Dagur - 04.10.1967, Síða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Villukenningar
SÚ villukenning skýtur öðru hverju
upp kollinum, jafnvel hjá þeim, sem
eiga að vita betur, að hækkun bú-
vöruverðsins eigi verulega sök á
þeirri ógnar verðbólgu, sem nú er
að tröllríða öllum atvinnuvegum
landsmanna og búin er að troða í
svaðið öll hin fegurstu fyrirheit nú-
verandi stjórnarvalda. En samkvæmt
þeirri löggjöf, sem um verðlagningu
búbaranna gildir, hækkar verð þess-
ara vara því aðeins, að rekstrarvörur
landbúnaðarins hafi hækkað eða að
vinnutekjur annarra stétta hafi
hækkað, nema hvort tveggja sé. —
Ljóst er því, að bændur fá sínar
verðhækkanir eftir á. Bændur njóta
ekki verðbólgunnar heldur gjalda
þeir hennar og eiga enga sök á hinni
miklu verðbólguþróun. Þeir gjalda
hennar á þann hátt, að þeir eiga því
örðugra með að selja vörur sínar er-
lendis, sem framleiðslukostnaðurinn
innanlands er meiri, á sama tíma og
verðið, sem fyrir þær fæst erlendis,
stendur í stað. Ætti þetta að vera
auðskilið. Hið sama gildir að sjálf-
sögðu um aðra atvinnuvegi, sem
keppa um sölu á erlendum vett-
vangi. — Hin barnalega hagfræði-
kenning eins ráðheiæans, að land-
búnaðurinn sé hemill á hagvexti
þjóðarinnar, og síðan hefur staðið
eins og bein í hálsi höfundar síns,
þyrfti nú dálitla útfærslu. Landbún-
aðurinn á að vísu í erfiðleikum, en
hvað mætti þá segja um sjávarútveg-
inn um þessar mundir? Er hann
líka hemill eða dragbítur á hagvext-
inum? Og hvemig er það með iðn-
aðinn? Hvaða atvinnugrein er það
annars í okkar landi (þegar skemmti-
iðnaðurinn er frá skilinn), sem ekki
er dragbítur, samkvæmt kenningu
ráðherrans? Sannleikurinn er auð-
vitað sá, að þeir atvinnuvegir, sem
þjóðin stundar, og þeir einir, gera
þjóðinni fært að lifa í landinu. En
það, sem þessir atvinnuvegir stynja
undir um þessar mundir, er verð-
bólgan. Mennimir, sem lofuðu því
að stöðva hana og lækna efnahags-
og atvinnulífið, og fengu umboð til
að gera það, em ráðherrar núver-
andi ríkisstjómar. Þeim tókst ekki
að efna loforð sín, en láta skósveina
sína bera fram hinar fáránlegustu
villukenningar til að breiða yfir van-
mátt sinn. Hin misheppnuðu störf
núverandi valdhafa hafa veitt verð-
bólgunni mikil vaxtarskilyrði, en
það er hún, sem er hinn mesti hem-
ill á eðlilegri þróun efnahags- og at-
vinnumála í landinu. □
Fyrri „forþurrkarinn“, sem settur var í verksmiðjuna í sumar. Hann er 44 tonn að þyngd. Hinn kom
til Húsavíkur nýlega. (Ljósm.: Bj. T.)
Kísilgúi’verksmiðjan við Mývatn
AÆTLAÐ ER, að Kísiliðjan við Mývatn taki til starfa í vetur.
Byggingarframkvæmdum hefur miðað allvel í sumar og liafa
vegfarendur vafalaust veitt því athygli. Verksmiðjan verður eitt
stærsta fyTÍrtæki norðanlands, enda þótt ekki só gert ráð fyrir
að starfslið hennar verði ýkja fjöhnennt. Vegurinn frá verksmiðj-
xmni til Húsavíkur hefur verið mjög á dagskrá í sumar, en hér
þykir rétt að kynna Icscndum Dags nokkuð byggingu sjálfrar
verksmiðjunnar, og verður þá um lcið minnzt á efnið, sem hún
á að framleiða. __
Þetta er þriðja árið sem fram-
kvæmdir standa yfir við bygg-
ingu kísilgúrverksmiðjunnar
vestan við Bjamarflag í landi
Reykjahh'ðar í Mývatnssveit.
