Dagur - 24.04.1968, Blaðsíða 4
4
Skrifstofur, Ilafnarsíræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
VIÐREISN SKAL ÞAÐ
HEITA
í ELDHÚSUMRÆÐUM á Alþingi,
sem útvarpað var um miðja síðustu
viku sagði Gísli Guðmundsson m. a.
í ræðu sinni um viðreisnar-stefnuna:
„Vakri Skjóni hann skal heita o. s.
frv.“ Enn í dag skal það viðreisn
heita, sem stjórnin hefst að. Það er
VIÐREISN að banna vísitölutrygg-
ingu og það hét einnig viðreisn að
leiða hana í lög á ný. Það hét við-
reisn að afnema verðuppbætur og
nú heitir það viðreisn að veita fé til
þeirra. Það var viðreisn í júní að
vernda krónuna með verðstöðvun
en í nóvember var það viðreisn að
fella krónuna. Eitt árið var hófleg
kauphækkun samsæri gegn þjóðar-
hag. Annað ár var meiri kauphækk-
un viðreisn.
Hin breytilega viðreisn, í því fólg-
in, að afnema það í ár, sem gert var
í fyrra og þannig á víxl, hefur verið
snar þáttur í lausung stjórnarfarsins.
Látum oss nú draga tjaldið eina
anna á þessum átta árum (viðreisnar-
örskotsstund frá sögusviði þjóðmál-
árum). Hvað sjáum við þar? Við sjá-
um þrjár gengisfellingar. Við sjáum
vísitölusúluna hækka misseri eftir
nisseri eins og kvikasilfurssúluna,
sem mælir viðbrögð líkamans við
elnandi sótt. Og þó hefur þjóðar-
líkaminn í seinni tíð fengið reglu-
Iega sitt aspirín, niðurgreiðslu lífs-
nauðsynja í stækkandi skömmtum.
Við sjáum kostnaðarverð samskonar
íbúða hlaupa úr 450 þúsund kr. upp
í hátt á ellefta hundrað þús. samkv.
Hagstofutölum. Við sjáum niður-
stöðutölur ríkisfjárlaganna og þar
með álögurnar fara hamförum upp
á við ár frá ári úr 1100 millj. kr. árið
1959 upp í 5000 millj. kr. árið 1968.
Við sjáum fjármálaráðherrann, þann
sem var og þann sem kom slá staf
sínum á helluna, einu sinni á hausti,
einu sinni um miðjan vetur og einu
sinni á útmánuðum, og í hvert sinn
spretta þar upp nýir skattar. Núna
fyrir páskana var það benzínskattur-
inn, þungaskatturinn og gúmmí-
gjaldið. Eftir Páskana útflutnings-
gjald á sjávarafurðum. Við sjáum
hinar sjö feitu kýr, afla og markaðs-
góðærin miklu, fara yfir sjónarsvið-
ið og stritandi hendur keppast við að
skapa verðmæti úr sjó og landi. Við
sjáum peningaflóð þrengja sér inn í
banka og sparisjóði og þó meira í
aðra áttir. Við sjáum það í vaxandi
mæli streyma yfir í gagnslitla eyðslu,
af því að lausung er í stjórnarfarinu
og krónan minni í ár en í fyrra. Við
sjáum innstæður og sjóði visna í dýr-
tíðaiTokinu . . .“ □
JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU:
Veltiár - Millivegur
Heilbrigt atvinnulíf
ÞRIÐJA ATHUGUN
, HÉR voru veltiár 1941—1946.
Við fengum vörn móti Hitler og
Stalín öll þessi ár og græddum
samtímis. En svo kom kreppan
1946. Þá var öllum gróðanum
eytt í skyndi. Bankarnir voru
þurrir. Búðirnar vörulausar.
Ekki voru birgðir hjá kaupfé-
lögum eða kaupmönnum. Stalín
var reiður og keypti engan fisk
missirum saman. Vesturþjóðirn
ar voru blásnauðar eftir stríðið.
Island hafði ekkert lánstraust
innanlands eða utan. Fyndinn
Svíi spurði á flugvellinum í
Stokkhólmi hvort íslenzkur
maður, sem þar var, væri ekki
síðasti íslendingurinn, sem gæti
farið utan. Upp úr þessum bág-
indum gaf Marshall íslenzku
þjóðinni 700 milljónir króna, út
borgað í vörum og peningum.
