Dagur - 07.02.1968, Blaðsíða 5

Dagur - 07.02.1968, Blaðsíða 5
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Lausaskuldum bænda verði breytt í föst lán SEX Framsóknarmenn fly tja á Al- þingi frumvarp um breytingu á lausaskuldum bænda í föst lán. Seg- ir þar, að veðdeikl Búnaðarbankáns skuli heimilt að gefa út bankavaxtar bréf er notuð skuli til þess „að breyta í föst lán lausaskuldum bænda, sem ekki hafa fengið nægi- leg lán til hæfilegs tíma til fram- kvæmda, sem þeir hafi ráðizt í á jörðum sínum 1960—1967, svo og lausaskuldum vegna véla- og fóður- kaupa á sama tíma, að báðum árum meðtöldum, og ennfremur til lán- veitinga handa fyrirtækjum, er á fyrrnefndu tímabili hafa komið upp vinnslustöðvum fyrir landbúnaðar- afurðir, en ekki fengið nægilegt fjár magn til langs tíma til þeirra fram- kvæmda.“ Ásgeir Bjamason er fram- sögumaður þessa máls. í 2., 3. og 4. gr. frv. er mælt fyrir um lánskjörin. I»ar segir svo um lausaskuldalánin: „Lán skulu veitt ... gegn veði í bújörðum bænda, ásamt mannvirkj- um, sem á jörðunum eru, vélum og vinnslustöðvum landbúnaðarins. Lánstími skal vera allt að 20 árum gegn veði í fasteign og allt að 10 ár- um gegn veði í vélum. Vaxtakjör skulu ákveðin af stjóm veðdeildar- innar að höfðu samráði við ráð- herra, en þó séu vextirnir ekki hærri en 6.5% á ári. Lán ... að viðbætt- um veðskuldum þeim, sem hvíla á fyrri veðréttum, skal ekki nema liærri fjárhæð en 80% af ntatsverði veðsins, en matsverð skal ákveðið af dómkvöddum mönnum á þann hátt, sent tíðkast hefur vegna lántöku í veðdeild Búnaðarbankans. Seðla- bankinn kaupir bankavaxtarbréfin — fyrir nafnverð.“ Lög um breytingu lausaskulda í föst lán voru sett árið 1962 og náðu til lausaskulda, er myndazt höfðu á árunum 1956—1960. Síðan hafa lausaskuldir aukizt mjög. í greinar- gerð þingmannanna, sem nú flytja málið á Alþingi, eru taldar fram margar þær ástæður, sem orsakað hafa lausaskuldasöfnunina. Meðal þeirra em þær, að stofnlán hafa ekki hækkað en dýrtíð farið mjög vax- andi. Lánstíminn er of stuttur og styttri en áður og vaxtakjör mun lakari en áður var. Lagður er á bænd ur sérstakur skattur, sem rýrir tekj- ur þeirra, en tryggir þeim ekki lán sem skyldi. Ungt fólk fær hvergi lán til bústofns- og vélakaupa og rekstr- arlán landbúnaðarins liafa ekki hækkað þótt krónan hafi minnkað. Þá er verð btivara of Iágt og komið úr samhengi við annað verðlag í landinu og fleira er fram tekið. □ ÞÓRARINN BJÖRNSSON SKOLAMEISTARI Fæddur 19. desember 1905 - Dáinn 28 HANN var fæddur að Víkinga- vatni í Kelduhverfi og ólst þar upp. Víkingavatn er fomt stór- býli. Utsýn þaðan er stórbrotin og fögur og umhverfið fjöl- breytt og litríkt. Þar er gott fyrir gáfað barn að alast upp, enda unni Þórarinn alla ævi æskustöðvunum, hvarf oft á svipulum frístundum í faðm þeirra og hvíldist hvergi betur en þar. Foreldrar Þórarins voru Guð rún Hallgrímsdóttir, bónda í Austur-Görðum í Kelduhverfi, og Björn Þórarinsson, bóndi á Víkingavatni. Þórarinn var elzt ur fjögra systkina. Eldri bróðir hans, Benedikt, gjörvulegur og gáfaður, fékk ungur lömunar- veiki