Fyrsta sumarið var raunar að-
allega unnið við byggingu dælu
stöðvarinnar í Helgavogi við
Mývatn, lagningu leiðslunnar
uppeftir og töku sýnishoma af
hráefninu. Veturinn eftir var
byggt skrifstofuhús við verk-
smiðjulóðina, og hefur þar síð-
an einnig verið til húsa mötu-
neyti fyrir starfsfólkið.
í fyrraaumar var svo unnið
við undirstöður undir geymslu-
skemmu og sjálfa verksmiðju-
samstæðima. Jafnframt var tek
ið að setja upp hinn svonefnda
„Dry Process Tower“, sem er
nær 40 metra hár stálgrinda-
turn, þar sem fram á að fara
flokkun á efninu, kísilgúmum,
áður en það verður sekkjað.
Byggingu skemmunnar lauk
að mestu í fyrra. í vetur og
loks nú í sumar hefur verið
unnið áfram við uppsetningu
verksmiðjusamstæðunnar. >ví
verki á að vera lokið 1. nóv-
ember n.k., og á framleiðslan
sjálf að geta hafizt upp úr því.
Enginn getur þó sagt um það
með vissu á þessu stigi málsins,
hvort sú áætlim muni standast,
og eru sumir kunnugir svart-
sýnir á að framleiðslan geti
raunverulega hafizt fyrr en
með vorinu.
Hvað er kísilgúr?
Kísilgúr er örsmáar skeljar
kísilþörunga, sem um geysi-
langan aldur hafa lifað góðu
lífi í Mývatni og lifa þar enn.
Skeljamar eru svo smáar, að
frálejtt er, að þær geti sézt með
berum augum. Við dauða þör-
unganna safnast þær á vatns-
botninn og mynda þar lag, sem
óhjákvæmilega blandast svo
ýmsum aðskotaefnum, eins og
eldfjallaösku.
Kisilþömngar lifa í ýmsum
öðrum vötnum og tjömum hér-
lendis, en hvergi í jafn stórum
stil og í Mývatni. Lögin af kís-
ilskeljunum eru margir metrar
á þykkt í botni vatnsins, og eru
í mynd grárrar leðju. Þessari
leðju er svo dælt að verksmiðj-
unni eftir alllangri leiðslu, og
þar er mesta vatnið og sandur-
inn, sem er blandaður kísil-
leðjunni, skilið frá og dælt suð-
vestur í hraunið á milli verk-
smiðjunnar og vatnsins. Þar er
nú þegar komin mikil tjöm í
dæld þeirri, sem dælt hefur
verið í. Þessi dæld er ekki ýkja
langt frá þeim vinsæla stað
Grjótagjá, en þó mún talið, að
þessi úrgangsefni eigi ekki að
geta borizt þangað, heldur á
vatnið að síast niður í hraunið
og jafnvel renna aftur út í Mý-
vatn.
Þróin hefur lekið.
Hráefninu er svo dælt áfram
í stóra þró, sem að mestu leyti
var gerð í fyrra og er norðan
við verksmiðjuna. Þessi þró var
búin til þannig, að hrauninu
var ýtt upp með jarðýtum, en
botn hennar og hliðar voru
ekki sérstaklega þéttai’ að neinu
ráði, að minnsta kosti hefur
komið fyrir nú í sumar, að
komið hafa „göt“ niður úr
þessari þró og hráefnið þar
horfið í allstórum stíl niður í
hraunið. Einu sinni fór sérstak-
lega mikið magn þannig for-
görðum, sunnudaginn 20. ágúst,
og mun líklega hafa tekið allt
að fimm daga að fylla aftur upp
það borð, sem þá kom á þróna.
