Dagur - 04.05.1968, Blaðsíða 7

Dagur - 04.05.1968, Blaðsíða 7
7 k að ieggja prestsembætfi niður? (Framhald af blaðsíðu 5). allt við þá, sem fara til heila- aðgerða. Eru þeir ekki fáir, sem presturinn hefur bókstaflega tekið inn á heimili sitt, þegar yfirvofandi raunir hafa dunið yfir þá í framandi landi, án þess styrks og huggunar, sem samfélag fjölskyldu og vina getur veitt. Veit ég, að þeir eru ófáir, sem aldrei munu gleyma þeirri huggun og hjálp, þeirri hönd, sem íslenzka kirkjan rétti þeim í þjóni sínum þar ytra .... Teldi ég ekkert minni en hörmulegt að hún væri svipt þeim möguleika og þá um leið ekki síður íslenzkir þegnar sviptir þeirri hjálp, sem enginn gæti látið þeim í té á neitt svipaðan hátt .... Þórður Möller (sign.) yfirlæknir, Kleppi. . . . í huga þeirra, sem þurfa að leita af landi brott til lækn- inga, hlýtur ætið að búa ótti og von við komandi tíma. Skyldu þeir fá að sjá maka, börn, for- eldra, systkini og aðra ástvini? Skyldu þeir fá bót meina sinna eða verða þeir alltaf upp á aðra komnir, sjúkir að meira eða minna leyti? Af eigin reynslu veit ég, hverja þýðingu starf séra Jón- asar Gíslasonar hefur. Það er enginn einmana í ókunnu landi, sem ha ns nýtur við. Það öryggi, sem íslenzkir sjúklingar hafa hjá honum mega þeir ekki missa né að- standendur þeirra. Áhyggjur framtíðarinnar verða léttari við að kynnast glaðværð hans og alúð. Allir hljóta að vita, hve and- legt ástand sjúklinga hefur mik ið að segja í baráttu við erfiða sjúkdóma. Ég er búin að sjá og reyna, hvernig séra Jónas er ætíð boðinn og búinn til hvers konar þjónustu, jafnvel til að kaupa sígarettur eða hvað ann- að, sem mann vanhagar um .... Freydís Laxdal (sign.) Þórunnarstræti 123, Akureyri. í dagblöðum í Reykjavik hafa nokkrir áhugamenn birt ávarp til almennings um, að ákveðið sé að efna til almennrar fjár- söfnunar til þess að halda prests starfinu áfram þetta ár í trausti þess, að embættið verði aftur tekið upp á launaskrá ríkisins næsta ár. Ávarpið er m. a. undirritað af biskupi íslands, herra Sigur- birni Einarssyni; Þórði Möller, yfirlækni á Kleppi; Eysteini Jónssyni, fyrrverandi ráðherra; Ragnhildi Helgadóttur, alþingis manni og auk þess 5 öðrum þekktum áhrifamönnum í Reykjavík. Kirkjumálaráðherra hefur einnig lýst sig mjög fylgjandi þessu máli. Biskup hefur tilkynnt í dag- blöðum, að biskupsskrifstofan, prestarnir í Reykjavík og dag- blöð taki á móti fjárframlögum. Til hagræðis fyrir þá, sem búa hér á Akureyri og í ná- grenni og vilja veita þessu máli lið, taka prestar bæjarins og skrifstofur blaða á móti fjár- framlögum og liggja þar frammi söfnunarlistar til móttöku fram lögunum. Það, sem mestu máli skiptir er, að söfnunin verði almenn, en ekki hvað hver einstaklingur gefur mikið. Smáupphæðir, 10 kr., 25 kr. eða 100 kr. gera stór- upphæð, ef margir eru gefend- urnir. Ymsir einstaklingar hér hafa heitið þessu málefni góðum stuðningi nú þegar. Við, sem undirritum þessa blaðagrein, væntum þess, að Akureyringar leggi sig fram um að styrkja þetta starf, svo það falli ekki niður. Séra Birgir Snæbjömsson (sign). Séra Pétur Sigurgeirsson (sign). Björgvin Jörgensson (sign). Freydís Laxdal (sign). - SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). Blaðinu hafa borizt þær fregnir af þeim, að þær hafi verið mjög til fyrirmyndar, án víns og að mestu án reykinga. Þjóð- legur fróðleikur var þar um hönd hafður, t. d. farið með skennntilega sagnaþætti um gamla atburði og ný kvæði frumflutt. Eldri og yngri blönd- uðu þar geði, gagnstætt því sem algengt er nú, þegar fólk kem- ur saman til að skemmta sér. Öll skemmtiatriði voru heima- fengin. — Kvöldvökurnar voru haldnar í Sólgarði við vaxandi aðsókn. - Tekst að gera Hörgá að laxveiðiá? (Framhald af blaðsíðu 1). Laxastigi hefur verið settur í Selárfoss. í stjórn félagsins eru: Þor- steinn Þorsteinsson, Ásmundur Jóhannsson, Halldór Ólafsson, Jón G. Ágústsson og Guðjón Njálsson. □ SVAVA S. ÞORSTEINSDÓTTIR, Laugalandi, andaðist 1. maí að Elliheimilinu Skjaldarvík. — Jarð- aríörin fer fram frá Glæsibæjarkirkju mánudaginn 6. maí kl. 1.30 e. h. Oddviti Glæsibæjarhrepps. Dóttir mín og systir okkar, ÓLAFÍA ÞORVALDSDÓTTIR, kennari, andaðist að Laugum þann 30. apríl. — Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 7. maí kl. 1.30 e. h. Elísabet Friðriksdóttir og dætur. - Innanlandsáætlun Flugfélags íslands Ö o (Framhald af blaðsíðu 8) flugferðir alla daga. Til Sauðár króks eru ferðir alla virka daga. Til Patreksfjarðar verður flogið á mánudögum miðvikudögum og föstudögum. Til Hornafjarð- ar verður flogið á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum. Til Fagurhóls- mýrár á fimmtudögum og sunnudögum. Flugferðir frá Akureyrí. Eins og undanfarna mánúði verður önnur DC-3 flugvél fé- lagsins staðsett á Akureyri og mun hún halda uppi áætlunar- ferðum milli staða norðanlands. Frá Akureyri verður flogið sem hér segir: Til Raufarhafnar og Þórshafnar á mánudögum, mið vikudögum og föstudögum. Til Egilsstaða á mánudögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum og til ísafjarðar á miðvikudögum. í sambandi við áætlunarferðir Flugfélags ís- lands innanlands eru á Vestur- og Austurlandi, svo og að nokkru á Norðurlandi áætlun- arbílferðir til kaupstaða í ná- grenni viðkomandi flugvalla. Þessari starfsemi hefur verið komið á með góðri samvinnu Póstmálastjórnarinnar, viðkom andi flutningafyrirtækja á hin- um ýmsu stöðum og Flugfélags íslands. Þessar bifreiðasamgöng ur í sambandi við flugferðir Flugfélagsins hafa gefið góða raun, en allar upplýsingar um þær veita skrifstofur og um- boðsmenn Flugfélags íslands. (Fréttatilkynning) Sigtryggur Símonar- son mjólkurbílstjóri (Framhald af blaðsíðu 5). stálinu. Ég þóttist greina, þegar þetta fór fram hjá mér, án þess ég fyndi annað en magnleysið og að þetta hyrfi út. Á samri stundu jafnaði ég mig. Um myrkfælni var ekki að ræða. Rétt á eftir kom kunningi minn í tóftina til mín. Og draumum afneitar þú alveg? Nei, mann dreymir hitt og þetta eins og gengur. En fæst af því virðist markvert. Þó minnist ég þess að mig dreymdi eina nótt þann draum, að ég þóttist staddur í kirkjugarði og sá opna gröf. Var sá draumur undra skýr. Ég sagði föður mín- um drauminn. Hann sagði mér þá, að sig hefði dreymt svipað- an draum sömu nóttina. Mun- urinn