og andaðist fyrir aldur fram. Önnur systkini hans eru: Sveinn, bóndi á Víkingavatni, kvæntur Guðrúnu Jakobsdótt- ur, prests í Holti undir Eyja- fjöllum, og Jónína, búsett á Víkingavatni. Af föður Þórarins hafði ég ekki mikil kynni. En ógleym- anleg er mér kvöldstund fyrir þrjátíu og fimm árum, er ég sat við hvíluna hans, en hann var þá farinn að heilsu og rúmfast- ur. Hann sagði mér frá stór- hríð, aftaka fjárskaðaveðri á ofanverðri síðustu öld. Ég þyk- ist. aldrei hafa heyrt betur sagt frá. Málið var rammislenzkt, og hljómur þess, myndauðgi og kynngikraftur svo furðulegur, að mér fundust hamfarir bylj- anna brotna á bænum. Þórar- inn átti ekki langt að sækja óbrigðula ást á íslenzkri tungu og norrænni menningu. Hún var ættararfur. Móður Þórarins, náfrænku minni, kynntist ég nokkru meira. Hún var greind og góð kona, mild og hlý í viðmóti. Hún unni Þórami hugástum og hann henni, eins og títt er um góðar mæður og gáfaða sonu. Þórarinn stundaði nám við gamla Gagnfræðaskólann á Akureyri og las síðan utan- skóla undir stúdentspróf. Ég var herbergisfélagi hans og bekkjarbróðir um skeið. Mörg- um afburða námsmörmum hefi ég kynnzt um ævina, en mjög dreg ég í efa, að nokkur þein-a hafi staðið Þórami framar, þótt auðvitað sé vanddæmt um slíkt. Allt nám virtist honum léttur leikur. í völundarhúsum stærð- fræði og latínu stóðu honum jafnt allar dyr opnar. Vorið 1927 fói'um við nokkrir, er lesið höfðum hér utanskóla, en notið kennslu hjá kennurum Gagn- fræðaskólans, suður til að þreyta utanskóla stúdentspróf við Menntaskólann í Reykja- vík. Skyldi það vera eins konar prófsteinn á það, hvort skólinn hér væri fær um að annast stúdentakennslu, og áttu af- burða hæfileikar og þekking Þórarins áreiðanlega mikinn þátt í því, að hér reis mennta- skóli þegar næsta haust. Menntaskólinn á Akureyri átti snemma Þórami Bjömssyni mikið að þakka og þó margfalt meira síðar. Að stúdentsprófi loknu stund aði Þórarinn nám við Sor- bonne-háskólann í París og lauk þaðan prófi (li-cénce-és- lettres) í frönsku (bókmennt- um og málfræði), latínu og upp eldisfræði. í janúar 1933 réðst Þórarinn kennari að Menntaskólanum á Akureyri og gat sér þegar mik- inn orðstír og fágætar vinsæld- ir. Hann var skipaður skóla- meistari 1. jan. 1948 og gegndi því umsvifamikla ábyrgðar- starfi þar til heilsan brast í ágúst 1966. Fékk hann þó um skeið nokkurn bata og hvarf að störfum síðastliðið haust, þar til nýtt áfall reið að í nóvember. Um skólameistarann Þórar- inn Björnsson er reyndar óþarft að ræða. Þúsundir manna um endilangt ísland þekkja hann og störf hans, virða hann og unna honum af alhug. Margt bar til þess, að Þórarinn var á réttri hillu við stjóm stórrar menntastofnunar. Eitt af því var það, hvað hann var ótrú- lega mannglöggur. Þegar í byrj un hvers skólaárs virtist hann ekki aðems þekkja hvern nem- anda með nafni, heldur vita náin deili á aðstandendum þeirra, ætt og umhverfi. Hitt skipti þó auðvitað meira máli, hve annt hann lét sér um stofn unina og allt, er varðaði hana. Velgengni hvers einasta nem- anda var gleði hans og gæfa. Áhyggjur þeirra