Dagur - 04.05.1968, Page 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síniar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðamiaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Traustan
grunn
vantaði
EEN AH AGSM ÁL ARÁÐUN AU T-
UR ríkisstjómarinnar, Jónas Har-
alz, flutti mikla ræðu á þingi iðn-
rekenda, nú fyrir skömmu. Þessi um
mæli eru m. a. prentuð úr ræðunni
í einu stjórnarblaðanna í Reykjavík:
„Því miður hefur efnahagsþróun-
in undanfarin ár beinzt inn á braut-
ir, sem ekki er varanlegur grundvöll-
ur fyrir. Við höfum lent í enn einu
síldarævintýrinu, sem nú torveldar
okkur vöxt á traustari grundvelli.
Við höfum beitt okkur að síldar-
gróða en jafnframt vanrækt aðra
þætti atvinnulífsins. Meginverkefní
næstu ára er að skapa grundvöll fyrir
alhliða þróun, er ekki sé einungis
miðað við innlendan markað, lield-
ur einnig miðað við útflutning.
Reynslan segir okkur, að án þess að
útflutningur aukist náist ekki ör
hagvöxtur".
Eins og að framan segir, þurfi að
treysta grundvöllinn því að liann sé
ekki varanlegur í efnahagsþróun-
inni. Og hann kennir síldveiðunum
þar um. Aðrir þættir hafi verið van-
ræktir. Þetta er harður dómur um
viðreisnarstefnuna. Að sjálfsögðu
hvetur ráðunauturinn til að skapa
traustan grundvöll efnaliagslífsins —
búa til nýjan —. Verður þá mörgum
að spyrja: Er ríkisstjóm, sem ekki
hefur tekizt betur en raun ber vitni
í löngu samfelldu góðæri, fær um að
leggja nýjan þegar skórinn kreppir,
eins og nú? Sennilega munu flestir
svara því neitandi, ef stuðst er við
reynsluna. En með einliverju þurfti
að afsaka þá staðreynd í upphafi
„iðnkynningar“ að alger stöðvun í
íslenzkum iðnaði 1967 sé af einhverj
um orsökmn!
I ávörpum sínum 1. maí leggja
verkalýðsleiðtogar áherzlu á eflingu
iðnaðar í landinu, sem vanræktur
hafi verið of lengi. Þar vegur iðn-
kynning lítið á móti þótt hún sé
góðra gjalda verð og allir þjóðliollir
menn eigi að styðja bæði í orði og
verki. Ef iðnkynningin sannfærir
valdhafana um nauðsyn breyttrar
stefnu, er ávinningurinn tvíþættur
og er vel ef svo verður. □
Menn þurfa að læra að njéla hinna miklu gjafa iífsins
segir Sigtryggur Símonarson mjólkurbílstjóri á Jórunnarstöðum
Á FIMMTA HUNDRAÐ bænd-
ur í byggðunum við Eyjafjörð
framleiða árlega 20 millj. lítra
af mjólk og senda til sölu og
vinnslu í elztu mjólkurstöð
landsins, Mjólkursamlags KEA
á Akureyri, sem nýlega minnt-
ist 40 ára starfs.
Hinar lifandi og dásamlegu
efnaverksmiðjur, sem felast í
hverju grænu blaði jurtanna,
og með hjálp sólarljóssins
■vinna efni úr lofti og jörð, 7
til 8 þús kynbættar mjólkurkýr,
sem breyta grasi og heyfóðri í
þann lífdrykk okkar, sem allri
fæðu er betri í ávaxtalausu
landi, og að síðustu mjólkurstöð,
er keðja í hinu daglega lífi og
undirstaða vaxtar og velmegun-
ar í sveit og bæ.
Mjólkurbílstjórarnir eru þýð-
ingarmiklir í þessari keðju fram
leiðslu og neyzlu dýrmætustu
fæðutegundarinnar, sem þjóðin
á. Þeir aka morgun hvern í sín-
um stóru mjólkurflutninigabíl-
um í bæinn, og eru margir komn
ir þangað og sumir um langan
veg, áður en dagsins önn hefur
truflað drauma mætra bæjar-
manna.