Norðmenn og Danir áttu skilið
að fá þessa hjálp, þar sem Hitl-
er hafði plokkað þá eftir beztu
getu. Samt var rétt af Marshall
að gefa okkur og forráðamönn-
unum að þiggja gjöfina. Við
höfðum leikið með skyndigróð-
ann eins og lítil börn. Skilyrði
fyrir Marshallgjöfinni voru
lexía hins ráðsetta manns, sem
var að ávarpa viðvaninga.
Enn kemur að svissnesku for
dæmi. Danir eru góðir veizlu-
menn, bæði við að veita og
þiggja. Við höfum reynt að
nema veizlufræði af þeim. Fyr-
ir nokkrum árum bauð borgar-
stjórn Kaupmannahafnar 12
fulltrúum frá bæjarstjórn í
Zuruch til veizlu í Kaupmanna-
höfn. Gestirnir komu á tilsett-
um tíma. Þeir voru allir leiddir
til virðulegra sæta. Hófið var
hið pi'ýðilegasta. Þegar því var
- GUFUVIRKJUN ...
(Framhald af blaðsíðu 1).
mikill. Á báðum stöðum hefur
hitamagnið verið r annsakað
lauslega m. a. með borun og
gufa einnar borholunnar hefur
verið beizluð og er notuð við
Kísilverksmiðjuna.
Ekki er blaðinu kunnugt um
áætlað jarðhitamagn í Bjarnar-
flagi og Námaskarði, sem virð-
ist eitt og sama jarðhitasvæðið,
eða hver líkindi væru á nægri
orku til stórvirkjana. En ef fyrir
huguð virkjun tekst vel, hlýtur
samanburður á gufuvirkjun og
vatnsvirkjun að ráða vali fram-
haldandi virkjana, bæði með
hliðsjón af kostnaði og rekstri.
Vararafstöð á nú að setja upp
á Akureyri, 3500 kw., og er það
fjórða dísilrafstöðin í bænum.
Samtals eiga þær að geta skilað
7500 kw. En Laxárstöðin 12500
kw., eða um það bil. □
- VÍÐ ÞINGLAUSNIR
(Framhald af blaðsíðu 1).
stjóra yrði falið að gera áætl-
un um fullnaðaruppbyggingu
þjóðvegakerfisins og fjáröflun
í því skyni á 10 árum. Það er
hugmyndin frá Laugum um
hringbraut landsbyggðaninn-
ar, sem hér er um að ræða.
Ekki varð þessu máli fram-
gangs auðið og þarf víst að
hamra betur á, ef duga skal.
Búið er að stórhækka gjöld
á umferðinni, en stjórnarvöld
in syðra sjá víst fátt annað en
hraðbrautina í kring um
Reykjavík, þegar um framtíð-
aruppbyggingu er að ræða. □
lokið reis formaður Svisslend-
inga úr sæti og þakkaði boðið
og hinn ágæta fagnað í virðu-
legri ræðu. „En“, bætti ræðu-
maðurinn við, „nú er skyldan
komin að okkur Svisslending-
um að endurgjalda ykkur Hafn
arbúum, sýnda rausn og skör-
ungsskap og bjóða fulltrúum
ykkar til jafn skörulegrar
veizlu í átthögum okkar, en því
miður höfðum við ekki þakkað
þessar móttökur eins og mál-
efni standa til, með því við höf-
um enga peninga til veizlu-
halda. Þess vegna verður að
sitja við þakklætið eitt.“
Ég átti einu sinni leið um
þessa borg í Sviss og hagaði
ferð minni svo, að ég hefði séð
marka fyrir höllum milljónera,
sem vissulega eru margir til í
þessari borg. En Svisslendingar
gæta hófsemi, jafnt í veizluhöld
um sem í skrauthýsum og aug-
lýsa mátulega það sem geymt
er innan luktra dyra.
Næst verður vikið að eyðslu
hér á landi milli kreppubilanna.
Daguk-
kemur næst út miðvikudaginn
1. maí. Eins og sjá má á þessu-
blaði taka auglýsingarnar mikið
rúm og verður töluvert efni að
bíða birtingar þar til síðar. □
r
Frá Happdrætti H. I.
Hæsti vinningurinn í 4. fl. kom
á miða í Akureyrarumboði.
500.000.00 kr. nr. 29047.
10.000.00 kr. nr. 29046, 29048.
5.000.00 kr. nr. 7384, 12074,
19427, 28859, 30522, 33193, 43902,
53235, 56211.
