Dagur - 22.05.1968, Blaðsíða 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJOFN
LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 22. maí 1968 — 22. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Haínarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Erum samfrosin við Norðurpólinn
Gunnarsstöðum, Þistilfirði 21.
niaí. Enn er ekkert rót á ísnum.
Sumir eru hissa á því, að hann
skuli ekki reka frá landi. En við
erum víst orðin samfrosta við
Norðurpólinn og er þráseta íss-
ins þá skiljanleg. Veður hefur
verið gott síðustu daga, en enn-
þá er snjórinn, sem fyrr setti
niður á þessu sumri, ekki allur
horfinn, enda frost á hverri
nóttu.
Fyrir hálfum mánuði sýndi
Leikfélag Þistilfjarðar Þorlák
þreytta og síðar sýndi Leikfélag
Þórshafnar Sælt er það hús.
Aðsókn var ágæt á báðar sýn-
ingarnar og undirtektir góðar.
Sauðburður er aðeins í byrj-
un og hefst fyrir alvöru seinni
part vikunnar. O. H.
Samvinnufryggingar og Andvaka
Á AÐALFUNDI Samvinnu-
trygginga og Líftryggingafélags
ins Andvöku 10. þ. m. kom m. a.
fram:
Heildartekjur Samvinnutrygg
inga námu á árinu 1967 kr. 219
millj., sem var 10% aukning.
Brotizt inn á Hjalteyri
í SÍÐUSTU VIKU var brotist
inn í síldarverksmiðjuna á Hjalt
eyri og stolið nokkru af tækjum
á verkstæði verksmiðjunnar.
Aðkomu'bátur lá um þetta leyti
á Hjalteyri og féll grunur á þá,
sem á honum voru. Voru þeir
teknir til yfirheyrslu, játuðu
þeir á sig verknaðinn og skil-
uðu þýfinu.
Skemmdarverk voru framin
á nýbyggingu M. A., einnig
voru skemmdar vörur til plast-
gerðar á Oddeyrartanga. □
"SSS
Heildartjón, sem bætt voru,
námu 179 millj. kr., sem var
nokkuð lægri upphæð hlutfalls
lega en árið áður. Reksturs-
kostnaður var 14.71% af iðgjöld
um. Nettóhagnaður varð rúm-
lega hálf milljón, eftir að endur
greiddur hafði verið tekjuaf-
gangur til tryggingartakanna,
nær 2 millj. kr. Endurgreiðslur
af tekjuafgangi Samvinnutrygg
inga eru þá orðnar tæpar 65
milljónir króna. Bónusgreiðslur
til bifreiðaeigenda fyrir tjóna-
lausar tryggingar námu 28
millj. kr. árið 1967.
(Framhald á blaðsíðu 4).
Sauðburður stendur nú sem hæst en hvergi er gróður kominn.
(Ljósm.: E. D.)
Hvað fá imglingarnir að gera?
YFIR 40 manns, sem áður störf
uðu í Tunnuverksmiðjunni
komu á vinnumarkaðinn á Ak-
ureyri í fyrradag. Forstjóri
Vinnumiðlunar í bænum sagði,
að erfitt væri að koma þeim
öllum í atvinnu. Vega- og brúar
LITLAR BREYTINGAR A ISNUM
SÍÐUSTU DAGA hafa litlar
breytingar orðið á hafísnum hér
við land, enda hægviðri. fsinn
er kominn suður fyrir land allt
á móts við Skeiðarársand. Aust
firðir eru flestir lokaðir af ís og
siglingar norð-austur fyrir land
útilokaðar en torfær hin vest-
ari leiðin. Bjarndýr sást á Norð
firði, út á ísnum í fyrradag.
Síðustu daga hefur verið
hlýrra í veðri og í gær bárust
þær fréttir, að á nokkrum stöð-
um norðan og austan hefði ís-
inn gisnað og jafnvel myndast
auðar rennur með löndum
fram. □
vinna væri með minnsta móti,
hraðfrystihús U. A. og Niður-
suðuverksmiðjan gætu ekki
bætt við sig fólki, eins og stund
um og framkvæmdir bæjarins
myndu vart nægar. Á vegum
bæjarins vinnur nú nefnd, sem
hefur athugað sérstaklega at-
vinnumál unglinga á gagnfræða
skólaaldri og veit blaðið ekki
um niðurstöður þeirra athug-
ana. Ein samkvæmt lauslegum
fregnum munu 2 af hverjum 5
14—16 ára nemendum í Gagn-
fræðaskólanum vera atvinnu-
lausir, og munu hafa óskað að-
stoðar við vinnuleit. í Reykja-
vík og Hafnarfirði hafa þessi
mál verið leyst að nokkru með
forgöngu bæjar- og borgaryfir-
valda. Verður ekki annað séð,
en að þess sé hins fyllsta þörf
hér. En ekki er séð, að vinnu-
þörfinni verði fullnægt, eins og
BIFREIÐMJÖLDINN 1958-1967
KOMNAR eru í Hagtíðindum
út skýrslur um fjölda skráðra
bifreiða hér á landi ár hvert á
10 ára tímabilinu 1958—1968.
