Dagur - 24.04.1968, Síða 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJOFN
Dagur
LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 24. apríl 1968 — 17. tölublað
FIUMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
HAFISNEFND KOSIN
í VIKUNNI sem leið kaus
Alþingi fimm manna hafís-
nefnd, sem áður hafði verið
samþykkt að kjósa, eftir til-
lögu fjórtán þingmanna af
Norður- og Austurlandi og
af Vestfjörðum. Nefndin á
að gera tillögur um ráðstaf-
anir vegna hættu, sem á því
er að siglingar teppist vegna
ísa. í nefndinni eru alþingis-
mennirnir: Stefán Valgeirs-
son, Bragi Sigurjónsson,
Pálmi Jónsson og Ólafur
Björnsson, sem gert er ráð
fyrir að verði formaður og
Jóhannes Stefánsson í Nes-
kaupstað. Formlegan fund
hefur nefndin ekki enn hald
ið, en nefndarmenn munu
þó hafa komið saman til
skrafs og ráðagerða. □
H-DAGURINN ER 26. MAl
Nauðsynlegt að fólk kynni sér breytingarnar
H-DAGURINN svonefndi er
26. maí n. k. Lögreglustjórar og
sýslumenn á hverjum stað sjá
um framkvæmd þess máls, en
undii'búningur er í höndum
fleiri aðila, svo sem umferðar-
nefndar í þéttbýli, þar sem þær
eru til en þeirra störf beinast,
hvað H-daginn snertir, sérstak-
lega að ýmsum nauðsynlegum
umferðarbreytingum til að auð
velda almenna umferð, auk
þeirra breytinga, sem lögboðnar
eru og gildi taka 26. maí.
Búið er, hér á Akureyri, að
ákveða ýmsar breytingar, sem
mikils undirbúnings hafa kraf-
izt, svo sem tenging Glerárgötu
framhjá miðbænum, við höfn-
ina. En sú umferðaræð léttir
mjög á annarri umferð í stórum
hluta bæjarins. Reglugerð um
umferðarmál hefur þegar verið
samþykkt fyrir Akureyrarkaup
stað og uppdrættir af helztu
umferðaræðum, og umferð eftir
breytinguna, hafa verið til sýnis
á áberandi stöðum í bænum.
Blaðið ræddi þessi mál við
Gísla Ólafsson yfiiiögergluþjón
í fyrradag. En hann er formað-
ur umferðaröryggisnefndar fyr-
&
t
é
t
«-
«&
Gleðilegt
I
t
f
t
i suman
ir Akureyri og nokkrar nær-
liggjandi sveitir.
Þessar sveitir, sagði hann, eru
stofnaðar á vegum Slysavarna-
félags íslands og eiga að vera
einskonar tengiliður milli al-
mennings og valdhafanna og
bæjar- og sveitarstjórna, ráð-
gefandi nefnd, án valds eða
launa. Hálshreppur, Svalbarðs-
strandarhreppur, Grýtubakka-
hreppur hafa sínar sérnefndir
og með Dalvík er Svarfaðardal-
ur, Árskógsströnd og Hrísey.
En önnur svæði við Eyjafjörð
heyra undir nefndina, sem hér
stanfar. Hins vegar er bæjar-
fógeti og bæjarverkfræðingur í
umferðarnefnd bæjarins.
Rétt er að geta þess, sagði
yfirlögregluþjónninn, að um-
ferðarkennsla í skólum, varð-
andi H-daginn, er algerlega í
höndum fræðslumálastjórnar-
innar, en umferðaröryggisnefnd
hefur komið á fundarhöldum
í héraðinu, þar sem erindrekar
H-umferðarinnar hafa haldið
fræðsluerindi um umferðarmál.
Aðspurður sagðist Gísli búast
við því að 50—70 umferðar-
verðir yrðu hér í bænum til að
leiðbeina, einkum gangandi
fólki í umferðinni og eitthvað
yrði fjölgað í lögreglunni líka.
Haldið verður uppi löggæzlu í
öllu umdæminu, með hjálp
aukinnar lögreglu, einnig úr
sveitum og bifreiðaeftirlits-
manna og lögreglumanna frá
Dalvík.
Senn kemur sumaryndi og graeir liagar á norðlægum slóðum.
Gufuvirkjun í Bjarnarflagi í sumar
í SÍÐUSTU VIKU voru hér á
ferð Valgarð Thoroddsen raf-
magnsveitustjóri, Ottó Valde-
marsson verkfræðingur og Ólaf
ur Eiríksson tæknifræðingur og
fóru, ásamt Ingólfi Árnasyni raf
veitustjóra, austur í Náma-
skarð. Þessi ferð er liður í at-
hugun Rafmagnsveitna ríkisins
á gufuvirkjun í Námaskarði.
Ef af virkjun verður, yrði
þetta fyrsta virkjun sinnar teg-
undar á landinu. Fyrirhuguð
stærð er 2—3000 kw. og hlut-
verk slíkrar virkjunar yrði tví-
þætt: í fyrsta lagi að fá reynslu
af rekstri slíks mannvirkis hér
á landi, og í öðru lagi er full
þörf á viðbótarafli hér á Norð-
urlandi, þar til stækkun Laxár-
virkjunar er komin í not.
Virkjunina er fyrirhugað að
byggja án eimsvala, þannig að
gufan er tekin beint inn á hverf
ilinn og er hleypt út í andrúms-
loftið. Gufunotkun er mikil við
þessa tilhögun, en til muna
ódýrari í stofnkostnaði.
