Reyk- víkingar friða nú svæði utn- hverfis sín vatnsból, og yfir- völd margra borga óttast mjög olíumengun jarðvegs á þeirn svæðimi, þar sem grunnvatn blandast aðalvatnsæðum þeim, sem milljónir manna síðan bergja af. Einnig eru menn áhyggjufullir vegna eiturefna, sem notuð eru á ökrum við hverskonar ræktun á svæðuni sem hafa vatnssamgang við „Gvendarbrunna“ hinna ýmsu borga og bæja. Vðlur I vígahuga RJÚPU hefur mjög fækkað í Hrísey. Þar er nú töluvert um fálka og hremmir hann rjúp- una. Rjúpnastofninn mun hafa verið í hámarki í fyrra og fer nú sennilega minnkandi. □

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.