Hefur bifreiðafjöldinn í árslok
verið þessi:
Ár 1958 — 18807 bifreiðar
— 1959 — 20256 —
— 1960 — 21621 —
— 1961 — 23300 —
— 1962 — 25485 —
— 1963 — 29224 —
— 1964 — 31924 —
— 1965 — 34959 —
— 1966 — 39278 —
— 1967 — 42117 —
Þetta eru talandi tölur um
það, hve mjög þörfin fyrir fjár-
framlög til vega hefur aukizt á
þessu tíu ára tímabili, og hve
fávíslegt er af stjórnarvöldun-
um að afsaka sig með því að
vitna í vegafjáruppliæðir fyrr á
tímum. □
útlitið er nú, þótt málið verði
eflaust tekið til athugunar í
bæjarstjórn. Vinna unglinga
var í fyrra mjög lítil þótt það
væri minna áhyggjuefni þá. Þá
var enn allgóð atvinna og eftir-
vinna hafði þá ekki verið klippt
af, eins og nú hefur víðast verið
gert.
Þess er að vænta, að bæjar-
yfirvöldin og öðrum takist vel
í baráttunni við mesta böl ung-
menna, atvinnuleysið. Hin
brennandi spurning er: Hvað fá
unglingarnir að gera í sumar?
Ær bera -
hryssur kasta
Blönduósi 20. maí. Ærnar bera
og hryssurnar kasta í björtu
veðri en svölu þessa síðustu
daga. Bændur munu margir
orðnir heylitlir og sumir hey-
lausir.
Isinn er kominn inn með
Vattarnesi. Svolítið veiða menn
af rauðmaga og grásleppu og
silungs hefur orðið vart við
fjörur.
í ráði er að Kaupfélag Skag-
strendinga sameinist okkar fé-
lagi. Það hefði átt að vera búið
fyrir löngu. O. S.
HÆGHI UMFERÐ
NÆSTKOMANDI SUNNUDAC, 26. MAÍ
Sigluf jarðarkaupstaður 50 ára
Siglufirði 21. maí. Á mánudag-
inn átti Siglufjarðarkaupstaður
50 ára afmæli og 150 ára afmæli
sem verzlunarstaður. Af þessu
tilefni hélt bæjarstjórnin hátíða
fund í kvikmyndahúsi bæjar-
ins. Á þeim fundi var einróma
samþykkt, að hátíðaliöldin í til-
efni þessa tvöfalda afmælis,
skuli fram fara um fyrstu lielgi
júlímánaðar. Verður þá boðið
hingað mörgum gestum. Meðal
gesta verða fulltrúar frá vina-
bæ Siglufjarðar í Danniörku,
Herning.
Þá var ákveðið, að gefa út
sögu staðarins í bókarformi,
sem Ingólfur Kristjánsson rit-
höfundur hefur þegar tekið
saman. Kemur bókin væntan-
lega út um það leyti, sem há-
tíðahöldin fara fram.
Enn var samþykkt að koma
upp gufubaðstofu við sundlaug-
ina. Þá samþykkti bæjarstjórn-
in að afhenda íþróttafélögum
kaupstaðarins Hól, bæði jörð og
mannvirki. Er staðurinn eink-
um ætlaður til að efla vetrar-
íþróttirnar.
Að hátíðafundi loknum var
14 ára Siglfirðingum og eldri
boðið til kaffidrykkju í Hótel
Höfn en börnum skemmt í Bíó-
húsinu. J. Þ.
Á SUNNUDAGINN ganga lög
um hægri umferð á íslandi í
gildi, kl. 6 að morgni. Bækling-
ur með leiðbeiningum fyrir Ak
ureyri sérstaklega verður bor-
inn um bæinn.
Fundur um umferðarmálin
var haldinn í Borgarbíói í fyrra
kvöld. Var þar fullt hús. Bæjar
stjóri, Bjarni Einarsson, flutti
ávarp, Valgarð Briem flutti
ræðu en Þóroddur Jóhannsson
sýndi umferðarmyndir og
skýrði. Gísli Ólafsson yfirlög-
regluþjónn var fundarstjóri.
Áður hefur verið dreift leið-
beiningapésa um H-umferðina
og eru menn hvattir til að lesa
hann rækilega, svo og umferðar
leiðbeiningar þær, sem hér á
Akureyri eru útgefnar og áður
var minnzt á. □