Aðeins verður dælt úr vatn-
inu í þessa þró yfir sumartím-
ann, því að ekki er unnt að
dæla á meðan vatnið er undir
ísi. Nú er verið að byrja á ann-
arri samskonar þró rétt hjá
hinni.
Ur þessum þróm verður hrá-
efninu svo dælt inn í verk-
smiðjuna, og verður það þurrk
að í fyrstu við tiltölulega lágan
hita, og verður gufuhiti notað-
ur við þá þurrkun, sem nefnd
er forþurrkun eða afvötnim.
Staðið hafa yfir í sumar fram-
kvæmdir við lagningu gufu-
leiðslu frá nýrri borholu, lík-
lega þeirri heitustu á landinu,
að verksmiðjunni. Forþurrkar-
ar eru tveir og komu til lands-
ins í heilu lagi, og vegur hvor
um sig 44 tonn. Var annar flutt
ur nú í september. Eru það
þyngstu hlutir, sem þangað þarf
að flytja í heilu lagi vegna verk
smið j ubyggingarinnar.
Hár hiti að lokum.
Til að fullhreinsa aðskotaefni
úr hinum örsmáu kísilskeljum,
þarf að lokum að hita hráefnið
upp í 1100 gráður, og er það
gert í sérstökum, geysistórum
þurrkofni, sem fluttur var á
staðinn í sumar í þremur hlut-
um. Einn hlutinn lenti út af
veginum við Hallbjamarstaði í
Reýkjadal í flutningunum, en
náðist þó upp aftur og komst á
ákvörðunarstað. — Eftir þetta
verður efnið flokkað í háa turn
inum, sem áðan var getið um,
og síðan fer það inn í vestur-
enda skemmunnar og í sekkjun
þar.
Þó nokikrar vegabætur hefur
þurft að gera í sumar á leiðinni
frá Húsavík til Reykjahlíðar
svo að takast mætti að koma
ofnhlutunum alla leið. Hafa
beygjur verið breikkaðar mik-
ið og nokkrar mjóar brýr hækk
aðar með því að hlaða á þær
timbri.
Fjölmennt starfslið í sumar.
Allt að 80 manns hafa unnið
við framkvæmdir við Kísiliðj-
una sjálfa í sumar, og er þá
ekki meðtalinn flokkurinn, sem
unnið hefur við uppsetningu 10
íbúðarhúsa í hinu nýja íbúða-
hverfi ofan við Reykjahlíð. —
Meginhluti starfsliðsins í sum-
ar hefur verið iðnaðarmenn,
einkum járniðnaðarmenn og raf
virkjar, en þeir síðamefndu
hafa unnið undir stjóm Hauks
Ákasonar á Húsavík, sem tók
að sér raflagnimar. Þá hefur
verið þama talsverður 'hópur
verkamanna, en þó mun færri
en í fyrra. Yfirstjóm fram-
kvæmda er í höndum Péturs
Péturssonar framkvæmdastjóra
úr Reykjavík, og hefur hann
notið vinsælda af undirmönn-
um sínum á staðnum. Hið sama
verður tæplega sagt um full-
trúa Kaiser-verkfræðifyrirtæk-
isins, sem hefur umsjón með
uppsetningu verksmiðjuhlut-
anna, en sá heitir Joseph Polfer
og hefur ekki til að bera þann
kunnugleika sem skyldi varð-
andi starfshætti og hugsunar-
hátt íslendinga.
Afköst hafa verið mikil, og
ber flestum saman um það. Að
minnsta kosti hefur gengið bet-
ur nú í sumar en framan af í
fyrrasumar, en þá höfðu, senni-
lega vegna alvarlegra mistaka,
verið ráðnir fleiri verkamenn
en skyldi, og kom það niður á
afköstum, sém jukust talsvert,
þegar allmörgum var sagt upp
í lok júlímánaðar. í sumar hafa
nær allir starfsmennirnir við
verksmiðjubygginguna verið
Norðlendingar, einkum Húsvík
ingar, Akureyringar og Suður-
Þingeyingar.
Vinnuhagræðing í hávegum.