Okumenn bænda eru margir
þreklegir, enda vaskir menn,
sem taka daginn snemma, svo
sem fyrr og síðar hefur þótt
bera mönnum gott vitni. Þeir
þurfa að geta tekið til hendi við
þungaflutningana, ekki aðeins
við mjólkurbrúsana, sem með
hverju ári verða fleiri og stærri,
heldur einnig við sekkjavöru,
sem flutt er úr kaupstað í sveit
til búrekstursins. og þeir mega
ekki láta bugast í stórhríðum og
snjóatöfum skammdegisins. Og
þeir munu flestir öruggir til
orðs og æðis í daglegum störí-
um sínum fyrir bændastéttina,
— enda menn, sem ekki velja
auðveldustu leiðina til að vinna
fyrir daglegu brauði. Þeim hef-
ur oft verið við brugðið í seinni
tíð þegar erfið ferðalög hafa
borið á góma og þrekraun þurft
til að komast á leiðarenda.
Einn þessara marrna er Sig-
tryggur Símonarson á Jórunn-
arstöðum í Eyjafirði. Hann er
fæddur og upp fóstraður í Öl-
vesgerði í Saurbæjarhreppi; var
tólf ár bóndi í félagi við Tryggva
bónda á Jórunnarstöðum, en
hefur nú verið mjólkurbílstjóri
í samfelld átta ár. Hann á, eins
og fleiri Eyfirðingar, um sárt
að binda vegna berklaveikinnar.
Móðir hans og systir hans, 14
ára, dóu báðar úr berklum árið
1919, en þá var Sigtryggur að-
eins fjögurra ára. Hann ólst svo
upp með föður sínum og skildu
þeir ekki meðan báðir lifðu, en
Símon andaðist árið 1935, þá
nær 71 árs.
Kvæntur er Sigtryggur Hrafn
hildi Aðalsteinsdóttur og eiga
þau hjónin fjögur börn. Hann
telur kvonfang sitt og síðan
börnin hinn stóra vinning lífs
síns og jafnframt þann eina
markverða. Sigtryggur er hár
maður, þrekinn og kraftalegur,
rauðhærður og bláeygur.
Greindur mun hann í bezta lagi,
oftast skjótur til svars og gagn-
orður, geðríkur nokkuð og kem
ur til dyranna eins og hann er
klæddur.
Nokkuð Ieiðigjamt að flytja
mjólkina ár og síð?
Þegar maður lítur til baka,
yfir lengri tíma, er starfið ekki
viðburðaríkt. En þó er enginn
dagur öðrum líkur og jafnan
ber eitthvað nýrra við. Stóivið-
burðir eru hins vegar sjaldgæf-
ir og slysum hefi ég ekki orðið
fyrir og er ég því láni þakk-
látur. Um erfiðar vetrarferðir
er ekkert að segja. Þær geta
tekið langan tíma í stórhríðum
og miklum snjóalögum. En ég
nýt þess aðra daga að aka um
fagurt hérað, t. d. á björtum
sumardögum. Það er ánægju-
legt að fylgjast með því hvernig
ræktarlönd bændanna stækka
ár frá ári og ný hús rísa af
grunni.
Og hvað hefur þú dagleg sam
skipti við mörg heimili í svpit
þinni?
Ég annast flutninga fyrir 30
fjölskyldur. Flyt afurðir bú-
anna til bæjarins og vörur til
búa og heimila. Fyrrum hafði
Sigtryggur Símonarson.
ég ehmig á hendi fólksflutn-
inga, en nú ek ég bifreið með
einföldu húsi og er laus við
farþegaflutninga að mestu, eða
hef misst þá, hvort réttara er að
segja. En þungavörurnar, pakk
amir og pósturinn er alveg nóg.
Hvernig semur þér svo við
sveitunga þína í starfinu?
Árekstrar út af staríi mínu
hafa nær engir orðið. Ég reyni
að hafa allt á hreinu í viðskipt-
unum. Tek nótur fyrir öllu, sem
ég kaupi fyrir Pétur og Pál,
enda er samkomulagið gott og
frá mínum bæjardyrum séð eru
þessi samskipti sæmilega
ánægjuleg.
Skeði ekki ýmislegt skemmti
legt á meðan þú liafði fólks-
flutninga?
Jú, ekki get ég neitað því.
