Dagur - 01.05.1968, Page 1
EFNAVERKSMIOJAN SJOFN
Dagur
LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 1. maí. 1968 — 18. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÓLLUN - KOPIERING
Stapafell fast í ís á Raufarhöfn
Í555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555Í555555555555555555555555555555555555!
Raufarliöfn 30. apríl. Stapafell,
sem var að losa gasolíu á Þórs-
höfn en farið þaðan, hraktist
undan ís hér útifyrir og kom í
gær hér að bryggju, en ísinn
lokar algerlega. Vír var strengd
ur fyrir hafnarmynnið.
Bakkafoss sneri við hjá
Rauðanúpum í gær, vegna íss.
fsinn virðist samfelldur langt
út af Sléttu og kom upp aö
landi í norðanáttinni.
orðnir því sem
flugvöllurinn
Vegir voru
næst ófærir en
opinn.
Sjómenn, sem byrjaðir voru
að leggja hrognkelsanet, rifu
þau upp í gær og máttu ekki
seinni vera. í þeim var mikil
veiði.
Nokkur snjór er kominn síð-
an byrjaði að hríða á laugar-
daginn. Nú er stillt veður en
hríðarkólga í norðri. H. H.
1. maí ávarp verkalýðsfélaganna
NÚ EINS og jafnan áður, 'helga
vinnandi menn um heim allan
1. maí baráttu sinni fyrir bætt-
um kjörum og réttlátara þjóð-
skipulagi. Alþýða manna og
samtök hennar fagna unnum
sigrum, en líta jafnframt fram
á leið til hinna mörgu óleystu
viðfangsefna og baráttumála
komandi tíma.
Helmingur af íbúum jarðar
býr nú við skort brýnustu mat-
væla, hungur, fáfræði og sjúk-
dóma og kynþáttamisrétti fær-
ist í aukana. Bilið í milli van-
þróaðra ríkja og hinna þróuðu
iðnaðarlanda vex, gjáin milli
hinna auðugu og hinna fátæku
þjóða breikkar og slík öfug-
þróun ógnar friði í heiminum í
æ ríkara mæli. Því rísa kröfur
alþýðunnar um heim allan um
MIKIL TOGVEIÐI -
SALTLAUS BÆR
Ólafsfirði 29. apríl. Sýning á
handavinnu, teikningum, vinnu
bókum og annarri vinnu nem-
enda Barna- og gagnfræðaskóla
Olafsfjarðar var opin hér í gær
frá kl. 2—10 síðdegis. Var þar
margt fallegt og eigulegt að sjá,
enda sýning þessi ágætlega sótt.
Veiði togbáta hefur verið
ágæt undanfarið en afli neta-
og línubáta rýr. Trillubátar
hafa lítið róið, enda virðist fisk-
ur ekki genginn á grunnmið
ennþá.
Þessi afli togbátanna hefur
glætt atvinnuna mjög svo að
segja má, að nóg atvinna hafi
verið undanfarnar vikur. Nú
eru sum húsin saltlaus orðin
svo að Hannes Hafstein varð að
landa 65 smálestum á Húsavík
um helgina. Flestir bátar lágu
inni um helgina vegna brælu.
B. S.
efnahagslegt réttlæti þjóða i
milli hærra nú en nokkru sinni
fyrr, um afnám kynþáttamis-
réttis, um frið og allsherjar af-
vopnun, um afnám allra hern-
aðarbandalaga. íslenzk verka-
lýðshreyfing styður þessar kröf
ur hinnar alþjóðlegu hreyfing-
ar og krefst þess, að fulltrúar
íslands á alþjóðavettvangi geri
þær að sínum.
Hérlendis eru þau verkefni
brýnust að tryggja atvinnu-
öryggi og viðunanleg lífskjör
með 40—44 stunda vinnuviku. ¥ , .. i , p ,
Tafarlaust yerður að útrýma Laxveioi bonnuo 1 sjo; aoems leyto 1 iersku vatni veiði í sjó, en hér er slíkt bann-
TIL HÆGRI á myndinni er nýr vegur, gerður í sjó framan við gamla Timburliús KEA. Allt
fyrir H-umferðina! (Ljósmynd: E. D.)