1.500.00 kr. nr. 4337, 5223,
5393, 6019, 6569, 6891, 7042,
7108, 7148, 8848, 9176, 10205,
11898, 12094, 12100, 13377, 13379,
13920, 13960, 14891, 14930, 15020,
15230, 15231, 15552,16068, 16082,
16591, 16937, 17071, 17941, 18029,
19430, 19576, 19577, 20709, 21736,
22132, 22407, 23564, 23595, 23863,
23867, 24010, 25931, 26301, 26324,
29001, 29316, 30507, 30534, 30541,
30546, 31157, 31162, 31567, 43083,
43913, 44588, 44606, 44890, 45310,
46471, 46815, 49095, 49128, 49145,
51705, 52149, 53233, 53830, 53849,
54058, 54748, 59579.
mwmm
14 ára drengur óskar eftir
ATVINNU, hefur unnið
í verzlun tvö sumur.
Meðmæli. Margt kemur
til greina.
Uppl. í síma 2-13-97.
LYKLAKIPPA
fannst á Svalbarðsstrand-
arvegi. — Má vitjast á af-
greiðslu dags.
11 og 12 ára telpur
óska eftir
KARNAGEZLU
í sumar.
Sími 2-10-51.
KÖTTUR í óskilum
Gullfalleg læða, gul, svört
og hvít að lit, hefur verið
hér í hverfinu í nokkurn
tíma.
Uppl. í síma 1-21-67.
LANDROVER
2ja ára gamall, til sölu.
Uppl. í síma 1-20-61.
TIL SÖLU:
MOSKVITH BIFREIÐ
árgerð 1961. Er í mjög
góðu lasn.
Upplýsingar gefur
Jóhannes Björnsson,
Hjalteyri, sími 3-21-28
og 3-21-27.
TIL SÖLU:
Ford dieselvörubifreið
Árgerð 1966.
Uppl. í síma 1-28-28.
TIL SÖLU:
LANDROVER diesel,
árgerð 1966,
ekinn 37 þús. km.
Einnig CHEVROLET
VÖRUBIFREIÐ
árgerð 1947 (lengri gerð).
Upplýsingar á símastöð-
inni Bægisá.
Bíla & Vélasalan
Land-Rover diesel 1963
ný klæddur, ný dekk.
Rússajeppi 1957
Benz-vél og gírkassi.
Opið frá 3—6, sínri 1-19-09
LÍTIL ÍBÚÐ ÓSKAST
nú þegar. *
Þrennt í heimili.
Vinsamlega hringið í
síma 1-26-41 frá 1—3 e. h.
Árni Sverrisson, prentari.
Óska eftir að taka
ÍBÚÐ Á LEIGU
frá 14. maí n.k.
Uppl. í síma 2-14-31
eða 1-26-88.
Hjón með eitt barn
ÓSKA EFTIR ÍBÚÐ
sem fyrst.
Sími 1-18-22.
LÍTIÐ EINBÝLISHÚS
óskast til kaups eða
þriggja herbergja íbúð
með sér inngangi, — helzt
á Eyrinni. Góð útborgun.
Sími 2-14-77.
HEY TIL SÖLl
150 hestar af TÖB
Upplýsingar í Skjald;
Sími 1-13-82.
BARNAVAG
til sölu.
Uppl. í síma 1-23-
TIL SÖLU:
Lítið notaður
Agrotiller TÆTAl
Uppl. í síma 1-29-
CATERPILLAR I
JARÐÝTA, ásamt 1
er til sölu. Tilboð se
Jónasi Halldórssyni,
kelsstöðum, sem ve
upplýsingar ásamt St
Þórðarsyni forstjóra
vélaverkstæðinu h
Akureyri.
Nýlegur
Pedegree BARNAV,
til sölu.
Uppl. í síma 2-15-
MÓTORHJÓL til
Uppl. í síma 2-10
eftir kl. 8 á kvöldi
JEPPAKERRUí
til sölu á rnjög liags
verði.
Grímur Valdimars:
Sírni 1-14-61
AT
Ræktunarsamband
vill ráða mann var
gefur Rafn Helgas<
NÝl
HERRAGÖl
BARNAGÖTl
STÍGVl
SKÓ
BRJÓTUR H.F.
hefur skurðgröfur
ámoksturstæki.
Einnig jarðvegsbor,
3 stærðir.
Vanir
menn.
Fljót
og góð af-
greiðsla.