og mistök voru honum vonbrigði og harm ur. í návist Þórarins fannst mér ég skilja spakmælið foma og fræga: Að skilja er að fyrirgefa. Þess vegna gleymir honum eng inn, sem átti því láni að fagna að kynnast honum og njóta handleiðslu hans. í örfáum minningarorðum, er ég mælti „á sal“ við lát hans, sagði ég m. a.: Persónulegar slóðir eru hálar og vandfarnar, en um Þórarin Bjömsson get ég sagt af heilum huga: Hann er sennilega auð- ugasti maðurinn, sem ég hefi kynnzt um ævina. Ekki af gulli og silfri, heldui- því, sem er dýr ara öllum gjaldmiðli: gáfum, mannkostum og drengskap. Og þessum undra auði miðlaði hann ævilangt. Hann gaf skól- anum dýrustu gjöfina, sem nokkur dauðlegur getur gefið: sjálfan sig heilan og óskiptan. Hann var allra manna örlát- astur á eigið fé, en yfir fjár- munum og hag stofnunarinnar, sem honum vai' trúað fyrir, vakti hann af dæmafárri alúð og fágætri samvizkusemi. Hann vann löngum langt fram á nótt við eftirlit og reikningshald til þess að spara skólanum útgjöld við aðkeypta vinnu, þótt leyfi til þeirra hefði verið auðfengið. Á hverju ári fór hann nokkr- ar ferðir til höfuðstaðarins í erindum skólans án þess nokk- umtíma að reikna ferðakostnað eða dagpeninga. Það taldi hann ekki rétt af því, að ríkið veitti honum, eins og öðrum í líkum. stöðum, lítilfjörlegan bílstyrk. Suðræn þjóðsögn hefir orðið mér minnisstæð. Tveir menn voru lokaðir inni í fangelsi ævi langt. Ekiu sinni fengu þeir að líta andartak út um dyrnar. Er hurðin luktist aftur að baki þeim, sögðu þeir hvor öðrum frá því, er þeir höfðu séð. Ann- ar sá iðjagræna jörðina og ann- að ekki. Hinn sá heiðan himin og tindrandi stjömur. Þórárinn Björnsson sá hvort tveggja. Hann unni gróandi jörð og ungu lífi, en 'hann gleymdi ekki, að himininn er hár og stjöm- urnar bjartar. Þórarinn kvæntist 22. júní 1946 Margréti Eiríksdóttur, Hjartarsonar, rafvirkjameist- . janúar 1968 ara, gáfaðri og listrænni konu, er numið hafði píanóleik og hljómlist í Englandi. Ég veit vel, að af mörgum góðum gjöf- um, sem örlátt lífið hafði gefið Þórarni, taldi hann hana bezta. Hún settist í vandasamt sæti og virðulegt og skipaði það með ágætum. Þessi listræna og hrif- næma kona gerðist mikih hús- móðir og átti ríka.n þátt í að skapa fagurt og menningarlegt heimili, þar sem glaðværð og gestrisni sátu í öndvegi. Munu fáh’ af óteljandi gestum, er þar bar að garði, gleyma andríkinu og listinni, sem alltaf vakti þar innan dyra. Frú Margrét tók mikinn og góðan þátt í erfiðum störfum manns síns. Vandamál hans og hugðarefni voru líka hennar eign. En bezt sýndi hún, hver hún var, er heilsa Þórarins brast. Af kvenlegum næmleik og varfærni hjúkraði hún hon- um til hinztu stundar. Og í sumar, er stundarbati hafði gef izt, ók hún daglega með hann út úr bænum, út í sumarmilda, eyfirzka náttúru. Þessara stunda naut Þórarinn og minnt ist þeirra oft, og ég veit líka, að þær hafa aukið á minningasjóð frú Margrétar. Við hann er gott að una, þegar kvöldar og skugg arnir þyngjast. Skólameistarahjónunum varð auðið tveggja efnilegra óska- barna: Guðrúnar, stúdents og