Islendingar veiða árlega um 30 þús. laxa
því atvinnuleysi, sem hefur ver
ið viðvarandi um skeið og hefja
framsýna uppbyggingarstefnu
atvinnuveganna til vegs. Skýrsl
ur sanna að árgangar, sem bæt-
ast á vinnumarkaðinn næsta
áratuginn eru fast að helmingi
fjölmennari en þeir, sem bætt-
ust við síðasta áratuginn. Hér
þarf því stórfellst og markvisst
átak að koma til, ef vá á ekki
að verða fyrir dyrum á næstu
tímum.
Með bættu skipulagi atvinnu
veganna er unnt að stytta þann
(Framhald á blaðsíðu 2).
Á SÍÐASTA bændaklúbbsfundi
á Hótel KEA var rætt um lax-
og silungsveiði og ræktun þess-
ara nytjafiska. Framsögumaður
fundarins var Þór Guðjónsson,
veiðimálastjóri. Kjarni erindis
hans var þó fyrst og fremst
ræktun nytjafiska í ám og
vötnum í máli og myndum.
Að erindinu loknu hófust
langar og miklar umræður og
voru fiskiræktarmálin þá tekin
til umræðu í einstökum atrið-1
um.
íslendingar veiða nú 25 til 30
þúsund laxa árlega og er um
helmingur þessarar veiði feng-
inn í net í fáum, mjög gjöfúl-
um laxám. Laxinn er í háu
verði innanlands og utan. Leiga
á laxám er líka há. í nágranna-
löndunum er mjög mikil lax-
að og byggist bannið á áhuga
á sem mestri laxgengd í veiði-
ánum.
Það er ekki fyrr en á síðari
árum, að skriður komst á rann-
sóknir á ræktun í fiskigengum
ám og tjörnum og stöðuvötnum.
(Framhald á blaðsíðu 5).
Húsbruni í Grímsey
Sjómenn reyndu að smygla víni
Egilsstöðum 30. apríl. Skipverj-
ar á Mánafossi, sem lá á Seyðis-
firði um helgina, báðu síma-
menn að flytja fyrir sig töskur
nokkrar í jeppa sínum til Egils-
staðaflugvallar, en þaðan áttu
þær að fara með flugvél til
Reykjavíkur. Greiðviknir síma
menn tóku flutninginn, sem
varð fyrir einhverju hnjaski á
leiðinni. En þá gaus upp vín-
þefur mikill. Þórður Benedikts
son hreppstjóri var látinn vita
og kyrrsetti hann varninginn
og Valtýr Guðmundsson sýslu-
maður skarst í málið. Það sáu
menn í Egilsstaðakauptúni síð-
ast til hins smyglaða varnings,
allt að 100 flöskum, tárvotum
augum, að hann hvarf inn í lög
reglubifreið Eskifjarðar.
Allur Reyðarfjörður er þak-
inn íshrafli. ísinn rekur hratt
suður með Austfjörðum og
mun nálgast Fáski'úðsfjörð.
Harðneskjulegt tíðarfar, 6—7
stiga frost í nótt. Vegir vel frosn
ir, bændur eitthvað uggandi ef
að líkum lætur. V. S.
Grímsey 26. apríl. í fyrrinótt
brann hér Sæborg, íbúðarhús
Trausta Bergland, sem var einn
heima og vaknaði við snark í
eldi kl. 1.30. Húsið varð alelda
á skammri stundu og brann
ásamt mestu af húsmunum.
Næsta hús, er stendur mjög
nærri, tótkst að verja. Sæborg
••var tveggja hæða steinhús með
innréttingum úr timbri, Fjöl-
skylda Trausta var að heiman
er þetta bar við og hann einn í
húsinu.
