Dagur - 24.04.1968, Side 8
8
Aflabrögð með eindæmum góð
Eskifirði 23. aprí!. íshröngl er
enn hér á firðinum Qg út Reyð-
arfjörð. En skipum er vel fært.
i HAFLIÐILANDAR
28« TONNUM
Siglufirði 23. apríl. Hafliði land-
ar hér 280 tonnum og Sigl-
firðingur 50 tonnum á Húsavík.
Afli togbátanna er ágætur en
nær ördeyða á línu. Fiskurinn
er úttroðinn af átu og lítur ekki
við beitu. Hrognkelsaveiði er
sæmileg.
Landleiðin í vestur er lokuð
nema jeppum. Snjór er minni í
fjöllum en á sama tima í fyrra.
J. Þ.
Aflabrögð eru með eindæm-
um góð og mikil atvinna. Um
1800 tonn fiskjar eru hingað
komin af fjórum heimabátum,
Jóni Kjartanssyni, Krossanesi,
Hólmanesi og Guðrúnu Þorkels
dóttur. Ennfremur hefur Sigur
björg ÓF lagt hér upp sínum
afla. Aflinn.er'sóttur suður fyr-
ir land, allt vestur að Ingólfs-
höfða. Fiskurinn fer í frystingu
og salt.
Allif vegir eru sundurskornir
og illfærir.
Verið er að aefa Pilt og stúlku.
Leikstjóri er 'Erlendur Svavars
son, Réykjavík. Unnið er af
kappi við undirbúning lands-
móts UMFÍ, sem haldið verður
á Eiðum fyrsta sunnudag júlí-
mánaðar. K. I.
■■ —-----A
GARÐYRKJUSKÓLI
Á AKUREYRI
INGVAR Gíslason og Stefán
Valgeirsson fluttu á Alþingi,
sem nú er nýlokið, frumvarp
til laga um stofnun garð-
yrkjuskóla á Akureyri. Þing
menn úr Norðurlandskjör-
dæmi eystra hreyfðu þessu
máli fyrir 2—3 árum á Al-
þingi og fengu samþykkta
áskorun til stjórnarinnar að
vinna að lagasetningu um
skólann. Nefnd hefur starf-
að hér nyrðra og skilaði hún
tillögum til ráðuneytisins.
Vonandi verður þetta frum-
varp til þess, að skriður kom
ist á málið. □
Fyrsli áfangi félagsheimilis á Húsavík
SMÁTT OG STÓRT
LANGLÍFI — SKAMMLÍFI
Nú er aldur manna 70—80 ár í
hæst þróuðu lönduniun (enn
hærri á sumuni stöðum, þar
sem fólk er hvað fjarlægast
„þróun“ nútímans). Sennilegt
er, að 100 ár verði eðlilegt ævi-
skeið, áður en langt líður, segir
í áliti starfsmanns í WHO. Kon-
ur lifa 5 árum lengur í iðnaðar-
löndum. Fyrrum var meðalald-
ur 20—40 ár, segir í sömu frétt.
PLATON VARÐ ATTRÆÐUR
Skýrslur vantar þó uin langlífi
manna eða skammlífi á fyrri
öldum. Sagan getur aðeins um
aldur einstöku manna. Platon
varð áttræður, Cicero 64 ára.
Ovidius 60 ára og Pyþagoras
náði 82 ára aldri. Víst er, að
meðalaldur víða um lönd hefur
hækkað síðustu áratugi. Vísindi
fregnir af því, að lóan væri kom
in, stelkurinn, grágæsin, álftin
og tjaldurinn, en aðeins fáa
fugla hverrar tegundar höfðu
menn þá séð. Auðnutittlings-
hreiðri með sex eggjum var
blaðinu sagt frá í gær, og þrest-
irnir eru líka byrjaðir á hreiður
gerð.