kennaraskólanema, og Björns, nemanda í fimmta bekk í M. A. Það er víst undralangt síðan, og þó finnst mér það hafa verið í gær, sem við sáumst í fyrsta sinn. Það var uppi á Suðurvist- um. Aprílsólin, heit og björt, skein inn um gluggann á gamla skólanum okkar. Jörðin var græn, heiðið blátt og vorgyðjan með fangið fullt af óráðnum æskudraumum. Það var yndis- legt að lifa, njóta og unna. Árin hafa liðið. Ég er að kveðja — í síðasta sinn. Þú varst einn af beztu félögunum og tryggustu vinunum, sem ég hefi átt um ævina. Við vorum herbergisfélagar, deildum gleði og gamni, önnum og áhyggjum. í hálfan fjórða áratug unnum við saman, hlýddum kalli gömlu skólaklukkunnar til skyldunnar dag eftir dag og ár eftir ár. Og þegar hún kvaddi mig „á sal“ til að tilkynna látið þitt, fundust mér ómar hennar þrungnir djúpum trega og mun ljúfum minningum. Ég og fjölskylda mín heima og erlendis kveðjum þig hug- heilum vinakveðjum og þökk- um þér allt, sem þú hefir verið okkur fyrr og siðar: Glaðar æskustundir, gneistandi and- ríki, óbrigðulan drengskap og ævarandi tryggð. Þessi fátæklegu orð mín eru líka innileg samúðarkveðja til konu þinnar, bama og systkina. Ekki aðeins þau, heldur landið allt hefh’ mikils misst, en guði sé lof fyrir liðna tíð. Góði vinur, vertu sæll. Brynjólfur Sveinsson. ÞVÍ fór víðsfjarri, að okkur óraði fyrir því, sem vorum stödd á heimili Þórai'ins Björns sonar skólameistara á sextugs- afmæli hans fyrir aðeins rúm- um tveimur árum, að svo skammt yrði til þess, að við stæðum yfir moldum hans. Hann var þá svo glaður og sæll í návist vina sinna, fullur af stai'fsgleði og starfsþrótti og mátti vissulega finna til fagn- aðar af óvenjulegri farsæld og vinsældum í starfi sínu í þágu þess, sem 'honum var flestu kærara, skóla síns og æsku þessa lands. O’kkur óraði heldur ekki fyr- ir því í haust, er hann hóf starf við skólann á ný, jafnvel þótt dauðinn hefði þá þegar gert boð á undan sér, að svo skammt yrði til þessa dags. Hann virtist svo líkur sjálfum sér, var svo fullur af lífi, fullur fagnaðar og þakklætis fyrir það að eiga þess enn kost að starfa og finna enn leggja á móti sér andblæ af vin áttu frá ungum, opnum hugum. — Ég hef engum manni kynnzt, sem var jafnlagið að skapa slíkt andrúmsloft í kringum sig. Það stafaði umfrarn allt af því, hvers einlægur og opinskár hans eigin hugur var. Hann gaf svo fúslega af sjálfum sér, og þar fór saman mikil auðlegð og mikið örlæti. Gáfur hans voru miklar og fjölhæfar. Það gat ekki leynzt fyrir neinum, sem átti tal við hann. Hitt er mér þó enn ríkara í huga, hve góður maður hann var. — Daginn, sem hann dó, hitti ég gamlan mann, sem ég þekki, og talið barst að láti hans. „Hann hlýt- ur að hafa verið góður maður,“ sagði hann. „Ég þekkti hann að vísu ekki neitt. Við áttum víst aldrei tal saman, en hann brosti samt alltaf svo hlýtt til mín, í hvert sinn sem við mættumst.11 — Þannig var Þórarinn Bjöms- son. Það lagði ljóma af gáfum hans og yl frá mannúð hans, hvar sem hann fór. Hann stjórnaði ekki skóla sínum með valdi, heldur með ástúð og um- hyggju, sem fæstir nemenda hans gátu