Það skringilegasta er hreint
ekki til þess fallið að koma fyrir
almenningssjónir. En það
skemmtilegasta var það, að
vera með glöðu og góðu fólki.
Viðræður þess voru oft hinar
fróðlegustu og tilsvör stundum
frábær.
Þú minntist áðan á hinn
fagra Eyjafjörð?
Já og kvað ekki of sterkt að
orði. Hins vegar er ég ekki svo
blindur, að ég sjái ekki einnig
fegurð annarra héraða. Til þess
þarf ekki lengra en austur í
Þingeyjarsýslur, að sjá bæði
fjölbreyttari og svipmeiri nátt-
úrufegurð. Jafnvel hraunin búa
yfir undra mikilli fegurð.
Ferðu snemma á fætur?
Ég legg af stað kl. 6.45 að
morgni. Heim kem ég venjulega
kl. 7—8 að kveldi. Það er margt,
sem tefur, þótt leiðin sé ekki
löng. Sumir bændur verða þó
að fara fyrr á fætur en ég, til
að mjólka og koma mjólkinni í
veg fyrir mjólkurbílinn. Margir
eru árrisulir í Eyjafirði og flest
um er það gott.
Þú munt stunda veiðiskap
þegar tími er til?
Ég skaut dálítið af rjúpu á
meðan ég var yngri. Nú reyni
ég að gefa mér tíma til að fara
með stöng og veiða silung stöku
sinnum og þykir mér það hin
bezta skemmtun, sem völ er á.
Ég fékk einu sinni átta punda
urriða í Eyjafjarðará, mjög sér-
kennilega og frétti af öðrum
svipuðum. Hann var svo dökk-
ur, að annað eins hefi ég ekki
séð, en jafnframt feitasti silung
um, sem ég hefi dregið. En mest
hefi ég fengið 16 bleikjur í Eyja
fjarðará, seinni part dags og í
sumar veiddi ég þar dálítinn
lax, heldur leiðinlegan í drætti.
Vænsta bleikja, sem ég hefi
veitt í ánni, var sex pund, falleg
ur fiskur.
Fórstu aldrei í fyrirdrátt?
Jú, einu sinni, það var fyrsta
sunnudag í sumri 1936, með
Daníel í Saurbæ, en hann var
þá í Samkomugerði. Vöxtur var
í ármi, eftir hlýindi, en þennan
dag gekk hann í norðan svarra.
Ég átti brúnan hest, traustan og
góðan. Á honum reiddi ég netið
í poka niður að ánni. Daníel
sagði, er þangað kom, að bezt
væri ég prófaði ána og færi yfir.
Gerði ég það og gekk vel. Þetta
var við Arnarhól. Ég gaf svo út
netið og steig á bak á ný og reið
með ánni. Netið barst fremur
hægt undan straumi, þar til
Daníel kallar, að mér sé nú
óhætt að ríða út í til að buga
netið upp. Ég gerði það og taldi
mig fara á sama stað og áður,
miðað við snjódíla á árbakkan-
um. En fyrr en varði skall yfir
og Brúnn fór á hrokasund, en
ég hafði ekki sundriðið áður.
Gerðist það nú jafn snemma, að
netið tók í með fullum þunga og
tóið var á enda. Ætlaði ég nú að
stöðva hestinn, eins og á þurru
landi, og brást mér þar boga-
listin, því hesturinn reis upp og
ég losnaði úr hnakknum en
náði þó taki á faxi eða hnakk-
nefi. Ég kunni ekki sund. Daníel
kallaði hástöfum og sagði mér
að sleppa netinu. Það gerði ég
ekki og klárinn svam til lands
með mig og netið. Eitthvað
spriklaði í netinu og fannst mér
ekki eftir neinu að bíða að
koma því og veiðinni á land, en
varaði mig ekki á því, að ég
dró netið á loft og silungurinn
hvolfdist úr því við tærnar á
okkur nema tvær silungsbrönd-
ur. Ég var reynslunni ríkari og
fengum við 13 í öðrum drætti á
sama stað og gekk allt skaplega.
Veiðin var 15 fallegar bleikjur,
hinar Ijúffengustu.
Ekkert fengist við niinkinn?