í sumar hefur verið beitt
vinnuhagræðingu við þessar
byggingarframkvæmdir með
góðum árangri. Hefur jafnvel
verkamönnunum verið skipt
niður í floka, sem hafa mest allt
sumarið unnið sömu eða hlið-
stæð störf. Einn flokkur hefur
haft það starf að mála í sama
ljósgráa litnum, en talið er, að
úr reykháfi, sem nær upp í
gegnum turninn, muni koma
nokkurt ryk í þeim lit. Annar
flokkur fæst við að laga til á
staðnum og hreinsa allt rusl
jafnharðan og það kemur.
Árangur vinnuhagræðingar-
innar má sjá á afköstunum,
enda hefur verið talið fram að
þessu, að allt gengi eftir áætl-
un.
Meirihluti starfsliðsins hefur
í sumar búið í skála, sem í vor
var reistur við hlið skrifstofu-
og mötuneytisbyggingarinnar.
Langflestir hafa þó jafnan far-
ið heim til sín um helgar, enda
hefur yfirleitt ekki verið unnið
á laugardögum, en þeim mun
meir aðra virka daga.
Fyrsta verksmiðja sinnar teg-
undar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Tjörvi Elíasson, verkfræðingur,
gaf í stuttu fræðsluerindi fyrir
starfsmenn Kísiliðjunnar eitt ■
sitt í sumar, er þessi verksmiðja
sú fyrsta sinnar tegundar ’ í
heiminum. Áður hefur kísilgúr
einungis verið unnin úr jarð-
lögum, og er efnið mest unnið
á þann hátt í Kalifomíu. Þessi
jarðlög hafa þó að sjálfsögðu
áður myndazt á vatnsbotni.
Hins vegar hefur efnið aldrei
verið tekið áður úr vatni, þar
sem kísilþörungamir lifa enn
og starfa. Þess vegna verða
ýmis atriði í væntanlegri starf-
rækslu þessarar vérksmiðju,
einkum dælingin og forþurrk-
unin (afvötnunin), sennilega á
hálfgerðu tilraunastigi í fyrstu.
Er búizt við, að fljótt muni
þurfa að breyta einhverju frá
fyrstu gerð, og má því búast við
litlum afköstum í fyrstu.
Efni það, sem þessi verk-
smiðja á að framleiða, er talið
munu verða í bezta gæðaflokki
og tiltölulega verðmætt. Efnið
mun líta út líkt og hveiti, hvítt
á lit, og það mim verða selt
sem síunargúr, sem er verðmæt
asti flokkur kísilgúrs. Síunar-
gúr er notaður við að sia vökva,
t. d. bjór og öl, ýmis lyf og fl.
Má t. d. geta þess, að Sana h.f.
á Akureyri notar um 6000 kg.
af kísilgúr á ári, og verður
sjálfsagt ekkert því til fyrir-
stöðu, að hún fái þetta magn
frá Mývatni eftir að Kísiliðjan
verður tekin til starfa. Aðrar
tegimdir kísilgúrs eru mest
notaðar til einangrunar á ýms-
um sviðum.
Auk þess, sem hér hefur
verið lýst lauslega, hefur svo í
sumar verið unnið að vegar-
lagningu milli Reykjahlíðar og
Geitafells, eins og alþjóð hefur
raunar fengið að heyra um. Þá
er verið að byggja stóra vöru-
skemmu á Húsavík. Er þetta
allt ekki svo litlar framkvæmd-
ir í einu héraði á vegum eða
vegna eins og sama fyrirtækis.
Frá Kleifarvatni, eitt af málverkum Péturs.
PÉTUR FRIÐRIK OPNAR SÝNINGU HÉR í BÆ
NÆSTKOMANDI laugardag,
þann 7. þ. m. opnar Pétur Frið-
rik listmálari málverkasýningu
hér á Akureyri og verður hún
haldin í Landsbankasalnum.
Verður sýningin opnuð kl. 2 e.h.
Á sýningu Péturs eru alls um
30 málverk. Eru það bæði ofíu-
málverk og vatnslitamyndir.