hugsað til að ‘brjóta af sér. Hjá lítilli þjóð eins og okkur íslendingum er mikið skarð ófullt og opið eftir slíkan mann. Allt landið stendur í þakkar- skuld við hann. Sem skólamað- - Heimsókn frá (Framhald af blaðsíðu 8). Deildarstjórinn majór Guð- finna Jóhannesdóttir og æsku- lýðsforinginn kapt. Sölvi Aasoldsen aðstoða við heim- sóknina. Lesið auglýsingu á öðrum stað í blaðinu. Veitið at- ur átti hann fáa sína líka. Sæti hans í Menntaskólanum á Ak- ureyri verður vandfyllt, og bær inn okkar drjúpír við fráfall hans. Við sendum ástvinum hans innilega samúðarkveðju. Þótt missirinn sé sár, má það þó vera nokkur harmabót að finna nú betur en nokkru sinni, hve mikils virði það var að eiga hann, slíkur sem hann vai’. Árni Kristjánsson. „Dáinn, horfinn! Harmafregn! Hvílíkt orð mig yfir dynur! En ég veit að látinn lifir, það er huggun 'harmi gegn.“ Það setti margan hljóðan á sunnudaginn, þegar það fréttist að Þórarinn Bjömsson, skóla- meistari, hefði látizt um nóttina. Hann var vinmargur hér í bæn um og naut mikils trausts. Hjartahlýr og gáfaður skóla- maður hefur horfið frá miklu hlutverki. Göfugur mannvinur hefur kvatt þennan heim. Ég átti því lána að fagna að kynnast Þórami Björnssyni og mat hann mikils. Viðmót ’hans og bros var alltaf svo einstak- lega hlýtt. Ég kynntist vel í fræðsluráði Akureyrar hve til- lögugóður hann var, og þakka samvinnuna þar um tíu ára skeið við uppbyggingu Oddeyr- arskólans. Oft leituðu bindindismenn til Þórarins til að flytja ræður við ýmis tækifæri. Hann studdi bindindismálið af heilum 'hug. Hann kynntist því í skóla sín- um, að það er eitt af okkar mestu vandamálum. Hann var einn af leiðandi mönnum stúkunnar Sigurfán- ans á Akureyri, meðan hún starfaði við Menntaskólann, og æðsti templar um skeiði Saga þeirrar stúku var björt, en því miður of stutt. Ég flyt þakkir frá bindindissamtökunum á þessum vegamótum. Þá flyt ég ástvinum Þórarins Björnssonar mnilega samúðar- kveðju frá okkur hjónunum við fráfall hans. Noregi hygli að æskulýðsvikan hefst sunnudag 11. febrúai’. Barna- samkomur verða haldnar á hverjum degi þessa viku. Verið hjartanlega velkomin á þessar samkomur. (Fréttatilkynning) Eiríkur Sigurðsson. MINNING ÞÓRARINN BjÖRNSSON SKÓLAMEISTARI Frá Tónlistarfélagi Akureyrar i. 1 dag fer svalur andblær um akur rauðra rósa, sem réttu fyrr blóm sín mót yl skærra ljósa. í sumar undu þær frelsi, úti sem inni, opnuðu bikarblöð og krónur, rauðar, hvítar, bleikar. Horfðu hátt til sólar. En liöfuð til foldar þær hneigðu ein eftir aðra, í haustsins kulda. Einnig síðasta rauða rósin, felldi tár, sem frusu. Því feigð bjó í Iofti, grunur um stjörnuhrap, á nýju ári. Samt eiga þær eftir að vakna á ný, úr vetrardvala, og bera okkur ihn hinna björtu daga. Á morgun, í vetur, finnum við aðeins angan bleikra blóma og brostinn streng, sem hrökk í sundur og ómar þó enn, mun ætíð hljóma í okkar brjósti. II. En kliður samhljómanna í liörpu Norðurlands hljóðnaði. Og reisn hins norðlenzka anda og snilli, hnýpir, sem fugl fjöðrum sviptur. Þjóðin öll syrgir menningarfrömuð og mætan dreng, mann með