Ekki hefi ég nú stundað
minkaveiðar. Hins vegar sá ég
einu sinni minkaslóð í nýfölln-
um snjó, skammt norðan við
Hóla, meðfram ánni að vestan-
verðu. Ég skoðaði slóðina og síð
an sá ég hana öðru hverju úr
bílnum á leiðinni frameftir. En
vegurinn liggur nálægt ánni. Ég
hitti kunningja minn, Hjalta í
Ártúni og sjálfur sótti ég heim
haglabyssu. Við fórum svo að
leita. En þar sem við síðar
mættumst við ána, sáum við
tvær minkaholur. Tróðum við
strax upp í aðra og Hjalti fór
að stinga niður árbakkann.
Minkurinn kom þá úr holu
sinni eins og örskot og misstum
við hans. Hann skaust undir
bakka þar skammt frá. Hjalti
hjó þá í árbakkann, þar sem
hann var og styggði hann fram.
Var hann þá í dauðafæri frá
mér og fór hann ekki lengra.
En rjúpnadrápið?
Um það er lítið að segja. Þó
var ein rjúpnaferðin mín dálítið
skrýtin. Ég var þá hjá Jóhanni
bónda á Möðruvöllum. Eitt sinn
kom ég úr kaupstað og ætlaði
til rjúpna morgunin eftir. En
Reið ég svo út að Grund og rak
erindi mitt. Heimkominn spurði
pabbi mig, hvort ég hefði ekki
ég svaf nokkuð lengi. Jóhann
spurði mig hvað ég hugsaði að
sofa svona lengi. Hann var glett
inn á svip og skildi ég síðar
hvað því olli. Það var komin
grenjandi hríð. En ég klæddist
og bjó mig til ferðar. Aldrei
hafði mér áður hugkvæmzt að
fara til rjúpna í slíku veðri.
Það var kóf í byljunum en upp
rof á milli. Þó var ég ferðafús
og léttur á mér þar sem ég gekk
upp með Möðruvallalæknum.
Þetta mun hafa verið haustið
1938. Líklega í nóvember. Það
hafði hríðað áður um haustið
og orð var á því gert, að Páll
Guðmundsson frá Seljahlíð, þá
á Helgastöðum, ætti eitthvað af
fé úti, sem ekki fannst. Sjálfur
var Páll þungfær orðinn til fjár
leitanna. Jæja, þegar ég er kom
inn þarna spölkorn uppeftir
geng ég fram á tvær ær í lækjar
gilinu. Onnur stóð á steinum í
læknum og var því þurr en hin
stóð með afturfætur í vatni. Ég
dró kindurnar upp og var sú
máttfarin, sem í vatninu stóð.
Rétt á eftir sá ég kindarhaus
upp úr snjónum í gilinu þar
skammt frá. Alls fann ég þarna
fimm kindur, þar af eitt lamb.
Páll átti æmar en mark Jóns
Sigfússonar í Kálfagerði var á
lambinu. En hann hafði þegar
kollheimt og auglýsti þetta
lamb síðar. Svona fór úm þessa
rjúpnaferð mína. Ég fór heim
með kindurnar og þar með var
ferðalagi mínu lokið þann dag-
inn. Mér fannst ferðin góð þótt
ég hefði ekki not af byssunni.
Hafa nokkur lítt skiljanleg
atvik fyrir þig borið?
Lítið fer fyrir því, enda er ég
hvorki skygn eða berdreyminn.
Þó er ekki fyrir að synja, að
þau atvik hafi gerzt, sem ég
ekki fæ skilið. En ekki þurfa
það að vera merkileg atvik að
heldur. Ég mun hafa verið átta
eða níu ára þegar faðir minn
kom einn sumarmorgun inn til
mín og vakti mig. Hann var þá
búinn að reka kýr í haga og
kom með hross heim. Sagðist
hann ætla að senda mig út að
Grund og átti ég að kaupa eitt-
hvað smávegis í verzlun Magn-
úsar kaupmanns og bónda þar.