Fregnir af áðurnefndri ferð
sunnanmanna til Mývatnssveit-
ar og fyrirhuguðum fram-
kvæmdum Rafmagnsveitna rík
isins þar eystra, fékk blaðið
staðfestar hjá Ingólfi Árnasyni
rafveitustjóra.
Hin sívaxandi raforkuþörf
landsmanna kallar stöðugt á
auknar virkjanir fallvatna, sem
landið á svo mikið af og hafa
gefið góða raun, sem orkugjafi
til iðnaðar og margra fram-
kvæmda og til að hita og lýsa
heimili manna og vinnustaði.
Fyrir löngu byrjuðu einnig at-
huganir á jarðhita til raforku-
framleiðslu, og nú mun um
aldarfjórðungur liðinn síðan
ákveðið var að virkja jarðhita
í Krísuvík á þann hátt, en af
framkvæmdum þar varð ekki,
né heldur á öðrum stöðum.
í Bjarnarflagi í Mývatnssveit,
nálægt Kísiliðjunni og í Náma-
skarði, er jarðhitinn gífurlega
(Framhald á blaðsíðu 4)
Búféð er veigamesti þátfur
landbúnaðarsýningarinnar
LANDBÚNAÐARSÝNINGIN í
Laugardal 1968 verður 9.—18.
ágúst. Sýndar verða 12 úrvals
kýr í tveim flokkum og 4 úrvals
kyn'bótanaut, tvö þeirra ásamt
nokkrum dætrum, ennfremur
holdanautablendingar.
Sauðfé af svæðinu milli Hvít-
VIÐ ÞINGLAUSNIR
ALÞINGI var slitið á laugar-
daginn var. Forseti lýðveldis-
ins, herra Ásgeir Ásgeirsson,
vék að því í stuttri ræðu við
þingslitin, að hann fram-
kvæmdi þá athöfn í síðasta
sinn. En þótt lýðveldisforset-
inn undirritaði bréf um þing-
slit og tilkynnti þau síðan í
heyranda hljóði, er það ekki
hann, sem í raun og veru
ákveður þingslit. Það gerir for
sætisráðherrann. Það er hann,
sem leggur dóm á það, hvort
þingið sé búið að afgreiða þau
mál, sem nauðsyn ber til að
afgreiða hverju sinni. Sá dóm
ur getur orkað tvímælis. Og í
útvarpsumræðunum sagði
einn af alþingismönnunum, að
þinginu væri slitið þennan
dag af því þrír ráðherranna
ætluðu til útlanda um þá
helgi.
Fyrir ríkissjóð skiptir það
víst ekki miklu máli hvort
þinginu er slitið vikunni fyrr
eða síðar, því þingmenn hafa
fast árskaup og sama er að
segja um ráðherrana. Veru-
legur hluti af starfsmönnum
þingsins f/innur líka allt árið
á föstu kaupi. En mörg voru
málin óafgreidd í þinglokin,
sem fyrir þingið höfðu verið
lögð, og síðustu dagana var
flaustrað af málum, sem full
þörf var að athuga betur. Slík
afgreiðsla mála er raunar ekki
ný bóla og er skammt að minn
ast skólakostnaðarlaganna
nýju, sem knúin voru gegn
um þingið í fyrra, rétt fyrir
þingslit. Niðurstaðan er sú, að
þessi lög eru ekki nema að
sáralitlu leyti komin til fram-
kvæmda, og sagt er, að sumir
kaflar þeirra séu óframkvæm
anlegir, að áliti stjórnarvalda.
Bændum landsins mun
þykja það hart, að lhin miklu
vandamál landbúnaðarins um
þessar mundir fengust ekki
tekin fyrir, þó að óskað væri,
en haldið fast við að slíta þing
inu án tillits til þeirra. Af-
leiðingin kemur nú m. a. fram
í hinu nýálagða verðjöfnunar-
gjaldi.
Á þessu þingi, sem nú er ný
lokið, var á ný flutt tillaga
um, að ljúka þeirri endurskoð
un stjórnarskrárinnar, sem
boðuð var við stofnun lýðveld
isins fyrir aldaríjórðungi. Enn
situr það mál í sama f'arinu,
og helzt var svo að heyra á
forsætisráðherra, að endur-
skoðunar væri ekki þörf.
Átta þingmenn fluttu á þing
inu tillögu um að vegamála-
(Framhald á blaðsíðu 4).
ár og Þjórsár verður sýnt, enn-
fremur geitfé.
Kynbótahross og gæðingar af
öllu landinu verða sýnd, m. a.
18 stóðhestar.
Veitt verða ofurlítil verðlaun
fyrir framúrskarandi gripi t. d.
50 þús. kr. fyrir bezta stóðhest-
inn og er áherzla lögð á þessa
búgrein, alveg sérstaklega —
á þessari sýningu.
Beiðni um þátttöku í sýning-
unni sendist Búnaðarfélagi ís-
lands fyrir 15. maí n. k. Flutn-
ing að og frá sýningu annast
eigendur og greiði þátttöku-
gjald.
Búfjársýningin verður einn
veigamesti þáttur landbúnaðar-
sýningarinnar og þar virðast
hrossin eiga að skipa öndvegi.
ASIUINFLUENSAN
ASÍUINFLÚENSAN hefur náð
mjög að breiðast út í Reykjavík
eftir páska. Ekki er að fullu
vitað, hvort hér er um sömu
inflúensu að ræða, og hér var
áður víða um land. Veikinni
fylgir hár hiti og þá er alltaf
hætt við fylgikvillum, ef ekki
er mjög varlega farið. Hún
breiðist nú um Suðumes. □