viðkvæmt, göfugt hjarta. Hinn fagri samhljómur hefir misst sinn dýpsta tón. — Undirölduna, sem lyptir til hæða og lætur það ekki aftur falla í öldudal, sem ber hún á brjósti: TIGN, AFL og ALMÆTTI, sem stjómar hnattamergð, á himnabrautum. III. ÞANNIG VAR ÞÓRARINN: Boðberi hugsjóna. Við innsýn og áhrif æðri heima, urðu orð hans og meitlaðar setningar, sem gullkom á sendinni strönd. Á skilnaðarstundum, við skólaslit, eins og ghnsteinar, sem berast með bergvatnsins flaum og skolast á land, við árósa. IV. Mannvits er þörf, menntun undirstaða meiri framfara. En þó er manngæzka og mildi meira virði. Ofar öllu. Þessi orð em aðeins . örlítið brot, skoðana hans og skilnings á lífinu. V. Nafn þitt ÞÓRARINN, samherji, vinur og ráðgjafi í tólf manna hópi tónlistarunnenda, hefir verið greypt á silfurskjöld, á saknaðar- og skilnaðarstund, með þessu eina orði: ÞÖKK. Orði, sem þú valdir við svipaðar aðstæður. Það segir allt. STEFÁN ÁGÚST. i ^..... ................ ...................... =---------> Fyrir niokkru barst mér and- látsfregn vinar míns, fyrrver- andi bæjarverkstjóra á Akur- eyri Júníusar Jónssonar. Þykir mér hlýða að minnast þessa mæta manns og kynna minna af heimili hans með nokkrum orðum. Júníus Jónsson var fæddur 14. júní 1885 að Þórustöðum í Grímsnesi. Foreldrar hans voru Jón Jóhannsson frá Kotfei-ju og kona hans Rannveig Sveins- dóttir smiðs á Þórustöðum. Sex ára gamall missti Júníus föður sinn og fluttist þá ásamt móður sinni að Apavatni og var þar um nokkur ár. Þá gerðist hann vinnumaður um skeið og var þá sjómaður á kútterum 8 vetrarvertíðir. í Flensborgar- skólann fór hann 23 ára gam- all og lauk þar námi 1910. Þá gerðist hann kennari vestur í Snæfellsness- og Hnappadals- sýslu nokkra vetur, en vann að vega- og brúagerð þar vestra á sumrum. Vorið 1913 réðst hann sem verkstjóri norður í Ej^jafjörð við vega- og brúagerð og vann þar þrjú sumur, síðan fór hann vestur í Skagafjörð og vann þar að byggingu Héraðsvetna- brúnna. Þá var hann. og verk- stjóri við byggingú Hólmaveg- ar og fyrsta kafla Vaðlaheiðar- vegar. Einnig gegndi hann verk stjórnarstörfum við virkjun Glerár. Árið 1927 réðst hann verkstjóri hjá Akureyrarbæ og gegndi því starfi til 1952, að hann lét af því starfi að nokkru leyti vegna vanheiísu, er hafði þjáð hann um margra ára skeið. Fyrstu vetuma eftir að haim fluttist norður, var hann heimiliskennari á Akureyri. En eftir að hann staðfesti ráð sitt, stundaði hann búskap um nokk urra ára skeið og naut þar að- stoðar tengdaforeldra sinna Jó- hanns og Helgu ,er eyddu hjá honum ævikvöldinu. Konuefni sínu, Soffíu Jó- hannsdóttur, kynntist Júníus á vegagerðarárum sínum í Eyja- firði. Þau gengu í hjónaband 3. nóvember 1916 og stofnuðu þá heimili á Akureyri og hafa bú- ið þar síðan. Þau eignuðust 3 börn. Elztur var Björgvin, vask ur maður og skíðagarpur mik- ill á yngri árum, nú starísmað- ur hjá Flugfélagi íslands á Ak- ureyri. Þá eignuðust þau stúlku er þau misstu á fyrsta ári. Þriðja bamið var stúlka, Helga Rannveig að nafni. Hana misstu þau uppkomna og nýlega gifta. Var þá þungur harmur kveðinn að