Fór hann síðan með orf sitt og
gekk að slætti. En ég ætlaði nú
fyrst að sækja vatn út í lind til
að þvo mér áður en ég legði af
stað. Greip ég fötuna og gekk
fram göngin. Man ég vel, að ég
sá út í sólskinið, þegar ég var
kominn fram fyrir beygju í
göngunum. Útidyr stóðu opnar
og glaðasólskin var úti. Hraðaði
ég mér nú fram göngin. En þá
sá ég allt í einu hvar maður
kemur úr suðausturhorni bæjar
dyranna, á móti mér. Allt bar
þetta að með skjótum hætti og
varð mér illt við. Sá ég greini-
lega útlínur mannsins en ekki
sá ég andlit hans svo að mér
festist í minni. Eitthvað flaxað-
ist aftur af honum, eins og úlpa
eða yfirhöfn. En ég sneri við og
hljóp til baka og skellti aftur
hurð í göngunum. Ég og pabbi
bjuggum einir og var ég nú
einn í bænum með þessum
ókunna manni. Má nærri geta
um sálarástand mitt. Saknaði
ég föður míns ákaflega, en ekki
var hans von heim fyrst um
sinn. Smám saman minnkaði
hræðslan. Vatnið fann ég í bak-
katli á eldavélinni og hressti
þvotturinn mig. Að síðustu
herti ég upp hugann og fór út.
Varð ég einkis var. Fór ég hross
inu á bak og reið-til pabba yfir
svokallað Steinbogasund. Sagði
5
ég honum það, sem fyrir mig
hafði borið en hann svaraði fáu.
mætt neinum á leiðinni, er ég
fór að heiman. Ekki var það.
Hann sagði mér þá, að litlu eftir
að ég fór, hefði maður úr ná-
grenninu komið með hest og
vagn og flutti hann lík aldraðs
manns á leið til greftrunar í
Miklagarði. Yfir höfðagafli kist
unnar var ábreiða eða teppi.
Fleira sérstakt fyrir borið?
Varla getur það til tíðinda
talist. Það bar til eitt vetrar-
kvöld þegar við pabbi vorum
að gefa fé í fjárhúsum, að fjár-
húsdyrnar opnuðust. Hurð féll
þar fast að stöfum, enda húsið
snarað og skakkt á þann veg að
hurðin toldi ekki opin. Ég var
innan við tóftardymar er þetta
bar við. Hurðin féll aftur eftir
andartak og kindurnar, sem
höfðu raðað sér á garðann,
tvístruðust. Enginn maður var
sjáanlegur. Þetta gerðist í
björtu veðri að degi til, síðari
hluta vetrar. Daginn eftir og á
sama tíma vorum við aftur í
fjárhúsum. Ég var í tóftinni og
aftur sá ég birtu falla á hey-
stabbann til hliðar við mig, þeg
ar fjárhúshurðin opnaðist. En
nú stóð maður í dyrunum. Það
var kunningi okkar. Vatt hann
sér inn fyrir og ræddi við okkur
um stund.
Svo bar það eitt sinn við, er
ég um tíma var hjá Jóni Sigfús-
syni í Samkomugerði, að ég
skrapp sunnudagskvöld eitt yfir
í Bringu og sótti byssu mína úr
viðgerð til Magnúsar Árnason-
ar, hagleiksmanns, er þá bjó
þar, oft kenndur við Litladal.
Er heim kom var rökkvað og
tók ég þegar að leysa fjósheyið.
Hafði ég grafið hring-geil inn
úr tóftai'dyrum. Þar sem ég nú
stend og er að enda við að leysa
'heyið, en átti eftir að vigta það,
eins og þá var siður þar, vissi
eg ekki fyrr til en mér fannst
eitthvað koma þarna inn og
fara inn í geilina. Fylgdu þessu
ónot og óhugnaður og dró úr
mér mátt. Ég þóttist vita að
þetta „eitthvað“, sem ég ekki sá
en fann, færi kring um stabb-
ann. Yrði ég því á vegi þess.
Þrýsti ég mér nú í óskiljanlegu
fáti eins og ég gat upp að hey-
(Framhald á blaðsíðu 7).
María Pétursdóttir
Fædd 22. febrúar 1924
Dáin 30. marz 1968
KVEÐJA
til hjartkærrar vinkonu
frá heiniilisfólkinu Laxagötu 3
Svo óvænt kom hin dökka dís
og dóma felldi sína
og harmabylgja höfug rís,
er helgar vonir dvína.
Of fljótt þú varst til ferðar kvödd,
við finnum sviða í hjarta,
en minninganna milda rödd,
fær minnt á daga bjarta.