SAUÐNAUT
Norðmenn ætla að flytja nokkra
tugi af grænlenzkum sauðnauta
kálfum til síns heimalands á
þessu ári. Mun eiga að hafa þá
fyrst um sinn í eyju einni.
Hvert kíló af sauðnautaull er
80 þús. kr. virði, að því er fregn
ir herma. Kjötið er einnig mikið
og ljúffengt. Sauðnaut þau, sem
Norðmenn ætla að flytja inn og
síðan fjölga, eiga að vera hús-
dýr.
Húsavík 17. apríl. í gær var tek
inn í notkun fyrsti áfangi félags
heimilis Húsavíkur, 335 ferm.
dans- og fundarsalur, fimm her
bergi aðildarfélaga, setustofa og
eldhús, svo og tilheyrandi snyrt
ingar, fatageymslur og gangar.
Þessi áfangi, sem er félagaað-
staða heimilisins, var formlega
opnaður og afhentur til notkun
ar. á hátíðarfundi, sem fram-
kvæmdastjórn byggingarinnar
efndi til í gær með forráðamönn
um aðildarfélaganna og nokkr-
um gestum. Síðar um daginn
kom fjöldi manns, til að .skoða
húsakynnin, sem eru eins og
smekklegasta heimili getur bezt
verið. Heimilinu bárust í tilefni
dagsins tvær góðar gjafir, mál-
verk frá Benedikt Jónssyni list
málara og 25.000.00 krónur frá
Einari M. Jóhannessyni verk-
smiðjustjóra.
Smíði félagsheimilisins hófst
árið 1962, er Áskell Einarsson,
þáverandi bæjarstjóri á Húsa-
vík stakk upp fyrstu skóflu-
stunguna. Ákveðið var, að bygg
ingin skyldi vera þrjár álmur
og byggð í áföngum. Búið er að
steypa tvær álmurnar, félaga-
aðstöðuna og aðalsamkomusal-
inn og eftir er að steypa álmu
fyrir kvikmynda- og leiksýn-
ingar. Nú er ennfremur búið að
ákveða að gera gistihús við fé-
lagsheimilið. Teiknistofa arki-
tektanna, Gísla Halldórssonar
og Jósefs Reynis að Ármúla 6,
Reykjavík hefur gert teikning-
ar að húsinu. Framkvæmda-
stjóri byggingarinnar hefur ver
ið Einar M. Jóhannesson og for
maður framkvæmdastjórnar
Sigurjón Jóhannesson skóla-
stjóri.
Rekstur félagsheimilisins er
þegar hafinn og var fyrsti dans-
leikurinn haldinn í því í gær-
kveldi. Framkvæmdastjóm þess
skipa: Björn Friðfinnsson bæj-
Ágætur fundur
HIN ýmsu bindindissamtök á
Akureyri héldu opinberan fund
um bindindismál í Varðborg í
FRÁ SKÁKÞINGINU
STAÐAN á Skákþingi Akur-
eyrar fyrir síðustu umferð í
meistarafilokki er nú þessi:
Efstir og jafnir eru þeir Jó-
hann Snorrason og Olafur
Kristjánsson með 6 vinninga og
næstur er Jón Torfason með
4já vinning og biðskák. Síðasta
umferðin verður tefld n. k.
mánudagskvöld í Landsbanka-
salnum. □
arstjóri, Freyr Bjarnason múr-
ari og Grímur Leifsson rafvirki.
Framkvæmdastjóri þess er Sig-
tryggur Albertsson veitinga-
maður.
Gamla samkomuhús Húsa-
víkur verður nú notað fyrir leik
sýningar og kvikmyndasýning-
ar. Framkvæmdastjóri þess er
Jóhannes Haraldsson. Á því
hafa verið gerðar miklar um-
bætur, komið fyrir föstum sæt-
um á höllu gólfi og góMin teppa
lögð.
Leikfélag Húsavíkur æfir nú
sjónleikinn „Hjónaspil“, sem er
gamanleikur og munu sýningar
hefjast innan skamms. Þ. J.
geta næstum í einu vettfangi
lengt líf manna að mun, eins og
áður hefur gerzt.
