Dagur - 24.01.1968, Page 8
B
SMÁTT OG STÓRT
Frá vinstri: Anna Jóhannesdóttir, Haukur Halldó /sson, Kristjá'n Benediktsson, Guðrún Helgadóttir,
Haukur Laxdal, Guðbjörg Kortsdóttir og Ásgeir Stefánsson. (Ljósni.: f>. J.)
XJNGMENNAFÉLAGIÐ Æskan
á • Svalbarðsströnd frumsýndi
gamanleikinn „Syndaselinn“
skömmu eftir áramótin og síðan
hafa farið fram fjórar sýningar
og 'hlotið ágætar viðtökur. Höf-
undur er Yrjo Soini en þýðingu
annaðist Júlíus Daníelsson
kennari á Dalvík. Leikstjóri er
Júlíus Oddsson, Akureyri. Leik
endur eru alls sjö.
Ekki verður felldur hér leik-
dómur í einstökum atriðum, en
óhætt er að segja, að heildar-
mynd leiksins er sómasamleg,
bæði frá hendi leikstjóra og
Stígsndi á Skagaströnd strandaðs
Skagaströnd 23. jan. Stígandi
strandaði hérna fyrir norðan
höfðann þann 18. janúar. Hann
var að koma úr fiskiróðri. Hann
náðist samdægurs út, eða á
næsta flóði. Tveir bátar náðu
honum af strandstaðnum en
björgun stjórnaði Karl Bernd-
sen. Báturinn er talinn lítið
Skemmdur en fór í slipp á Ak-
ureyri og er þar nú.
Þrír bátar róa héðan og þótt
þeir afli ekki mikið skapar það
nokkra atvinnu í landi. Menn
hafa farið héðan í atvinnuleit
og tvær stórar fjölskyldur
fluttu iburt í haust.
Síðustu landanir hjá
Akureyrartogurunum
KALDBAKUR landaði 18. jan.
128 tonnum fiskjar og er farinn
á veiðar. SVALBAKUR land-
aði í gær ca. 230 tonnum og fer
á veiðar í dag. HARÐBAKUR
og SLÉTTBAKUR eru á veið-
um og mun sá síðarnefndi hafa
fengið 110 tonn. . □
.Svellalög., mjkil eru á Skaga.
Og ■ fyrir hálfri annarri viku
gerði svo mikla ísingu, að fátítt
er. Símalínur urðu sverar eins
og mannshandleggur og slitn-
uðu bæði að austanverðu og
vestanverðu á Skaganum. X.
leikenda, sem flestir eru nær
nýliðar á leiksviði. Sérstaklega
skapar Ásgeir Stefánsson
spaugilega persónu, sem ekki
gleymist þótt frá líði. Leikur-
inn sjálfur er bráðfyndinn og
allvel byggður upp, ég vil telja
hann með betri gamanleikjum,
sem sýndir hafa verið hér um
slóðir að undanförnu. Það er
víst að engum leiðist, sem fóm-
ar kvöldstund með Syndaseln-
um.
Ungmennafélagið Æskan á
þakkir skildar fyrir framtak
sitt á sviði leikstarfsemi. Ráð-
gert er, að sýna Syndaselinn á
nokkrum stöðum í grenndinni.
BJARNI OG „HRfSINN“
Þegar Bjarni Benediktsson leit
yfir farinn veg um áramótin,
komst hann að þeirri niður-
stöðu, að fylgi Sjálfstæðisflokks
ins hefði minnkað um 10% á
kjörtímabilinu 1963—1967.
Hann segir í áramótahugleið-
ingum sínum í Mbl. að fylgis-
tapið sé einkum tilfinnanlegt í
„höfuðvígi flokksins, Reykja-
vík.“ Hann virðist álíta, að
þarna hafi jafnvel krosstré
brugðizt, og spáir illa fyrir
þeim, er ekki vilji lengur lilýta
forystu hans. Hann segir: „Hin-
ir grönni stefnuföstu menn, eru
þess vegna oftast að kjósa lirís
á sjálfan sig þegar þeir ætla að
áminna eða aðvara flokk sinn,
af því hann hafi ekki verið
stefnunni nógu trúr.“ Þessir
stefnuföstu eru víst helzt til
seinir að skilja, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur enga stefnu
um þessar mundir.