Þeir líða fram og ljós og blær
víst leikur um þá alla
og lindin hjalar, lyngið grær
og lauf — sem aldrei falla.
Það gefur sýn í sólarátt
og sóley nett í spori
þar sem þeir léku lífsins þátt,
er Ijúfu unnu vori.
Þín vinsemd var á bjargi byggð,
liún brást ei nokkru sinni.
En reyndist jafnan raunsömi dyggð
— það ríkt er fest í minni.
Og nú við þessi þáttaskil
við þökkum gengnu sporin
og vináttunnar yndisyl
í ætt við mildu vorin.
Við nutum hans og vermdumst vel
og við það birti yfir,
þótt fórn án nægðar heimti Hel
— í hugum minning lifir.
Nú björtust dís með blys í hönd
þér brautir nýjar greiði,
svo rósir lifni og rofni bönd
og röðull skini í heiði.
J. Ó.
é
Um laugafruflun íhaldsins á Akureyri
ÞAÐ spaugilega tiltæki Morgun
blaðsins 27. apríl að slá upp æsi
frétt um starfsemi „kommún-
ista“ á Akureyri mun víðast
hafa vakið aðhlátur, en óneitan
lega um leið athygli á því, að til
er hérlendis fólk, sem lætur sér
ekki standa á sama um þjóðar-
rnoi'ð það, sem Bandaríkjamenn
eru að fremja í Vietnam.
Þetta sama mætti segja um
skrif vikublaðsins íslendings á
Akureyri sl. þriðjudag, en rit-
smíðar hans bei'a auk þess
menningar og hugarástandi rit-
stjórans slíkt vitni, að orða-
skipti við hann koma tæpast til
greina, enda er honum efst í
huga að hvetja til pólitískra of-
sókna til að hefta starfsemi
„ungkommúnista“. Á annan
hátt verður önnur grein hans
vart skilin.
Rétt er að benda á, hve breið
an hóp ihaldsblöðin kalla komm
únista, þegar þau eru í þessum
ham. Ritsmíðar íslendings
benda því til þess að ritstjórinn
sé farinn að óttast að sú alda
róttækni sem nú breiðist út
meðal ungs námsfólks víða í
Evrópu hafi einnig náð til Akur
eyrar.
íslendingsritstjórinn reynir
svo að sýna Morgunblaðskolleg
unum námsgetu sína og notar
tækifærið til að brýna Hanní-
bal. Vonandi merkja þeir fram-
för.
Átyllan til þessara æsiskrifa
íhaldsblaðanna er sú, að Viet-
nambréfi nr. 3 var dreift á Ak-
ureyri um leið og Morgunblað-
inu á sumardaginn fyrsta, sýni-
lega til að mótmæla hinni sví-
virðilegu afstöðu þessa volduga
blaðs til Vietnamstríðsins, en
ekki til að spara fé og fyrirhöfn
eins og Jón Helgason formaður
Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri heimskar sig á að upplýsa
í Morgunblaðinu, ótilkvaddur
að eigin sögn.
Vietnambréfin innihalda hlut
lægar upplýsingar um eðli og
gang Vietnamstríðsins án stór-
yrða og æsinga, þeirra er ekki
þörf. En þessar upplýsingar,
sem oftast vantar í hinar dag-
legu fréttir, eða koma þar sam-
hengislaust innan um fréttir af
stríðsrekstrinum og ummælum
stjórnmálamanna, knýja lesend
ur bréfanna til að hugleiða og
endurmeta heimsmálin af al-
vöru og án fordóma, enda kallar
Sverrir Pálsson skólastjóri
áhrif bréfs nr. 3 á sig „óvenju-
lega reynslu".
Á meðan Vietnamstríðið leit-
ar á samvizku mannkynsins
með meiri þunga en nokkuð
annað sem gerzt hefir frá lok-
um heimsstyrjaldai'innar og
dómstóll Russels úrskurðar
framferði Bandaríkjanna í Viet
nam glæp gegn mannkyninu,
en sænskur ráðherra úr flokki
socialdemokrata er meðal for-
ystumanna í kröfugöngu, sem
beint er gegn Bandaríkjunum,
vilja íhaldsblöðin hér forða les-
endum sínum frá þeirri
„reynslu" að hugsa þessi mál.