var sá, að gröfin var ekki fulltekin og upp úr henni kom málmplata, þakin letri, sem hann ekki gat lesið. Hann lét svo ummælt, að við yrðum þess eflaust varir þegar 'þessir draumar rættust. Faðir minn varð bráðkvaddur tveim eða þrem dögum síðar. Nokkuð að siðustu, Sigtrygg- ur, um lífið og tilveruna? Aðfluttur maður einn, langt að kominn, í okkar sveit undr- aðist það, að bændur réttu hvor öðrum hjálparhönd í stað þess að eiga önnur og misjöfn skipti. Við erum rólyndir, Eyfirðing- arnir, og njótum þess flestir að lifa í sátt og samlyndi. Ég held að fátt sé manni meiri gæfa en lifa í sátt við umhverfi sitt og samferðafólk. Þá ætti að vera meiri von til þess, að mönnum lærist að meta og njóta hinna miklu gjafa lífsins í miklu rik- ara mæli en margir annars gefa sér tíma til, segir Sigtryggur Símonarson að lokum, og þakka ég svör hans. E. D. SJÓNARHÆÐ. Verið velkomin á samkomu okkar n. k. sunnu dag kl. 5. — Ræðumaður: Jögvan Purkhús. FRÁ HJALPRÆÐIS- HERNUM. Sunnudag- inn kl. 8,30 e. h. verð- ur kveðju-samköma fyxir kaptein Ingrid Olsen. — Sunnudagaskóli kl. 2 e. h. Heimilissamband mánudag- inn kl. 4 e. h. -— Velkomin. — Hj álpræðisherinn. ST. GEORGS - GILDIÐ. Fundurinn er í Hvammi mánudaginn 6. maí, kl. 8,30 e. h. — Nýir félagar vel- komnir. — Stjórnin. Leikfélag Akureyrar ÓVÆNT HEIMSÓKN eftir J. B. PRIESTLEY Leikstjóri: GÍSLI HALLDÓRSSON Sýningar laugardag og sunnudaa;. Aðgöngumiðasala dag- lega kl. 2—5 e. h. TIL SOLU: LANDROVER diesel, árgerð 1963. Ekinn 94.500 km. Birgir Jónasson, Laugum. Sími um Breiðumýri. TIL SÖLU: Chevrolet vörubifreið, árgerð 1953. Jóhannes Kristjánsson, Helgamagrastræti 44 Sími 1-24-09 TIL SÖLU: 10 hjóla GMC trukkur, árg. 1948 Ford F—100 pic-up 1959 Hy-Mas traktorsgrafa, árgerð 1965 Uppl. í síma 2-11-31. VERÐ FJARVERANDI maí — ágúst. Staðgengill í maí og júní: Brynjólfur Ingvarsson. Viðtalstími á stofu minni kl. 13—14.30, nema laugardaga í maí 13—13.30. Sími utan við- talstíma 11041. — Staðgengill í júlí og ágúst: Guðmundur T. Magnússon. Til viðtals á stofu minni í mínum venjulega við- talstíma. Heimasími 21363. —• Halldór Halldórsson. MINJASAFNIÐ á Akureyri verður opið fyrst um sinn á sunnudögum kl. 2—4 e. h. Á öðrum tímum tekið á móti skóla- og áhugafólki ef óskað er. Sími safnsins er 1-11-62 og sími safnvarðar 1-12-72. ÓVÆNT HEIMSÓKN. — Sjón- ur með þessu nafni var frum- sýndur á fimmtudaginn var í leikhúsi Akureyrar. Umsögn bíður næsta blaðs. Höfum til sölu flestar ár- gerðir af nýlegum bílum. VW. ’61, ’62, ’63, ’64, ’65 Cortina ’64, ’65, ’66 Moskv. ’60, ’61, ’62, ’63, ’64, ’65, ’66 Taunus ’62, ’63, ’65, ’66 Skoda ’60, ’61, ’62, ’63, ’64, ’65, ’66 Opel ’60, ’62, ’64, ’65, ’66 Opið 3-6. Kennaratalið, Bréfabók Guðbrands biskups, Árferði á íslandi í 1000 ár Tímaritið Perlur I—II, Sunnudagsblað Tímans I—V, óinnb. og innb. VERZL. FAGRAHLÍÐ Sími 1-23-31 BÁTUR TIL SÖLU 18 feta. Upplýsingar hjá Sverri Leóssyni, sími 1-28-41. Sendisveinn óskast Helzt eins árs ráðning. ÞÓRSHAMAR H.F. - Varalilutaverzlun FÁNASTENGUR fyrirligg jandi, 6 m. langar, verð kr. 1350,00 ODDI H.F. - Sími 2-1244

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.