EINN MAÐUR MEÐ ÓLUND
Þegar þau tíðindi bárust út, að
strandferðaskipin tvö yrðu smíð
uð hér á Akureyri, birti yfir
bænum. Allir urðu glaðir nema
einn maður úr Kópavogi. Hann
var með ólund út af því, að
stjórnarandstæðingar skyldu
hafa stutt þetta mál (sjá fs-
lending). En vonandi lærist
honum að gleðjast með glöðum.
VEGALÁNIN
Skýrsla mn framkvæmd vega-
áætlunar á árinu 1967 hefur
verið lögð fram á Alþingi. Þar
kr, halli á Ausiljarðaveitu?
Egilsstöðum 23. jan. Hreindýr-
in, sem hér flækjást, eru mjög
spök og þau eru augnayndi.
Um daginn spígsporuðu þau um
þorpið og held ég að skólabörn-
in hafi ekki tekið mikið aftir
því sem kennarinn var að segja,
er þau runnu þar framhjá.
Snjór er lítill hér um mitt hér-
að en mikill inn til dala og ef-
laust er mikill snjór upp til
fjalla og heiða og líklega harð-
fenni og 'haglítið á þeim slóðum.
Hreindýr eru í Eiðastaðaþing-
há, Hjaltastaðaþinghá og þeirra
hefur orðið vart í Njarðvík,
sem mun sjaldgæft eða eins-
dæmi. Þau líta vel út. Það er
mikill skepnuskapur að drepa
hreindýr og ekkert sport, frem-
ur en að skjóta ‘beljur. Hér veit
ég ekki til að sé neitt amast við
þeim, þótt þau að sjálfsögðu
taki sitt á haglendinu.
Fært er bílum til Reyðar-
fjarðar og jeppa- og snjóbíla-
færi er yfir Fjarðarheiði. Svella
lög eru mikil.
Valtýr á grænni treyju í upp-
setningu Vals Gíslasonar leik-
ar hefur verið sýndur hér
þrisvar fyrir fullu húsi og hafa
1200 manns þegar séð leikinn.
Gert er ráð fyrir að sýna sjón-
leik þennan á fleiri stöðum hér
fyrir austan. Valur leikur Jón
sýslumann.
Raforkumálin eru alltaf á
)s/sZ'^s/s/VsAVsCys/sAVs/sZ^v^yvs/'/sZV'A-/s/V'/sZ'ZsrVsrs^s/V'/'/'^V'V'V'/sZv-vvsAV>Vs/'AVs/'/s/Vs/s/s/'/s/s/s^s/s/s^vvl
Árið 1967 fiorða
SAMKVÆMT bráðabirgða-
tölum, sem fyrir liggja, hef-
ur sjávaraflinn á árinu 1967
reynzt rúmlega 900 þús.
tonn. Er þá miðað við óslægð
an fisk upp úr sjó. Sl. ár hef-
ur því verið fjórða mesta
aflaárið í sögu íslenzkra fisk
veiða, þrátt fyrir allt.
En Iangt var í síldarmiðin
að þessu sinni, lengra en
nokkru sinni fyrr. Með
tækni og hraðfylgi tókst þó
að ná þeim árangri, sem
raun ber vitni.
Undanfarin 10 ár hefur
aflinn, talinn á sama hátt,
óslægður upp úr sjó, verið
Árið 1958 580 þús. tonn
Árið 1959 641 þús. tonn
Árið 1960 593 þús. tonn
Árið 1961 710 þús. tonn
Árið 1962 832 þús. tonn
Árið 1963 782 þús. tonn
Árið 1964 972 þús. tonn
Árið 1965 1168 þús. tonn
Árið 1986 1238 þús. tonn
Árið 1967 901 þús. tonn
Á áruniun 1950—1957, að
báðum meðtöldum, var árs-
aflinn mestur 531 þús. tonn,
en minnstur 376 þús. tonn.
Árið 1967 má því teljast
gott aflaár, þegar litið er yfir
aflamagnið eins og það hef-
ur áður verið.
Markaðsverð á sjávarvör-
um erlendis var á árinu 1967
(Framhald á blaðsíðu 2)
dagskrá hér á Austurlandi og
er furðulegt hve lengi á að not-
ast við disilrafstöðvafarganið.
Almannarómur segir, að 25
millj. kr. halli hafi orðið á síð-
asta ári á Austfjarðaveitunni.