Að lokum þetta: Viðbrögð
íhaldsblaðanna benda ekki til
þess, að málstað Bandaríkjanna
hafi vei'ið gerður greiði með
dreifingu bréfsins, eins og Þor-
steinn Jónatansson þykist hafa
fundið af skarpskyggni sinni.
Hitt mun sanni nær, að öll
kynning á því dragi heiðarlega
og réttsýna menn til mótmæla
gegn Bandaríkjastjóm og lepp-
um hennar.
Skrif Þorsteins er hins vegar
greinilega af annarlegum hvöt-
um, og smáborgaraviðhorfin auk
þess sízt minni hjá Verkamann-
inum en hjá íhaldsblöðunum.
Hér með er mál þetta útrætt
af minni hálfu.
Akureyri, 2. maí 1968.
Jón Hafsteinn Jónsson.
P. S. Heyrzt hefir, að Halldór
Blöndal hafi ritað ofannefndar
greinar í íslendingi, þótt ekkert
nafn sé undir. Gæti það orðið
nokkur skýring? J. H. J.
Á ðS leggjð niður prests-
embæiti í Höfn?
Blaðinu liefur borizt ef tirfarandi. vitnisburðum
margra er
HEILBRIGÐUM mönnum er
ekki tamt í velsæld sinni að
hugleiða þann möguleika, að
skyndilega standa þeir frammi
fyrir þeirri staðreynd, að ást-
vinur 'þeirra sé sendur í skyndf
á sjúkrahús erlendis vegna
slyss eða sjúkdóma, sem engin
aðstaða er til að lækna hér
heima. Slíkir atburðir gera sjald
an boð á undan sér. Vel gæti
farið svo, að þú, sem þetta lest,
standir skyndilega í .þessum
sporum, að verða að fára utan
annað hvort sem sjúklingur eða
með sjúklingi, sem þér er ná-
kominn, t. d. barni þínu eða
öðrum nánum ástvini, til lands,
þar sem þú þekkir engan og
getur varla eða alls ekki bjarg-
að þér í málinu, sem. þar . er.
talað.
Hvað mundir þú gera til und
iihúnings?
í vaxandi mæli hafa fjölroarg
ir íslendingar staðið frammi
fyrir þessu vandamáli.
í Kaupmannahöfn hafa marg
ir íslendingar fengið bitra
reynslu einstæðingsskapar á
míög dýru hóteli, sem sendiráð-
ið hefur útvegað langt frá
sjúkrahúsinu, sem daglega.þarí
að heimsækja. Hlutverki sendi-
ráðsins er þar með lokið að
mestu eða öllu leyti, og íslend-
ingurinn stendui' aleinn með öll
sín vandamál og vandamál ást-
vinarins í ókunnri borg, einangr
aður, ef hann skilur ekki talaða
dönsku, þótt hann geti gert sig
skiljanlegan við og við á skóla-
dönsku eða ensku.
Síðastliðin 4 ár hefur orðið
gjörbreyting til batnaðar á þess
um málum í Kaupmannahöfn
með komu íslenzka prestsins,
séra Jónasar Gíslasonar.
Séra Jónas hefur sýnt það í
verki, að hann skilur veiga-
mesta starf prestsins, þjónust-
una og sálgæzluna, þ. e. að
leysa eftir megni hvers manns
vanda með hvers konar fyrir-
greiðslu, hafa samband við
sjúklinga og einmana aðstand-
endur, veita þeim andlegan
styrk, huggun og kjark í áhyggj
um, vonleysi, sorgum og jafnvel
í örvæntingu. Þetta hefur verið
aðalstarf séra Jónasar fyrir
hina fjöhnörgu hjálparvana ís-
lendinga, sem hafa leitað til
hans.
íslenzkir námsmenn í Kaup-
mannahöfn hafa sömu sögu að
segja um hjálpsemi og leiðbein-
ingu séra Jónasar.