Listamaðurinn hefur • í sumar
dvalizt alllengi í Mývatnssveit
og í öðrum nágrannabyggðum
Akureyrar og eru á sýningunni
málverk frá þeim stöðum, auk
allmargra Þingvallamynda og
málverka frá öðrum stöðum á
landinu.
Pétur Friðrik er enn ekki
fertugur að aldri, en -löngu einn
kunnasti listmálari þjóðarinn-
ar. Hefur hann tekið hátt í
fjölda listsýninga bæði heima
og erlendis. Síðasta einkasýning
hans var í Listamannaskálanum
í fyiravor og þar áður í Boga-
salnum. Á báðum þessum sýn-
ingum seldist nær hver einasta
mjmd sem þar var.
Pétur Friðrik hóf nám við
Konunglega listaháskólann í
Kaupmannahöfn innan við tví-
tugt og dvaldist þar við nám í
'■ :
- ENGLENDINGAR I SVARFAÐARDAL
(Framhald af blaðsíðu 8).
Sjálfir voru stúdentamir
ákaflega ánægðir með dvöl sína
méðal Svarfdælinga og töldu
hana hafa verið eitt samfellt og
stórkostlegt ævintýri og algjör-
lega ógleymanlegt. Veður var
með ágætum allan tímann og
margt um að vera í sveitum
þ. á. m. göngur og réttir. Þeir
létu sig heldur ekki vanta á
Tungurétt, réttardaginn 18.
sept. og blönduðu þar geði og
gleði við heimamenn eftir því
sem málakunnátta frekast
leyfði.
Stúdentamir eru nú fyrir
skömmu farnir úr Svarfaðardal
Bikarkeppni KSÍ:
Sárasti ósigur ÍBAliðsins í sumar
FRAM VANN OVERÐSKULDAÐ A HLUTKESTI
Pétur Friðrik listmálari.
3 áf. Síðan hefur hann farið
margar námsferðir utan m. a.
til Frakklands, Spánar og
Þýzkalands. Nú síðast sýndi
hann myndir sínar á sýningum
í Þýzkalandi í haust.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Pétur Friðrik sýnir málverk
sín hér á Akureyri. Mun sýning
hans standa til 15. okt. og er
opin dag hvem frá kl. 2—10 e.h.
og áleiðis heim til Englands, en
ætla þó að dvelja um vikutima
á Suðurlandi. Við brottförina
báðu þeir blaðið fyrir kveðjur
til Svarfdælinga og annarra
þeirra er þeir kynntust hér
norðurfrá. Einkum eru þeir
þakklátið heimilisfólkinu á
Grimd, sem reyndist þeim frá-
bærilega vel.
Sjálfir eru Svarfdælir dálítið
forvitnir að sjá hvað þessir gest
ir þeirra hafa að segja um þá
og sveit þeirra því við því má
búast að þeir hafi tekið eftir
einu og öðru sem þeir ekki sjá
sem lifa og hrærast í því hvers-
dagslega. Glöggt er gestsaugað.
SÍÐASTLIÐINN laugardag fór
fram á íþróttavellinum leikur
ÍBA og Fram í Bikarkeppni
KSI. Það fór eins og búizt var
við fyrir fram, að leikur þessi
var jafn og endaði 1:1, er venju
legum Ieiktíma var lokið. Eins
og menn vita eru reglur þær er
gilda í Bikarkeppninni þannig,
að úrslit þurfa að fást, því ann-
að liðið fellur úr keppninni.
Segja má að leikur þessi hafi
verið nokkurs konar sjónarspil
í 4 þáttum, og stóð hann yfir í
rúma tvo klukkutíma, og fengu
því áhorfendur nokkuð fyrir
sína peninga, því ekki fengu-st
úrslit fyrr en Guðni Jónsson,
fyrirliði ÍBA-liðsins, hafði kast
að upp pening, en vinstri bak-
vörður Fram valdi kórónuna
meðan peningtu-inn var enn í
loftinu, og kom upp hlutur
Fram og þar með var upp kveð
inn sárasti ósigur ÍBA-liðsins í
sumar, því Akureyringar voru
tvímælalaust betri aðilinn í
þessum síðasta „alvöru“-leik
sumarsins hér á íþróttavellin-
xun.