V. S.
ÞORRABLOTIN ERU
ÞEGAR BYRJUÐ
Blönduósi 23. jan. Svara fyrir-
spurn þinni um kaupfélags-
stjóraskipti á þann veg, að þótt
ekki sé að fullu eða alveg form
lega gengið frá samningum, tel
ég óhætt að segja, að ég muni
hverfa héðan og taka við kaup-
félagsstjórastarfi í Borgarnesi.
Starfið hér hefur verið auglýst
laust til umsóknar, svo það er
ekkert leyndarmál.
Tíðarfarið hefur verið rysjótt
í vetur og hagar víða ekki nógu
góðir. Á ég þar einkum við úti-
gönguhrossin, sem ég oft hef
áhyggjur af. Og nú hefði verið
betur þegið en oft áður, að geta
sparað heyin í fóðrun sauðfjár-
ins.
Heilsufar er gott hjá mönn-
um og skepnum. Og menn eru
þegar farnir að blóta þorra með
miklu áti og einhverri drykkju.
Ó. S.
kemur fram, að föst lán (eftir-
stöðvar) til nýbyggingar þjóð-
vega hafa í árslok verið rúm-
lega 330 millj. kr. (eldra gengi)
og skiptast þannig: millj. kr.
Reykjanesbraut 23.6
Ólafsvíkurvegur 4.5
Heydalsvegur 1.1
Vestfjarðavegur 24.1
Siglufjarðarvegur 51.0
Múlavegur 11.3
Suðurfjarðarv. (á Austurl.) 6.5
Til nýbygginga allra þjóðvega
verða 50 millj. kr. á þessu ári,
ef 12 millj. kr. bráðabirgðalán
verða greidd á þessu ári. Stofn
kostnaður Reykjanesbrautar er
nú orðinn 300 millj. kr.
DALVÍKURVEGUR OG
ÞINGEYJARSÝSLUBRAUT
Lánsheimild sú, sem á árinu
1967 var veitt vegna Dalvíkur-
vegar og nam einni millj. kr.
og önnur jafn há upphæð til
Þingeyjarsýslubrautar í Aðal-
dal hafa ekki verið notaðar á
árinu. Er þess að vænta, að þess
ar heimildir verði notaðar á ár-
inu 1968 ásamt viðbótarheimild
um, sem veittar voru fyrir það
ár. En heimildirnar fyrir 1968
nema 1 millj. fyrir Dalvíkur-
veg og 500 þús. kr. fyrir Þing-
eyjarsýslubraut milli Jökulsár
og Þórshafnar. Þessar lánsheim
ildir allar voru teknar inn í
vegaáætlun áranna 1967—1968.
Er þar um föst lán að ræða, sem
gert er ráð fyrir að ríkisstjóm-
in útvegi og eru annars eðlis en
bráðabirgðalánin, sem tekin em
út á endurgreiðslur af fjárveit-
ingum vegasjóðs.
ÁÆTLUN 1968
Greiðslur úr vegasjóði á árinu
1968 eru alls áfletlaðar 342 millj.
kr. f vegaáætluninni, sem í gildi
er á þessu ári, á að verja þeim
sem hér segir: millj. kr.
Stjórn og undirbúningur 17.7
Viðhald þjóðvega 145.2
Til nýrra þjóðvega 62.0
Til fjallvega 2.3
Til brúagerðar 41.9
Til sýsluvegasjóða 13.3
Til gatnagerðar 42.8
Vélar og áhöld 1.7
Það er svo sem auðsætt, að ef
nýbyggingum þjóðvega á að
miða áfram svo að um muni,
verður annaðhvort að auka
tekjur vegasjóðs stórlega eða
taka ríkislán, sem vegasjóður
þarf ekki að standa straum af.
Skcmmtuii fyrir alla
fjölskvlduna
HINN árlegi fjárpflunardagur
kvennadeildar Slysavarnafélags
ins á Akureyri er á sunnudag-
inn kemur.
Auk merkjasölunnar verður
bazar, kaffisala og skemmti-
atriði í Sjálfstæðishúsinu. Sér-
staklega skal fólki bent á það
nýmæli í þessu sambandi, að
hafa skemmtiatriði meðan kaffi
salan fer fram og er gert ráð
fyrir að þar fái allir eitthvað
fyrir sig yngri sem eldri. Verð-
inu er mjög í hóf stillt, aðeins
kr. 75.00 -fyrir fullorðna og kr.
25.00 fyrir börn, fyrir hvort-
tveggja kaffið og skemmtiatrið-
in. □