Hér hefur ekki orðið hús-
bruni í 40 ár, en þá brann timb-
urhús á þessum sama stað til
ösku.
íshrafl er í höfninni og öðru
hverju rekur meira og minna af
ís hér fram og aftur. Fiskur virð
ist allmikill en vegna íssins eru
trillubátarnir enn á landi en að
eins skotist á sjó á árabátum.
Hið sama má segja um hrogn-
kelsaveiðina. Fuglinn er kom-
inn í björgin og lóan er komin.
Húsbruninn gerði sumarkom
una heldur dapurlega hjá okk-
ur og ísinn skapar kulda og
truflar sjósókn. Þrátt fyrir þetta
er þó hið raunverulega sumar
væntanlega á næsta leyti. S. S.
Væn og ræklarleg hjörð
t55555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555í57555555555555555555555555555555555555:
SJÁVARAFUNN SlÐUSTU 10 ÁRIN
SAMKVÆMT hagskýrslum
hefur fiskafli íslendinga á
undanföi'num 10 áruni verið
sem hér segir og allar teg-
undir, sem hirtar eru í fisk-
vinnslustöðum þá meðtald-
ar:
Áriðl958 580 þiis. tonn.
Árið 1959 641 þús. tonn.
Árið 1960 593 þús. tonn.
Át'ið 1961 710 þús. tonn.
Árið 1962 832 þús. tonn.
Árið 1963 782 þús. tonn.
Árið 1964 972 þús. tonn.
Árið 1965 1166 þús tonn.
Árið 1966 1240 þús. tonn.
Árið 1967 895 þús. tonn.
í þessari skýrslu er allur
afli talinn „upp úr sjó“, ó-
slægður með haus. Á 10 ár-
um, 1958—1967, hafa borizt
á land samtals 8 millj. tonn
og 411 tonnum betur, og er
meðalársaflmn á þeim ára-
tug þá ca. 841 þús. tonn. —
Ársaflinn 1967 er því 54
þús. tonnum yfir meðallag.
Á árunum 1964, 1965 og
1966 varð aflinn meiri en s.l.
ár. En á árunum 1958—1963
eða á sex árum, var hann
minni en s.l. ár. Mesti árs-
aflinn var 114% meiri en
minnsti ársaflinn og aflinn
1967 var 54% meiri en
minnsti ársaflinn á þessum
10 árum. □
Alolti í Þistilfirði 26. apríl. Nú er
ísinn að mestu horfinn. Enn er
þó fisklaust en grásleppuveiði
hafin.
Langur og harður vetur hef-
ur kvatt eftir almanakinu. Enn
er þó mikilil gaddur á láglendi
og tún illa búin undii' mikil
næturfrost og kalhættan vofir
yfir. Fóðurbætiseyðsla er meiri
en nokkru sinni fyrr.
Um síðustu helgi heimsóttu
okkur ráðunautarnir Jónas
Jónsson og Sveinn Hallgríms-
son og mættu á bændafundi á
Þórshöfn, ásamt 40 bændum.
Ræddu þeir um ræktunarmál,
Jónas og sauðfjárrækt, Sveinn.
Sveinn skoðaði allt fé í sauð-
fjárræktarfélaginu Þistli, sem
er elzta fjárræktarfélag lands-
ins og hélt fund með félags-
mönnum. Taldi hann sig ekki
hafa séð, hvorki hér á landi eða
í Noregi, vænni eða ræktarlegri
hjörð en á Syðra-Álandi hjá
þeim bræðrum Grími og Vig-
fúsi Guðbjörnssonum.
Leikfélag Þórshafnar sýndi
sjónleikinn Þorlák þreytta fyrir
viku síðan á Svalbarði við góð-
ar undirtektir, og kirkjukórinn
æfir af krafti undir stjórn Bjarg
ar í Lóni. E. O.
Baguk
kemur næst út á laugardaginn,
4. maí.