Það mun vera fjarri séra
Jónasi og öllum öðrum sönnum
kirkjunnar þjónum að láta
blása í básúnur fyrir sér, þ. e.
að auglýsa þau störf, sem unnin
eru af kærleik, því sönnum
presti finnst hann aðeins vera
að gera skyldu sína með þess-
um störfum, en það er ekki
hægt að þegja um þessi „leynd-
armál“, þegar Alþingí héfur
samþykkt frumvarp fjármála-
ráðherra um að fella niður fjár
veitingu til þessa embættis, svo
að starfið verði lagt niður.
Eftirfarandi umsagnir eru úr
drættir úr bréfum ýmissa
manna, sem staðfesta það, sem
hér hefur verið sagt:
Kaflar úr umsögnum manna
um starf íslenzka prestsins í
Kaupmannaliöfn.
. . . Á taugaskm-ðdeild Rík-
þó sleppt:
isspítalans eru stöðugt inn-
lagðir íslenzkir ríkisborgarar —•
oft alvarlega sjúkir — og á
stundum eru íslendingarnir
fleiri en 10% af samanlögðum
sjúklingafjölda deildarinnar. —
Vegna mismunandi tungumála
er okkur oft ógerlegt að standa
í sambandi við sjúklingana, svo
við verðum að nota túlk til að
fá fram nauðsynlegar upplýs-
ingar varðandi sjúkdóminn, og
það sama er uppi á teningnum,
þegar um er að ræða sérstakar
rannsóknir, er krefjast virkni
sjúklingsins. Um sama vanda-
mál er að ræða, þegar við vilj—
um hafa samband við aðstand-
endur sjúklings ....
í öllu þessu varðandi sjúk-
lingana, aðstandendur þeirra,
og ekki hvað sízt, starf deildar-
innar, hefur okkur verið ómet-
anleg hjálp af pastor Gíslasyni,
sem alltaf hefur fúslega mætt
sem túlkur, auk þess sem hann
hefur að eigin frumkvæði heim-
sótt sjúka landsmenn sína til
mikillar uppörvunar fyrir þá
.... Eins og sézt af framanrit-
uðu, er spítalastarf pastors
Gíslasonar mjög umfangsmikið.
Það er ætíð unnið á mannleg-
an, jákvæðan og nærgætinn
hátt ....
Ég vona að þér skiljið þýð-
ingu starfs pastors Gíslasonar
og áhyggjur okkar yfir þeim
vandræðum, sem niðuríelling
starfsins muni valda sjúkling-
um, aðstandendum og viðkom-
andi læknum ....
J. Riishede (sign.) ,
professor, dr. med.,
Taugaskurðardeild
Ríkisspítalans, ,
Kaupmannahöfn.
. . . Starf prestsins meðal ís-
lendinga í Kaupmannahöfn og
enda annars staðar á Norður-
löndum eftir því sem við hefur
verið komið, er vinsælt og
þakksamlega þegið. Ber því
beztan vott sóknin á þær guðs-
þjónustur, sem hann heldur
þar, og hver sóknarprestur á
íslandi mundi telja sig mega
vel una, og enda mæta vel mið-
að við stærð safnaðarins.
Hitt er e. t. v. aukaatriði frá
sjónarmiði kirkjunnar, að oft
er kallað á prestinn til erinda-
flutnings um ísland eða íslenzk
málefni á ýmsum mannfundum.
Starf hans á þennan hátt, sem
„menningarfulltrúi“ (kultur-
attaché) við sendiráðið er eng-
an veginn óverulegt.
Síðasta atriðið og það, sem
fyrir mér verður e. t. v. þyngst
á metunum er það óhemju
mikla og erilsama, en um leið
harla þýðingarmikla starf, sem
presturinn ynnir af hendi fyrir
þá fjölmörgu sjúklinga, sem
fara til Kaupmannahafnar og
aðstandendur þeirra. Er þar oft
um að ræða ferðir til rannsókn-
ar í erfiðum og tvísýnum sjúk-
dómum. Veit ég til þess, að að-
stoð prestsins og fyrirgreiðsla
hefur oft orðið slíkum sjúkling-
um og aðstandendum þeirra
ómetanleg hjálp til lausnar
raunhæfum vanda og styrkur í
miklum þrengingum. — Hinir
sjúklingarnir eru því miður
ekki færri, sem þurfa að fara á
sjúkrahús þar ytra til hættu-
legra aðgerða. Á það um fram,
(Framhald á blaðsíðu 7)