AÐ BÚA TIL FRÆKNA
MENN
Þá er í þessu sambandi rétt að
benda á þær mörgu raddir, sem
telja sjálfsagt, að stjórna við-
ERLENDAR SKULDIR 1958-68
SAMKVÆMT skýrslum
Seðlabankans hafa skuldir
íslands erlendis (opinberra
aðila og eikaaðila) verið sem
hér segir í árslok:
Ár 1958 — 1999 millj. kr.
Ár 1959 — 2635 millj. kr.
Ár 1960 — 2987 millj. kr.
Ár 1961 — 2620 millj. kr.
Ár 1962 — 2038 millj. kr.
Ár 1963 — 2352 millj. kr.
Ár 1964 — 2515 millj. kr.
Ár 1965 — 2584 millj. kr.
Ár 1966 — 3271 millj. kr.
Ár 1967 — 4891 millj. kr.
Þessar tölur sýna nettó-
skuldir, þegar búið er að
draga frá brúttóskuldum inn
eignir bankanna í reikning-
um erlendis þ. e. hinn svo-
nefnda gjaldeyrisvarasjóð.
Upphæðin er öll árin reikn-
uð á sama gengi þ. e. því,
sem skráð var í október-
mánuði 1967. □
komu mannkynsins, á þann
veg að fá fram ofurmenni, blátt
áfram með vísindalegum manna
kynbótum. Er þar átt við tækni
frjófgun, þar sem afburðamenn
gætu skilað erfðaeiginleikum
sínum til mikils fjölda niðja.
V AR AHLUTIR
Þótt framanskráðar hugmyndir
eigi enn ekki nógu marga fylgj-
endur til framkvæmda í stórum
stíl, eru víst flestir sanunála um
nauðsyn á framleiðslu gervi-
varahluta í mannslíkamann og
eru miklar vonir bundnar
hraðri þróun á því sviði.
Ágæfur alli hjá logbáfum
Lítill afli á línu, þótt beitt sé nýrri loðnu
Dalvík 23. apríl. Ágætur afli
hefur verið hjá togbátum og
varð að landa 100 tonnum á
Húsavík og í Hrísey af því
frystihúsið hér hafði ekki und-
an. En fiskurinn er smár og
seinunninn. Á línu fæst lítið
þótt beitt sé nýrri loðnu. Æði-
margir stunda hrognkelsaveiði
en afli er ennþá fremur lítill.
Vegir eru mjög veikir, færir
að kalla, þó er Múlavegur nær
um bindindismál
ófær vegna aurbleytu skammt
norðan Dalvíkur.
í gær fór héðan mjög hlaðinn
bíll til Akureyrar og skar sund-
ur veginn á sumum stöðum, svo
ljótt var á að horfa. J. H.
Kynningarkvöld
GÍDEONFÉLAG var stofnað á
Akureyri á hvítasunnu 1965, og
heldur nú sína árlegu kynning-
arsamkomu miðvikudaginn 24.
apríl, (síðasta vetrardag) kl.
8.30 í Kristniboðshúsinu Zion.
SÁLMURINN
Kona ein benti blaðinu á þá mis
sögn Morgunbl. 11. apríl sl. að
sálmurinn: „Á kross var lagður
lausnari vor forðum“, væri eftir
Einar H. Kvaran. Sálmurinn er
þýddur af honum en höfundur-
inn er Chr. Ricard, danskur
maður.
LÓAN ER KOMIN
Hinn 17. þ. m. bárust blaðinu
Biblíum og Nýja testamentum.
