Dagur - 10.11.1967, Blaðsíða 6
6
Orðsending ti
DR. FINNUR GUÐMUNDS-
SON náttúrufræðingur, sem
mjög hefur unnið að rannsókn
á rjúpnastofninum undanfarin
ár, m. a. í Hrísey, hringdi til
blaðsins í fyrradag og bað fyrir
þessa orðsendingu til þeirra,
sem við rjúpnpveiði fást:
Rjúpnaskyttur eru vinsam-
lega beðnar að varðveita vel
merki þau, er þeir finna á skotn
um rjúpum og senda mér þau
'hið fyrsta. Merkin eru þessi:
Hringur um fót og einnig næla
framan á vængbarði. Ef það
hentar skyttum betur geta þeir
sent mér merktu rjúpurnar og
ég mun senda þeim 100 krónur
um hæl, fyrir hverja. Upplýs-
Nótmælð f<
SKÁLKLÚBBUR Reykjavíkur,
félagsskapur fólks er vinnur að
ferðamálum og sem er aðili að
Association Intemationale Des
Skál Clubs, hélt fund að Hótel
Loftleiðum, fimmtudaginn 2.
nóv. sl. Á fundinum var sam-
þykkt:
Fundur haldinn í Skálklúbbi
Reykjavíkur 2. nóv. 1967, telur
fyrirhugaðan farmiðaskatt órétt
látan og lýsir sig því eindregið
mótfallinn honum. Auk þess að
vera í beinni mótsögn við sam-
þykkt Sameinuðu þjóðanna,
þess efnis að auðvelda beri
- Hvað líður Norður-
landsáætlmiiiini?
(Framhald af blaðsíðu 8).
í>að er út af fyrir sig mikils-
vert, ef ekki er með annarleg
sjónarmið til stofnað, að komið
verði upp landsbyggoaráætlun-
ardeild á Akureyri. En eigi sú
deild að vinna sérstaklega að
Norðurlandsáætluninni, væri
eðlilegast, að sú stofnun væri á
vegum Sambands sveitarfélaga
á Norðurlandi og starfsmaður
eða starfsmenn ráðnir af því.
Dagur frétti raunar á sínum
tíma, að komið hefði til orða, að
Áskell Einarsson fyrrv. bæjar-
stjóri á Húsavík, sem vaí’ einn
aðal forgöngumaður sveitarfé-
lagaráðstefnunnar hér, tæki að
sér slíkt starf. Vera má, að það
hafi ekki verið að skapi ráða-
manna syðra. Menn gerast nú
langeygðir eftir Norðurlands-
áætluninni, sem heitið var í
vor. Menn vona, að ekki fari
um hana eins og Vestfjarða-
áætlunina, sem talað var um
eins og hún væri til en fannst
ekki þegar spurt var um hana
á Alþingi. □
TIL SÖLU:
RÚSSAJEPPI, árg. 1965,
með 66 hestafla Perkins
dieselvél. Farþegarými
fyrir 8. Sérstaklega hent-
ngur til ferðalaga urn
óbyggðir og torfæra vegi.
Guðmundur Halldórsson,
Kvíslarlióli, Húsavík.
rjúpnaskylta
ingar um veiðistað og veiðitíma
þurfa nauðsynlega að fylgja.
Það er nauðsynlegt fyrir rann-
sóknarstarfið að fá sem mesta
vitneskju um rjúpuna og þar
geta veiðimenn lagt fram góðan
hlut. Trúnaðarmenn mínir við
þetta starf eru: Þorsteirin Bald-
vinsson, Hafnarstræti 96, Akur-
eyri, Árni Björn Ámason, Þór-
unnarstræti 124, Akureyri og
Steingrímur Þorsteinsson kenn
ari, Dalvík. Til þeirra geta
menn snúið sér og munu þeir
veita fyrirgreiðslu í þessu efni.
Þetta var efnisleg orðsending
dr. Finns Guðmundssonar og
væntanlega taka rjúpnaskytt-
urnar hana til greina. □
rmiðaskeffi
ferðalög milli landa til aukins
fundurinn á að fulltrúi íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum
studdi þá ákvörðun að gera árið
1967 að sérstöku ferðamanna-
ári undir kjörorðinu: „Travel,
Passport to peace.“ Þá er á það
að líta að verði farmiðaskattur
samþykktur mun hann mjög
skerða rekstrarafkomu þeirra
aðila sem annazt ferðaþjónustu,
svo sem flutningafyrirtækja og
ferðaskrifstofa. Beinir fundur-
inn þeim eindregnu tilmælum
sínum til hæstvirts Alþingis og
ríkisstjórnarinnar að hugmynd
in um 3.000.00 kr. farmiðaskatt
komi eigi til framkvæmda. Q
- MINNING
(Framhald af blaðsíðu 4).
vitiborinn maður að skynja og
skilja að þarna var um að ræða
tvo ólíka staði. Skaphiti og
mælska meistarans var óviðjafn
anleg. En hvað sem lesið var og
sungið, raulað og tautað, lét
Noðri ekki undan síga þegar sá
gállinn var á honum. Alltaf
kemur vorið á endanum, þó oft
reyni allmjög á forsjá húsráð-
enda, og langsöm þyki biðin
eftir Suðra og Sól. Ópersónu-
legt afl ræður veðrum og tíðar-
fari. En hvorki vit eða vitleysa
persónulegra athafna. Árið 1806
flutti Arngrímur silfursmiður
Arngrímsson sig búferlum frá
Ytra-Garðshorni að Þorsteins-
stöðum og hafði þá keypt Þor-
steinsstaði. Síðan 'hefir jörðin
verið í eign ættarinnar til þessa
dags og lengst þess tíma í ábúð
þeirra ættmanna. Tryggva Hall
dórssyni mun hafa þótt vænt
um óðalið sitt og aldrei látið sér
til hugar koma þaðan að víkja
og svo mikill gæfumaður varð
hann að mega við leiðarlok sjá
stórbættann bólstað sinn að
ræktun og byggingum. Hann
• var iðjumaður mikill frá upp-
hafi og framyfir áttræðisaldur.
Alla stund á meðan honum
entist máttur og nena. Kona
hans Ingibjörg Jóhanna Magnús
dóttir var manni sínum mikils-
verður förunautur. Starfssöm,
hagvirk og hreinlát, glaðlynd í
lengstu lög, gestrisin og 'hratt
frá sér harmi hverjum. Eru það
kynfylgjur hennar í allar ættir.
Ingibjörg var manni sínum all-
miklu yngri og enn við sæmileg
heilsukjör. Dvelur nú heima á
Þorsteinsstöðum með allstórum
hópi ástvina og afkomenda.
Rimólfur í Dal.
Bezta viðspyrnan. - Bezta stöðvunin.
Sími 1-29-97 og 2-14-00
Ivven
kjóla
r
Telpu-
kjólar
Vefnaðarvöru-
deild
SOKKAR
- „ROMANTICA“ 30 den.
' JHUDSÓN" 30 og 60 den.
VEFNAÐAR V Ö R U D EIL D