Fyrsti þáttur.
Lítið markvert gerðist í fyrri
hálfleik. Liðin virtust haldin
haustsleni, en leikur Akureyr-
inga var þó jákvæðari og einu
hættulegu tækifærin í hálfleikn
um sköpuðust við mark Fram
og var Þormóður þar að verki
í bæði skiptin. í fyrra sinn náði
hann ekki að skjóta, en í seinna
skiptið varði markvörður Fram
glæsilega fast skot hans út við
stöng, með því að ýta knettin-
um út fyrir endamörk. Einu
sinni í þessum hálfleik hafnaði
knötturinn í marki ÍBA-liðsins,
en 2 Framarar voru gróflega
rangstæðir, og markið dæmt af.
Síðari hálfleikur var miklu
fjörugri og strax á 3. mín. skall
hurð nærri hælum við mark
Fram, er Kári kemst inn fyrir,
og markvörður hljóp út á móti,
en Kári náði að spyma og
knötturinn fór rétt fram hjá
mannlausu markinu. Á 11. mín.
skora svo Framarar. Dæmd er
óbein aukaspyma á Jón Stefáns
son, rétt utan við vítateig. Akur
eyringar mynda vegg, Hrannar
spymir til Helga Númasonar,
sem spyrnir að marki, Samúel
kemur höndum á knöttinn, sem
lendir í stöng og inn í markið.
Þetta var ódýrt mark fyrir
Fram. Við markið færðist fjör í
leikinn og sækja Akureyringar
fast, en mínúturnar líða og
ekki tekst að skora. Á 35. mín.
jafnar svo Magnús Jónatansson
fyrir ÍBA með hörkuskoti
skammt utan við vítateig og er
þetta fallegasta mark, sem skor
að hefur verið hér á vellinum í
sumar og kom eins og þrUma úr
heiðskíru lofti. Þær Í0 mínútur
sem eftir voru af leiknum sækja
Akureyringar mjög, en tókst
ekki að skora þrátt fyrlr góð
tækifæri. Lauk því leiknum 1:1.
Annar þáttur.
Nú er framlengt í 2x15 min.
í fyrri hluta framlengingar ger-
ist lítið markvert. Akureyring-
ar sækja fast, en allt bjargast
við mark Fram. Strax á 2 mín.
síðari hluta framlengingar er
stórhætta við mark Fram, er
Jón Stefáns skallar að marki
eftir hornspymu, en markvörð-
ur missir knöttinn, sem hrelck-
ur til Skúla, en hann skallar
rétt fram hjá. Og áfram sækja
Akureyringar. Á 10. mín. á svo
Magnús hörkuskot rétt fram
hjá markinu, og að lokum flaut
ar dómarinn, framlengingu er
lokið, og enn ér jafnt í:l.
Þriðji þáttur.
Þá hefst þriðji þáttur, en það
er vítaspyrnukeppni. Það er
Skúli Ágústsson, sem hefur
keppnina og tekur fyrstu. spyrn
una, en markvörður ver, en
hreyfir sig á marklínu öf fljótt.
Skúli endurtekm- spymuna, en
bregzt nú bogalistin, aldrei
þessu vant, og spymir fram hjá.
Þá spyrnir Anton fyrir Fram
og skorar, síðan Magnús fyrir
ÍBA og skorar, þá hægri bak-
vörður Fram, hann skorar líka,
Pétur fyrir ÍBA og skorar,
Hrannar fyi’ir Fram skorar,
Kári fyrir ÍBA skorar, og þá
vinstri bakvörður fyrir Fram,
en nú ver Samúel, en hefur
hreyft sig of fljótt og spyman
er endurtekin, ,og nú bregzt
bakverðinum bogalistin eins og
Skúla og hann spymir fram
hjá. Þá eru tvær spymur eftir,
Ævar skorar fyrir ÍBA og
Helgi Númason fyrir Fram.
Enn er jafnt, 5:5.
Fjórði þáttur.