heimili þeirra. En það létti þeim harminn, að sannfæringin um það ,að látinn lifir og að endurfundir myndu takast síð- ar meir. Dótturdóttur sína unga tóku þau að sér og hafa alið upp síðan móðirin féll frá. Þá misstu þau einnig tengdadóttur sína frá ungum bömum og hafa reynzt syni sínum og heimili hans ómetanleg stoð um mörg ár. Þessi eru helztu æviatriði Júníusar Jónssonar í fám orð- um sögð. En með þeim er þó ekki mikið sagt um manninn sjálfan, er stóð að baki þeim marhgáttuðu verkum og trúnað arstörfum, er honum voru falin, og skal það nú að nokkru gert. Vorið 1913 hófust kynni okk- ar. Ég hafði ásamt fleiri skóla- piltum ráðið mig til brúa- og vegagerðar í Eyjafh'ði rnn sum- arið. Bar fundum okkar saman að Grund, þegar Júníus kom þangað til að hefja vinnuna. Mér leizt maðurinn þegar hinn vörpulegasti, og þegar vinnan hófst næsta dag, varð ég þess var, að honum var annt um, að verkið ynnist sem greiðlegast, og á bak við hið glettna og góð- lega yfirbragð leyndist brenn- andi áhugi fyrir því að láta sér farast alla stjórn sem bezt úr hendi. Og þegar hann gekk að verki með okkur, voru þar eng- in vettlingatök á ferðinni — oft unnið í spretti. En aldrei var rekið eftir. Svo komu kvöldin, og þá ræddi þessi maður við okkur eins og jafningja og fé- laga, sagði skrýtlur og lét spausyrði fjúka, svo að allir urðu glaðir í skapi. Þetta voru viðbrigði fyrir mig, því að sumarið áður hafði ég unnið í vegagerð, og þá hafði verk- stjórinn aldrei ávarpað mig að nauðsjmjalausu. Mér fór að þykja vænt um þennan mann, og sú velvild hefir aldrei kuln- að hjá mér, nema síður sé. Ég fann að þessi maður vildi okk- ur allt hið bezta. Auðséð var, að hann hafði tileinkað sér dyggðimar skyldu rækni og trúmennsku í störfum en á slíku vill oft verða mis- brestur, einkurn ef hið opin- bera á í hlut. Alls vann ég hjá Júníusi heitnum í þrjú sumur, og mun óhætt að segja, að við vorum þá orðnir nánir vinir. Þá skildu leiðir. En jafnan var þar til vina að leita, sem Júníus var og heimili hans fyrir mig og fjölskjddu mína, ef við komum til Akureyx-ar, eða ég þurfti eitthvað til hans að leita. Og götu mína greiddi hann ótrú- lega oft og stundum án þess ég vissi fyrri en eftir á. Greiðvikni hans og góðvild í garð annarra verður bezt lýst með hans eigin orðum. Ég var þá, sem oftar, staddur heima hjá honum. Kom hann þá heim í seinna lagi, þreyttur eftir ei’ilsaman dag í þöi’fum bæjarins. Sagðist haixn hafa tafizt nokkuð eftir vinnu- tíma vegna smágreiða, er hann hefði gert einhverjum manni, og bætti við: „Það er ákaflega gaman að geta gert öðrum gi’eiða, en það er minna gamarx að þiggja hann.“ Enda var það ríkt í eðli hans að standa á eigin fótum með atoi’ku og' framsýni, og hörð lífsbarátta á yngri árum hafði einnig kennt honum það. Annað einkenni á Júníusi Jónssjmi var glettni hans og gamansemi. Ollum, sem ég hefi rætt það við, ber saman um, að harrn hafi verið óvenju skemmti legur og fyndhm og haft sér- stakt lag á því að koma mönn- um til að brosa án hávaða eða (Framhald á blaðsíðu 7).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.