Gídeonfélagið hefur það að
markmiði að útbreiða Biblíuna
og aðal verkefni þess hefur ver
ið að gefa öllum 12 ára börnum
Nýja testamenti.
fyrrakvöld. Honum stjórnaði
Stefán Ág. Kristjánsson. Séra
Sigurður Haukur Guðjónsson
flutti aðalræðu kvöldsins og
þotti hún vera hin sköruleg-
asta.. ÁVÖrP fluttu Arnfinnur
ArnfinnSson, Jónas Jónsson frá
Brekknakoti óg Pálmi Matthías
son. Ómar Ragnarsson skemmti
og Blandaður MA-kvartett
söng.
Samkomusalurinn var troð-
fullur af áhugasömum áheyr-
endum og komst margt af fólk-
inu ekki í sæti. Aðgangur var
ókeypis. Þessi fundur var til
mikils sóma. □
Þar mun verða flutt erindi um
starf og gagnsemi félagsins og
þá verður einnig hugvekja og
kórsöngur. Tekið verður á móti
frjálsum framlögum til kaupa á
í FYRRADAG varð barn fyrir
bíl við Hafnarstræti 28 og sama
dag varð annað barn fyrir bíl
við Hafnarstræti 63. Bæði börn
in voru flutt í sjúkrahús og gert
þar að sárum þeirra, en að því
búnu heim til sín.
Félagsmenn treysta á skiln-
ing Akureyringa fyrir starfi
Gídeonsfélagsins og vænta þess
að margir komi á samkomuna.
Eldur varð laus í beinakvörn
í Krossanesverksmiðju í gær-
morgun. Slökkvilið var kallað á
staðinn en starfsmenn höfðu
slökkt áður en það kom.
Skemmdir voru ekki að fullu
kannaðar. □
TVÖ BÖRN URÐU FYRIR BlLUM
EXPO — 70
EXPO — 70 á liún að heita
næsta heimssýning, sem haldin
verður 1970 í Osaka í Japan,
sem er önnur stærsta borg í því
landi. Fjölmargar þjóðir hafa
tilkynnt þátttöku sína, en ekki
er vitað, að Norðurlönd séu
meðal þeirra, ennþá a. m. k. En
líklegt, að þau sameinist um
sýningarskála ef þau verða með.
Gert er ráð fyrir 30 milljónum
sýningargesta.
100 ÁR f NÚTÍMANUM
Japanir óskuðu að hafa sýningu
þessa í sínu landi til að minnast
þess, að 100 ár Ýæru liðin síðan
þjóðin fór að tileinka sér mikil-
væga þætti nútíma þjóðfélags.
Osaka eru einskonar Feneyjar
Asíu, með óteljandi síkjum og
skurðum, og brúm, og telur á
fjórðu milljón íbúa.
Á NORÐURPÓLNUM
Robert Peary aðmíráll komst til
Norðurpólsins, landleiðina, 1909.
En sl. föstudag náði sex manna
leiðangur, undir stjóm Ralp
Plaisted, þangað, og er þar um
Kanadamenn að ræða. Þeir ferð
uðust á snjóbílum og notuðu
trefjaplastsleða, í stað hunda,
sem notaðir voru 1909. Leiðang
ur Plaisted lagði upp frá eyju
einni í Norður-Kanada, en það
var 760 km. leið til Norðurpóls-
ins.
„ALLIR VEGIR AÐ
VERÐA ÓFÆRIR“
BJÖRN Brynjólfsson hjá Vega-
gerðinni tjáði blaðinu í gær, að
allir vegir væru að verða ófær-
ir, ef svo héldi sem nú horfði.
Orðið er ófært til Dalvíkur á
fólksbílum, einnig til Húsavík-
ur og fyrir Múlann. Suðurleiðin
er enn opin og vegir innan
héraðs, aðrir en Dalvíkurvegur,
enn slarkfærir flestum eða öll-
um bílum. Pyttir væru þó að
koma hér og þar í vegina. Um
Vaðlaheiði og Fljótsheiði er
bönnuð umferð nema á jeppum.
Sjö tonna öxulþunga-takmörk-
un er á veginum Akureyri —
Reykjavík, en 5 tonna þungi á
öðrum vegum hér um slóðir. □
t