Þá er ekkert eftir, nema að
kasta upp peningnum og er nú
farið að skyggja á vellinum, og
áhorfendur í stúkunni eru staðn
ir upp og alir fylgjast spenntir
með. Framarar veðjuðu á
vinstri bakvörðinn, sem brenndi
af vítaspymunni. Guðni Jóns-
son tók nú peninginn og kastaði
upp, en bakvörðurinn sagði
kórónan áður en peningurinn
snerti jörðina, síðan beygðu
þeir sig niður og Framarinn
stökk í loft upp, og þá vissu
menn að Fram hafði farið með
sigur af hólmi. Enn einu sinni
elti óheppnin Akureyringa, þvi
sannarlega áttu þeir skilið sigur
í þetta sinn.
Með þessum leik má segja, að
lokið sé keppnistímabili knatt-
spyrnumanna okkar á þessu
sumri, og senda allir knatt-
spymuunnendur þeim áreiðan-
lega beztu þakkir fyrir margai’
ánægjustundir á vellinum í
sumar. Þeim tókst ekki í þetta
sinn að sigra, hvorki í íslands-
móti eða Bikarkeppni, en þeim
tókst að sigra öll knattspymu-
liðin í I. deild og er það vissu-
lega sigur út af fyrir sig.
Sv. O.
Vetrarstarf Bridge-
félagsins að hef jast
AÐALFUNDUR Bridgefélags
Akureyrar var haldinn 26. sept.
Stjórn skipa nú: Soffía Guð-
mundsdóttii’ formaður, Baldur
Árnason féhirðir, Ái-mann
Helgason ritari, Karl Sigfússon
mótsritari og Dísa Pétursdóttir'
áhaldavörður og upplýsinga-
stjóri.
Spilað verður á þriðjudögum
í Landsbankasalmun kl. 8 e. h.
Fyrsta keppni félagsins verð..
ur tvímenningskeppni, sem
hefst kl. 8 e. h. þriðjudaginn
10. október. Sú umferð verður
spiluð á Bjargi. Þátttöku skal
tilkynna stjórninni ekki síðar
en sunnudag 8. október. □
HAFNARNEFND OG BYGGINGANEFND
Bj. T. Tjaldbúðimar hjá Grúnd.
SAMKVÆMT staðfestingu fé-
lagsmálaráðuneytisins á breyt-
ingu kosningar í hafnarnefnd,
fór kosning fram og kosnir:
Aðalmenn: Stefán Þórarins-
son, Stefán Reykjalín, Zop-
honías, Ái’ni Jónsson, Tryggvi
Helgason.
Varamenn: Stefán Snæbjöms
son, Amþór Þorsteinsson,
Bjami Jóhannesson, Jón G.
Sólnes, Jón B. Rögnvaldsson.
í bygginganefnd voru kjöm-
ir:
Aðalmenn: Haukur Haralds-
son, Stefán Reykjalín, Haukur
Ámason, Ámi Jónsson, Gunn-
ar Óskarsson.
Varamenn: Sveinn Tryggva-
son, Sigurður Óli Brynjólfsson,
Mikael Jóhannessoft, Bjami
Sveinsson, Ármann Þorgrímss.
Kosningum þessum var frest
að í vor. □
UM ÚTIVIST BARNA
BÖRN yngri en 12 ára mega
ekki vera á almannafæri seinna
en kl. 20 á tímabilinu frá 1.
október til 1. maí og ekki seinna
en kl. 22 frá 1. maí til 1. október
nema í fylgd með fullorðnum
vandamönnum.
Böm frá 12—14 ára mega
ekki verá á almannafæri seinna
en kl. 22 á tímabilinu frá 1.
október til 1. mai og ekki seinna
en kl. 23 frá 1. maí til 1. október
nema í fylgd með fullorðnum
vandamönnum.
Foreldrar og húsbændur bam
anna skulu að viðlögðum sekt-
um sjá um, að ákvæðum þess^
xun sé framfylgt.
(Úr lögreglusamþykkt Akur =•
eyrarkaupstaðar).